Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 41
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 41 Rose Bruford College LEIKLISTARNÁM Rose Bruford College var stofnaður árið 1950 og er hann einn af helstu leiklistarskólum Evrópu, sem býður námskeið á öllum sviðum leiklistar og skyldra listgreina. Við munum hafa hæfnipróf og viðtöl í Reykjavík í júní vegna eftirfarandi greina, sem hefjast í september 2001: Einnig munum við veita viðtöl vegna meistara- og doktorsnáms, sumar- skóla og eins árs alþjóðlegs undirstöðunámskeiðs. Komið og ræðið við okkur um ævistarf í leikhúsi. Nánari upplýsingar veitir: Ms. Terri Minto, Admissions Officer, Rose Bruford College, Lamorbey Park, Sidcup, Kent, DA15 9DF. Sími +44 (0) 20 8308 2611 Fax +44 (0) 20 8308 0542, netfang: admiss@bruford.ac.uk Skoðið heimasíðu okkar: www.bruford.ac.uk Tónlist leikara Evrópsk leiklist Hönnun lýsingar Leiklist Búningagerð Leikmyndalist Tónlistartækni Sviðstjórnun Leikstjórn Bandarísk leiklist Hljóð- og ímyndahönnun Bresk háskólastofnun Skólastjóri: Dr Alastair Pearce LÁRUS H. List opnar málverka- sýningu í nýendurbættum sal Ket- ilhússins í Listagilinu á Akureyri, í dag, laugardaginn 9. júní, kl. 16.30. Hann hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar en að þessu sinni sýnir hann 22 ný olíumálverk sem unnin voru á síðasta ári. Lárus segist fyrst og fremst vinna með ol- íu á striga, en engu að síður vinni hann undir óræðum áhrifum hug- mynda- og mínimallistar. „Fyrir mér er það nautn að fá óræða út- komu, eitthvað sem kemur mér á óvart, þó innan marka þess hand- verks sem er mér eiginlegt.“ Lárus er sjálfmenntaður listamaður og starfaði hann við Listasafnið á Ak- ureyri um sex ára skeið. Hann seg- ist ekki síst hafa hlotið myndlist- aruppeldi í gegnum samskipti við innlenda og erlenda listamenn og annað menningarþenkjandi fólk í starfi sínu og með því að fylgjast vel með því sem skrifað og rætt er um myndlist. „Sú nautn að lesa málverk er vitundarástand fyrir mig. Segja má að hvert nýtt málverk kalli á mann með sínum sérstaka hætti og hver sýning á sitt þema og því er ég mjög spenntur að sjá útkomuna í þessu nýstandsetta glæsilega Ket- ilhúsi nú í sumar. Viðbrögð annarra eru ekki síst mikilvæg og hlakka ég til að heyra hvað fróðir menn hafa um sýningu mína að segja.“ Lárus segist hafa tímasett opnun sýningar sinnar mjög vandlega með tilliti til opnunar samsýningar í Listasafninu á Akureyri hálftíma áður. Hann segist vona að fólk komi til með að streyma milli sýningar- staðanna tveggja, en með þessu vill Lárus vekja athygli á möguleikum á enn frekari uppbyggingu í Lista- gilinu. „Það er skoðun mín að menn- ingarmál hafi verið undirlögð af persónulegum deilum og valdabar- áttu sem staðið hefur í vegi fyrir framþróun á þessu sviði hér í bæn- um. Kraftar forráðamanna menn- ingarmála ættu frekar að beinast að þeim uppbyggingarmöguleikum sem hér eru fyrir hendi. Koma þarf efri hæð Listasafnsins í notkun og finnst mér að setja ætti rekstur Ketilhússins undir hatt listsafnsins. Húsin tvö mætti tengja saman með göngubrú. Ég tel að Listagilið hér í bænum og umhverfi þess geti orðið glæsileg menningarvin sem hefði al- gera sérstöðu í heiminum, og þá sérstöðu mætti gera út á með menningartengdri ferðaþjónustu. Það þarf hreinlega að hrista upp í menningarstjórn í bænum, og vona ég að sýningarnar sem verða opn- aðar í dag verði til þess að vekja umræðu um þessi mál,“ segir Lár- us. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18 og stendur til 18. júní. Engin boðskort hafa verið send út en allir eru velkomnir á opnun sýningarinn- ar eða síðar. „Hvert nýtt málverk kallar á mann með sínum sérstaka hætti“ Morgunblaðið/Kristján Lárus H. List við eitt verka sinna í Ketilhúsinu á Akureyri. Fyrsta sýning sumarsins í Ketilhúsinu á Akureyri opnuð í dag TVÆR sýningar verða opnaðar í Hafnarborg, Menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, í dag, laug- ardag, kl. 15. Um er að ræða sýn- ingu á verkum Þjóðverjanna Werners Möllers og Andreas Green. Werner Möller sýnir 30 lítil ak- rýlmálverk og eitt stórt textílverk. Yfirskrift sýningarinnar er Arpeggien - tónraðir og enduróm- un. Werner Möller fæddist í Lübeck árið 1920. Hann er menntaður við H.G. Rahtgens stofnunina en hefur starfað í Cuxhaven frá árinu 1946. Werner hefur sýnt verk sín víða um heim, m.a. í París, Ljubljana og Hong Kong. Árið 1967 opnaði hann Galerie Artica í Cuxhaven sem síðan hefur verið vettvangur listsköpunar, sýn- inga og tónleika listamanna víða að úr heiminum, m.a. frá Íslandi. Yfirskrift sýningar Andreasar Green er Hringur og lína. Hann er fæddur 1954 og menntaður við listaháskólann í Bermen og í Frakklandi. Hann hefur starfað við ljósmyndun, grafík og málverk og sýnt verk sín víða, m.a. í kassel á Dokumenta. Árið 1991 stofnaði hann Kunst- lerhaus-Cuxhaven og hefur hann lengi verið áberandi í menningarlífi Cuxhavenborgar. Sýningarnar eru opnar alla daga, nema þriðjudaga, frá kl. 11-17 og standa til 2. júlí. Þýsk myndlist í Hafnarborg Morgunblaðið/Sigurður Jökull Andreas Green. Í baksýn eru tvö verka hans. NOKKURT hlé hefur verið á sýn- ingarhaldi á Hulduhólum í Mos- fellsbæ um árabil en í dag, laug- ardag, kl. 14, opnar Steinunn Marteinsdóttir einkasýningu í öllu sýningarrými Hulduhóla. Steinunn, sem er einkum kunn fyrir leirverk, sýnir nú auk fjölda leirmuna 26 ol- íumyndir, 27 vatnslitamyndir og 18 olíukrítarmyndir. Myndir þessar eru unnar á síðasta áratug og hafa aldrei verið sýndar áður. Leirmun- irnir eru langflestir unnir á þessu ári og því síðasta auk örfárra eldri muna. „Efni listamannsins er óaðskilj- anlegur hluti verka hans og mikils- verður hluti sköpunarferilsins er meðhöndlun hans á efninu sem hann vinnur í hverju sinni. Hvert efni hefur sína möguleika í tjáningu og sínar takmarkanir. Að hugsa verk í ákveðið efni er hluti hinnar listrænu vinnu og skipti listamað- urinn um efni opnast nýjar víddir í tjáningu. Ef verk er hugsað í leir er brennsluofninn þröskuldur sem stendur á milli listamanns og verks. Verkið verður endanlega til í ofn- inum og eftir brennsluna verður því ekki breytt,“ segir Steinunn. „Að- eins með mikilli reynslu nær lista- maðurinn valdi á því ferli sem í ofn- inum gerist – sem líkist því að koma sér upp sjötta skilningarvitinu – til þess að geta unnið markvisst list- rænt í leirinn. En aldrei er hægt að komast hjá því að ofninn ráði ekki að einhverju leyti ferðinni.“ Til að komast að Hulduhólum er ekið út af Vesturlandsveginum við afleggjarann að Skálatúni. Sýn- ingin er opin frá kl. 14–18 daglega nema mánudaga og stendur til 24. júní. Glíman við Leir- brennslu Verk eftir Steinunni Marteinsdóttur. KVARTETT Ragnars Emilssonar leikur frumsamið efni í bland við standarda á djasskvöldi Café Ozio annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 21.30. Kvartettinn skipa ásamt Ragnari á gítar þeir Jón Rafnsson á kontra- bassa, Helgi Sv. Helgason á tromm- ur og Ómar Guðjónsson sem einnig leikur á gítar. Frumsaminn djass á Ozio Á ÖÐRUM tónleikum sumartón- leikaraðar veitingahússins Jómfrúr- innar við Lækjargötu, í dag laugar- dag, kl. 16, koma fram gítarleikarinn Jón Páll Bjarnason og víbrafónleik- arinn Reynir Sigurðsson. En þetta er í fyrsta sinn sem þessir gamal- reyndu djassónlistarmenn samein- ast sem dúó. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúrtorginu ef veður leyfir en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. Gítar og víbra- fónn á Jómfrúnni SÆNSKI ljósmyndarinn Lars Erik Björk sýnir ljósmyndir frá Færeyj- um í anddyri sænska sendiráðsins í Lágmúla 7, sem hann nefnir Leiftur frá Færeyjum. Sýningin er opin virka daga kl. 9- 16 til 22. júní. Ljósmyndir frá Færeyjum Í TILEFNI sjómannadagsins, verð- ur Sjóminjasafn Íslands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði, opið á morgun, sunnudag, kl. 10–17. Aldraðir sjó- menn sýna gamalt handbragð og leikið verður á harmoniku frá kl. 13. Í safninu stendur nú yfir sýning Ásgeirs Guðbjartssonar, sem er sjálfmenntaður listamaður. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir í tilefni sjómannadagsins. Sýning í Sjó- minjasafninu ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ NÚ stendur yfir sýning á myndverkum Ellerts Grétars- sonar á Café Mílanó í Faxa- feni. Ellert notar eingöngu tölvutæknina við gerð verk- anna þar sem hann blandar saman stafrænni mynd- vinnslutækni og þrívíddar- tækni og eru viðfangsefnin af ýmsum toga. Málverkið lifir Í sýningarskrá segir Ellert að margboðaður dauði mál- verksins sé langt í frá nálæg- ur, þvert á móti hafi mál- verkið sjaldan lifað eins góðu lífi og nú. Þessi nýja tækni breyti engu þar um, ekki frekar en aðrar nýrri greinar myndlistar, heldur sé einung- is til þess fallin að auka fjöl- breytnina. Þetta er fimmta einkasýn- ing Ellerts og stendur hún yf- ir til næstu mánaðamóta. Tölvuverk á Café Mílanó SÝNINGUNNI Myndir á sýningu og innsetningunni HUM í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi lýkur á morgun sunnudag. Leiðsögn um sýningarnar verður kl. 15. Sýningarlok ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.