Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NIÐURSTAÐA atkvæðagreiðslu um samning sem launanefnd sveitar- félaga og þroskaþjálfarar undirrituðu fyrir rúmri viku mun liggja fyrir í dag. Verkfall þroskaþjálfa sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefur nú staðið á fjórðu viku en launanefnd sveitar- félaga hefur ekki samningsumboð fyrir Reykjavíkurborg. Sólveig Steinsson, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, segir að enn beri mikið í milli í deilunni en síð- asti sáttafundur var á fimmtudag. Sólveig segir að hvorki hafi gengið né rekið í samningaviðræðum við borg- ina þar til samningur launanefndar- innar var undirritaður en þá hafi borgin boðið sambærilegan samning sem þroskaþjálfar í borginni sætti sig ekki við. Formaður samninganefndar borgarinnar hefur sagt að hann meti samning launanefndarinnar þannig að hann feli í sér 35,6% upphafshækk- un og 55% heildarhækkun á samn- ingstímanum. Yrði gengið að kröfum þroskaþjálfa myndi það aftur á móti þýða 47% upphafshækkun og 70% heildarhækkun. Sólveig segir að þroskaþjálfar í höf- uðborginni geri auknar kröfur þar sem samsetningin í þeim hópi sé frá- brugðin samsetningu hjá öðrum sveitarfélögum. 44 þroskaþjálfar starfa hjá borginni og segir Sólveig að um 30 þeirra raðist í neðstu launa- flokkana. Hjá sveitarfélögunum sem launanefndin hefur umboð fyrir eru aðeins 8–9 starfsmenn í neðstu launa- þrepunum þrátt fyrir að heildar- starfsmannafjöldi sé svipaður og hjá borginni, þar sem fleiri stjórnunar- stöður séu í boði. Geta ekki frestað verkfalli „Svo verður einnig að líta til þess að við erum í þeirri stöðu að við getum ekki frestað verkfalli meðan tekin er afstaða til samninga. Við vildum því gjarnan fá mat þeirra þroskaþjálfa sem eiga að starfa undir þeim samn- ingi sem búið er að gera við launa- nefndina áður en við samþykkjum hann einhvers staðar annars staðar,“ segir Sólveig. Þroskaþjálfar hjá rík- inu greiða atkvæði um verkfallsboðun að nýju um helgina, eftir að Félags- dómur dæmdi verkfallsboðun þeirra ólögmæta þann 30. maí síðastliðinn. Þroskaþjálfar hjá sjálfseignarstofn- unum hafa boðað verkfall 15. júní. Fleiri raðast í neðstu launaþrepin í Reykjavík SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA boðaði blaðamenn á sinn fund um miðjan dag í gær í Sjávarútvegshús- inu við Skúlagötu og skýrði frá því í upphafi fundarins að klukkustund áður hefði sendiráðunautur Íslands í Washington, Friðrik Jónsson, afhent aðildarskjal Íslands að Alþjóða hval- veiðiráðinu. Bandarísk stjórnvöld eru vörsluríki stofnsamnings ráðs- ins, IWC. Ísland gengur inn í ráðið með fyr- irvara við svonefndan núllkvóta vegna hvalveiða í atvinnuskyni sem felur í sér að hvalveiðar eru ekki leyfðar. Fram kom í máli ráðherra að allt frá því Ísland sagði sig úr Alþjóða- hvalveiðiráðinu 1992, hafi fjölmörg ríki skorað á Íslendinga að gerast aðilar að ráðinu að nýju. Þar hafi ekki aðeins verið um að ræða ríki sem hlynnt séu sjálfbærum hvalveið- um, heldur einnig ríki sem eru and- víg hvalveiðum, svo og ríki sem telja sig standa mitt á milli þessara tveggja fylkinga. Af hálfu þessara ríkja hafi verið lögð áhersla á að IWC sé mikilvægur vettvangur í hvalamálum og öll ríki sem telji sig hafa hagsmuni að gæta eigi þess vegna að vera aðilar að ráðinu. Í sömu stöðu og Norðmenn og Rússar Á fundinum voru, auk sjávarút- vegsráðherra, til svara þeir Stefán Ásmundsson, þjóðréttarfræðingur sem fer með hvalamál í ráðuneytinu, og Eiður Guðnason sendiherra. Þeir Stefán og Eiður verða fulltrúar Ís- lands á næsta fundi ráðsins sem haldinn verður eftir nokkrar vikur. Fram kom í máli þeirra að staða Íslands innan hvalveiðiráðsins eftir inngönguna verði hin sama og staða Noregs og Rússlands, en þau lönd eru óbundin af því sama ákvæði og Ísland gerir fyrirvara við. Rifjað var upp að ákvæðið um s.k. 0-kvóta hafi verið samþykkt á árs- fundi hvalveiðiráðsins árið 1982 og kom til framkvæmda árið 1986. Það átti síðan að endurskoða á grundvelli vísindalegrar ráðgjafar, í síðasta lag- ið árið 1990, en þó standi sú endur- skoðun enn yfir. „Það er mat okkar að betra sé að vera innan ráðsins og hafa áhrif á þróun umræðna þar, frekar en að standa utan við og eiga ekki þess kost að taka þátt í umræðum á þess- um vettvangi um sjálfbæra nýtingu hvalastofna og önnur mál sem tengj- ast hvalveiðum,“ sagði Árni M. Mathiesen. Þorskneysla hvala á við aflaheimildir smábátanna Að sögn Árna M. Mathiesen hefur ekki verið tekin ákvörðun um hve- nær hvalveiðar verða hafnar að nýju við Ísland. Hann bendir á að með inngöngunni nú hafi mikilvægri hindrun verið rutt úr vegi, en fram hafi komið, m.a. hjá Japönum, að þeir muni ekki kaupa hvalkjöt af þjóðum sem ekki eiga aðild að hval- veiðiráðinu. Aukinheldur gera Jap- anar miklar kröfur um gæði hval- kjötsins og fara m.a. fram á upprunavottorð í því sambandi. Það sem Árni taldi helst koma í veg fyrir að Íslendingar gætu hafið hvalveiðar að nýju nú þegar er að millilandaviðskipti eru ekki stunduð með hvalkjöt nú um stundir. Þó sé útlit fyrir að Norðmenn hefji innan tíðar sölu á hvalkjöti til Japans, en undirbúningur að því hafi staðið um nokkurt skeið. Ennfremur benti hann á slæmar afleiðingar sem það gæti haft í för með sér vegna al- mennrar mótstöðu úti í heimi og áfram yrði unnið að því að vinna veiðum aukinn skilning meðal ann- arra þjóða. Ráðherra benti hins vegar á að væru hvalveiðar leyfðar við landið gæti það þýtt aukningu í botnfisk- veiðum sem svarar til alls kvóta smá- bátaútgerðarinnar. „Það er náttúru- lega erfitt að reyna að stýra nýtingu á auðlindum hafsins og sleppa að taka tillit til þessa máls,“ sagði hann. Úrsögnin ekki mistök Á fundinum var ráðherra inntur eftir því hvort í ljósi inngöngunnar nú mætti ekki slá því föstu að úr- sögnin árið 1992 hafi verið mikil mis- tök. „Nei, alls ekki,“ svaraði hann. „Fyrirvarinn nú sýnir vilja okkar berlega og þá skoðun sem við höfum alltaf haft uppi í þessum efnum. Á sínum tíma þegar Ísland sagði sig úr ráðinu var jafnvel talið að fleiri lönd myndu fylgja þar á eftir. Sú varð ekki raunin og nú metum við það svo að best sé fyrir okkar hagsmuni að ganga aftur inn í hvalveiðiráðið.“ Ísland aftur aðili að Alþjóða hvalveiðiráðinu Betra að vera innan ráðsins en standa utan við Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, skýrði frá því í gær að Íslendingar hefðu geng- ið að nýju í Alþjóða hvalveiðiráðið. Björn Ingi Hrafnsson sat fund ráðherra sem aftók með öllu að ákvörðunin nú sýndi að úrsögn Íslands fyrir níu árum hefði verið mistök. Morgunblaðið/ÓmarHvalskurður í Hvalfirði. ALÞJÓÐA hvalveiðiráðið var stofnað árið 1946 af rík- isstjórnum hvalveiðiþjóða með það að markmiði, að samræma nýtingu á hvalastofnum í heim- inum og hagsmuni aðildarþjóð- anna. Íslendingar gerðust aðilar að ráðinu árið 1948. Árið 1982 var tekin sú ákvörð- un á ársfundi Alþjóða hval- veiðiráðsins að stöðva allar hval- veiðar í atvinnuskyni á árunum 1986 til 1990. Í samþykktinni sagði, að á umræddu tímabili skyldi Alþjóða hvalveiðiráðið beita sér fyrir því, að umfangs- miklar vísindarannsóknir færu fram á hvalastofnum, með það fyrir augum að geta að tíma- bilinu loknu, metið stærð mis- munandi hvalastofna og út frá því tekið ákvörðun um áfram- haldandi veiðar. Alþingi Íslendinga samþykkti að gangast undir hvalveiðibannið með naumum meirihluta án þess að gera við það fyrirvara eins og Norðmenn gerðu. Síðan var farið í viðamiklar rannsóknir á hvölum og hvalastofnum í Norðurhöfum, meðal annars undir forystu Ís- lendinga. Þær rannsóknir þóttu gefa ótvírætt til kynna, að þegar væri óhætt að hefja veiðar á hrefnu og langreyði hér við land. Þessar niðurstöður voru kynntar í Hvalveiðiráðinu, en hvorki Ís- lendingum, Norðmönnum né Jap- önum varð nokkuð ágengt, því friðunarsinnar höfðu yfirhöndina í ráðinu. Á ársfundi ráðins í maílok 1991 réðu friðunarsinnar ferðinni við alla atkvæðagreiðslu í lok fund- arins og komu meðal annars í veg fyrir atkvæðagreiðslu um umsókn Íslendinga um veiðar á hrefnu og langreyði. Guðmundur Eiríksson, formaður íslenzku sendinefndarinnar, lýsti því þá yfir að samtökin væru meingöll- uð. Því legði hann það til við ís- lenzk stjórnvöld að þau tækju ákvörðun um úrsögn Íslands úr ráðinu. Gengið úr ráðinu 1992 Miklar umræður urðu um þessi mál í kjölfarið og meðal annars skipuð sérstök hvalveiðinefnd til að fjalla um það, en í desemb- erbyrjun 1991 lagði Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, til á ríkisstjórnarfundi að Ísland segði sig úr ráðinu. Þá höfðu Norðmenn ákveðið að sitja áfram í ráðinu og jafnframt tekið ákvörðun um veiðar á hrefnu næstu þrjú árin í vísindaskyni. Í árslok samþykkti ríkisstjórnin svo úrsögn úr Hvalveiðiráðinu, en tekið var fram að ekki væri ætl- unin að hefja hvalveiðar á árinu 1992. Í tilkynningunni sagði með- al annars svo: „Starfshættir Alþjóða hval- veiðiráðsins á undanförnum árum benda alls ekki til þess að breyt- ing verði á afstöðu þess til frið- unar hvala og stjórnunar hval- veiða. Auk þess sem ráðið starfar ekki eftir ákvæðum eigin stofn- samnings er það ófært um að nota nútíma aðferðir við stjórnun á nýtingu sjávarauðlinda. Rík- isstjórnin telur að Alþjóða hval- veiðiráðið hafi með núverandi stefnu sinni brugðist þeirri skyldu að tryggja verndun og skynsamlega nýtingu stækkandi hvalastofna. Alþjóða hval- veiðiráðið er því orðin úrelt og óvirk stofnun. Íslensk stjórnvöld árétta mik- ilvægi virkrar umhverfisverndar. Jafnframt er varað við einstreng- ingslegri afstöðu til fortaks- lausrar friðunar einstakra dýra- stofna án tillits til heildarsamhengis lífríkis hafsins. Fáum þjóðum er brýnni nauðsyn á að varðveita ómengað haf. Ís- lensk stjórnvöld munu því áfram vinna ötullega að verndun haf- svæðanna og lífkerfisins og í því skyni halda áfram samvinnu við ríki sem eru sama sinnis.“ NAMMCO stofnað Á árinu 1992 var svo Norður- Atlantshafs sjávarspendýraráðið, NAMMCO, stofnað með þátttöku Íslendinga, Færeyinga, Græn- lendinga og Norðmanna. Undir merkjum þess hafa miklar rann- sóknir á vexti og viðgangi hvala- stofna verið unnar. Norðmenn hafa stundað hrefnuveiðar í at- vinnuskyni undanfarin ár, og Færeyingar halda áfram grind- hvalaveiðum sínum. Japanir hafa stundað töluverðar veiðar í vís- indaskyni. Hvað eftir annað hafa verið samþykktar þingsályktanir um að hvalveiðar yrðu hafnar á ný, en ekkert hefur verið veitt enn. Töluverð umræða var síðan um það hvort rétt hefði verið að ganga úr ráðinu og lýsti þáver- andi utanríksiráðherra, Jón Bald- vin Hannibalsson, meðal annars efasemdum sínum um úrsögnina eftir heimsókn til Japan. Björn Bjarnason, þáverandi formaður utanríkismálanefndar, segir til dæmis í samtali við Morgunblaðið í nóvember 1994, að sjálfsagt sé að hefja hval- veiðar, en til þess að komast hjá gagnrýni á alþjóðavettvangi, verði Ísland að ganga í Alþjóða- hvalveiðiráðið á ný með fyr- irvara. „Samtökin meingölluð“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.