Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 16
FRÉTTIR 16 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ JAPANSKAR stiklur og frostvarin steypa, eru meðal nýrra fram- leiðsluvara fyrirtækis- ins BM Vallá, sem kynntar eru í nýút- kominni handbók þess, Húsi og Görðum. Fyrirtækið hefur unn- ið að þróun ýmissa nýrra steypugerða síðastliðin ár, meðal annars á sjálfútleggj- andi ílögnum, ryð- hamlandi steypu sem er ætlað að nota þar sem mikið saltálag er og hvítri steypu sem þykir spennandi efni til að nota í ýmis konar hönnun, að sögn Guðmundar Benediktssonar forstjóra. Kynna japanskan stíl í garðahönnun „Í hvítu steypuna er notuð hvít möl, hvítt sement og hvítur sandur til að ná fram litnum en arkitektar hafa sýnt hvítu steypunni mikinn áhuga. Við leggjum áherslu á að sýna stein- steypu í nýju ljósi í handbókinni en áhugi á notkun steinsteypu t.d. við innanhúshönnun hefur aukist mikið að undan- förnu. Í handbókinni eru kynntar ýmsar nýjar hellu- og steinategundir bæði í nútímalegum og sígildum og rómantísk- um stíl. „Við höfum séð mikinn áhuga á sígildum línum í garðhönnun hjá viðskiptavinum okkar og höfum því bætt við nokkrum vörulínum íþeim stíl. Í Fornalundi höfum við komið fyrir ýmiskonar garðskrauti í sama stíl, s.s. bekkjum, gosbrunnum og lista- verkum til samræmis við þær vörur sem við erum að kynna.“ Í júlí verður opnaður nýr afmæl- isáfangi Fornalundar í tilefni af 10 ára afmæli garðsins og er sá áfangi að hluta til í japönskum stíl sem er stefna í garðhönnun sem vakið hefur mikla athygli, að sögn Guðmundar. „Í japönskum stíl er mikil hugsun á bak við hvern hlut í garðinum, t.d. heitir mynstrið sem japönsku stiklurnar eru lagðar í Oddaflug gæsa. Enn- fremur sýnum við í afmælisáfangan- um t.d. nýjar vörur í nútímalegum stíl í nýju kerfi sem við köllum Modena.“ Viðameiri landslagsráðgöf en áður Landslagsráðgjöf hefur verið auk- in hjá fyrirtækinu en hún hefur verið að þróast frá því hún hófst fyrir sjö árum. „Við höfum sífellt verið að færa okkur lengra í þeim efnum. Fólk er gjarnan farið að líta á garðinn sem eins konar framlengingu af stofunni og þannig skiptir hönnunin æ meira máli. Nú geta viðskiptavinir komið með hugmyndir sínar, pantað tíma hjá Birni Jóhannssyni landslagsarki- tekt, rætt og síðan fengið útfærðar teikningar frá tækniteiknara hjá okk- ur ásamt magntölum og tilboði“ Hann segir nýju handbókina hafa verið samstarfsverkefni mjög margra starfsmanna í öllum deildum fyrirtækisins, gerð hennar hafi verið mjög skemmtileg og auk þess hafi þeir sem komu að verkinu utan fyr- irtækisins staðið sig mjög vel. Hönn- un handbókarinnar var í höndum Magnúsar Þórs Jónssonar hjá Ídea, Grímur Bjarnason tók nær allar ljós- myndir og Prentsmiðjan Oddi sá um prentun. Ný handbók um vörur og þjónustu BM Vallár Steypan gefur mikla möguleika í hönnun Morgunblaðið/Sverrir Steypunotkun hefur aukist í ým- iss konar innanhússhönnun. Mynstur japönsku stiklnanna ber heitið Oddaflug gæsa. Þessi glaðlegi ferjumaður er hönnun breska listamannsins David Godd sem fæst mikið við gerð ýmiss konar púka og djöfla. Bekkir, styttur og aðrir skrautmunir í Fornalundi eru sérpantaðir frá útlöndum. Guðmundur Benediktsson VEL viðraði til útivistar í nágrenni þjóðgarðsins í Skaftafelli um hvíta- sunnuhelgina, þar sem fjöldi fólks dvaldi í tjöldum. Hæsti tindur landsins, Hvannadalshnúkur (2.119 m) í Öræfajökli gnæfir yfir svæðið og er talið að um 150 manns hafi gengið á tindinn um helgina. Var fólk ýmist á eigin vegum eða með ferðafélögum. Að sögn kunnugra hefur ekki viðrað eins vel til uppgöngu á tind- inn um hvítasunnu í mörg ár. Gang- an á tindinn tekur allt að 10 klukku- stundir og útheimtir notkun mannbrodda, öryggislína og ísaxa. Vinsæl leið er um Virkisjökul upp að Hvannadalshrygg og Dyrhamri. Ekki síður undi fólk sér vel á Hnappavöllum í Öræfum, þar sem árleg sumargleði Íslenska alpa- klúbbsins fór fram. Metþátttaka var á Hnappavöllum og mættu um 60 manns, ýmist til að iðka klif- uræfingar eða sýna sig og sjá aðra. Tíu manna hópur frá Hnappavöll- um gekk síðan á Þverártindsegg (1.554 m) í Suðursveit á hvítasunnu- dag í vestangolu og molluhita. Besta fjall- gönguveðr- ið í mörg ár Ljósmynd/Þráinn Þorvaldsson NÝVERIÐ hafa bændur við Hítará og Norðurá samþykkt nýja leigu- samninga við Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Samkvæmt nýju samn- ingunum hefur SVFR Norðurá á leigu til og með sumrinu 2005 og Hít- ará til og með sumrinu 2004. Bjarni Ómar Ragnarsson, formaður SVFR, staðfesti þetta í samtali við Morg- unblaðið í gær og sagði þetta mikil og góð tíðindi fyrir félagið því sam- keppni um bestu veiðisvæðin væri hörð og mikilvægt fyrir SVFR að halda sínu striki. 19 punda úr Blöndu Veiði í Blöndu hefur tekið kipp þegar hlýna tók á ný eftir hretið. Á fimmtudag veiddust fimm laxar, þar af einn 19 punda sem er stærsti lax sumarsins til þessa. Annar var 15 punda og flestir sem hafa veiðst voru um eða yfir 10 pund. Í gærmorgun voru komnir um 30 laxar á land, sem er ekki slæmt miðað við hversu steindauðir fyrstu dagarnir voru. Veiði hófst í Laxá á Ásum á fimmtu- dag og veiddist enginn lax, en sá fyrsti hlýtur að fara að sýna sig. Einn úr Kjarrá Nú liggur fyrir að einn lax veiddist í Kjarrá og annar tapaðist er áin var opnuð á fimmtudag. Það fylgdi sög- unni að menn hefðu séð eitthvað af fiski, en aðstæður voru mjög erfiðar, einkum vegna mikils kulda þar efra. Eitthvað hefur reyst úr Þverá á bændadögunum og í Norðurá var þokkalegur reytingur, eftir að fyrsta hollið veiddi 26 laxa kom það næsta með tuttugu og tvo og þriðja hollið var búið að slíta nokkra fiska upp, auk þess sem nokkrir laxar höfðu veiðst í Munaðarnesi. Töldu kunnug- ir í gær að rúmlega 60 laxar myndu vera komnir á land í það heila úr Norðurá. SVFR framlengir leigusamninga Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson Feðgarnir Gunnar Helgason t.v. og Hallgrímur Gunnarsson með þrjá 8–9 punda laxa úr Þverá. Þórdís Klara Bridde með 10 punda hrygnu af Eyrinni í Norð- urá á opnunardaginn. Reynir Þór Reynisson með þrjá laxa af Brennunni í vikunni, m.a. 16,5 punda hæng. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt 22ja ára gamlan mann í tveggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir fólskulega og tilefnislausa líkamsárás. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa ráðist að manni á Ingólfstorgi í miðborg Reykjavíkur í janúar í fyrra. Hann kýldi rúmlega þrítugan mann í andlitið þannig að hann féll í jörðina og sparkaði síðan í andlit hans með þeim afleiðingum að maðurinn nef- brotnaði. Í læknisvottorði segir að fórnarlambið sé með áberandi ör á andliti. Þótt ágætlega hafi til tekist með lagfæringu á nefbrotinu verði nefið þó varanlega skakkt. Pirraður út í allt og alla Vitni lýsti því svo að ákærði hefði verið að versla hjá Hlöllabátum og hafi verið pirraður út í allt og alla. Hann hafi síðan fyrirvaralaust slegið mann í andlitið og sparkað eða stapp- að í höfuðið á manninum að því er vitnið taldi. Atlagan hafi verið mjög fólskuleg. Hann hafi síðan forðað sér af vettvangi og skildi manninn eftir meðvitundarlausan í blóði sínu. Ákærði kom fyrir dóm við þingfest- ingu málsins og viðurkenndi þá að hafa slegið manninn í andlitið en neit- aði að hafa sparkað í andlit hans. Í fyrstu skýrslu sem hann gaf lögreglu kannaðist hann hins vegar ekkert við málið og taldi sig hafa fjarvistarsönn- un. Ákærði kom ekki fyrir dóm við að- almeðferð málsins þrátt fyrir ítrek- aða boðun. Hann var dæmdur til að greiða fórnarlambinu rúmlega 110.000 krón- ur í bætur en krafa um tímabundnar þjáningarbætur og vinnutap þóttu vanreifaðar og var vísað frá dómi. Þá var hann dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað málsins, þ.m.t. samtals 190.000 krónur til skipaðs verjanda síns, Arnar Clausen hrl. og Gísla Guðna Hall, hdl. réttargæslu- manns brotaþola. Að auki var honum gert að greiða 27.000 krónur vegna lögmannskostnaðar brotaþola. Refs- ing hans fellur niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð. Horft var til aldurs ákærða og þess að hann hafði einu sinni gengist undir sátt vegna brota gegn umferðarlög- um. Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Dæmdur fyrir líkamsárás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.