Morgunblaðið - 09.06.2001, Page 1
128. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 9. JÚNÍ 2001
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hóf í gær uppstokkun ríkis-
stjórnar sinnar eftir kosningasigur-
inn í fyrradag. Robin Cook hættir
sem utanríkisráðherra en við af hon-
um tekur Jack Straw, sem áður sá
um innanríkismálin. David Blunkett
flytur úr ráðuneyti menntamála í
innanríkisráðuneyti. Gordon Brown
heldur fjármálaráðuneytinu eins og
við var búizt en hann hafði yfirum-
sjón með kosningabaráttu Verka-
mannaflokksins. John Prescott miss-
ir hið stóra ráðuneyti sitt, sem náði
til umhverfismála, samgöngu- og
héraðsmála, en heldur varaforsætis-
ráðherratitlinum.
Á meðan Verkamannaflokkurinn
hampaði Blair sem auðnuríkasta
flokksleiðtoganum í sögu flokksins
hófst í röðum brezka Íhaldsflokksins
rimma um hver taka skuli við af
William Hague sem tilkynnti í gær
um afsögn sína úr flokksleiðtogasæt-
inu. Með sigrinum er Blair kominn á
stall sem fyrsti forsætisráðherra
Verkamannaflokksins sem tekst að
tryggja flokknum öruggan þing-
meirihluta tvö kjörtímabil í röð.
Þegar talningu var lokið í nærri
öllum kjördæmum var staðan sú að
Verkamannaflokkurinn hafði tryggt
sér 167 sæta þingmeirihluta. 413
hinna 659 þingmanna sem sæti eiga
á brezka þinginu þetta kjörtímabil
eru úr Verkamannaflokknum, 166 úr
Íhaldsflokknum, 52 frjálslyndir
demókratar en afgangurinn úr öðr-
um flokkum eða óháðir.
Tíðindum þótti sæta á Norður-Ír-
landi, að minnstu munaði að David
Trimble, leiðtogi helzta flokks sam-
bandssinna, UUP, og forsætisráð-
herra n-írsku heimastjórnarinnar,
missti þingsæti sitt, en hann hélt því
eftir tvítalningu atkvæða í kjördæmi
hans í Belfast. Flokkur hans missti
eitt þingsæti yfir til róttækra sam-
bandssinna í flokki Ians Paisleys og
tvö til lýðveldissinna í Sinn Fein.
Kjörsókn var óvenjulítil, eða rétt
um 60%, sem þýðir að um 18 af hin-
um 45 milljónum manna sem voru á
kjörskrá mættu ekki á kjörstað.
Þetta er minnsta kjörsókn sem um
getur frá því árið 1918. Í síðustu
þingkosningum, árið 1997, var kjör-
sóknin 71,6%.
Myntbandalagsaðild
strax á dagskrá
„Þetta er einstakur og sögulegur
sigur fyrir minn flokk,“ sagði Blair í
ávarpi til blaðamanna fyrir utan for-
sætisráðherrabústaðinn að Down-
ing-stræti 10. „Þessi úrslit eru um-
boð til að gera umbætur og að
fjárfesta í framtíðinni, og þau eru
enn fremur skýr skilaboð um að
standa við gefin fyrirheit,“ sagði
hann.
Í kosningabaráttunni lagði Íhalds-
flokkurinn undir forystu Hagues
mikla áherzlu á að Bretland ætti
ekki að „halda pundinu“, þ.e. ekki
ganga í Efnahags- og myntbandalag
Evrópu (EMU). Innan nokkurra
mínútna frá því Hague tilkynnti um
afsögn sína féll gengi sterlings-
pundsins gagnvart Bandaríkjadal
um meira en hálft sent, og var þetta
þriðja daginn í röð sem gengið gagn-
vart dollaranum seig, en aðalástæð-
an fyrir gengissiginu er að með hin-
um afdráttarlausu kosningaúrslitum
hafa líkurnar aukizt á að Bretland
muni fljótlega ganga í myntbanda-
lagið og að þegar það gerist muni
gengi pundsins gagnvart evrunni
verða fastbundið á lægra stigi en það
er nú.
Blair, sem í grundvallaratriðum er
fylgjandi því að Bretar taki upp evr-
una, hefur heitið því að bera málið
undir þjóðaratkvæði en hann verður
fyrst að sannfæra þau u.þ.b. 70%
brezkra kjósenda sem samkvæmt
skoðanakönnunum telja enn að það
sé ekki ráðlegt.
Blair byrjar strax á upp-
stokkun stjórnarinnar
William Hague segir af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins
Lundúnum. Reuters, AP.
AP
Tony Blair fagnað við komu sína til kosningahöfuðstöðva Verkamannaflokksins í Lundúnum í gær.
Sjá umfjöllun bls. 29–30
ÍRAR settu áform Evrópusam-
bandsins (ESB) um stækkun til aust-
urs út af laginu í þjóðaratkvæða-
greiðslu sem niðurstöður voru birtar
úr í gær. Öruggur meirihluti írskra
kjósenda hafnaði
því að Írland
staðfesti Nice-
sáttmálann svo-
kallaða, endur-
skoðaðan stofn-
sáttmála ESB.
Sáttmálanum,
sem öll ESB-ríkin
15 verða að stað-
festa, er fyrst og
fremst ætlað að
búa ESB í stakk til að taka inn allt að
12 ný aðildarríki, sem flest eru í Mið-
og Austur-Evrópu.
„Sáttmálinn er búinn að vera
núna, eftir því sem ég fæ bezt séð,“
sagði Ruairi Quinn, leiðtogi írska
Verkamannaflokksins, sem er í
stjórnarandstöðu. Með þessum orð-
um lýsti hann þeim skelli sem ráða-
menn landsins hefðu fengið með
þessari niðurstöðu en þeir höfðu
mjög beitt sér fyrir því að sáttmálinn
yrði samþykktur.
Formaður atkvæðatalninganefnd-
arinnar tilkynnti síðdegis í gær, tæp-
um sólarhring eftir að kjörstöðum
var lokað, að 54% þeirra sem at-
kvæði greiddu hefðu krossað við
„nei“ og 46% við „já“. Kjörsókn var
mjög lítil, eða aðeins um 32% þeirra
2,9 milljóna manna sem voru á kjör-
skrá.
Günther Verheugen, sem fer með
stækkunarmál ESB í framkvæmda-
stjórn sambandsins, sagði hins vegar
í gær að það myndi ekki stöðva stað-
festingarferli Nice-sáttmálans þótt
Írar höfnuðu honum. „Við höldum
[ferlinu] áfram eins og ekkert hafi í
skorizt,“ tjáði hann blaðamönnum
þar sem hann var staddur í heim-
sókn í Slóveníu. Bætti hann því við
að framkvæmdastjórnin myndi taf-
arlaust hefja leit að lausn á málinu.
Stjórnin vonsvikin
„Úrslitin eru skýr, ríkisstjórnin er
mjög vonsvikin,“ sagði Bertie Ahern
forsætisráðherra Írlands á blaða-
mannafundi í Dyflinni. „Þessi niður-
staða verður samstarfsríkjum okkar
og umsóknarríkjunum áfall en leið-
togar þeirra koma saman í Gauta-
borg í næstu viku og standa nú
frammi fyrir einni hindruninni enn á
leiðinni að stækkun sambandsins,“
sagði Ahern.
Írland er eina ESB-ríkið þar sem
bera verður Nice-sáttmálann undir
þjóðaratkvæði. Hlutleysisákvæði í
írsku stjórnarskránni gerðu at-
kvæðagreiðsluna nauðsynlega.
Áfall fyr-
ir stækk-
unar-
áformin
Dublin, Brussel. Reuters, AFP.
Bertie Ahern
Írar hafna Nice-
sáttmála ESB
MIKIL kjörsókn var í forseta-
kosningunum í Íran í gær og er
umbótasinnanum Muhammad
Khatami, núverandi forseta, spáð
yfirburðasigri, allt að 75% at-
kvæða. Niðurstöður munu að lík-
indum liggja fyrir í dag.
Alls bjóða tíu manns sig fram í
embættið og samkvæmt könnun-
um fær Ahmad Tavakoli, fyrrver-
andi atvinnumálaráðherra, sem er
íhaldssamur, um 12%. Um 42
milljónir manna eru á kjörskrá og
meirihluti þeirra undir þrítugu.
Víða voru langar biðraðir við kjör-
staði og var kjördagur framlengd-
ur um tvær stundir vegna fjölda
áskorana.
Harðar deilur urðu við mosku í
höfuðborginni Teheran. Þar voru
konur, sem klæddust kufli að sið
bókstafstrúar-múslima, er vildu
hafa sérstaka biðröð fyrir karla og
konur í frjálslegri klæðum.
„Við erum einmitt að taka þátt í
kosningunum af því að við viljum
að biðraðirnar séu blandaðar,“
sagði Maryam, kona með litskrúð-
uga múslimaslæðu á höfðinu. „Að
sjálfsögðu kýs ég Khatami.“
Forsetinn er 57 ára gamall og
sigraði örugglega í kosningunum
fyrir fjórum árum. Íhaldssamir
klerkar hafa síðasta orðið í stjórn-
kerfi landsins og hafa meðal ann-
ars látið banna fjölda blaða og
fangelsað gagnrýnendur. Segja
fréttaskýrendur að ef Khatami fái
aukinn stuðning muni hann beita
sér ákafar fyrir því að lýðræði
verði eflt og dregið úr valdi bók-
stafstrúarklerkanna.
Mikil kjörsókn í kosningum í Íran
Reuters
Íranskar konur í biðröð á kjörstað í Teheran í gær.
Khatami forseta
spáð stórsigri
Teheran. Reuters, AP, AFP.