Morgunblaðið - 09.06.2001, Side 2
639 einstaklingar voru kærðir vegna
fíkniefnamála á árinu 2000, 548 karl-
ar og 91 kona. Á sama tíma var lagt
hald á fíkniefni eða áhöld til neyslu
efnanna í 619 fíkniefnamálum sem er
19,3% fækkun mála frá árinu 1999.
Flest málin komu upp í umdæmi lög-
reglustjórans í Reykjavík, eða 47%,
þá í Hafnarfirði 13,6% og á Akureyri
8,9%. Þetta er meðal þess sem kem-
ur fram í samantekt embættis rík-
islögreglustjóra um fíkniefnamál
ársins 2000. Skýrslan er framhald
skýrslu sem kom út í fyrra um sama
efni. Með upplýsingum sem koma
fram í skýrslunni gefst tækifæri til
þess að meta þróun fíkniefnamála og
mæla árangur af störfum lögregl-
unnar.
Hald lagt á 195% fleiri e-töflur
Á árinu 2000 var lagt hald á rúm-
um 100% meira af amfetamíni en ár-
ið 1999 eða 10.267,46 g á móti 5.078,1
g, 195% meira fannst af e-töflum eða
rúm 22 þúsund stykki á móti 7500 ár-
ið 1999. 36% minna fannst af hassi en
árið 1999 og rúmu prósenti minna af
kókaíni eða 942,25 g á móti 955,43 g.
Langmestur hluti efnanna er tekinn
á landamærum eða 94,4% e-taflna,
93% amfetamíns, 87,3% kókaíns og
54% hass en lögreglustjórinn í
Reykjavík annast að jafnaði rann-
sókn mála vegna ólöglegs innflutn-
ings ávana- og fíkniefna um Kefla-
víkurflugvöll.
Í lokaorðum skýrslunnar vekur
Ríkislögreglustjóri athygli á hvort
ekki sé tímabært að endurskoða for-
varnarstarf á Íslandi og hvort ekki
kunni að vera heppilegt að fara að
líkt og gert sé í nágrannalöndunum
og koma á fót sérstöku afbrotavarn-
arráði með aðild æðstu stjórnvalda,
lögreglunnar, annarra opinberra
stofnana og félaga- og áhugamanna-
samtaka.
619 fíkni-
efnamál á
árinu 2000
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÁsthildur Helgadóttir ́
á leið til ÍBV / B1
Tilbúnir í slaginn gegn
Hvít-Rússum / B1,B4
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
Morgunblaðinu í
dag fylgir Lancom-
bæklingur frá
Termu. Bækl-
ingnum verður
dreift um allt land.
ÆTLI þær séu að ræða ástand
nytjastofna sjávar, þessar stöllur
sem sátu og skeggræddu heims-
málin í heita pottinum í Laug-
ardalslauginni í gær? Það er víst
ansi vinsælt umræðuefni í pott-
unum þessa dagana. Þær voru að
minnsta kosti djúpt sokknar í um-
ræðuefni sitt þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins átti leið hjá og
tóku ekkert eftir því þegar hann
smellti af þeim þessari mynd. Þær
virðast hafa notið veðurblíðunnar
til hins ýtrasta, eins og þeir fjöl-
mörgu sem sóttu laugarnar heim í
gær, en blíðviðri var um allt land
sem er ágæt tilbreyting eftir
kuldakast síðustu daga. Útlit er
fyrir gott veður um allt land um
helgina og næstu daga. Hitinn
gæti farið upp í allt að átján stig
og verður hlýjast á Austurlandi.
Heimsmál-
in rædd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UM sjötíu umsóknir hafa þegar borist um störf á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík en aug-
lýst var eftir starfsfólki til hjúkrunar, sjúkraþjálf-
unar, sálgæslu og annarra starfa fyrir nokkru.
Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sól-
túns, segir viðbrögð þessi vera vonum framar,
sérstaklega þegar litið er til þess að starfsfólk
mun ekki hefja störf fyrr en í desember og janúar
næstkomandi.
Varðandi launakjör starfsmanna við Sóltún
segir Anna Birna að tekið verði mið af þeim
rammasamningum sem gerðir hafa verið við þá
starfshópa sem um er að ræða og síðan verði
gerðir einstaklingsbundnir samningar við hvern
starfsmann. „Við reiknum með því að horfa á
framlag einstaklingsins til starfanna og þá þekk-
ingu og færni sem hann færir með sér og verða
laun greidd í samræmi við það,“ segir Anna
Birna.
Flestar umsóknir frá hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum
„Langflestar umsóknirnar eru frá hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum en einnig er komið í
flest önnur störf, “ segir Anna Birna. „Fjöldi um-
sókna kemur nokkuð á óvart þar sem öldrunar-
þjónusta hefur búið við töluverðan skort á starfs-
fólki. Það er greinilegt að fólki finnst þessi
nýbreytni spennandi, það er að segja einkafram-
tak í þjónustusamningi við ríkið.“
Hún segir að stefnt sé að því að nýta þann
sveigjanleika sem kjarasamningar bjóða upp á til
að greiða einstaklingum hærri laun, í samræmi
við menntun þeirra og reynslu og þá ábyrgð sem
viðkomandi mun axla í starfi.
Anna Birna segir að Sóltún hafi aukið svigrúm í
launagreiðslum til starfsfólks, meðal annars
vegna þess að húsið sé hannað þannig að starfs-
fólk nýtist betur en í eldri húsum. Eins sé stjórn-
unarkostnaður í lágmarki „og það gerir okkur
kleift að nota fjármagnið til að greiða fólki sem
sinnir hinni eiginlegu hjúkrun,“ segir Anna Birna.
Fjöldi starfsumsókna berst hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík
Samið við hvern og einn
starfsmann um launin
EKIÐ var á gangandi vegfaranda á
Bústaðavegi í Reykjavík um klukkan
hálfsex í gær. Að sögn lögreglu var
konan, sem er rúmlega sjötug, að
ganga yfir götuna þegar ekið var á
hana. Konan, sem hlaut einhverja
höfuðáverka, var flutt á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi en er ekki
talin alvarlega slösuð.
Ekið á gangandi
vegfaranda
SÉRSTÖK áætlun verður kunngerð
á vegum Flugmálastjórnar fyrir
miðjan mánuðinn um hvernig eftir-
liti með loftflutningum í tengslum við
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum verður
háttað. Er gripið til þessara ráðstaf-
ana samkvæmt tillögum rannsókn-
arnefndar flugslysa vegna flugslyss-
ins í Skerjafirði í ágúst í fyrrasumar.
Brýnt að fjölga starfsmönnum
flugöryggissviðs
Þetta kemur fram í svarbréfi Þor-
geirs Pálssonar flugmálastjóra við
bréfi Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra frá 5. apríl sl. þar
sem hann fól Flugmálastjórn að
tryggja að öryggi í flugi væri ávallt
sambærilegt við það sem best gerð-
ist og tilgreindi ráðstafanir sem
Flugmálastjórn var falið að grípa til í
tilefni af flugslysinu í Skerjafirði 7.
ágúst 2000.
Í tilefni af umræddu flugslysi hef-
ur flugöryggissvið Flugmálastjórnar
lagt sérstaka áherslu á tvö atriði.
Annars vegar stjórnun eldsneytis-
birgða í flugi og hins vegar þjálfun
flugmanna. Í framhaldi af því er í at-
hugun að gera sérstakt átak til að
efla þekkingu flugmanna og flugrek-
enda á stjórnun eldsneytis í flugi og
bæta verklag og eftirlit á því sviði.
Auk þess verður leitað leiða til að
efla þjálfun flugmanna í að bregðast
við því ástandi sem myndast þegar
hreyfill missir afl í minni gerðum
flugvéla.
Flugmálastjóri segir í svari sínu til
samgönguráðherra að brýnt sé að
fjölga starfsmönnum flugöryggis-
sviðs stofnunarinnar og tryggja að
nýir starfsmenn fái nauðsynlega
þjálfun til eftirlitsstarfa. Sérstaklega
sé þetta mikilvægt til þess að flug-
öryggissvið geti fylgt eftir þeirri
ákvörðun að JAR-OPS 1 fyrir flug-
rekendur með minni flugvélar taki
gildi 1. október næstkomandi.
Segir flugmálastjóri að eftirlits-
gjöld flugrekenda standi engan veg-
inn undir því aukna eftirliti sem
nauðsynlegt sé til að mæta auknum
kröfum og ört vaxandi umsvifum í ís-
lenskum flugrekstri. Því sé nauðsyn-
legt að auknu fjármagni verði beint
til þessa málaflokks.
Skipulag loftflutninga á þjóðhátíð í Eyjum undirbúið
Áætlun Flugmálastjórn-
ar um eftirlit á lokastigi
ÁREKSTUR varð við Bíldshöfða
síðdegis í gær þegar bifhjóli var ekið
á fólksbíl. Ökumaður bifhjólsins var
fluttur á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá vakthafandi
lækni slysadeildar hlaut ökumaður-
inn talsvert slæmt högg en er ekki
alvarlega slasaður og fer heim í dag.
Ökumann fólksbílsins sakaði ekki en
talsverðar skemmdir urðu á farar-
tækjunum.
Árekstur bif-
hjóls og fólksbíls
FRAMKVÆMDUM við endurbæt-
ur á Þjóðminjasafni Íslands við
Hringbraut verður haldið áfram af
fullum krafti í sumar. Að sögn
Margrétar Hallgrímsdóttur þjóð-
minjavarðar verður útboð vegna
framkvæmda við seinni áfanga aug-
lýst á morgun og mun vinnan því
hefjast um leið og valið hefur verið.
Framkvæmdum
haldið áfram
Þjóðminjasafn Íslands
BROTIST var inn í bóka- og rit-
fangaverslunina Griffil í Skeifunni í
fyrrinótt og tölvubúnaði stolið. Ör-
yggismiðstöð Íslands tilkynnti lög-
reglunni í Reykjavík um innbrotið
laust fyrir klukkan þrjú.
Að sögn lögreglunnar hafði aðal-
hurð verslunarinnar verið spennt
upp og ein rúða brotin. Málið er í
rannsókn.
Tölvubún-
aði stolið
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦