Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 24
LANDIÐ 24 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sigurður Jökull Bifreiðin er sérútbúin og hefur reynst mjög vel. ÖRYGGISÞJÓNUSTA Vesturlands tók á dögunum til notkunar nýjan sérútbúinn eftirlitsbíl. Hann er af tegundinni Opel Astra og kostaði hann ríflega tvær milljónir. Bíllinn, sem er með tveggja lítra díselvél, er sjálfskiptur og er með talstöð og útbúinn ýmsum tækjum til að laga til bráðabirgða það sem skemmist við innbrot. Arinbjörn Kúld, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, segir að bíllinn sé algjör bylting. „Við erum aðeins með þennan bíl eins og er en á honum er einn starfsmaður. Við tókum mið af þeim bílum sem Öryggismiðstöðin notast við en bíllinn var alveg sér- útbúinn hér á landi. Á honum er til að mynda leitarljós eins og á lögreglubíl- unum sem fer í 360 gráður og kemur það sér mjög vel þegar lýsa þarf upp dimm svæði.“ Aukið samstarf við lögregluna Að sögn Arinbjarnar er samstarf Öryggisþjónustunnar og lögreglunn- ar alltaf að aukast og skráir fyrirtæk- ið á hverri nóttu niður mörg bílnúmer sem lögreglan fær svo í hendur sam- dægurs. Enn fremur fylgist fyrirtæk- ið með grunsamlegum aðilum fyrir lögregluna ef hún óskar þess og í þrí- gang hefur Öryggisþjónusta Vestur- lands tekið þátt í leit með lögreglunni. Fyrirtækið þjónar í dag á fjórða tug fyrirtækja á Akranesi en eru hættir í Borgarnesi, í bili að minnsta kosti. Nýr og sér- hannaður eftirlitsbíll Akranes BÆJARSTJÓRN Ísafjarðarbæj- ar veitti Gísla Hjartarsyni leið- sögumanni og rithöfundi nýlega sérstaka viðurkenningu og fjár- framlag fyrir störf hans að kynn- ingu á Hornströndum en Gísli hef- ur í meir en þriðjung aldar verið einn athafnasamasti og kunnug- asti leiðsögumaður á svæðinu. Auk þess hefur hann ritað fjölda greina og leiðalýsinga um svæðið. Í athöfn, sem fór fram í fund- arsal bæjarstjórnar á þriðjudag, voru honum færðar þakkir fyrir vel unnin störf að kynningu á Hornströndum, sem nú eru allar innan bæjarmarka Ísafjarðarbæj- ar, og fyrir að kenna fólki að ganga um landið þannig að ekki spillist náttúran og að jafnvægi megi ráða þrátt fyrir umgang manna og eðlilega nýtingu nátt- úruauðæfa. Forseti bæjarstjórnar, Birna Lárusdóttir, stýrði athöfninni og gat þess jafnframt að hún væri með sérstaka gjöf frá Kjartani Sigmundssyni, tengdaföður sínum og Hornstrendingi, en það voru vendilega innpökkuð svartfugls- egg úr Svaðaskarði í Hornbjargi sem Kjartan hafði sótt sérstak- lega í tilefni athafnarinnar. Gísli var byrjaður um eða upp úr fermingu að fara í björgin á vorin með reyndum eggjatöku- mönnum, auk þess sem faðir hans, Hjörtur Kristjánsson frá Stapa- dal, sýndi honum staðhætti af sjó á meðan þeir drógu þorsk á færi fyr- ir landi eða notuðu bræludaga til að kanna landið, veiða silung og skjóta ref. Þessa dagana er að koma út árs- rit Útivistar, sem er helgað Horn- ströndum, og eru þar flestar greinar Gísla um svæðið, auk minningargreinar um Kristin Jónsson bónda að Dröngum sem lést á síðasta ári. Hann hefur ferðast um með ýmsum hætti, með fólk sem ber með sér allan farang- ur, í hestaferðum og ferðum þar sem bátar flytja fólk á milli staða. Varla er til sá blettur á öllum Hornströndum að Gísli hafi ekki gengið þar um og safnað vitneskju um lífshætti fólksins sem þarna bjó og býr enn. Hann er nú að mestu hættur ferðum um svæðið en ætlar þó í sumar að fara í tvær ferðir, fyrir ferðaskrifstofuna Vesturferðir, ólíkum þeirri áreynslu og svaðil- förum sem vinsælastar voru áður. Nú eru gönguleiðir léttar og frek- ar stuttar og aldrei gengið með byrðar. Þá er alltaf dvalið í góðum húsum og í Reykjarfirði, þar sem gist er í þrjár nætur, er auk þess sundlaug af bestu gerð. Í ferðinni er allt landssvæðið skoðað, siglt um Jökulfirði, gengið um Skorarheiði í Reykjarfjörð, þaðan sem gengið er og siglt um nágrennið, meðal annars er heim- sókn að Dröngum þar sem boðið er til selaveislu. Siglt er fyrir Hornstrandir, gengið á Hornbjarg, gist í Fljóta- vík og á Hesteyri og ýmist gengið eða siglt á milli. Lokapunktur ferðarinnar er svo hvalkjötsveisla á Hesteyri, ef hvalreki leyfir. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Gísli Hjartarson, í gulum Hornstrandaanoraki, ásamt Birnu Lár- usdóttur, forseta bæjarstjórnar, lengst til vinstri, Rúnari Óla Karlssyni ferðamálafulltrúa, Halldóri Halldórssyni bæjarstjóra, Bryndísi Friðgeirsdóttur bæjarfulltrúa, með henni er dóttir henn- ar Isabella Másdóttir, Kristjáni Haraldssyni, formanni atvinnu- málanefndar, og Þorleifi Pálssyni bæjarritara. Gísli Hjartar- son heiðraður Ísafjörður Á AÐALFUNDI Múlaþingsdeildar Búmanna nýverið var samþykkt áskorun til aðalstjórnar félagsins í Reykjavík um að hún endurskoði þá afstöðu sína að ekki sé unnt að fjár- festa í húsnæði á Egilsstöðum nema fjárhagsleg ábyrgð hins opinbera eða fjármálastofnana komi til. Bú- menn er húsnæðissamvinnufélag, stofnað árið 1999, og hefur það markmið að byggja og reka húsnæði fyrir eldra fólk og er með sama sniði og Búseti að öðru leyti. Félags- svæðið er allt landið. Fólk kaupir sér óafturkræfan búseturétt í íbúðum sem Búmenn útvega og eiga. Félag- ið hefur aðalstjórn í Reykjavík en stofnaðar hafa verið deildir víða um land. Meðal þeirra er Múlaþings- deild sem stofnuð var í fyrravor og nær yfir Múlaþing hið forna, frá Smjörfjöllum og suður á Djúpavog. Samkvæmt upplýsingum Péturs Guðvarðssonar, formanns Múla- þingsdeildarinnar, er félagið nú að byggja marga tugi íbúða í Reykja- vík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Suð- urnesjum, þ.á m. í Sandgerði og Garði. Einnig sé verið að undirbúa húsbyggingar í Grindavík og á Höfn í Hornafirði. Á þessum stöðum hefur ekki komið til beinna fjárhagslegra ábyrgða af hálfu sveitarstjórna eins og nú er gert að skilyrði á Egils- stöðum. Pétur segir menn afar ósátta við að Egilsstöðum skuli vera stillt upp sem áhættusamara svæði en þeim sem að framan eru talin og segir að röksemdir aðalstjórnar fyrir því séu engar. Áður hafi félagið farið fram á ábyrgðir hjá sveitarfélögum en eng- ar fengið og byggt þrátt fyrir það. Stjórn Búmanna sendi í vetur formlegt erindi til sveitarstjórnar Austur-Héraðs og fór fram á að sveitarfélagið tæki ábyrgð á 10% af þeim kostnaði sem nýr íbúi þarf að borga yfir fimm ára tímabil. „Við vonum að þeir skorist ekki undan því að byggja hér,“ segir Pét- ur. „Við erum þó svartsýnir þar sem okkur barst bréf inn á aðalfund deildarinnar frá varaformanni að- alstjórnar, Steinunni Finn- bogadóttur, um að ekkert verði byggt á Austur-Héraði nema að til komi fyrrnefndar ábyrgðir. Fram- kvæmdastjóri Búmanna, Reynir Ingibjartsson, var á aðalfundi okkar og sagðist hann ekki hafa setið þann stjórnarfund sem þetta var sam- þykkt á, enda hafi hann ekki verið boðaður. Ofan á allt annað var þetta umrædda bréf frá varaformanni félagsins skrifað á bréfhaus Guð- mundar G. Þórarinssonar sem er varamaður í stjórn Búmanna. Pétur segir að ef íbúð losnar og gengur ekki út aftur verði félagið að leysa hana til sín eftir eitt ár og að að- alstjórnin sé hrædd við að á Egils- stöðum verði ekki spurn eftir íbúð- unum. Því vilji hún hafa þessa baktryggingu. Ætlunin mun vera að koma upp varasjóði til að grípa til ef félagið þarf að leysa til sín íbúðir einhvers staðar, en hann er ekki kominn á laggirnar. Þá liggur fyrir samþykkt um að taka 1% af byggingarkostnaði í varasjóð en Íbúðalánasjóður hefur ekki viljað samþykkja þá tilhögun. Pétur segir dagljóst að það sé bjarg- fastur ásetningur stjórnar Búmanna að fá ábyrgðir hjá sveitarfélög- unum. „Þeir ætla sér að fá að minnsta kosti eitt sveitarfélag til að ganga að þessu og skapa þannig for- dæmisgildi sem þumalskrúfu á þau sem á eftir koma. Í samtali við Morg- unblaðið sagði Reynir Ingibjartsson að þetta mál sé dæmigert fyrir það þegar menn sitji á sitt hvoru lands- horninu og hætta er á að hlutir brenglist. Hann benti á að hlutverk hinna ýmsu deilda væri fyrst og fremst að kanna húsnæðisþörf og starfa með félaginu að því að afla lóða og fleira, en einstök deild tæki aldrei ákvörðun um hvar væri byggt. Múlaþingsdeildin hafi byrjað að gera könnun á svæðinu og síðan lagt til að byrjað yrði að byggja á Egilsstöðum. „Í stað þess að fá lóð og láta teikna hús og byggja sem tekur sinn tíma,“ segir Reynir, „stóð þannig á að aðili sem situr í stjórn Múlaþingsdeildarinnar og á Tré- smiðju Fljótsdalshéraðs var að byggja þriggja herbergja parhús. Deildin lagði til að húsið yrði boðið tveimur aðilum sem leitað höfðu eft- ir húsnæði. Eftir skoðun mála var niðurstaða okkar að ræða yrði málið við sveitarfélagið á grundvelli þess að félagið hefur talið útgangspunkt að framkvæmd og rekstur svona íbúða sé í sem mestu og bestu sam- starfi við hvert sveitarfélag, hvar sem það er á landinu. Við höfum leit- að eftir því að sveitarfélög gangi í einhverja takmarkaða ábyrgð en þau eru mjög treg til. Á þeim stöð- um sem Búmenn eru að byggja á og undirbúa slíkt koma sveitarfélögin til móts við félagið með verulegri fyrirgreiðslu og bakábyrgðum þótt slíkir samningar hafi ekki alltaf ver- ið formlegir. Byggja ekki á Egilsstöðum Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Aðalstjórn Búmanna telur fjárhagslega áhættu of mikla Egilsstaðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.