Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 26
VIÐSKIPTI 26 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ UM SÍÐUSTU mánaðamót lét Víglundur Þorsteinsson af störfum sem forstjóri BM Vall- ár og tók við sem starfandi stjórnarformaður. Í samtali við Morgunblaðið sagði Víglundur að hann mundi sjá um daglega stjórn á Vikurvörum, sem er dótturfyrirtæki BM Vallár og flytur út vikur, auk þess að ein- beita sér að stefnumótun BM Vallár. Víglundur sagði stefnt að því að fyrirtækið héldi áfram að stækka og auka fjölbreytni með því að bæta við nýjum ein- ingum. Í fyrra hefði velta þess verið 1.580 milljónir króna, en markmiðið væri að ná veltunni upp í 2,5-3,0 milljarða króna og skrá það svo á markað. Hann sagði áætlanir ganga út á að ná þessu markmiði á þremur til fimm árum og að hann mundi vinna að því sem stjórnarfor- maður að þetta gengi eftir. Við starfi forstjóra tók Guð- mundur Benediktsson og mun hann annast alla daglega yfir- stjórn félagsins. Guðmundur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 40 ára að aldri, sonur stofnanda félagsins Benedikts heitins Magnússonar frá Vallá á Kjalarnesi. Hann er ásamt Víglundi eigandi fyrirtækisins. For- stjóra- skipti hjá BM Vallá JÓN Ólafsson, stjórnarformaður Norðurljósa hf. og stjórnarmaður í Íslenskum aðalverktökum hf., keypti í gær kr. 626.191 að nafnverði hluta- fjár í Íslenskum aðalverktökum á verðinu kr. 2,85. Frá þessu var greint á Verðbréfaþingi Íslands í gær. Kaupverðið var því tæpar 1,8 milljónir króna. Eignarhlutur Jóns eftir kaupin er kr. 123.673.190, sem er 8,83% af heildarhlutafé félagsins. Um er að ræða framvirkan samning með gjalddaga 20. september 2001. Jón Ólafsson kaupir í Ís- lenskum aðalverktökum LÍNA.Net hf hefur ákveðið að fresta um sinn sölu á hlutabréfum til fag- fjárfesta vegna óvissu á hlutabréfa- markaði. Hins vegar hefur núver- andi hluthöfum verið boðið að kaupa 70 milljóna króna hlut á genginu 5,0 og hefur stærsti hluthafinn, Orku- veita Reykjavíkur, þegar nýtt sér kauprétt sinn, um 220 milljónir króna. „Vegna viðtals við Alfreð Þor- steinsson, stjórnarformann Línu.- Nets í Fréttablaðinu þann 6.6.2001, vill Lína. Net taka fram að gengi á hlutabréfum til forkaupsréttarhafa var ákveðið af stjórn Línu.Nets á grundvelli fyrirliggjandi skýrslna frá endurskoðanda, verðbréfafyrir- tækjum og banka. Hins vegar var ekki byggt á verðmati frá Íslands- banka-FBA eins og mátti ráða af fréttinni,“ segir í fréttatilkynningu frá Línu.Neti. Lína.Net frestar hluta- fjárútboði ÞRJÚ ný félög koma inn í Úrvals- vísitölu aðallista hinn 1. júlí og hefur eitt þessara félaga ekki áður verið í vísitölunni. Þau félög sem koma inn eru Kaupþing, sem kemur inn í fyrsta skipti, Olíufélagið og SÍF. Þau koma í stað Granda, Þormóðs ramma-Sæ- bergs og Opinna kerfa. Úrvalsvísitala VÞÍ (ICEX-15) er samansett af félögum sem skráð eru á Aðallista þingsins og af þeim eru valin fimmtán félög eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Valið í vísitöluna fer fram tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí. Af þeim 20 félögum á Aðallista þingsins sem tíðust viðskipti eru með á þinginu á 12 mánaða tímabili eru það 15 stærstu félögin að markaðs- verðmæti í lok tímabilsins sem mynda úrvalsvísitöluna næstu 6 mán- uði. Hlutabréfasjóðir eru þó undan- skildir við val þetta. Tímabilið sem ræður samsetningunni fyrir tímabilið 1. júlí 2001 til 1. janúar 2002 nær frá 1. júní 2000 til 31. maí 2001. Úrvalsvísi- talan er því samsett af þeim félögum sem hafa hvað virkasta verðmyndun á þinginu. Alls eru 49 hlutafélög skráð á Að- allista þingsins, utan hlutabréfasjóða, og vega þau 15 félög sem verða í Úr- valsvísitölunni samtals 66,7% af markaðsverðmæti þeirra. Velta þess- ara félaga sem valin hafa verið í vísi- töluna er 76,4% af veltu hlutabréfa á Aðallista á síðastliðnum 12 mánuðum.              !"#  $%    & '()  *+, * , -() '(, * ) '(, &./ 0 '( 1,/23, 4, 506 , 7/,, 89  / , :  ,  , , 7', & /, %            %       %        &   '  (    '  %         "  %       ) '   &   (    '    "       +  *     + !;<   ! ; #  #< # # !;  <#  #  # # ##  #! < <   <              $  =  / &  >?.@   #!  !  # ;! ! ;# ! < #! << !!! ;< ; !; ; ! !                   7+8+-7 Þrjú ný félög í Úrvalsvísitölunni VIÐSKIPTAHALLINN við útlönd nam 15,6 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands samanborið við 12,6 millj- arða króna halla á sama tíma í fyrra. Hallinn var þó aðeins 1,6 milljörðum króna meiri í ár ef hann er borinn saman á föstu gengi. Meðalgengi erlendra gjaldmiðla er 11,4% hærra á fyrsta fjórðungi 2001 en árið áður miðað við við- skiptavegna gengisvísitölu Seðla- banka Íslands.. Fjárinnstreymi mældist 11 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi. Seðlabankinn tók 11,8 milljarða króna að láni er- lendis á þessu tímabili. Fjárút- streymi vegna erlendra verðbréfa- kaupa nam 5,9 milljörðum króna, tæpum þriðjungi þess sem það var á sama tíma í fyrra. Beinar fjár- festingar Íslendinga erlendis námu 2 milljörðum króna og erlendar innstæður og lán til útlanda jukust um 8 milljarða króna. Gjaldeyr- isforði Seðlabankans breyttist lítið á fyrsta fjórðungi ársins og nam 36 milljörðum króna í lok mars 2001. Aukinn viðskiptahalli á fyrsta fjórðungi ársins stafaði af óhag- stæðari vöruviðskiptum við útlönd og auknum vaxtagreiðslum af er- lendum skuldum, að því er fram kemur í frétt frá Seðlabanka Ís- lands. Halli á vöruskiptajöfnuði nam 7,1 milljarði króna samanborið við 5,8 milljarða króna á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Að slepptri flugvél sem keypt var til landsins á fyrsta fjórðungi þessa árs var vöruskiptahallinn í ár snöggtum minni en á sama tíma í fyrra. Þjón- ustuviðskipti við útlönd voru í jafn- vægi samanborið við 2,4 milljarða króna halla í fyrra. Hlutfallslega jókst útflutningur vöru og þjónustu mun meira en innflutningur á föstu gengi. Hreinar þáttatekjur, laun, vextir og arður af fjárfestingu, voru neikvæðar um 8,6 milljarða króna samanborið við 4,3 milljarða króna í fyrra. Þar munar mest um aukin vaxtagjöld af erlendum lán- um. Viðskiptahallinn 15,6 milljarð- ar fyrstu þrjá mánuði ársins MAGNÚS Schev- ing framkvæmda- stjóri sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni samvinnu Latabæjar og Krakkabanka Bún- aðarbankans um Lató-hagkerfið að hann teldi Íslend- inga læra seint að spara og um- gangast peninga. Þess vegna hefði hann lengi haft áhuga á verkefni sem miðaði að upp- fræðslu barna um gildi peninga. Lató-afsláttarmiðar verða af- hentir börnum sem leggja inn sparifé sitt í krakkalínu Búnað- arbankans. Börnin geta síðan notað lató til að kaupa vörur frá samstarfsaðilum verkefnisins í búðum og verður tilkynnt á hverjum fimmtudegi hvar hægt er að versla með lató-seðlum þá helgina. Fram kemur í fréttatilkynn- ingu að Lató-hagkerfið sé fyr- irmyndarhagkerfi án vaxta og verðbólgu og er jafnframt það hollasta í heimi þar sem einungis er hægt að nýta seðlana til þess að stunda heilbrigt líferni og borða hollan og góðan mat. Seðlabankinn vill að gefnu til- efni taka fram að sú fullyrðing sem birst hefur að útgáfa seðl- anna væri brot á eignarréttar- ákvæði stjórnarskrárinnar er ekki kominn frá lögfræðingum bankans. Búnaðarbankinn gefur út lató-seðla Hollir við- skiptahættir ENN er óljóst hver afdrif Mark- hússins verða en starfsemi þess hefur nú legið niðri um hríð og ljóst að rekstur þess hafði gengið mjög erfiðlega um margra mánaða skeið. Halldór Örn Kristjánsson, starfsmaður Markhússins, segir að margir starfsmenn fyrirtækisins séu orðnir mjög uggandi um sinn hlut. Þeir hafi síðast átt fund með stjórnendum félagsins 23. maí og hafi þeim þá verið lofað endanlegu svari um framtíð félagsins fimm dögum síðar. Starfsmennirnir hafi hins vegar engin svör fengið frá stjórnendum félagsins síðan fund- urinn var haldinn, engin uppsagn- arbréf hafi borist og laun ekki ver- ið greidd um síðustu mánaðamót þrátt fyrir að eftir því hafi verið gengið. Vilja vita af eða á um hvort félagið fari í þrot Halldór segir að starfsmennirnir séu í erfiðri stöðu þar sem þeir geti ekki sótt um atvinnuleysisbætur á meðan þeir séu skráðir í vinnu. Segi starfsmennirnir hins vegar sjálfir upp missi þeir áunninn upp- sagnarfrest á launum og eigi þá auk þess ekki rétt á atvinnuleys- isbótum. „Okkur hefur ekki verið sagt upp,“ segir Halldór. „Við er- um búin að tala við bæði fram- kvæmda- og fjármálastjóra Mark- hússins um hvort ekki eigi að segja okkur upp en þeir segjast vita mest lítið um það hver staðan sé og virðast raunar lítinn áhuga hafa á að afla sér upplýsinga um það. Á starfsmannafundinum sem haldinn var eftir lokun Markhúss- ins 23. maí lofaði Marteinn Jón- asson, stjórnarformaður félagsins, að allir fengju útborgað um mán- aðamótin auk þess sem hann lofaði okkur svari um framtíð okkar inn- an fimm daga. Síðan þá hefur hann í raun lítið sem ekkert viljað við okkur tala.“ Aðspurður segist Halldór ekki vera bjartsýnn um framhald á rekstrinum en að starfsmennirnir vilji gjarna vita af eða á um sína stöðu enda hafi staðan á atvinnu- markaðinum farið hríðversnandi að undanförnu og sérstaklega á þess- um árstíma. Einhverjum hafi þó tekist að finna sér aðra vinnu. „Ef okkur er sagt upp eigum við þó rétt á greiðslu launa út uppsagn- arfrestinn og síðan rétt á bótum ef við fáum ekki vinnu. En við fáum hins vegar væntanlega engar bæt- ur fyrr en búið er að lýsa félagið gjaldþrota. Eins og staðan er nú fáum við ekki laun og eigum heldur ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Við eigum vart von á öðru en að félagið endi í þroti enda eru margar kröf- ur á það bæði frá hinu opinbera, stéttarfélögum og fyrrverandi starfsmönnum vegna vangoldinna launa auk allra annarra krafna.“ Um sölu á hlut Frjálsrar fjöl- miðlunar í Markhúsinu fyrir síð- ustu áramót segir Halldór að starfsmennirnir hafi enga vitn- eskju haft um það. Starfsmennirnir hafi að mörgu leyti reitt sig á að sterk félög stæðu á bak við Mark- húsið, þ.e. Síminn og Frjáls fjöl- miðlun, og að leyst yrði úr rekstr- arvanda félagsins. Komið hafi í ljós að Síminn hafi algerlega dregið sig út úr rekstrinum enda hafi félagið meðal annars lokað á síma og GSM-síma Markhússins. Starfs- mennirnir hafi aftur á móti ekki frétt um sölu Frjálsrar fjölmiðl- unar fyrr en fréttir birtust um það í fjölmiðlum. VR með innheimtu- aðgerðir Hjá Verslunarmannafélaginu fékkst það staðfest að félagið væri í innheimtuaðgerðum gegn Mark- húsinu og að þau mál hlytu að skýrast fljótlega. Talsmenn VR vildu hins vegar ekki gefa upp um hversu stórar upphæðir væri að ræða. Óánægja meðal starfs- manna með stöðu mála Óljóst er hver verður framtíð Markhússins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.