Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 63
Skipholti 35 sími 588 1955
King
Koil
Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð!
Verðdæmi:
King áður kr. 173.800 nú kr. 121.700
Queen áður kr. 127.200 nú kr. 89.000
ALLIR fjórir íslensku skákmenn-
irnir hafa farið vel af stað á Evrópu-
mótinu sem nú stendur yfir í Ohrid,
en það er eitt sterkasta
opna skákmót sem
haldið hefur verið.
Keppendur eru 204, þar
af 142 stórmeistarar.
Stigahæsti keppandinn
er Mikhail Gurevich
sem er í 17. sæti heims-
listans, en 40 keppend-
ur eru með 2.600 skák-
stig eða meira og
einungis örfáir kepp-
endur eru með minna
en 2.300 stig. Hannes
Hlífar er í 5.–33. Staða
Íslendinganna er þessi
að loknum fjórum um-
ferðum:
5.–33. Hannes Hlífar
3 v.
131.–168. Bragi Þorfinnsson, Jón
Viktor Gunnarsson, Stefán Krist-
jánsson 1½ v.
Frammistaða ungu skákmannanna
þriggja er athyglisverð í ljósi þess, að
þeir hafa verið að tefla við mjög sti-
gaháa skákmenn og meðalstig and-
stæðinga þeirra eru vel yfir 2.500.
Þeir Jón Viktor og Stefán sigruðu
báðir stórmeistara í fjórðu umferð.
Árangur Íslendinganna hefur verið
sem hér segir í fyrstu umferðunum:
Hannes Hlífar Stefánsson (2570 SM)
1. Farid Abbasov (Azerb. 2439 AM) 1 v.
2. Zlatko Basagic (Slóv. 2345 AM) 0 v.
3. Davor Rogic (Króatía. 2457 AM) 1 v.
4. Oliver Brendel (Þýsk. 2389 FM) 1 v.
Stefán Kristjánsson (2371)
1. Artashes Minasian (Arm. 2554 SM) 0 v.
2. Vadim Malakhatko (Úkr. 2524 SM) 0 v.
3. Michal Konopka (Tékkl. 2507 AM) ½ v.
4. Alexei Bezgodov (Rússl. 2543 SM) 1 v.
Jón Viktor Gunnarsson (2366 AM)
1. Igor-Alexandre Nataf (Fra. 2552 SM) ½ v.
2. Andrei Istratescu (Rúm. 2561 SM) 0 v.
3. Evgenij Miroshnichenko (Úkr. 2520 AM) 0
v.
4. Roman Slobodjan (Þýsk. 2529 SM) 1 v.
Bragi Þorfinnsson
1. Dimitri Reinderman (Holl. 2539 SM) ½ v.
2. Marc Dublan Narciso (Spánn 2544 AM) ½
v.
3. Jacek Gdanski (Pól. 2528 SM) ½ v.
4. Jean-Marc Degraeve (Fra. 2589 SM) 0 v.
Hannes tefldi vel í fyrstu umferð
og sigraði andstæðinginn örugglega:
Hvítt: Hannes Hlífar
Stefánsson
Svart: F. Abbasov
(Azerbajsjan)
Enski leikurinn
1.c4 e5 2.g3 Rf6
3.Bg2 d5 4.cxd5 Rxd5
5.Rf3 Rc6 6.0–0 Be7
7.Rc3 Rb6 8.a3 --
Hannes lenti í ógöng-
um með svörtu menn-
ina í skák við rúmenska
stórmeistarann Mihai
Marin á ólympíuskák-
mótinu í Istanbul í
fyrra. Skákin tefldist
þannig: 8.d3 0–0 9.a3
Be6 10.b4 a5 11.b5 Rd4
12.Bb2 Bb3 13.Dc1 Be6
14.Hb1 f6 15.Rxd4 exd4
16.Re4 Ra4 17.Ba1 Ba2?! 18.Dc2
Bxb1 19.Hxb1 Rb6 20.Rc5 Bxc5
21.Dxc5 Hb8 22.Bxd4 Dd7 23.Bc3 a4
24.Ba5 Hfe8 25.Bf3 He5 26.Db4 De6
27.Bxb6 Dxb6 28.d4 Hee8 29.Dxa4
Ha8 30.Dc4+ Kh8 31.a4 og hvítur
vann í 58 leikjum, því að svartur get-
ur enga björg sér veitt í þessari
óvirku stöðu.
8...0–0 9.b4 He8 10.d3 a5 11.b5
Rd4 12.Rd2 --
Það eru aðeins örfá dæmi um það,
að hvítur taki peðið á e5, enda varla
mikið upp úr því að hafa. Nýjasta
skákin: 12.Rxe5 Bf6 13.f4 Bxe5 (14. --
De7 15. e3 Bxe5 16. fxe5 Dxe5 17.
Hb1 a4 o.s.frv.)14.fxe5 Hxe5 15.e3
(15. a4 Bg4) 15. -- Rxb5 16.Re4 Rd5
17.a4 Rd6 18.Rxd6 Dxd6 19.d4 He8
20.Df3 Rf6 21.Ba3 Dd8 22.d5 Bd7
23.Df4 c6 24.e4 Db6+ 25.Kh1 Dd4 og
svartur vann í 40 leikjum (Seckar-
Stajcic, Topolcianky 1994).
Í furðulegri skák, Lobron-A. Soko-
lov, Bern 1994, vann svartur í 38
leikjum, eftir 12.Bb2 c5 13.Rd2 Dc7
14.e3 Rf5 15.Rd5 Rxd5 16.Bxd5 Rh6
17.Rc4 Bf6 18.f4 Bh3 19.fxe5 Bxf1
20.exf6 Had8 21.b6 Dd7 22.e4 Be2
23.Dd2 Dh3 24.Re3 Dh5 25.He1 Bf3
26.fxg7 Rg4 o.s.frv.
12...a4 13.e3 --
Eftir 13.Bb2 Bf8 14.e3 Re6 15.Dc2
Rc5 16.d4 exd4 17.exd4 Dxd4! 18.Rd5
Dd3! 19.Dxd3 Rxd3 20.Rxc7 Rxb2
21.Rxe8 Bf5! 22.Rc7 Hd8 23.Re4 Hc8
24.Hfc1 R2c4! vann svartur í 48 leikj-
um í skákinni Jóhann Hjartarson-Ív-
antsjúk, Linares, 1989).
13, -- Re6 14.Rf3 f6
Svartur getur ef til vill leikið
14...Bf6!?, með hugmyndinni 15. Re4
Ha5 o.s.frv.
15.d4! exd4 16.Rxd4 Rxd4 17.exd4
f5?
Þessi leikur leiðir svart í vandræði,
sem hann á enga leið út úr. Hann
hefði átt að leika 17...Bf8, t.d. 18.Be3
Ha5 19.De2 Be6 20.Hfe1 Rd5 21.Bd2
Bf7 22.Re4 o.s.frv., eða 17. -- Bd6 18.
Re4 Ha5 19. Rc5 Hxb5 20. Rxb7 Dd7
21. Rxd6 cxd6 o.s.frv.
18.Bf4 Bf6 19.Hc1! --
19...g5
Svartur á varla um annað að velja,
t.d. 19...Dd7 20.Df3 g5 21.Rd5 Rxd5
22.Dxd5+ Dxd5 23.Bxd5+ Kh8
24.Bxc7, eða 19...Bxd4 20.Bxc7 Dxc7
(20...Df6 21.Dd2 Kh8 (21...Rc4 22.Da2
Df7 23.Bd5) 22.Hfd1 Bc5 23.Rd5
Rxd5 24.Hxc5 Rxc7 25.Hxc7)
21.Dxd4 Dd8 22.Rd5 Rxd5 23.Dxd5+
Be6 24.Dxb7 með yfirburðatafli fyrir
hvít.
20.Be5 Bxe5 21.dxe5 Dxd1
22.Hfxd1 Hxe5
Eða 22...Be6 23.Bxb7 Hab8 24.Bc6
Hed8 25.f4 gxf4 26.gxf4 Rc4
27.Hxd8+ Hxd8 28. Rxa4 Rxa3 29.
Rc5 með mun betra tafli fyrir hvít.
23.Rd5 Be6
Eftir 23...Rxd5 24.Bxd5+ Be6
25.Bxe6+ Hxe6 26. Hxc7 b6 27. Hdd7
er svarta staðan ekki burðug.
24.Rxc7 Hc8
Eða 24...Hb8 25.Hd6 og hvítur
vinnur.
25.Bxb7 Hb8 26.Rxe6 Hxb7
Eða 26. -- Hxe6 27. Hc7 og svartur
á peði minna, án þess að hafa nokkuð
mótspil.
27.Hd8+ Kf7 28.Rxg5+ Kg7
29.Hc6 Rd7 30.Re6+ Kf7 31.Rc7
He1+ 32.Kg2 Re5 33.Hc5 f4
Svartur gerir síðustu tilraunina til
að flækja taflið, en staðan er gjörtöp-
uð hjá honum.
34.gxf4 Rg6 35.f5 Re7 36.Hh8 Kg7
37.Ha8 Kf6 38.Re8+
og svartur gafst upp.
Kasparov lagði Kramnik og
sigraði í Astana
Heimsmeistarinn fyrrverandi,
Gary Kasparov, hefur enn einu sinni
sýnt hvílíkum baráttuvilja hann býr
yfir. Hann var hálfum vinningi á eftir
Vladimir Kramnik þegar ein umferð
var til loka ofurskákmótsins í Astana
í Kazakstan og spennan var í hámarki
því þeir tefldu saman í lokaumferð-
inni. Ekki minnkaði spennan þegar
Kramnik, sem hafði svart, beitti enn
eina ferðina Berlínarvörninni í
spænskum leik. Fram að þessu hafði
Kramnik beitt þessari vörn fimm
sinnum án þess að Kasparov tækist
að brjóta hana á bak aftur. Að þessu
sinni tókst Kasparov loksins að vinna
sigur í þessari byrjun sem kostaði
hann heimsmeistaratitilinn á síðasta
ári, en úrslitin nú réðust í tímahraki.
Jafnframt var þetta fyrsti sigur
Kasparovs á Kramnik í heil fjögur ár!
Það er auðvelt að ímynda sér ánægju
Kasparovs með þennan árangur.
Lokastaðan á mótinu:
1. Gary Kasparov 7 v.
2. Vladimir Kramnik 6½ v.
3. Boris Gelfand 5½ v.
4.–5. Alexei Shirov, Alexander Mo-
rozevich 4½ v.
6. Darmen Sadvakasov 2 v.
Úr mótaáætlun
Skáksambandsins
7.6. Meistaramót Skákskólans
Góð byrjun
Íslendinganna á
Evrópumótinu
SKÁK
O h r i d , M a k e d ó n í a
1.–15.6. 2001
SKÁK
EVRÓPUMÓTIÐ Í SKÁK
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
SVEIT Norðurlands eystra sigraði í
Kjördæmamóti Bridssambands Ís-
lands sem fram fór á Hótel Hvann-
eyri um síðustu helgi. Mjög mjótt
var á munum milli sigursveitarinnar
og Sunnlendinga og voru úrslit ekki
ljós fyrr en við endurtalningu stiga
rétt fyrir verðlaunaafhendinguna.
Var í fyrstu talið að Sunnlendingar
hefðu unnið mótið með einu stigi, síð-
an að þeir hefðu unnið á jafnri stiga-
tölu, en í lokin kom í ljós að Norð-
lendingarnir með Stefán
Vilhjámsson sveitarforingja í farar-
broddi höfðu unnið með einu stigi.
Norðlendingarnir byrjuðu mótið
mjög vel og tóku forystuna strax í
upphafi. Fyrir þá var viljinn allt sem
þurfti. Hann var til staðar og það var
ekki fyrr en í lokaumferðinni sem
þeir áttu í örðugleikum en þeir höfðu
það með seiglunni.
Lokastaða efstu kjördæma:
Norðurland eystra 482
Suðurland 481
Reykjavík 472
Norðurland vestra 436
Austurland 400
Mótið fór í alla staði mjög vel
fram. Aðstæður á Hvanneyri eru til
fyrirmyndar sem og allt mótsskipu-
lag. Keppnisstjóri var Sveinn Rúnar
Eiríksson.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sveit Norðurlands eystra sigraði í Kjördæmamóti Bridssambands Íslands eftir hörkukeppni við Sunnlendinga
en mótið fór fram á Hvanneyri um sl. helgi.
Norðurland
eystra sigraði í
Kjördæmamótinu
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
Kristín er blaðafulltrúi
Bridsfélags Siglufjarðar
Umsjónarmanni þáttarins urðu á
slæm mistök í bridsþættinum sl.
sunnudag. Þar birtist ítarleg um-
fjöllun Kristínar Bogadóttir um
vertíðarrlok bridsfélagsins í Siglu-
firði og sagt að þau kæmu frá Jóni
Sigurbjörnssyni.
Jón var fréttaritari bridsfélags-
ins á árum áður en er nú fluttur suð-
ur og býr í Kópavogi. Umsjónar-
maður biður Kristínu sem og aðra
sem hlut eiga að máli afsökunar á
sofandahættinum. Þess má og geta
að fréttir Kristínar eru mjög ítar-
legar og góðar auk þess sem oftar
en ekki kryddaðar fréttum úr bæj-
arlífinu sem setur kjöt á beinin en
einfaldar lýsingar af bridsúrslitum
vilja oft verða þurr lesning.
Ég ítreka afsökunarbeiðni mína
til Kristínar og vona að hún verði
sem lengst blaðafulltrúi Bridsfélags
Siglufjarðar.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Þriðjudaginn 29. maí mættu 23
pör í tvímenninginn og urðu lokatöl-
ur efstu para þessar í N/S:
Ólafur Ingimundars. – Jón Pálmason 256
Sigríður Pálsd. – Eyvindur Valdimarss. 250
Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddss. 245
Hæsta skor í A/V:
Ásta Erlingsd. – Sigurjón H. Sigurjónss. 246
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 238
Ingibjörg Halldórsd. – Kristín Karlsd. 233
Eysteinn Einarss. – Kristján Ólafss. 233
Sl. föstudag mætti 21 par og þá
urðu úrslit þessi:
Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 249
Alfreð Kristjánss. – Birgir Sigurðsson 241
Auðunn Guðmundss.Bragi Björnss. 229
Hæsta skor í A/V:
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 290
Guðm. Magnússon – Þórður Jörundss. 259
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 244
Meðalskor var 216 báða dagana.