Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 21
SFR félagar
Vi› viljum efla stéttarvitund launafólks
og baráttu fyrir jöfnu›i í fljó›félaginu –
vi› viljum afnema kynbundi› launamisrétti.
fijó›in vill velfer›arsamfélag. Um flá lífss‡n
stöndum vi› áfram vör› og sækjum fram
til aukinna réttinda.
fiátttaka flín skiptir máli!
Vi› Íslendingar erum sammála:
Umönnunarstörf
eru mikilvæg!
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
Sölustaðir: Reykjavík: Demantahúsið, kringlunni, Franch Michelsen,
Laugavegi 15, Gullhöllin, Laugavegi 49, Gullsmiðurinn, Mjódd.
Akranes: Model. Hafnarfjörður: Úr og gull. Akureyri: KPG Modelsmíði.
GRUNNSKÓLINN í Hrísey hefur
tekið upp skólastefnu sem kallast
Efling – áleiðis með nemendum.
Starfað hefur verið eftir þessari
stefnu síðustu tvö skólaár og er ár-
angurinn góður. Í Eflingu er lögð rík
áhersla á samstarf kennara og for-
eldra við nám barnanna og sameig-
inlega ákvarðanatöku fagmanna og
foreldra.
Efling er hugmyndafræði sem ætl-
uð er fáum nemendum með sérþarfir,
en hvað Hrísey varðar hefur hún ver-
ið nýtt á þann hátt að hún hefur bætt
nám allra nemenda við skólann.
Grunnskólinn í Hrísey flokkast
með fámennum skólum en almennt
er skilgreing á fámennum skóla sú að
nemendur séu færri en 100. Sam-
kennsla er því viðhöfð í skólanum,
þ.e. fleiri en einum bekk er kennt
saman. Nemendur skólans eru 30
talsins í 1. til 9. bekk, en börnin ljúka
námi í 10 bekk í á Dalvík.
Samkennslan er með þeim hætti að
skólanum er skipt í þrjár deildir og er
1 til 3 bekk kennt saman, 4 til 5 bekk
og 6 til 9 bekk.
Skólastjóri er Rut Indriðadóttir en
auk hennar eru ríflega fjórar stöður
kennara við skólann.
Samkennsla gerir miklar
kröfur til kennara
Rut segir fámenna skóla bæði hafa
kosti og galla. Helstu gallar fá-
mennra skóla eru þeir að tækjakost-
ur er oft fábrotinn, húsnæði ófull-
nægjandi, ekki síst er varðar
verkgreina- og íþróttakennslu og
eins getur fámennið verið ókostur
varðandi samskipti nemenda og
félagslíf. Samkennsla gerir einnig
miklar kröfur til kennara og þarf-
hann að koma til móts við oft afar
ólíkar þarfir nemenda í sínum náms-
hópi. Hætta er á að kennarar ein-
angrist en þeir hafa ekki tækifæri til
að ræða og ráðgast við kennara í svip-
aðri stöðu. Þá standa fámennir skólar
á landsbyggðinni frammi fyrir þeim
vanda að erfitt hefur reynst að fá
menntaða kennara til starfa, en sam-
kennslan er krefjandi og góð mennt-
un er kennaranum því nauðsyn.
Með því að þekkja og viðurkenna
gallana segir Rut að fyrsta skrefið sé
stigið í að takast á við þá og vitanlega
að sigrast á þeim.
Litlar einingar skapa
öryggi meðal nemenda
Hún segir kostina einnig fjöl-
marga. Nemendurnir séu þunga-
miðja skólastarfsins, agavandamál
séu fátíð og því betra næði til náms,
kennarar hafi góða yfirsýn yfir allt
skólastarfið, sveigjanleiki sé í ákvarð-
anatöku, námshóparnir séu litlir og
nemendur fái því meiri athygli og
tíma. Kennslan sé einstaklingsmiðuð
og tengsl við nemenda, foreldra og
kennara séu náin. Skólinn sé áhrifa-
mikil og mikilvæg stofnun í samfélag-
inu og hver og einn sé mikilvægur.
Litlar einingar og notalegt umhverfi
skapi einnig öryggi meðal nemenda.
Rut segir að skólamenn séu í aukn-
um mæli farnir að horfa til sam-
kennslu og nýta sér kosti hennar, það
gildi einnig um stóra skóla. Megin-
skilyrði fyrir árangri í samkennslu
eru hæfir kennarar, en slík kennsla
krefst mikillar faglegrar kunnáttu og
færni kennarans.
Efling tekin upp
fyrir tveimur árum
Haustið 1999 var markvisst tekin
upp stefna í skólanum sem kallast
Efling – áleiðis með nemendum, en
um er að ræða leiðbeiningar um
skipulag skólanáms með þarfir allra
fyrir augum. Um er að ræða handbók
sem miðar að því að gera samstarfs-
hópum skóla og heimila kleift að nýta
á hagkvæman hátt þann tíma sem
varið er til að undirbúa skólagöngu
nemenda með sérþarfir. Efling miðar
einnig að því að foreldrar og fagfólk
sameini krafta sína við að gera náms-
áætlanir sem hæfa hverjum nemenda
fyrir sig, hrinda þeim í framkvæmd
og meta árangurinn. Höfundar eru
Michael Giangreco, Ghigee J. Clon-
inger og Virginia Salce Iverson.
Tveir hinna fyrst töldu eru prófess-
orar við menntunardeild háskólans í
Burlington í Vermontfylki í Banda-
ríkjunum en Iverson er kennsluráð-
gjafi hjá ráðgjafateymi á vegum fylk-
isins, en það sér um alhliða ráðgjöf
um þjónustu við nemendur með sér-
þarfir. Rúnar Sigþórsson og Hörður
Bergmann þýddu, en Ingibjörg Auð-
unsdóttir sá um útgáfu í samvinnu við
Landssamtökin Þroskahjálp.
Áhersla lögð á samstarf
við foreldra
Ingibjörg Auðunsdóttir ráðgjafi
hjá Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri segir að tildrög þess að Efl-
ing var tekin upp í Grunnskólanum í
Hrísey megi rekja til þess að Rut
skólastjóri hefði óskað eftir aðstoð
vegna nokkurra nemenda
sem þurftu á aðlöguðu námi að
halda. Þá var ákveðið að nýta hluta af
hugmyndafræði Eflingar fyrir sem
flesta nemendur skólans. Allir kenn-
arar og skólastjóri skólans fóru á
námskeið sem stóð yfir allan vetur-
inn. Lögð var áhersla á samstarf við
foreldra og þátttöku þeirra í námi
barna sinna og sameiginlegri ákvarð-
anatöku fagmanna og foreldra. Úr-
ræði og hugmyndafræði sem ætluð
var fáum nemendum með sérþarfir
var þannig nýtt til að bæta nám allra
nemenda í skólanum.
Kjöraðstæður til að vinna eftir
þessu kerfi í Hrísey
Niðurstaðan varð því sú að litið var
svo á að allir nemendur hefðu sér-
þarfir. „Spurningin er bara sú hverj-
ar þær eru, það eru engir tveir menn
eins og menn hafa mismunandi þarf-
ir,“ segir Rut. Þetta kerfi hefur nú
verið notað tvö skólaár og er árang-
urinn góður að sögn Rutar og Ingi-
bjargar. Rut segir að vissulega kosti
það mikla vinnu og skipulag en um-
hverfið í Hrísey bjóði upp á kjörað-
stæður til að vinna eftir því. „Nem-
endurnir líta svo á að það sé eðlilegt
að þeir séu ólíkir, séu mislangt á veg
komnir í náminu og að einn geti
meira í þessari grein á meðan annar
er góður í einhverju öðru fagi. Börnin
leita hvert til annars með aðstoð sem
allir veita fúsleg og þannig skapast
mikil samkennd hér í skólanum,“ seg-
ir Rut.
Goðsögn að allir nemendur
þurfi að fást við sama verkefnið
Fram kemur í handbókinni að
mesti vandinn við að skipuleggja
þátttöku nemenda með miklar ein-
staklingsþarfir í almennum bekk sé
að hafa á takteinum raunhæfar lausn-
ir á því hvernig standa eigi skynsam-
lega að verki Þá hætti einnig mörgum
til að líta svo á að jafnaðarmerki sé á
milli aldurs nemenda og inntaks nám-
skrár, t.d. að allir nemendur í 5. bekk
þurfi að vera að vinna í námsefni 5.
bekkjar. Þetta sé röng ályktun. Nem-
endur í einum og sama 5. bekk geti
verið að vinna námverkefni sem eru
bæði á undan og eftir því sem bekkn-
um almennt er ætlað en samt verið að
fást við verðug verkefni sem hæfa
þeim, svo framarlega sem verið sé að
koma markvisst til móts við einstak-
lingsbundnar námsþarfir þeirra.
Jafnvel í bekk þar sem engir nem-
endur hafa verið greindir með sér-
þarfir sé það goðsögn að allir nem-
endurnir geti verið að fást við samsk
konar verkefni í öllum námsgreinum
eða námsþáttum. Vaxandi áhugi
kennara og annarra skólamanna á
aldursblönduðum bekkjum beri vott
um skilning á því að kennarar verði
að hafa á valdi sínu leiðir til að koma
til móts við ólíkar námsþarfir margra
nemenda á sama tíma. Markviss og
vel skipulögð skipting í getublandaða
námshópa getur verið mjög jákvæð
fyrir nemendur og gefið þeim tæki-
færi á að læra hver af öðrum í fjöl-
breyttu námsumhverfi. Um leið og
leitað er raunhæfra leiða til að
tryggja aðild nemenda með miklar
sérþarfir að almennum bekkjum
þróast aðferðir sem koma öllum nem-
endum að gagni.
Fjölskyldan gegnir
lykilhlutverki
Meginstoðir Eflingar eru byggðar
á því að eitt af mikilvægustu hlut-
verkum menntunar sé að skapa
hverjum einstaklingi sem best lífs-
skilyrði og að fjölskyldan gegni lyk-
ilhlutverki við gerð námsáætlunar.
„Foreldar bera mikla ábyrgð, þeir
eiga börnin og það má segja að þeir
séu sérfræðingar í sínum eigin börn-
um. Við náum ekki árangri nema for-
eldar og kennarar vinni vel sama.
Saman geta þeir myndað sterkt afl og
barnið finnur það strax,“ sagði Rut.
Foreldrarnir þekkja flestar hliðar
barna sinna og hafa mestra hags-
muna að gæta gagnvart námi þeirra.
Þannig er teymisvinna einnig ein
af meginstoðum Eflingar, en hún er
ómissandi þáttur í að auka gæði
menntunar.
Jákvætt að hafa leikskólann í
sama húsnæði og grunnskólinn
Rut segir að árangur af Eflingu sé
ótvíræður hvað varðar Gunnskólann í
Hrísey og hún sé ánægð með að
markvisst sé farið eftir þessu kerfi í
skólastarfinu. Þá nefndi hún einnig
að það hefði jákvæð áhrif á skóla-
starfið að leikskólinn í eynni var flutt-
ur í húsnæði skólans síðasta haust en
í honum eru 17 börn. Einhverjar efa-
semdir hefðu komið upp í fyrstu um
að dæmið gengi upp en þær séu ekki
lengur fyrir hendi. Flutningurinn var
gerður í hagræðingarskyni, en nú sé
að koma í ljós jákvæð áhrif á bæði
skólastigin.
Hrísey
Grunnskólinn í Hrísey starfar eftir skólastefnu sem kallast Efling og gefið hefur góða raun
Hefur bætt
nám allra
nemenda
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur grunnskólans skoða forrit um mannslíkamann í líffræði.
Rut Indriðadóttir, skólastjóri grunnskólans í Hrísey, og Ingibjörg Auð-
unsdóttir frá Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri.
Leikskólinn í Hrísey var fluttur í húsnæði grunnskólans sl. haust og fer
starfsemi skólanna vel saman. Hér eru leikskólabörn í morgunleikfimi.
Í Hrísey er rekinn skóli fyrir um 30 börn.
Margrét Þóra Þórsdóttir ræddi við skóla-
stjórann um nýjar leiðir í kennslu og vanda-
mál sem fámennir skólar glíma við.