Morgunblaðið - 09.06.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ob, ob, ob, ráðherrann ætti að hugsa sig tvisvar um áður en hann
kyssir og segir „farvel Frans“ við mig.
Fyrstu iðjuþálfarnir útskrifaðir
Menntaðir
á Íslandi
Í DAG útskrifast fyrstunemendur úr íslenskunámi í iðjuþjálfun frá
Háskólanum á Akureyri.
Nemendurnir eru fimmtán
og hafa stundað námið í
fjögur ár. Brautarstjóri í
iðjuþjálfun hjá Háskólan-
um á Akureyri er Guðrún
Pálmadóttir. Hún var
spurð hvort þetta nám væri
nýtt á Íslandi?
„Já, iðjuþjálfun hefur
ekki áður verið kennd hér á
landi. Það er mikill skortur
á iðjuþjálfum hér og hingað
til hefur fólk í þessari stétt
sótt menntun sína til út-
landa, einkum til Norður-
landa. Alveg frá upphafi
hefur það verið stefna Iðju-
þjálfafélagsins að koma á
þessu námi á Íslandi og það
er bæði til að fjölga hraðar í stétt-
inni og einnig af því að þetta er
þannig starf að mikilvægt er að
námið fari fram í því umhverfi sem
skjólstæðingarnir koma úr. Þetta
nám hér er miðað við íslenska heil-
brigðiskerfið og aðstæður hér.“
– Hvernig hefur gengið að koma
þessu á laggirnar?
„Það hefur gengið nokkuð vel að
fá kennara. Það var ákveðinn hóp-
ur sem var undirbúinn með það
sérstaklega í huga að koma upp
góðum hópi með meistaranám til
þess að standa að kennslu hér.
Iðjuþjálfabrautin tilheyrir heil-
brigðisdeild og við höfum samnýtt
ýmis námskeið með hjúkrunar-
fræði. Komið var upp hér bráða-
birgðaaðstöðu fyrir sérhæfða
kennslu í iðjuþjálfun og nú eru hér
miklar byggingaframkvæmdir
þannig að kennsluaðstaða er að
vera hér mjög góð. Hluti af náminu
er verknám sem fer fram á heil-
brigðisstofnunum víða um landið.
Starfandi iðjuþjálfar hafa brugðist
mjög vel við að taka á móti nem-
endum í verklegt nám.“
– Er mikil aðsókn í námið?
„Það var mikil aðsókn fyrsta ár-
ið en síðan dró úr henni. Við erum
með fjöldatakmarkanir og það eru
nú átján nemendur sem geta hald-
ið áfram eftir próf á fyrstu önn.
Okkur hefur ekki alltaf tekist að
fylla þá tölu. Við reiknum með að
það muni breytast nú þegar námið
verður þekktara og nemendur fara
að skila sér til vinnu úti í þjóðfélag-
inu.“
– Er þetta nám sniðið að ein-
hverri sérstakri erlendri fyrir-
mynd?
„Já, við höfum mikið tekið til
fyrirmyndar nám í Kanada, sér-
staklega við Dalhouse-háskólann í
Halifax. Við erum í miklum
tengslum við þann
skóla.“
– Á hvern hátt er
námið þá frábrugðið því
sem gerist t.d. á Norð-
urlöndum?
„Í fyrsta lagi er þetta
nám til gráðu sem hefur
ekki verið alls staðar á
Norðurlöndum, þótt það
sé að breytast og þau að
fara í það far, í öðru lagi er meiri
áhersla á kenningar og rannsóknir
hér en annars staðar á Norður-
löndum. Loks er þetta nám sett
upp í áfanga eins og hefðbundið há-
skólanám en þannig er það yfirleitt
ekki í umræddum löndum.“
– Er iðjuþjálfun mikið að breyt-
ast núna?
„Já, það er mjög mikil þróun í
faginu um allan heim og þeirri þró-
un er best lýst þannig að það er
meiri áhersla lögð á grunnhug-
myndir um iðju en minni áhersla á
sjúkdómafræði. Þetta þýðir að áð-
ur fyrr gengum við talsvert út frá
hver væri fötlun eða sjúkdómur
viðkomandi en núna göngum við
meira út frá hvað viðkomandi er að
fást við í daglegu lífi og hvað skipt-
ir hann mestu máli.“
– Hvernig eru atvinnumöguleik-
ar nýrra iðjuþjálfa?
„Þeir eru mjög góðir, það vantar
iðjuþálfa á flestar heilsustofnanir
og auk þess munu iðjuþjálfar, með
fjölgun í stéttinni, leita meira á
óhefðbundin svið og þar á ég við að
þeir eru farnir að starfa á vegum
sveitarfélaga, fyrirtækja og ýmiss
konar samtaka.“
– Hvert er eiginlegt verksvið
iðjuþjálfa?
„Það er að styðja fólk til þess að
geta gert það sem það þarf að gera,
á að gera og vill gera. Við lýsum
þessu með hugtökunum að fólk
geti séð um sig sjálft, lagt sitt af
mörkum til starfa í þjóðfélaginu og
notið lífsins.“
– Hverjar eru helstu námsgrein-
ar í iðjuþjálfun?
„Við skiptum þessu upp í iðju-
þjálfunargreinar, stoðgreinar og
vettvangsnám. Stoð-
greinar eru þær grein-
ar sem flestar heil-
brigðisstéttir læra, svo
sem líffærafræði, lífeðl-
isfræði, sálfræði,
félagsfræði og sjúk-
dómafræði. Iðjuþjálf-
unargreinarnar eru
aftur áfangar sem fjalla
um iðju mannsins og að
meta færni við iðju og hvernig á að
hafa áhrif á færni fólks við iðju,
þær snúast um þetta. Vettvangs-
nám er það nám sem fer fram und-
ir handleiðslu starfandi iðjuþjálfa
og er í allt 25 vikur. Hér á Akureyri
er mjög góð aðstaða fyrir háskóla-
nemendur, þetta er lítill skóli og
náin tengsl milli nemenda og kenn-
ara. Það er mikill hugur í fólki hér.
Það er geysilega mikill áfangi að
fyrstu iðjuþjálfarnir eru nú út-
skrifaðir úr íslensku iðjuþjálfunar-
námi og við iðjuþjálfar erum mjög
bjartsýnir á framtíð iðjuþjálfunar
hér á landi.“
Guðrún Pálmadóttir
Guðrún Pálmadóttir fæddist 1.
marz 1951 að Holti í Ásum í Aust-
ur-Húnavatnssýslu. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1970 og prófi í
iðjuþjálfun frá Árhúsaskóla í
Danmörku árið 1974. Meistara-
gráðu lauk hún 1984 frá Color-
ado State University í Bandaríkj-
unum. Hún hefur lengst starfað á
Reykjalundi en líka tvö ár á geð-
deild Landspítala. Hún hefur
verið kennari og brautarstjóri í
iðjuþjálfun við Háskólann á Ak-
ureyri frá 1997. Guðrún er gift
Andrési Arnalds aðstoðarfor-
stjóra hjá Landgræðslu ríkisins.
Þau eiga fjögur börn.
Fólk stutt til
þess að það
geti það sem
það þarf að
gera, langar
að gera og á
að gera.
ENSÍMTÆKNI ehf., framleiðandi
húðáburðarins Penzim, hefur styrkt
SPOEX, Samtök psoriasis- og exem-
sjúklinga á Íslandi, til ferðar á al-
þjóðaráðstefnu um psoriasis í San
Fransisco. Á ráðstefnunni, sem fram
fer dagana 18.–24. júní nk., verður
fjallað um sjúkdóminn og málefni
sjúklinga. Upphæð styrksins er
250.000 kr.
Ráðstefnan er haldin af alþjóða-
samtökum psoriasissjúklinga, IFPA,
og bandarísku psoriasissamtökunum
NPF. Öllum aðildarfélögunum er
boðið að sækja ráðstefnuna og kynna
það nýjasta í meðferð sjúkdómsins í
hverju heimalandi fyrir sig. Fulltrúar
SPOEX munu kynna Penzim.
Penzim, sem er unnið úr þorsken-
símum, hefur verið á markaði á Ís-
landi í nokkra mánuði. Penzim er af-
rakstur margra ára rannsókna á
virkni þorskensíma en niðurstöður
þeirra benda eindregið til þess að
ensímin brjóti niður prótein á yfir-
borði frumna í ónæmiskerfinu. Penz-
im inniheldur blöndu djúpvirkra ens-
íma sem hafa mýkjandi, nærandi og
græðandi eiginleika auk þess sem
þau hafa reynst vel við margs konar
húðkvillum, svo sem psoriasis og ex-
emum.
Nýleg athugun sérfræðinga á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi þyk-
ir gefa tilefni til formlegra klínískra
rannsókna með þróun lyfjaforms
áburðarins í huga. Klínískar rann-
sóknir við bandarískan háskóla eru
hafnar og samningar hafa náðst við
ítalskt lyfjafyrirtæki um sölu Pen-
zims þar í landi. Samstarf við alþjóð-
legt risafyrirtæki á snyrtivörumark-
aði er einnig hafið.
Fyrirtækið Ensímtækni ehf. var
stofnað árið 1999 sem þróunar- og
framleiðslufyrirtæki um notkun ens-
íma til lyfjagerðar og í snyrtivörur. Í
stjórn þess sitja Jón Bragi Bjarnason
stjórnarformaður, Friðrik Pálsson,
Bergur Benediktsson, Ásgeir Sigur-
vinnsson og Gunnar Steinn Pálsson.
Penzim fæst í öllum helstu lyfjabúð-
um og heilsuvöruverslunum landsins.
Jón Bragi Bjarnason afhendir Þórunni Jónsdóttur,
starfandi formanni SPOEX, styrkinn.
Ensím-
tækni
styrkir
SPOEX