Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 53
Í Morgunblaðinu
laugardaginn 2. júní er
sagt frá lokaverkefni
Ólafar Þórhallsdóttur
frá lyfjafræðideild Há-
skóla Íslands um rann-
sókn á hugsanlegum
aukaverkunum og
milliverkunum nátt-
úruefna. Send var fyr-
irspurn til allra lækna
landsins. Þar sem
neysla fæðubótarefna
og náttúruvara (um er
að ræða vítamín, stein-
efni, jurtir, næringar-
efnablöndur og önnur
bætiefni) hefur stór-
aukist hin síðari ár, er
þetta þarft framtak sem ber að
þakka. Því hefur stundum verið hald-
ið fram um þessi bætiefni að þar sem
þetta séu náttúruvörur, séu þær und-
antekningarlaust lausar við auka-
verkanir. Það fær að sjálfsögðu ekki
staðist, því þetta eru virk efni, í sum-
um tilfellum mjög virk og geta því
eðlilega valdið aukaverkunum, eink-
um hjá viðkvæmu fólki.
Það sem raunverulega kom mér á
óvart var, hve fá tilfelli læknar töldu
sig hafa orðið vara við, miðað við hina
gífurlegu notkun þessara efna. Hef
ég þá til hliðsjónar aukaverkanir af
algengum fæðutegundum eins og
mjólk, sykri og mjölvörum, en alls
ekki tíðni og alvarleika þeirra him-
inhrópandi aukaverkana sem fylgja
mörgum lyfjum og eðlilegt þykir að
menn sætti sig við. Burtséð frá því
kemur einnig skýrt fram í verkefni
Ólafar að um „hugsanlegar“ auka-
verkanir sé að ræða. Lítum aðeins
nánar á tölurnar.
Aukaverkanir
Í fyrsta lagi ber að hafa í huga að
hér er rætt um „hugsanlegar“ auka-
verkanir. Upplýsing-
arnar eru fengnar frá
læknum, sem eru þá að
meðhöndla sjúklinga.
Ekki er hægt að útiloka
að aðrir þættir, annað-
hvort sjúkdómur við-
komandi eða lyf sem
hann er hugsanlega að
nota geti hafa valdið
„aukaverkuninni“. En
gefum okkur að öll 253
tilvikin séu af völdum
náttúruvara. Næstum
þriðjungur þessara til-
fella var af völdum
Herbalife. Það efni
þekki ég ekki og get því
ekki tjáð mig um, nema
hvað nokkuð mun vera um að notuð
sé tegund sem ekki er heimiluð hér-
lendis og inniheldur efedrín (skylt
amfetamíni). Einhver tilfelli munu
hafa verið af þess völdum. Liðlega
5% tilfella var af völdum Ripped fuel,
sem einnig inniheldur efedrín, og er
ólöglegt hérlendis.
Flest tilfelli hugsanlegra auka-
verkana af einni jurt (47 tilvik) voru
af völdum ginsengs. Í ginseng eru
mörg mjög virk efni sem m.a. auka
súrefnisflutning blóðs til frumnanna
og gæti það verið ástæðan fyrir því
að fólk finnur fyrir auknu þreki og
úthaldi. Skv. nýlegum rannsóknum
styrkja þau einnig ónæmiskerfið.
Vegna þess hve virk þessi jurt er,
hefur hún verið rannsökuð meira en
flestar aðrar jurtir, m.a. með tilliti til
öryggis (aukaverkana). Niðurstöður
þeirra rannsókna eru að ginseng sé
öruggt bætiefni. Óstaðfestar vís-
bendingar eru þó til um að mjög stór-
ir skammtar geti valdið svefnleysi,
hækkað blóðþrýsting og dæmi eru
um að konur hafi fundið fyrir
eymslum í brjóstum við neyslu gin-
sengs. Einnig hefur komið fram of-
næmi fyrir ginseng, en í raun getur
komið upp ofnæmi fyrir hverju sem
er.
Blómafrjókorn eru ábyrg fyrir 18
tilvikum hugsanlegra aukaverkana.
Blómafrjókorn eru frjóduft blóma
sem býflugur safna í litla klumpa ut-
an á fætur sér þegar þær fljúga á
milli blóma. Þetta er afar styrkjandi
samansafn næringarefna, en vegna
þess hve kröftugt það er getur það
valdið ofnæmisviðbrögðum hjá ein-
staka manni. Einnig er frjókornaof-
næmi mjög algengur sjúkdómur og
ekki er óhugsandi að frjókornaduft
úr töfluglasi eða glasi af frjókornak-
urli geti valdið ofnæmisviðbrögðum.
Athyglisvert er að sólhattur olli
hugsanlega aukaverkunum í 13 til-
fellum.
Sólhattur er mjög virk jurt, styrk-
ir ónæmiskerfið og byggir líkamann
upp gegn kvefi og flensu. Rannsóknir
hafa sýnt að jafnvel í mjög stórum
skömmtum veldur þessi jurt engum
skaða (Mengs U, Clare CB, Poiley
JA. Toxicityu of Echinacea purp-
urea. Acute, subacute and genotox-
icity studies.
Arzneimittelforschung
1991;41:1076–1081). Aðrar rann-
sóknir styðja þessar niðurstöður. Þó
hafa komið upp tilfelli um slæm of-
næmisviðbrögð af sólhatti, en eins og
fyrr segir getur fólk haft ofnæmi fyr-
ir hverju sem er.
Hvað er hættulegt?
Kúamjólk, egg og fiskur eru al-
gengustu ofnæmisvaldar hjá börn-
um. Meðal einkenna mjólkurofnæm-
is eru húðútbrot, ristilbólga,
niðurgangur, uppköst og ofþornun.
Talið er að 2–5% barna hafi ofnæmi
fyrir mjólk. Mjólkursykursóþol veld-
ur svipuðum einkennum en vægari.
Um 10% fullorðinna hafa mjólkur-
sykursóþol. Glútenóþol veldur niður-
gangi, magaóþægindum og getur
leitt til næringarskorts. Tíðni þessa
sjúkdóms er stöðugt að aukast og tal-
in í einhverjum prósentum af þjóð-
inni. Flestir þekkja hversu ör börn
geta orðið af mikilli sætindaneyslu. Í
samanburði við aukaverkanir þess-
ara matvæla, eru 253 tilvik af vörum
sem meirihluti þjóðarinnar er að
nota, harla óveruleg.
Niðurstaða
Þekking er best. Upplýsingar eru
nauðsynlegar og þær má nálgast í
bókum og tímaritum og að sjálfsögðu
á Netinu. Tvær fræðilega ágætar
netsíður sem tína til þekktar rann-
sóknir og aðrar upplýsingar um nátt-
úruefni eru www.tnp.com <http://
www.tnp.com> og www.healthwell-
.com <http://www.healthwell.com> .
Þar eru m.a. upplýsingar um milli-
verkanir og aukaverkanir sem
þekktar eru af náttúruvörum. Á
www.netdoktor.is <http://www.net-
doktor.is> er núna ágæt grein um
lyf í fæðubótarefnum (efedrín og
fleiri) sem reyndar fást hvorki hér-
lendis né annars staðar í Evrópu.
Eru náttúruefni
hættuleg?
Örn
Svavarsson
Fæðubótarefni
Upplýsingar eru nauð-
synlegar, segir Örn
Svavarsson, og þær má
nálgast í bókum og
tímaritum og að sjálf-
sögðu á Netinu.
Höfundur er eigandi Heilsuhússins.
SKÓLASTJÓRI björgunarskólans
prédikar á sjómannadaginn í sjó-
mannamessu í Bústaðakirkju kl.
11.00 árdegis.
Ræðumaður verður Hilmar
Snorrason skólastjóri Björgunar-
skólans. Sjómenn aðstoða við
messuna og annast bæna og ritn-
ingarlestra.
Organistinn, Guðmundur Sig-
urðsson, leikur kröftug orgelverk
eftir Juke Ellington og Kór Bú-
staðakirkju syngur. Á undanförn-
um árum hefur mikill fjöldi fólks
sótt sjómannamessur í
Bústaðakirkju og sjómenn og
aðrir í störfum tengdum sjó-
mennsku og útgerð flutt stólræðu
dagsins. Það er mikið gleðiefni að
fá nú í prédikunarstól á sjómanna-
degi skólastjóra þess skóla, sem
leggur grunn að öryggi og farsæld
íslenskra sjómanna og þeirra er
hafsins vegu fara. Bústaðakirkja
og söfnuður hennar árna íslenskum
sjómönnum og fjölskyldum þeirra
heilla og blessunar Guðs og býður
þau velkomin til sjómannamess-
unnar.
Pálmi Matthíasson
sóknarprestur.
Safnaðarstarf
KEFAS: Þriðjudagurinn 12. júní.
Almenn bænastund kl. 20:30. Mið-
vikudagurinn 13. júní. Samveru-
stund unga fólksins kl. 20:30
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Sjómanna-
messa í
Bústaðakirkju
KIRKJUSTARF