Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 64
DAGBÓK
64 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Nippon Maru kemur og
fer í dag, Brúarfoss
kemur í dag, Dettifoss
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bootes, Olshana og Orl-
ik komu af veiðum í
gær. Brúarfoss og
Markús J. koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud.
frá kl. 14–17. S.
551 4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. í mánuði, frá
kl. 14–17, s. 552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040 frá kl.
15–17.
Mannamót
Aflagrandi 40
Verslunarferð í Hag-
kaup, Skeifunni, í dag,
miðvikudag. Farið frá
Grandavegi kl. 10 með
viðkomu í Aflagranda,
komið til baka kl. 12.
Kaffi og meðlæti í boði
Hagkaupa. Fimmtudag-
inn 21. júní verður farið
í Þjóðleikhúsið að sjá
söngleikinn „Syngjandi
í rigningunni“, skráning
í afgreiðslu Aflgranda
40, sími 562-2571. Miðar
óskast sóttir fyrir 10.
júní.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–16.30
klippimyndir, harð-
angur, kl. 13 smíða-
stofan opin, trésmíði/
útskurður og spilað, kl.
9 hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–16 al-
menn handavinna og
fótaaðgerðir, kl. 9.30
morgunkaffi/dagblöð,
kl. 10 banki, kl. 11.15
matur, kl. 13 spiladagur,
kl. 15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting og
verslunin opin til kl. 13,
kl. 11.30 matur, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl 11, píla
kl.13.30 Dagsferð á
Njáluslóðir fimmtudag-
inn 7. júní nk. Nálgist
miðana sem fyrst, rúta
fráHraunseli kl. 12.
Þriggja daga ferð til
Hornafjarðar hefur ver-
ið breytt, verður farið 3.
júlí. Nálgist farseðla
sem fyrst í Hraunseli.
Orlofið á Hótel Reyk-
holti íBorgarfirði 26.
ágúst. Skráning hafin,
allar upplýsingar í
Hraunseli, sími 555-
0142.
Félag eldri borgara
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10 til 13. Matur í há-
deginu. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Hlemmi
kl. 9.45.
Línudanskennsla Sig-
valda kl. 19.15.
Ath: Farin verður dags-
ferð 10. júní austur í
Mýrdal, farið verður
m.a. niður að Görðum í
Reynishverfi, upp í
Heiðardal, að Skógum
og Vík. Leiðsögn: Ólöf
Þórarinsdóttir. Skrán-
ing hafin. Dagsferð 13.
júní. Nesjavellir-
Grafningur-Eyrarbakki.
Húsið – Sjóminjasafnið
á Eyrarbakka, skoðað.
Leiðsögn: Tómas Ein-
arsson og Pálína Jóns-
dóttir. Skráning hafin.
19.-22. júní. Trékyll-
isvík. 4 dagar, gist á
Valgeirsstöðum í Norð-
urfirði, svefnpokapláss.
Ekið norður Strandir.
Farið í gönguferðir og
ekið um sveitina. Ekið
heimleiðis um Trölla-
tunguheiði eða Þorska-
fjarðarheiði. Skráning
hafin. Leiðsögn Tómas
Einarsson. Silfurlínan
er opin á mánudögum
og miðvikudögum frá kl.
10 til 12 fh. í síma 588-
2111. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10 til
16 í síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postulíns-
málun og fótaaðgerð, kl.
13 böðun kl. 13.30 sam-
verustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9 til 16.30 vinnustof-
ur onar, frá hádegi
spilasalur opinn kl.
13.30 til 14.30, banka-
þjónusta. Veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Sumardagskráin er
komin. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb. Sund-
hópurinn ásamt Gjá-
bakka og Gullsmára
fyrirhuga ferð um Vest-
firði 16. til 19. júlí.
Ferðaáætlun er að fá í
afgreiðslu félags-
heimilanna. Skráning
fyrir 15. júní.
Hraunbær 105. Kl.
9–16.30 bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 9–16.45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 10 sögustund,
kl. 13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9 dagblöð og
kaffi, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
postulínsmálun, kl.
11.45 matur, kl. 14.30
kaffi. Dagsferð verður
farin fimmtudaginn 7.
júní. Lagt af stað kl. 10.
Viðkoma í Eden í
Hveragerði. Farið verð-
ur á Njáluslóðir, Njálu-
safn skoðað með leið-
sögn Arthúrs Björgvins
Bollasonar. Ekið um
Stokkseyri og Eyr-
arbakka, Eyrar-
bakkakirkja skoðuð. Sr.
Úlfar Guðmundsson
tekur á móti hópnum.
Kvöldverður og dans á
Hótel Örk. Sundlaug og
heitir pottar fyrir þá
sem vilja. Leið-
sögumaður Nanna
Kaaber. Upplýsingar og
skráning í síma 562-
7077. Ath. takmarkaður
miðafjöldi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
almenn handmennt, kl.
10 morgunstund, fótaað-
gerðir og bókband, kl.
11.45 matur, kl. 13.30
bókband, kl. 13 kóræf-
ing, kl. 14.30 versl-
unarferð, kl. 14.30 kaffi.
Barðstrendingafélagið,
Hverfisgötu 105, 2. hæð,
spilað í Konnakoti í
kvöld kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Bandalag kvenna í
Reykjavík fer í sína ár-
legu gróðursetningaferð
í Heiðmörk 12. júní.
Farið frá Hallveig-
arstöðum kl. 17. Vin-
samlega tilkynnið þátt-
töku fyrir 7. júní í s.
552-3955, Halldóra, s.
553-3454, Ágústa, s.
553-3439, Björg.
Skógræktarfélag Mos-
fellsbæjar fer í gróð-
ursetningaferð í
Brynjudal miðvikudag-
inn 6. júní, farið verður
frá versluninni 11-11 kl.
18.30.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
Ellimálanefnd Þjóð-
kirkjunnar og Elli-
málaráð Reykjavík-
urprófastsdæma efna til
sumardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti.
Boðið er til fimm daga
dvalar í senn og raðast
þeir þannig: 25. til 29.
júní, 2. til 6. júlí og 9. til
13. júlí. Allar nánari
upplýsingar eru veittar
á skrifstofu Elli-
málaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma f.h.
virka daga í síma 557-
1666.
Brúðubílinn
Brúðubílinn verður í
dag kl. 14 við Fannafell,
og á morgun fimmtudag
7. júní kl. 10 við Austur-
bæjarskóla og kl. 14 við
Barðavog.
Í dag er miðvikudagur 6. júní, 157.
dagur ársins 2001. Imbrudagar. Orð
dagsins: En þeir sögðu: „Trú þú á
Drottin Jesú, og þú munt verða
hólpinn og heimili þitt.“
(Post. 16, 31.)
KÆRA Ólöf. Í Morgun-
blaðinu laugardaginn 2.
júní sl. var frétt, sem sagði
frá könnun sem þú hafðir
gert í lokaverkefni þínu frá
lyfjafræðideild Háskóla Ís-
lands. Þar er talað um áhrif
náttúruefna á mannslíkam-
ann. Allir vita að það sem
við látum ofan í okkur hefur
mismunandi áhrif. Og á það
við hvort sem um er að
ræða fæðu eða lyf. Einnig
er það rétt að nú eru marg-
ir sem nota fæðubótarefni
og ýmiskonar náttúrulyf til
að megrast eða til að láta
sér líða betur. Þú nefnir
fimm tegundir. Sú fyrsta af
þeim er Herbalife. Þetta
efni er viðurkennt af Lyfja-
eftirliti ríkisins og inniheld-
ur ekki ólögleg efni. Fyr-
irtækið hefur starfað í
rúmlega tuttugu ár í yfir
fjörutíu löndum og hefur
reynst mjög vel. En það eru
nokkur atriði sem hafa ber í
huga. Í fyrsta lagi er þetta
ekki læknislyf. Í öðru lagi
ef þetta hentar ekki, þá er
30 daga skilafrestur á efn-
inu. Í þriðja lagi á þinn
læknir að fá að vita hvað þú
notar. En í síðasta lagi ber
fólki að fara eftir leiðbein-
ingum þeim sem gefnar
eru. Það eru ekki mörg efni
sem þjóna þríþættum til-
gangi og vil ég nú benda á
þau.
Í megrun á fólk ekki að
svelta sig. Raunhæfur ár-
angur er 3-500 gr á viku.
Mælt er með að fólk stundi
hreyfingu, drekki frekar
vatn en sæta drykki, neyti
hollrar fæðu og reyni eins
og kostur er að lifa heil-
brigðu lífi. Nú segja margir
þegar ég hætti að taka
Herbalife, þá fékk ég öll
kílóin aftur.
Í mörgum tilfellum er
það kannske rétt, en megr-
un er breyting á lífsstíl sem
veltur á fólkinu sjálfu. Vilj-
inn verður að koma inn-
anfrá. Í öðru lagi er Herba-
life hjálpartæki og við
vitum að þjóðin er óðum að
þyngjast. En eitt er það
vandamál sem má ekki
gleyma. Það eru þeir sem
geta ekki fitnað hvað sem
reynt er. Varan er þá notuð
sem viðbót við daglega
fæðu til þess að byggja upp
líkamann. Á umbúðunum
er vandlega merkt innihald
vörunnar.
Þriðja atriðið sem ég
nefni er svokallað við-
haldsprógramm. Þá er var-
an notuð til að láta sér líða
vel. Nákvæmlega eins og
maður borðar morgunmat-
inn sinn. Í grein þinni er
talað um lífshættuleg ein-
kenni, sem eru talin hafa
stafað af neyslu þessara
efna. Hver þekkir ekki að
hafa fengið eða heyrt um
ofnæmi af ýmsum tegund-
um lyfja, fæðuofnæmi og
ýmislegt fleira. Að sjálf-
sögðu á fólk að leita læknis
og fá úr því skorið hvað
valdi óþægindunum. Þessi
litla grein er ætluð til þess
að varpa ljósi á efnið
Herbalife. Tilgangur þess
er sá að hjálpa fólki til að
komast til betri heilsu. Hér
fyrr á öldum notaði fólk
jurtirnar úr náttúrunni
með góðum árangri.
Herbalife er eingöngu unn-
ið úr jurtum og hefur verið
þróað af færustu sérfræð-
ingum undir ströngu eftir-
liti. Ég er sammála þér
Ólöf, barnshafandi konur
og konur með barn á brjósti
ættu ekki að nota nein lyf
eða önnur efni nema í sam-
ráði við sinn lækni.
Sigríður
Aðalsteinsdóttir.
Tapað/fundið
Stafræn myndavél
tapaðist
STAFRÆN myndavél tap-
aðist mánudaginn 4. júní sl.
á leiðinni Blómaval – Garð-
heimar – Birkihlíð – Mörk.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 557-5121.
Silfurermahnappur
tapaðist
ERMAHNAPPUR úr silfri
með blárri plötu tapaðist
laugardaginn 19. maí sl.
Hann gæti hafa tapast í
Leikhúskjallaranum,
Nonnabitum eða þar á milli
og út Hafnarstræti. Vegleg
fundarlaun. Finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 820-5858.
Dýrahald
Persneskur högni
hvarf að heiman
FJÖGURRA ára persnesk-
ur högni hvarf frá Engi-
hjalla 21 sunnudaginn 3.
júní sl. Hann er með dökkt
skott, lappir og haus en ljós
á skrokkinn.
Hann hefur aldrei farið
út áður og er sennilega
skelfingu lostinn í henni
stóru veröld. Ef einhver
getur gefið einhverjar upp-
lýsingar um ferðir hans,
vinsamlega hafið samband í
síma 554-5479 eða 698-
5474.
Grænn páfagaukur í
óskilum
GRÆNN kvenkyns páfa-
gaukur fannst á bílastæði
við Skipholt 23. maí sl. upp-
lýsingar í síma 697-8286.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Áhrif nátt-
úruefna á
líkamann
Víkverji skrifar...
JAZZDAGAR í Garðabæ var yfir-skrift nokkurra tónleika þar í bæ
nýverið og var Víkverji svo heppinn
að álpast til að sækja eina tónleikana.
Voru það tónleikar að kvöldi til í
Kirkjuhvoli þar sem Guitar Islancio
var í aðalhlutverki og fékk tríóið Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara til
liðs við sig.
Tríóið skipa valinkunnir tónlistar-
menn, þeir Björn Thoroddsen gítar-
leikari sem líka var listrænn stjórn-
andi jazzdaganna, Gunnar Þórðar-
son gítarleikari og Jón Rafnsson
kontrabassaleikari. Þessir heiðurs-
menn fluttu fram að hléi lög úr ýms-
um áttum sem færð höfðu verið í
jazzbúning, þjóðlög, eigin lög og ým-
islegt fleira. Tríóið er þekkt fyrir
jazzútsetningar sínar á þjóðlögum,
sagði í efnisskránni og þeir félagarn-
ir hafa víða farið um lönd og álfur
með þennan gjörning.
Ekki þarf að orðlengja að þeir
héldu tónleikagestum góða skemmt-
un þetta kvöld. Ekki spilltu léttar og
alvörulausar kynningar Björns for-
kólfs með innskotum og athuga-
semdum hinna. Þarna eru á ferð
feikna vandaðir tónlistarmenn. Það
sýndu þeir með tökum sínum á efn-
inu og samhæfingu og nákvæmni eft-
ir því sem Víkverji greindi. Ekki síð-
ur var unun að heyra hversu mikil
blæbrigði hægt er að kreista út úr
þessum hljóðfærum en það gera ekki
aðrir en þeir sem kunna með þau að
fara. Fór þetta allt mjög vel í mann-
skapinn sem fagnaði þeim félögum
og þakkaði fyrir góðar stundir.
En ekki var allt búið því eftir hlé
bættist Sigrún Eðvaldsdóttir sem
sagt í hópinn og kom hún í fyrsta sinn
fram með tríóinu. Vonandi ekki það
síðasta því hún sýndi að hún átti vel
heima í þessari grúppu. Samsetning-
in er líka skemmtileg, fiðla, gítarar
og bassinn. Áfram var það sama uppi
á teningnum að öll fóru þau á kostum
og var eins og Sigrún hefði verið með
þeim piltum alla tíð. Allt féll þetta
saman eins og vera bar. Sigrún hlýt-
ur hér með að verða tekinn sem full-
gildur félagi í jazztríóið sem verður
þá líklega kvartett úr þessu
x x x
EITT hól og eitt nöldur er hæfi-legur dagskammtur. Víkverji
fékk á dögunum sendan miða um
kynningarafslátt á bílaþvotti. Gat
verið áhugavert að losna við verkið
einu sinni þótt hann reyni oftast nær
sjálfur að myndast við að þvo farar-
tækið. Á litprentuðum sneplinum var
útmáluð gagnsemi nýjustu, full-
komnustu og fljótvirkustu bíla-
þvottavélar landsins á 500 og 600 kall
fyrir fólksbíl og jeppa.
Stöðin heitir Spikk & span, uppá
hálfgerða útlensku eins og kækurinn
er í dag og átti maður eiginlega ekki
annað eftir en að henda öllu frá sér
og rjúka til að fá þvottinn góða.
Vandinn var bara sá að hvergi stóð
hvar á landinu Spikk og span er til
húsa. Sjón Víkverja er enn nokkuð
sæmileg til lesturs en þessar upplýs-
ingar fundust ekki á miðanum góða
og þrátt fyrir að honum væri brugðið
undir betra ljós og rýnt í hann af
nokkru afli.
Víkverja féllust því hendur og lufs-
aðist til að skola af bílnum sjálfur
eins og áður og mun kannski gera
enn um sinn. Spikk og span varð því
af kynnum sínum við farartæki Vík-
verja. Hann geymir þó miðann ennþá
því kannski fær hann að vita um síðir
hvar fyrirtækið felur sig.
LÁRÉTT:
1 stilltur, 4 hæfileikinn, 7
skautum, 8 þor, 9 vesæl,
11 boli, 13 frásögn, 14
vondum, 15 not, 17 kipp-
ur, 20 liðamót, 22 bitar,
23 hindra, 24 kássu, 25
sefaði.
LÓÐRÉTT:
1 vafasöm, 2 borguðu, 3
víða, 4 draug, 5 kenna, 6
hafna, 10 hárið, 12 málm-
ur, 13 lítil, 15 grípum, 16
sveru, 18 festa lauslega,
19 ís, 20 lof, 21 borðar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 táplítill, 8 svæði, 9 remma, 10 nót, 11 afinn, 13
aurar, 15 fjörs, 18 aggan, 21 van, 22 óraga, 23 garms, 24
liðsinnir.
Lóðrétt: 2 áræði 3 lúinn, 4 terta, 5 lemur, 6 Esja, 7
maur, 12 nær, 14 ugg, 15 flór, 16 örari, 17 svans, 18 ang-
an, 19 garði, 20 nasa.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16