Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 72
72 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT frá því George Harrison
lagði hinu nýfædda og nauðum
stadda ríki Bangladesh lið, með
feiknastórum hljómleikum árið 1971,
hafa tónleikar til styrktar góðum og
gildum málefnum verið sjálfsagður
fylgifiskur dægurtónlistar. Tónleik-
arnir síðasta föstudagskvöld fylgdu
sannarlega þeim formerkjum og
fagnaðarefni að menn sjái sér enn
hag í því að leggja góðum málefnum
lið. En tónleikarnir voru einnig kjörið
tækifæri til úttektar á poppgeiranum
íslenska þar sem margir forkólfa
hans voru þarna samkomnir.
Þær raddir hafa heyrst, sem telja
þessari stefnu lítinn gaum gefinn í
„alvarlegri“ umræðu og á hana sé
blásið sem helbert froðusnakk. Slíkt á
að sjálfsögðu ekki að líðast enda
stefnan angi af þeirri sköpun sem
fram fer innan dægurtónlistar og því
gagnrýnisverð eins og annað –
styrktar- og skemmtihátíð sem þessi
jafn góður vettvangur til slíkrar um-
fjöllunar og hvað annað.
Mætingin hefði nú mátt vera betri
þetta kvöld en það er fátt leiðinlegra
en að horfa upp á hálftóma Laugar-
dagshöll. Áhorfendahópurinn saman-
stóð annars að langmestum hluta af
krökkum á aldrinum 14 – 15 ára, og af
þeim voru 80% stúlkur. Athyglisvert
hlutfall.
DJ Rampage reið á vaðið og spilaði
hressandi hipp-hopp uppi á sviði af
plötuspilurum. Kynnar kvöldsins,
þeir Sveppi (nettur!) og Simmi frá
Popp Tíví mættu svo galvaskir og
gerðu sitt besta til að halda uppi stuði
á milli atriða, með nokkuð endaslepp-
um árangri á stundum.
Fyrsta hljómsveit kvöldsins, And-
lát, stakk nokkuð í stúf við aðrar
sveitir kvöldsins. Þessir sigurvegarar
Músíktilrauna leika níðþungt muln-
ingsrokk og fólk streymdi unnvörp-
um úr salnum í fyrsta lagi. Það kom
mér á óvart hversu margir urðu þó
eftir og lögðu forvitnir við hlustir.
Margt ungviðið greinilega með opinn
huga og er það vel.
Ballsveitin Gos var næst og var hin
hressasta. Frumsamda lagið var þó
þunnur pappír; einhvers konar rokk-
aður Skímó. Ensími var næst og líkt
og Andlát féllu þeir sem drumbur við
rass. Þeir félagar notuðu tækifærið til
að prufukeyra ný lög; nokkuð þung-
lamaleg og ekki eins grípandi og á
síðustu breiðskífu, BMX.
Þá var komið að Írafári og þar var
komin sýnikennsla í fagmannlegum
ballfræðum en sveitin er afar þétt og
örugg, leidd af hinni sjarmerandi
söngkonu Birgittu. Sprengingar og
læti; meira að segja útgáfa af „Du
Hast“ með þýsku Íslandsvinunum í
Rammstein. Og allir sungu með!
Evróvisjónfararnir knáu í Two
Tricky stigu því næst á svið og léku
hið frábæra lag „Angel“. Áður en þeir
félagar hófu annars ágætan leik sinn
heyrðust nokkur baul úr salnum.
Barnalegt.
Næst var komið að óvæntum gesti
en atriði hans vakti mikla lukku og
var hiklaust það ánægjulegasta sem á
boðið var upp á þetta kvöldið. Á svæð-
ið var mættur maður, einsamall með
kúrekahatt á höfði, og auk þess með
síða svarta hárkollu og gerviskegg.
Var hann kynntur sem Mika Thrury
(ekki viss á stafsetningu hér) og gerði
hann sér lítið fyrir og söng lagið
„Don’t Leave Me This Way“ á þýsku!
Lag sem Thelma Houston flutti fyrst
manna en Communards gerðu síðar
vinsælt. Afar fjörugt og skemmtilegt.
Sóldögg voru þéttir og góðir – vel
rokkaðir – og renndu sér í gegnum
firnasterkan pakka, stútfullan af
smellum sem m.a. innihélt lögin:
„Friður“, „Ljós“ og „Hvort sem er“.
Páll Óskar klikkar seint og undir-
tektir létu ekki á sér standa er hann
stormaði inn á sviðið, í rosastuði eins
og venjulega. Topp-skemmtikraftur
hann Páll.
Önnur sýnikennsla í fagmannlegum
ballfræðum fólst í framkomu Butt-
ercup, mikið stuð og mikið gaman. Í
Buttercup liggja gamlar þungarokks-
rætur sem sýndu sig í tökulögunum
„Killing In The Name Of“, „Partíbær“
(!?) og „Du Hast“ (í annað sinn!)
Einar Ágúst mætti með kassagítar
við annan mann og tók þrjú lög, þar á
meðal ágætt temalag hátíðarinnar
„Frelsi“. Er hér var komið sögu var
hins vegar stuðið dottið niður að
mestu og vart nema reytingur fram-
an við sviðið. Líkt og fólk væri farið
að týnast heim enda klukkan farin að
nálgast miðnætti.
Land og synir liðu fyrir þetta, en
Hreimur er framúrskarandi fyrirliði
og kláruðu þeir sitt skammlaust.
Hljómburður í Höllinni var ekki til
að hrópa húrra fyrir; bassinn vana-
lega yfirgnæfandi og því venjulega til
lýta. Stemningin um kvöldið var
ásættanleg, reis hæst um miðbikið en
dalaði svo eins og fyrr segir. Kannski
var þetta of stór biti í einu fyrir þenn-
an markhóp. En vænn biti umfram
allt og framtakið virðingarvert.
Poppgeirinn
sýnir sig
TÓNLIST
H l j ó m l e i k a r
Poppfrelsi í Laugardalshöllinni -
tónleikar til styrktar SÁÁ, föstu-
dagskvöldið 1. júni 2001. Fram
komu DJ Rampage (Robbi Rapp),
Andlát, Gos, Ensími, Írafár, Two
Tricky, Mika Thrury, Sóldögg, Páll
Óskar, Buttercup, Einar Ágúst og
Land og synir.
LAUGARDALSHÖLL
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Arnaldur
Kátínan var mikil uppi við sviðið.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hrafn Thoroddsen, gítarleikari og söngvari hljómsveitarinnar Ensími.
Morgunblaðið/Arnaldur
Birgitta úr Írafári geislaði á
sviðinu.
Morgunblaðið/Arnaldur
Bergsveinn, söngvari
Sóldaggar, í stuði.
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. . Vit nr. 234 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 240.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Vit nr. 237Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.. Vit nr. 236.
Sá snjalli er
bxunalaus! Undrahundurinn
SPOT slær í
gegn í frábærri
grínmynd í anda
Big Daddy
POKEMON 3
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 231
Sweet november
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr. 233
Miss Congeniality
Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Vit nr. 207
Nýi stíllinn
keisarans
Sýnd kl. 3.50. Ísl tal Vit nr. 213
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
27 þúsund áhorfendur
Pottþétt gamanmynd frá strákunum sem
gerðu There´s Something About Mary og
Me Myself & Irene.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
eftir Þorfinn Guðnason.
Lalli Johnslli
Sýnd kl. 10.30.
Hausverk.is
Mbl
Sýnd kl. 5.45.
Sýnd kl. 8 og
10.30.
Yfir 7000 áhorfendur
Sýnd kl. 6.
Síð sýn
Sá snjalli er
buxnalaus!
Undrahund
urinn SPOT
slær í gegn
í frábærri
grínmynd í
anda Big
Daddy
Loksins alvöru tryllir sem fær hárin til að rísa. Með hinum magnaða Morgan Freeman (Kiss the Girls, Seven). Hér er
komið sjálfstætt framhald myndarinnar Kiss the Girls.
Rafmögnuð spenna frá byrjun til enda. Hefur verið líkt við Seven og Double Jeopardy. Aðrir leikarar: Monica Potter
(Con Air, Patch Adams) og Michael Wincott (Romeo Is Bleeding, Alien: Resurrection).
Leikstjóri: Lee Tamahori (The Sopranos, Once Were Warriors).
Svikavefur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.45.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
Á ÍSLANDI ER KOMIN
27 þúsund áhorfendur
strik.is
1/2
Hugleikur
KVIKMYNDIR.is
JULIA ROBERTS BRAD PITT
THEMEXICAN
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 14