Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 44
MINNINGAR
44 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Mig langar til að minnast Sigrún-
ar (Rúnu) vinkonu minnar með
nokkrum orðum. Ég man svo vel
þegar við mættumst fyrst þá varst
þú ung stúlka sem komst til að vinna
í Hótel Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Við urðum strax vinkonur því þú
varst alltaf svo kát og hress. Oft fór-
um við saman í Stórugjá og á böll um
helgar. Ég man þig svo vel í hvítum
kjól með rósum, hvað þú varst fín og
það geislaði af þér lífskrafturinn.
Þau urðu mörg sumurin sem þú
vannst hér í Mývatnssveit og ávalt
hlakkaði ég til að hitta þig aftur eftir
langan vetur. Svo kynntist þú Ósk-
ari frænda mínum og þið giftuð ykk-
ur, það kom mér á óvart, því hann
var dálítið eldri. Svo fór ég burtu í
nám og stofnaði mína fjölskyldu og
þá rofnaði sambandið við þig.
Og árin liðu en við vissum alltaf
hvor af annarri. Þegar ég flutti aftur
í sveitina okkar var ég komin með 5
börn og því nóg að starfa. En leiðir
okkar lágu saman á ný- því við sung-
um báðar í kirkjukórnum. Svo fór
heilsu þinni að hraka og eftir að Ósk-
ar lést var ég daglegur gestur hjá
þér. Við spjölluðum margt og fórum
saman í bíltúr og innkaup fyrir jólin.
SIGRÚN
HALLFREÐSDÓTTIR
✝ Sigrún Hall-freðsdóttir,
Reykjahlíð 1 í Mý-
vatnssveit, var fædd
á Akureyri 28. júní
1935. Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Þing-
eyinga 1. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Hall-
freður Sigtryggsson,
f. 1900, d. 1988, og
k.h. Anna Soffía
Stefánsdóttir, f.
1904, d. 1991.
Sigrún giftist Ósk-
ari Illugasyni frá
Reykjahlíð, f. 8.ágúst 1913, d. 24.
febrúar 1990, 10. febrúar 1962.
Þau voru barnlaus.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Reykjahlíðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14
Við fórum í
skemmtiferð norður í
Ásbyrgi og að Detti-
fossi og höfðum nesti
með okkur sem við
snæddum í Axarfirðin-
um úti í lyngi vaxinni
laut þegar sólin skein
og brosti framan í okk-
ur.
Þú varst ávalt mikil
geðprýðiskona og stutt
í spaugið hjá þér. Það
var alltaf jafn notalegt
að sitja í eldhúsinu
þínu og deila með þér
gleði og sorgarstund-
um. En mér fannst þú alltaf geta
gefið öðrum eitthvað gott af sjálfri
þér. Þess vegna komu svo margir að
heimsækja þig og börnin voru svo
hænd að þér. Þú varst líka svo mikil
barnagæla og dugleg að prjóna
peysur og sokka til að gefa. Alltaf
varstu með á prjónunum þegar þú
sast við sjónvarpið og mikil hann-
yrðakona og blómakona. Þess vegna
hengdi ég upp rósamynd á stofunni
þinni á sjúkrahúsinu svo þú gætir
horft á hana í stað blómanna heima.
Mig langar til að þakka þér elsku
Rúna fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman og allt sem þú
gafst mér og fjölskyldu minni. Lífið
var orðið þér erfitt og þá er hver
sæll sem fær að sofna þegar svo er
komið. Megi góður Guð geima minn-
inguna um þig. Aðstandendum votta
ég innilega samúð mína.
Sólveig Illugadóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
!" #
$
""
% &'()*+ ',-.* */!&-(01 *2+
3 " ""
4
"
5
!" #
6 5 7 5
3
%
8 9
8 "" :
8 ' 0
;<
5 <=<<;=<<
8
8 #
: #
8
3
8
&
'# * 2
% 8 # "" 8
% > ""
,
!
???@66 6A@66
B=<< 8 #
C3
"
!"
?
8
8 AA<
+
%
8 "
<<<
FRÍMERKJAUPPBOÐÁHAFNÍU-SÝNINGUNNI
ÍKAUPMANNAHÖFNÍOKTÓBER
Stýrimannskólinn í Reykjavík,
sími 551 3194, fax 562 2750,
netfang: styr@ismennt.is,
veffang: styrimannaskoli.is
Kynning
Stýrimannaskólinn og skipstjórnarnámið kynnt
á hátíð hafsins - sjómannadeginum - við Reykja-
víkurhöfn frá kl. 13.00 í dag og á morgun, sjó-
mannadaginn.
Skipstjórnarnámið er menntun sem opnar leiðir
bæði hér á Íslandi og erlendis.
Verið velkomin.
Skólameistari.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Rúbý Grey
Enski miðillinn Rúbý Grey
verður stödd hér á landi
12.—25/6. Uppl. í s. 588 8530.
Huglækningar/
heilun
Sjálfsuppbygging.
Samhæfing líkama
og sálar. Áran.
Fræðslumiðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Uppl. í síma 553 8260 f.h.
FÉLAGSLÍF
Esjudagur 9 júní.
Kl. 9:00 Esjuganga. Kl. 13:00
verður gengið á Þverfellshorn, í
Esjuhlíðar og skógarganga.
Happdrætti, viðurkenningar,
veitingar, Flugbjörgunarsveitin á
staðnum. Allir velkomnir, ekkert
þátttökugjald.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Minnum á námskeiðið í dag milli
kl. 13:00 til 16:00 í húsnæði okk-
ar, sem hópurinn frá Youth With
A Mission heldur um trúboð,
kennarar verða meðal annars
Loren Cunningham,
Susanne Fortenbacher, Per
Evind Stig.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagsferð 10. júní kl.
10:30: Reykjavegur 4. áfangi:
Méltunnuklif - Djúpavatn.
Skemmtileg gönguleið með
Núpshlíðarhálsi, áð við Hrauns-
sel og víðar. Um 5 klst. ganga.
Takið þátt í sem flestum áföng-
um Reykjavegarins. Fararstjórar:
Gunnar H. Hjálmarsson og Ste-
inar Frímannsson. Verð. 1.500 kr
f. félaga og 1.700 kr. f. aðra.
Brottför frá BSÍ. Stansað v.
kirkjug. Hafnarfirði.
Pantið tímanlega í jeppaferð
í Bása. Fjölskyldu- og grill-
ferð 15.—17. júní. Árleg
þjóðhátíðarganga Útivistar
um Leggjabrjót 17. júní.
Sunnan Langjökuls 15.—17.
júní. Spennandi gönguferð.
Sjá heimasíðu: utivist.is og
textavarp bls. 616.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Sýning
framlengd
Sýning Bjarna Jónssonar listmálara í
Eden er framlengd til 17. júní vegna
fjölda áskorana.
Imba frænka er látin
eftir erfiða sjúkralegu.
Minningar hrannast
upp um föðursystur
sem var okkur nánari
og kærari á margan
hátt en gengur og gerist. Hún var
Imba frænka með stóru effi, ef svo
má að orði komast, frænka sem við
bárum mikla virðingu fyrir og litum
upp til.
Hún hafði sérstakt dálæti á „litla“
bróður sínum, honum pabba, og
fylgdist alla tíð vel með hans fjöl-
skyldu þrátt fyrir að þau byggju
hvort í sínum landshlutanum. Fjar-
lægðin batt þau sennilega enn
tryggari böndum og þegar pabbi
féll frá átti hún erfitt með að sætta
sig við ótímabært dauðsfall hans.
Frá fyrstu tíð eru ljúfar minn-
ingar um heimsóknir Imbu norður á
SIGFRÍÐUR
INGIBJÖRG
GUÐNADÓTTIR
✝ Sigfríður Ingi-björg Guðnadóttir
fæddist á Enni á Höfð-
aströnd í Skagafirði
22. júní 1912. Hún lést
að Droplaugarstöðum
í Reykjavík 24. maí sl.
Útför hennar fór fram
frá Bústaðakirkju 5.
júní.
Krók því ávallt gaf
hún sig að okkur
börnunum og sýndi
hugðarefnum okkar
og leikjum mikinn
áhuga. Í Imbu leynd-
ist mikilhæfur kenn-
ari og ef aðstæður
hefðu leyft er ekki
ólíklegt að kennsla
hefði orðið hennar
lífsstarf. Hæfileikann
og innsæið vantaði
ekki og alla tíð voru
mennta- og skólamál
henni hugleikin.
Kennarinn var aldrei
langt undan og eftirminnileg eru
bílaleikföng sem Imba gaf okkur
strákunum því þeim fylgdi gjarnan
leiðarvísir sem þurfti að lesa. Bíll-
inn fór ekki „á götuna“ fyrr en
Imba var búin að kenna okkur á
takkana sem opnuðu hurðir og húdd
og e.t.v. þurfti að ýta létt á leyni-
takka sem skaut upp farþegasæt-
inu, eins og í James Bond-bíómynd-
unum.
Meðal annarra minningabrota um
Imbu frænku er þegar við komum
ásamt foreldrum okkar til Reykja-
víkur og heimsóttum hana í gamla
Útvarpshúsið við Skúlagötu, þar
sem hún var lengi matráðskona í
mötuneytinu. Eftirvæntingin var
mikil að koma þangað og ekki var
minni lotningin að sjá þekktar
„raddir“ eins og Jón Múla og Pétur
Pétursson sitja yfir kaffibolla. Þetta
voru sem bestu vinir Imbu og við
þykjumst vita að henni hafi liðið vel
á Útvarpinu í þau tuttugu ár sem
hún var þar við störf.
Imba frænka var afar ættrækin
og skipti litlu þótt margir ættingjar
hennar byggju í öðrum landshlut-
um. Á meðan heilsan leyfði – og
jafnvel ekki í sumum tilvikum – lét
hún sig ekki vanta norður ásamt
Lellu, systur sinni, þegar stór tíma-
mót eða athafnir voru innan fjöl-
skyldunnar. Það var sama hvort það
voru skírnir, fermingar, giftingar,
afmæli eða jarðarfarir og allra síst
lét hún sig vanta á útskriftir. Imba
frænka hafði nefnilega mikinn
metnað fyrir hönd sinna systkina-
barna varðandi menntun og fylgdist
náið með framgöngu þeirra í skóla.
Hún samgladdist okkur þegar hvítu
kollarnir voru settir upp en lét
skoðun sína einnig í ljós síðar meir
ef eitthvað vantaði upp á í okkar
framhaldsnámi.
Imba frænka var gestristin og
alltaf var jafn notalegt að koma í
heimsókn til hennar í Vesturbæinn,
hvort sem það var á Grandavegi eða
síðar við Aflagranda. Aldrei var
hægt að kvarta undan móttökunum.
Áður en varði var hún búin að setja
kaffi, pönnukökurnar góðu og meira
bakkelsi á borðið og lítið þýddi að
biðja hana að draga úr fyrirhöfn-
inni. Hún tók það ekki í mál, enda
ákveðin kona á sinn hátt.
Imba frænka hafði yndi af því að
fara með vísur og kunni ógrynni af
þeim. Þetta var sameiginlegt áhuga-
mál þeirra pabba og gaman var að
hlusta á þau skiptast á góðum kveð-
skap. Þó að minnið hafi verið farið
að gefa sig á seinni árum gat hún
þulið upp heilu bálkana og alltaf
fylgdi formáli með líkt og góðra
vísnamanna er háttur.
Imba var smávaxin kona með
stórt hjarta, ætíð létt og kát. Hlýtt
bros hennar situr eftir í minning-
unni og áður en heyrn hennar og
líkamlegri heilsu hrakaði hafði hún
mikið yndi af því að vera innan um
fólk. Fyrir jafn mannblendna per-
sónu var erfitt að sætta sig við
hverfandi heyrn og þetta fannst vel
á henni. Hún var einnig ósátt við að
þurfa að yfirgefa hlýlegt heimili sitt,
fara á dvalarheimili og vera þar al-
gjörlega upp á hjálp annarra komin.
En elliárin verða ekki umflúin og
naut hún þeirrar umönnunar sem
best verður á kosið á Droplaug-
arstöðum.
Mætrar frænku er saknað af okk-
ur sem ólumst upp á Hólaveginum
og fyrir hönd fjölskyldunnar færum
við dætrum Imbu, Hafdísi og Ingi-
björgu, og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Björn Jóhann, Guðni Ragn-
ar og fjölskyldur þeirra.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.