Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 70

Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 70
FÓLK Í FRÉTTUM 70 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKILVÆGI þess að búa sig vel undir tónleika verður ekki undir- strikað nægilega. Gullna reglan er að forðast að fara á tónleika til að upp- götva eitthvað nýtt, því það leiðir bara til þess að það gengur í skrokk á sjálfum sér yfir að hafa ekki kunnað að meta tónleikaupplifunina nægi- lega vegna kunnáttuleysis. Maður á að leitast við að hlusta á eins mikið af efni sveitarinnar fyrir tónleikana og hægt er, til að koma sér í rétta skap- ið. Slíkt á sérstaklega við um tormelt neðanjarðarbönd eins og Blonde Redhead. Ég passaði vel upp á þetta og það hafði sitt að segja um ánægjulega upplifun. Andrúmsloftið í salnum var fullt af spennu og eftirvæntingu þeg- ar komið var að aðalnúmeri kvölds- ins, Kazu Makino söngkona og annar gítarleikari Blonde Redhead rykkti sér inn á sviðið, klædd hvítum kjól í líkingu við það sem Björk myndi klæðast. Hún gægðist hálfgeðveikis- lega út um svarta tjásuklippinguna eins og draugastelpan úr Ring og hóf upp ójarðneska hundablístruröddina undir dúndrandi trommuleik Simone Pace, annars helmings ítalska tví- buragengisins, meðan hinn helming- urinn, Amadeo Pace, tillti hrokknum kollinum upp að Kazu. Blessunar- lega var annar strákanna búinn að safna skeggi fyrir tónleikana því ekki hefði verið á það bætandi að hafa þá tvo Shining- tvíburana þarna hlið við hlið. Sjaldan hefur eins kynæsandi hljómsveit sést á sviði Laugardals- hallarinnar. Ekki það að Kazu sé það snoppufríð en hún var með eitthvað í gangi þetta kvöld sem erfitt er að staðsetja…ég býst við að það sem ég sé að reyna segja sé að nú skilji ég hvað Catherine Zeta-Jones er að hugsa. Smærri tónleikasalur hefði hentað betur en það tókst samt að myndast rafmagnað samband milli Blonde Redhead og áhorfenda.Vafa- laust hafa þær undirtektir sem lagið „In Particular“ hlaut þetta kvöld komið þeim á óvart en ástæðan er að lagið komst á einhvern undraverðan hátt í spilun á hinni annars hripleku stöð Radíó-X (þar hef ég Kidda í Hljómalind sterklega grunaðan um að eiga hlut að máli).En það var ekki bara óþarflega stórt húsnæði sem hefði mátt breyta, því hún var líka ævintýraleg, heimska Laugardals- hallarmanna að kveikja ljósin og opna út áður en Blonde Redhead var búinn að ljúka sér af, þökk sé ein- hverri nýrri löggjöf um að tónleika- hald sem þetta megi ekki teygja sig lengur en til 12. Svona lagað er fár- ánlegt, og verður að breyta ef við viljum ekki verða okkur til skammar fyrir framan erlenda gesti. Tæknin var aðeins að stríða upp- hitunarsveitunum. Sérstaklega lentu þeir mætu menn í Úlpu illa í því, þar sem mjög illa heyrðist í söngvaran- um og dálítið prumpuhljóð í bassan- um í seinni lögunum. Í það minnsta hljómaði það þannig fyrir þá sem stóðu fremst. Þarna var ekki við þá að sakast og Úlpa voru hiklaust besta hljómsveitin þetta kvöldið, að Blonde Redhead undanskilinni. Piltarnir í Kuai spiluðu líka þarna. Tónlistin þeirra er kröftug, frumleg og þeir allir feiknalega góðir hljóð- færaleikarar en það verður að teljast nokkuð undarlegt að hljómsveit með aðeins 2-3 tónleika að baki sé fengin til að hita upp í Laugardalshöllinni. Spilar þar stærstan þátt aðdáun Kidda og sú jákvæða umfjöllun sem þeir hafa hlotið í fjölmiðlum undan- farið. Og að mestu leyti eru þeir vel að þessu lofi komnir. Þeir ættu þó að varast að missa sig ekki út í of mikið skrúð, því mörkin milli sýndar- mennsku og að sýna hvað í sér býr eru óljós og auðvelt að yfirstíga þau. Gítarsólóin og ofhlaðinn stíllinn hentar vel þessu gamaldags gítar- rokki en þeir mættu leggja meiri vinnu í lagasmíðarnar. Maus skörtuðu hanakambsrökuð- um söngvara og nóg af nýjum lögum eftir því sem ég best gat heyrt. Fyrstu tvö þeirra voru nokkuð góð en restin var fremur flöt og einsleit. Það er ekki sanngjarnt að afgreiða Maus svona snögglega en fólk veit hverjir þeir eru og plássið hérna er að þverra. Kiddi „Kanína“ eigandi tónlistar- verslunarinnar Hljómalindar stóð sig rosalega þessa helgi og vikurnar sem leiddu upp að henni. Hann tók alla fjölmiðla traustataki og leysti hið erfiða verk af hendi að fá mistæka fjölmiðlamenn til að framreiða réttar upplýsingar handa neytendum. Hljómsveitirnar voru skringilega valdar saman en allt gekk þetta upp menningarlega. Og ég vona að tón- leikarnir hafi einnig gengið upp fjár- hagslega, því vel heppnaðir tónleikar eru góðir fyrir Kidda og það sem er gott fyrir Kidda er gott fyrir okkur hin. Morgunblaðið/Arnaldur Tónleikar Blonde Redhead voru magnaðir. Morgunblaðið/Arnaldur Kuai-liðar í ham. TÓNLIST H l j ó m l e i k a r LAUGARDALSHÖLLIN Upprisuhátíð Hljómalindar í Laug- ardalshöll. Fyrri tónleikar, fóru fram laugardaginn 2. júní 2001. Fram komu Úlpa, Maus, Kuai og Blonde Redhead. Auk þess voru Propellerheads með skífuskank. „Takk fyrir að mæta“ Ragnar Egilsson ÞAÐ voru listamenn úr afar ólík- um áttum sem voru samankomnir á seinni hluta Upprisuhátíðar Hljóma- lindar. Mæting hafði verið í dræmara lagi kvöldinu áður en nú var Höllin ásættanlega full. Kannski var lykill- inn að góðri mætingu falinn í fjöl- breytninni en á hljómseðli mátti finna blágras, síðrokk, bítlarokk og píanó- popp. Og kannski, sem er nú minn grunur, var fólk komið til að athuga þessa umtöluðu sveit Sigur Rós, sem hefur víst verið að gera það gott er- lendis að undanförnu. Gras er íslensk blágresis/sveita- tónlistarsveit skipuð sjóuðum tónlist- armönnum. Þarna mátti sjá söngkon- una fjölhæfu Tenu Palmer, Magnús Einarsson, Jón Skugga og Dan Cass- idy. Mættur var einnig KK en þetta voru víst fyrstu tónleikar hans með sveitinni. Skemmst er frá því að segja að liðsmenn fóru vel með þetta al-amer- íska form og virtust hafa gott eyra fyrir því hvað þarf að gera til að ná fram réttu stemningunni. Ljúfsárar ballöður og stuðmiklir slagarar voru settir í eina sæng, Tena Palmer söng vel og af innlifun og oft og tíðum læsti sveitin sig saman í frábærum sam- leik. Nú spyr maður bara: hvenær fær maður að sjá fyrstu nýbylgju- sveitatónlistarhljómsveit landsins? Það er til lag, eða verk eins og þetta er kallað í „sígildu“ tónlistinni, eftir Gavin nokkur Bryars sem kall- ast Jesus Blood Never Failed Me Yet. Það er um fjörutíu mínútna langt og byggist upp á síendurteknu vísu- broti, sem sungið er af ónafngreind- um róna frá London. Undir vísubrot- inu er strengjatónlist sem undirstrikar flutninginn og er sama stefið endurtekið aftur og aftur og aftur og aftur. Og útkoman er afar áhrifamikil verður að segjast. Einhvern veginn þannig hljóma nýjar tónsmíðar Sigur Rósar, sem gestir fengu m.a. að kynnast um kvöldið. Fyrsta lagið vatt sig t.a.m. áfram hægt og rólega. Í byrjun ekkert nema lágt og dulúðugt hljóð úr hljóm- borðum, sem minnti á hálfkæft óp. Einfalt lag og sveimkennt með hæg- fara stíganda sem boraði sig inn smátt og smátt, líkt og verk Bryars. Svipaða sögu er að segja um annað lag sveitarinnar. Annað sem vakti athygli er að Sig- ur Rós er að fullu orðin sveit fjögurra tónlistarmanna – og ein sköpunarleg heild. Þannig léku t.d. Jónsi gítarleik- ari, Georg bassaleikari og Orri Páll trommuleikari allir á orgel í fyrsta laginu. Það eru fáar sveitir jafn niður- sokknar í tónlistina á sviði og Sigur Rós og þetta kvöld var engin und- antekning. Hápunktur tónleikanna var tilfinningaþrunginn (þ.e. meira en venjulega) flutningur á „Dauða laginu“ (vinnutitill). Einnig var gam- an að sjá skipuleggjanda tónleikana, Kidda í Hljómalind, leika sem gest í kröftugu lokalaginu. Alex Gifford annar helmingur tæk- nófúnks/háhryns-sveitarinnar Pro- pellerheads kom mér í opna skjöldu. Ég hafði eðlilega gert ráð fyrir plötu- snúðsmennsku en annað kom í ljós. Í stað þess var kominn yngri og mjórri Randy Newman, sem lék skondnar píanóballöður og reytti af sér brand- ara á milli laga. Í lokin fengu áhorf- endur svo að heyra órafmagnaða út- gáfu af Propellerheadssmelli, og var þá félagi Giffords kominn á tromm- urnar með honum. Undarlegt og stórskemmtilegt. Aðalbandið, Hljómar, luku kvöld- inu svo með stuttri en þéttri dagskrá. Slagarar eins og „Fyrsti kossinn“, „Bláu augun þín“, „Þú og ég“, „Heyrðu mig góða“ og „Ég elska alla“ fengu allir að njóta sín. Meðlimir virtust sjálfir skemmta sér hið besta; virtust jafnvel hissa á þeim gríðar- góðu móttökum sem þeir fengu frá ungum sem öldnum. Á einum stað var kallað „Rammstein hvað !?“ og vakti sú athugasemd mikla kátínu, jafnt hjá áhorfendum sem Hljóma- mönnum. Gaman var svo að heyra innblásinn flutning á laginu „I Dońt Care“, sem var á sínum tíma flutt af Thor’s Ham- mer, en það var nafn Hljóma er þeir reyndu fyrir sér erlendis með útgáfu á nokkrum smáskífum. Þess má til gamans geta, að smáskífa sú sem áð- urnefnt lag prýðir er í 24. sæti á lista sem tónlistartímaritið Mojo birti á dögunum yfir eftirsóttustu sýr- urokkssmáskífur heims! Á heildina litið gott kvöld þar sem allir listamenn stóðu sig með prýði. Og ekki orð um það meir. Morgunblaðið/Sverrir Alex Gifford gantaðist. Morgunblaðið/Arnaldur Hljómar léku á als oddi. Morgunblaðið/Arnaldur Jónsi með bogann á lofti. TÓNLIST H l j ó m l e i k a r LAUGARDALSHÖLL Upprisuhátíð Hljómalindar í Laug- ardalshöll. Seinni tónleikar, fóru fram sunnudaginn 3. júní 2001. Fram komu Gras, Sigur Rós, Alex Gifford og Hljómar. „Rammstein hvað!?“ Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.