Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 56
MESSUR Á MORGUN 56 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. HRAFNISTA, REYKJAVÍK: Guðsþjón- usta kl. 13:30. Árni Bergur Sigur- björnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Sjómannadagur- inn. Sjómannamessa kl. 11:00. Hilm- ar Snorrason, skólastjóri Slysavarna- skólans, prédikar. Sjómenn aðstoða í messunni. Organisti Guðmundur Sig- urðsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Sjómannaguðsþjón- usta kl. 11:00. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, prédikar. Dóm- kórinn syngur. Organisti Kjartan Sig- urjónsson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syng- ur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Ólaf- ur Jóhannsson. GRUND, DVALAR- OG HJÚKRUNAR- HEIMILI: Guðsþjónusta kl. 10:15. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Organisti Ágúst I. Ágústsson. Sr. María Ágústsdóttir. Ensk messa kl. 17:00. Organisti Ágúst I. Ágústs- son. Sr. Ingþór Indriðason Ísfeld. LANDSPÍTALI, HRINGBRAUT: Messa kl. 10:30. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11:00. Sjómannadagurinn. Eiríkur Hreinn Helgason syngur einsöng. Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Ólaf- ur W. Finnsson. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Bent á guðs- þjónustur í nágrannakirkjum vegna sumarleyfis starfsfólks Laugarnes- kirkju. NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Fermdur verður Sigurþór Steinn Ólafs- son, Grandavegi 41. Prestur sr. Hall- dór Reynisson. Organisti Reynir Jón- asson. SELTJARNARNESKIRKJA: Orgeltón- list kl. 11:00-11:30. Pavel Manasek organsti mun leika vel valin verk eftir meistarana Bach, Purcel o.fl. Leggj- um áherslu á ljósastand í Seltjarnar- neskirkju, sem er mikið notaður í bænahaldi. Fólk kemur og tendrar ljós um leið og bæn er beðin. Þar get- ur þú átt stund með Guði, tendrað ljós og fundið frið frá öllu amstri hversdagsins undir fallegri orgeltón- list. Verið öll hjartanlega velkomin. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Gönguguðs- þjónusta kl. 10:00. Athugið breyttan messutíma. Farið í langreiðum að lok- inni guðsþjónustu að Grindarskörð- um og gengin gamla Selvogsgatan að Hlíðarvatni, um 6 tíma ganga. Farið í sund og sauna á Stokkseyri og hum- arsúpa snædd í veitingahúsinu Við fjöruborðið. Mæting á göngugalla og skóm til guðsþjónustu. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almenn guðsþjónusta kl: 11:00. Barn borið til skírnar. Organisti: Bjarni Jónatans- son. ÁRBÆJARKIRKJA: Messa kl. 11:00. Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir. Fermdur verður: Snorri Matthíasson. Organisti: Violeta Smid. Kirkjukór Ár- bæjarkirkju syngur. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson. Organisti: Jón Ólafur Sig- urðsson. Sóknarprestur. DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20:30 með einföldu messuformi. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Org- anisti: Kjartan Sigurjónsson. Félagar úr kór Digraneskirkju leiða almennan söng. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 20. Ath. breyttan tíma. Prest- ur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti: Lenka Mátéová. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður Bragason. HJALLAKIRKJA: Nú standa yfir miklar framkvæmdir í Hjallakirkju. Verið er að skipta um gólfefni í kirkjuskipi og sinna ýmsu viðhaldi. Af þeim sökum fellur helgihald niður í sumar en guðs- þjónustur hefjast aftur um miðjan ágústmánuð. Bent er á helgihald í öðrum kirkjum Kópavogs eða pró- fastsdæmisins. Við minnum á bæna- og kyrrðarstundir sem verða áfram- haldandi á þriðjudögum kl. 18 á neðri hæð kirkjunnar. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Sjómannaguðs- þjónusta kl. 11:00. Kór Kópavogs- kirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Organisti: Guðmundur Ómar Óskars- son. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20:00. Ath. breyttan messutíma. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Organ- isti er Jón Ólafur Sigurðsson. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sam- koma í húsi KFUM&K við Holtaveg kl. 17. Sigurður Pétursson sjávarútvegs- fræðingur talar. Barnagæsla á sam- komutíma. Allir hjartanlega velkomnir. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Sam- koma kl. 20:00. Mikil lofgjörð og fyr- irbænir. Friðrik Schram. FRÍKIRKJAN VEGURINN: Samkoma kl. 20:00, Högni Valsson predikar, brauðsbrotning lofgjörð og fyrirbænir Allir hjartanlega velkomnir Mánudag; hvetjum alla fjölskylduna til að mæta á fjölskyldubænastund kl. 18:30, og í súpu, brauð og sam- félag á eftir. BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma í dag kl. 11-12:30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og unglingadeildir. Súpa og brauð eft- ir samkomuna. Allir hjartanlega vel- komnir. KLETTURINN: Kl. 20 almenn sam- koma fyrir alla fjölskylduna. Mikil lof- gjörð og tilbeiðsla. Athugið breyttan samkomutíma. Fimmtudag kl. 20 bæna- og lofgjörðarstund. Bæn, lof- gjörð og orð guðs. FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 20:00, lofgjörðarhópur Fíladelfíu syngur.Ræðumaður Vörður L. Traustason forstöðumaður. Allir hjartanlega velkomnir. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Sunnu- dagur, Þrenningarhátíð: Hámessa kl. 10.30 og kl. 18.00 (á ensku). Alla virka daga: Messa kl. 18.00. MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8: Sunnu- daga: Messa kl. 11.00. Virka daga: Messa kl. 18.30. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Sunnu- dagur 10. júní: Bænastund kl. 10.00, messa kl. 10.30. Miðvikudagur: Messa kl. 18.30. KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði: Sunnudaga : Messa kl. 08.30. Alla virka daga: Messa kl. 8.00. BARBÖRUKAPELLA, Keflavík: Sunnudaginn 10. júní: Messa kl. 14.00. Messa á pólsku kl. 16.00. Fimmtudag kl. 19.30: skriftir. Kl. 20.00 bænastund. STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7: Sunnudaga: Messa kl. 10.00. RIFTÚN, Ölfusi. Sunnudagar : Messa kl. 17.00. AKRANES: 16. júní: Messa kl. 11.00. GRINDAVÍK: 16. júní kl. 18.00: Messa í Kvennó. GARÐUR: Kl. 12.30 messa á pólsku. JÓHANNESARKAPELLA, Ísafjörður: Sunnudaga: messa kl.11.00. FLATEYRI Laugardaga: Messa kl. 18.00. BOLUNGARVÍK: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. SUÐUREYRI: Sunnudaga: Messa kl. 19.00. PÉTURSKIRKJA, Eyrarlandsvegi 26, Akureyri, : Sunnudaga messa kl. 11.00. Laugardaga: messa kl. 18.00. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 13 hátíðarguðsþjónusta á sjó- mannadag. Fulltrúar sjómanna lesa ritningarlestra. Frumflutt lag í Eyjum eftir Arnþór Helgason við ljóð er tengist sjóslysi Helga VE. Kammerkór Hafnarfjarðar syngur, organisti Helgi Bragason. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11:00. Fermd verður Guðbjörg Olga Bjarnadóttir til heimilis í Háholti 14, Hafnarfirði. Eftir messuna er kaffisopi í safnaðarheimilinu. Organ- isti er Dagný Björgvinsdóttir, prestur sr. Þórhallur Heimisson. Allir eru hjart- anlega velkomnir. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðþjónusta á sjómannadag kl. 11. Einsöngur: Sig- urður Skagfjörð Steingrímsson. Kór Víðistaðasóknar syngur. Organisti: Úlrik Ólason. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Sjómanna- messa kl. 11 með þátttöku sjómanna og sjómannafélaganna í Hafnarfirði. Orgel og kórstjórn: Þóra Vigdís Guðmundsdóttir. Einar Eyjólfsson predikar og Sigríður Kristín Helgadótt- ir þjónar fyrir altari. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta ,kl. 11:00.Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Sr. Hans Markús Haf- steinsson, þjónar við athöfnina. Prestar Garðaprestakalls. KÁLFATJARNARSÓKN. Bryggjuguðs- þjónusta verður við höfnina í Vogun- um, sunnudaginn 10. júlí, sjómanna- daginn, kl. 14:00. Guðsþjónustan fellur inn í hátíðahöld sjómannadags- ins. Kór Kálfatjarnarkirkju leiðir al- mennan safnaðarsöng. Organisti: Frank Herlufsen. Sr. Hans Markús Hafsteinsson, þjónar við athöfnina. Prestar Garðaprestakalls. GRINDAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón- usta með þátttöku sjómanna 10. júní kl. 13. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Organisti: Örn Falkner. Kirkjukór Grindavíkur leiðir safnaðarsöng. Sóknarnefndin. ÚTSKÁLAKIRKJA: Sjómannadagur- inn. Guðsþjónusta kl. 14. Tveir sjó- menn og eiginkonur þeirra taka þátt í guðsþjónustunni. Kór Útskálakirkju syngur. Organisti Hrönn Helgadóttir. HVALSNESSÓKN: Sunnudagurinn 10. júní. Sjómannadagurinn. Guðsþjónusta kl. 13. Guðsþjónustan verður á bryggjunni í Sandgerði. Kór Hvalsneskirkju syngur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sjómannadag- urinn og þrenningarhátíð. Sameigin- leg fjölskyldu- og sjómannaguðsþjón- usta fyrir Keflavík og Njarðvík kl. 11. Prestur: sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Sjómenn lesa lexíu og pistil. Minnst verður drukknaðra sjómanna. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og stjórnandi: Hákon Leifs- son. Meðhjálpari: Hrafnhildur Atla- dóttir. Grillað verður í garði Kirkjulund- ar eftir messu. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Morguntíð sungin þriðjudaga til föstu- daga kl. 9, kaffi og brauð að henni lokinni. Foreldrasamvera miðviku- daga kl. 11. EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 14:00. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: Guðsþjónusta á sjómannadag kl. 11. Jón Ragnars- son. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sóknarprestur. HAUKADALSKIRKJA: Fermingarmessa kl. 14:00. Fermd verður: Lovísa Tinna Magnúsdóttir, Kjóastöðum, Biskupstungum. Kammerkór Biskupstungna og félag- ar úr Skálholtskórnum syngja. Sóknarprestur. Sr. Egill Hallgrímsson, Skálholti. AKRANESKIRKJA: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 11. Aldraðir sjómenn heiðr- aðir. Sr. Björn Jónsson messar í fjar- veru sóknarprests. Gengið að minnismerki sjómanna á Akratorgi að guðsþjónustu lokinni. Minningar- stund við minnismerkið í kirkjugarð- inum kl. 10. Sóknarprestur. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Sjómanna- messa kl. 11. Sjómenn heiðraðir. For- seti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, predikar. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Prestur sr. Ingólfur Guðmundsson. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi: Fermingarmessa kl. 14. Fermd verð- ur: Linda Rós Sigþórsdóttir, Búagrund 13, Kjalarnesi. Sr. Gunnar Kristjáns- son sóknarprestur. BAKKAGERÐISKIRKJA á Borgarfirði eystra: Sjómannamessa á sjómanna- daginn, 10. júní, kl. 11. Allir velkomn- ir. Sóknarprestur. BÍLDUDALSKIRKJA: Sjómanna- messa kl. 15. Sr. Auður Inga Einars- dóttir, skipaður sóknarprestur á Bíldudal, verður sett inn í embætti sóknarprests á Bíldudal í messunni. Sr. Bragi Benediktsson prófastur. LUNDARBREKKUKIRKJA, Bárðar- dal: Fermingarmessa. Fermdar verða Anna Sæunn Ólafsdóttir, Bjarnarstöð- um, Helga Margrét Helgadóttir, Kálf- borgará, Sigríður Huld Ingvarsdóttir, Hlíðskógum. Sr. Arnaldur Bárðarson. VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA. Ferming- armessa kl. 14:00. Fermd verður Þór- veig Jóhannsdóttir frá Brekkugerði í Fljótsdal. Organisti er Kristján Giss- urarson. Kór Valþjófsstaðarkirkju syngur. Sr. Lára G. Oddsdóttir. Kristur og Nikódemus Jóh. 3. HANNES Hlífar Stefánsson, Jón Viktor Gunnarsson og Bragi Þor- finnsson sigruðu allir í skákum sín- um í sjöundu umferð á Evrópu- mótinu í skák sem nú stendur yfir í Makedóníu. Efstu 46 sætin á mótinu gefa réttindi til þátttöku í heims- meistaramótinu í skák, en Hannes er nú í 18.-44. sæti með 4½ vinning og á því góða möguleika. Hinir þrír skák- mennirnir Jón Viktor, Bragi og Stef- án Kristjánsson eru allir með þrjá vinninga í 129.-162. sæti. Þeir Bragi og Stefán eygja báðir möguleika á áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og gætu jafnvel tryggt sér áfangann þegar í níundu umferð samkvæmt reglum FIDE, alþjóðlega skáksam- bandsins, ef vel gengur. Úrslit í sjö- undu umferð urðu þessi: Hannes - Peter Wells (2522) 1-0 Ara Minasian (2478) - Jón Viktor 0-1 Bragi - Beat Züger (2448) 1-0 Yuri Kruppa (2572) -Stefán 1-0 Í gær var frídagur á mótinu, en áttunda umferð verður tefld í dag. Hægt verður að fylgjast með skák Hannesar í beinni útsendingu. Slóð- ina má finna á skak.is. Bragi Þorfinnsson vann sína fyrstu skák í sjöundu umferð og var snöggur að því. Þótt þetta hafi verið fyrsta sigurskák hans hefur hann einungis tapað tveimur skákum, en hann er einn stigalægsti keppandinn á mótinu. Hvítt: Bragi Þorfinnsson Svart: Beat Züger (Sviss) Benköbragð 1.d4 Rf6 2.c4 c5 3.d5 b5!? 4.cxb5 a6 5.b6!? -- Hvítur tekur þann kostinn að gefa peðið strax til baka til að trufla sam- spil svörtu mannanna. 5. -- e6!? Framhaldið í skákinni sýnir vel skuggahliðar þessarar áætlunar, þ.e. bakstætt svart peð á hálfopinni d- línunni. Ef til vill hefði verið eðli- legra fyrir svart að leika 5. -- d6, ásamt g6 og Bg7 síðar. Í skákinni, Hannes Hlífar Stefáns- son-Djurhuus á Svæðamóti Norður- landa í Reykjavík í fyrra, reyndi svartur aðra varnaráætlun með hörmulegum árangri (breytt leikja- röð): 5. -- g6 6. Rf3 a5 7.Rc3 Ba6 8.b7 Ha7 9.e4 Bxf1 10.Kxf1 d6 11.e5 dxe5 12.Rxe5 Hxb7 13.Da4+ Rfd7 14.Rc6 Dc8 15.Bf4 Ra6 16.He1 f6 17.Rxe7 Bxe7 18.d6 0–0 19.Dc4+ Kh8 20.dxe7 Hb4 21.exf8D+ Rxf8 22.Df7 Hxf4 23.He7 Df5 24.Dg7+ mát. 6.Rc3 Rxd5 7.Rxd5 exd5 8.Dxd5 Rc6 9.e4 Be7 10.Rf3 Hb8 11.Bc4 0–0 12.Bd2 Hxb6 13.0–0!? -- Nýr leikur í stöðunni. Áður hefur verið leikið 13.Bc3, t..d. 13. -- Rb4 14.Dd2 Hd6 15.De2 a5 16.a3 Rc6 17.e5 Hg6 18.0–0 d6 19.Bd3 He6 20.Bf5 Hh6 21.Bxc8 Dxc8 22.exd6 Bxd6 23.Db5 Dc7 24.g3 Hb8 25.Dc4 Db6 26.Hfe1 Db5 27.Dxb5 Hxb5 með betra tafli fyrir hvítan, sem vann í 69 leikjum (Schlicht-Urbanczyk, Þýskalandi 1994). 13...Hxb2 Eftir 13...d6 er komin upp staða, sem þekkt er í fræðunum. Dæmi: 14.Dh5 Hxb2 15.Had1 Bf6 16.Bc3 Bg417.Dxg4 Bxc3 18.Hd3 Bf6 19.Hfd1 Rd4 20.Rxd4 Bxd4 21.Hf3 a5 22.h4 g6 23.h5 Kg7 24.g3 De7 25.Kg2 og hvítur fær bætur fyrir peðið, sem hann er búinn að fórna (Khúrtsidze-Pia Cramling, Heims- bikarmót FIDE, Shenyang 2000). 14.Bc3 Hb6 15.Had1 d6 16.Dh5 Bf6!? Svartur á mjög erfitt um vik í þessari stöðu. Eftir 16...De8 17.Hxd6! Hb8 (17...Bxd6? 18.Rg5! h6 19.Dg6 og mátar í næsta leik; 17...Bd7 18.Rg5 Bxg5 19.Dxg5 Rd4 20.Hxb6; 17...Be6 18.Rg5 Bxg5 19.Dxg5 Rd4 20.Hxb6 Bxc4 21.He1) 18.Rg5 Bxg5 19.Dxg5 Rd4 20.Hxd4 h6 21.Dxc5 vinnur hvítur. Ef svartur reynir að leika 16...Dd7, með Dd7-g4 í huga, þá svarar hvítur einfaldlega með 17. h3! og þá stendur svartur frammi fyrir sömu vandamálum og í skákinni. 17.e5! g6 18.Dh6 Bg7 19.De3 He8 Það er mjög erfitt að benda á betri leik fyrir svartan, t.d. 19...Rb4 (19. -- Re7 20. Ba5) 20.a3 Rc2 21.Dc1 Rd4 22.Rxd4 cxd4 23.Bxd4 dxe5 24.Bxb6 o.s.frv. 20.Df4 Be6 21.Hxd6 Db8 22.Bxe6 fxe6 23.Rg5 Rd8 24.Hdd1 Bh6? Enn einu sinni sannast gamalt spakmæli: Í slæmum stöðum koma afleikirnir af sjálfu sér! Svartur á þó enga leið, sem gefur honum einhverjar raunhæfar vonir um björgun, t.d. 24...Hf8 25.Dh4 h6 26.Re4 Rf7 27.f4 Hc6 28.Rf6+ Bxf6 29. Dxf6 Rh8 30. Dh4 Rf7 31, Hd7, eða 24...Hb7 25.Dc4 Rf7 (25...Bxe5 26.Hxd8 Dxd8 27.Rxe6 Dd7 28.Rc7+ Kf8 29.Rxe8 Bxc3 30.Dxc3 Kxe8 31.Dh8+) 26.Rxe6 Bxe5 27. Rxc5 Bxh2+? 28. Kh1 Hc7 29. Hd7 Hf8 f4 o.s.frv. 25.Hxd8! og svartur gafst upp, því að hann verður mát, eftir 25. -- Dxd8 (25. -- Bxg5 26. Hxb8 Bxf4 27. Hxb6) 26. Df7+ Kh8 27. Dxh7+. Þriðja bikarmót Striksins á sunnudag Þriðja mótið í bikarkeppni Striks- ins sem Strik.is, Taflfélagið Hellir og ICC standa sameiginlega að verður haldið sunnudaginn, 10. júní og hefst kl. 20:00. Góð verðlaun verða í boði Íslandssíma og Striksins. Eins og venja er, verður teflt á ICC skák- þjóninum. Skráning fer þannig fram á ICC eigi síðar en klukkan 19:45 með því að slá inn „tell pear join.“ Þeir sem ekki tóku þátt í fyrri mót- um þurfa einnig að senda fullt nafn og kennitölu með „message“ til Vandradur eða í tölvupósti til hell- ir@simnet.is. Til aðstoðar á meðan á mótinu stendur verður Vandradur. Góð verðlaun verða í boði bæði fyrir bikarkeppnina og svo sjálft Ís- landsmótið, sem er lokamót bikar- keppninnar. Jafnframt gefur ICC frímánuði í verðlaun. Alls munu 20 skákmenn taka þátt í landsliðsflokki Íslandsmótsins í net- skák, þeir 18 sem flesta vinninga hafa fengið í bikarkeppni Strikins í skák fyrir Íslandsmótið og auk þess tveir keppendur tilnefndir af móts- höldurum. Aðrir skákmenn tefla í opnum flokki. Bikarkeppni Strikins í skák snýst um það hver fær flesta vinninga samtals í átta af þessum 10 mótum. Vinningar í landsliðsflokki Íslands- mótsins gilda tvöfalt, en vinningar í öðrum mótum sem og í opnum flokki Íslandsmótsins gilda einfalt. Keppt verður í fimm flokkum og eru sigurvegarnir í hverjum flokki jafnframt Bikarmeistarar Striksins í skák í viðkomandi flokki. Flokkarnir eru opinn flokkur, undir 2100, undir 1800, undir 1500 og stigalausir. Stigaflokkar miðast við Íslensk stig 1. apríl 2001. Úr mótaáætlun Skáksambandsins 10.6. Hellir. Bikarmót Striksins 13.6. TR. Boðsmótið 16.6. Hellir. Mjóddarmótið 22.6. TG. Íslandsm. 60 ára og e. 23.6. TR. Helgarskákmót Góður dagur á Evrópumótinu SKÁK O h r i d , M a k e d ó n í a EVRÓPUMÓTIÐ Í SKÁK 1. – 15.6.2001 SKÁK Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.