Morgunblaðið - 09.06.2001, Side 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 57
Reyðarál hf. kynnir skýrslu um mat á umhverfisáhrifum álvers við Reyðarfjörð í opnu húsi í
Félagslundi á Reyðarfirði miðvikudaginn 13. júní og í Sunnusal á Hótel Sögu í Reykjavík
fimmtudaginn 14. júní.
(Athugið breyttan fundarstað í Reykjavík frá auglýsingu Skipulagsstofnunar)
Opna húsið hefst kl. 16:00 báða dagana og stendur til kl. 20:30. Fulltrúar verkefnisstjórnar og
ráðgjafar við mat á umhverfisáhrifum álversins verða á staðnum til að veita upplýsingar og
svara spurningum. Hlutverk Skipulagsstofnunar og einstakir þættir matsvinnunnar verða kynntir
sérstaklega í stuttum erindum báða dagana, kl. 17:15 og aftur kl. 19:00.
Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum álversins er aðgengileg almenningi á heimasíðu Reyðaráls
hf., www.reydaral.is. Þar er einnig að finna viðaukaskýrslur um einstaka þætti matsvinnunnar.
Á fundinum á Reyðarfirði kynnir hafnarsjóður Fjarðabyggðar mat á umhverfisáhrifum hafnar við
álverið. Skýrslu um mat á umhverfisáhrifum hafnarinnar er að finna á heimasíðu Hönnunar hf.,
www.honnun.is.
Verið velkomin á kynningarfundi Reyðaráls hf.
Álver í Reyðarfirði
Kynning á mati á umhverfisáhrifum
w
w
w
.a
th
yg
li.
is
LANDSSAMTÖK foreldrafélaga
leikskóla (LFL) og Reykjavík-
urdeild Landssamtaka foreldra-
félaga leikskóla (RLFL) hafa und-
irritað samstarfssamning við
Heimili og skóla, landssamtök
foreldra. Samningurinn felur í
sér að Heimili og skóli mun
styðja við samtök foreldra leik-
skólabarna og veita þeim ýmsa
aðstoð og þjónustu. Hér eftir mun
því heimilisfang, póstfang og
símanúmer beggja þessara félaga
foreldra leikskólabarna vera það
sama og hjá Heimili og skóla og
þangað geta foreldrar leikskóla-
barna leitað eftir upplýsingum og
aðstoð.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Formenn félaganna þriggja undirrita samninginn.
Foreldrar leikskólabarna
semja við Heimili og skóla
ÆGISKLÚBBURINN er ferða-
klúbbur þeirra sem eiga fellihýsi,
fellihjólhýsi eða tjaldvagna frá
Seglagerðinni Ægi. Um helgina 8. –
10. júní verður fyrsta ferðalag
klúbbsins í Biskupstungur en þang-
að er öllum stefnt sem vilja hitta
aðra kúbbfélaga og skemmta sér við
söng og samveru (nánar tiltekið við
þjóðveg 35 á Faxasvæðinu við
Tungnaréttir).
Næsta ferð verður síðan farin í
Galtalækjarskóg um miðan júlí og í
ágúst hyggjast klúbbfélagar ferðast
saman í Skagafjörðinn. Ægisklúbb-
urinn ætlar einnig að leggja öðrum
góðum málefnum lið og í sumar selja
klúbbfélagar minjagripi með merki
klúbbsins, luktir og fleira, til styrkt-
ar Neistanum, félagi hjartveikra
barna. Um þessar mundir eru um
1.500 eigendur vagna frá Seglagerð-
inni Ægi.
Ægisklúbb-
urinn í
Biskups-
tungum um
helgina
SAMTÖKIN Komið og dansið
standa fyrir dansleikjum á Ingólfs-
torgi í miðbæ Reykjavíkur sunnu-
dagana 10. júní og 24. júní nk.
Um er að ræða tilbreytingu í mið-
borgarlífinu í samstarfi við menning-
arsveit Hins Hússins.
Danstónlist verður flutt af geisla-
diskum með hátalarakerfi og val tón-
listar miðað við að flestir finni eitt-
hvað við sitt hæfi. Létt sveifla og
línudansar verða þó í fyrirrúmi.
Dansinn hefst kl. 14:00 og stendur
til kl. 16:00.
„Reykvíkingar og aðrir sem leið
eiga um miðborgina eru hvattir til að
kynna sér hvað um er að vera og nóg
er plássið til að stíga dansinn. Eng-
inn aðgangseyrir, bara hiti og sviti í
vonandi góðu veðri“ segir í frétta-
tilkynningu.
Dansleikir á
Ingólfstorgi
Umhverfisverndarsamtök Íslands
heldur fulltrúaráðsfund í dag, laug-
ardag, kl. 14:00 í stofu 201 í Lög-
bergi.
Á fundinum mun verða fjallað um
tvö mál, Kárahnúkavirkjun og vatns-
miðlun í Þjórsárverum. Þórólfur
Matthíasson, hagfræðingur, mun
fjalla um félagsleg og efnhagsleg
áhrif vegna byggingar Kárahnúkja-
virkjunar, en Árni Bragason, for-
stöðumaður Náttúruverndar ríkis-
ins, mun fjalla um áætlanir
Landsvirkjunar um vatnsmiðlun við
Norðlingaöldu, sem hefur áhrif á
Þjórsárver.
Halda full-
trúaráðsfund
♦ ♦ ♦
MAT á umhverfisáhrifum Kára-
hnjúkavirkjunar er kynnt í máli og
myndum á veggspjöldum í sýning-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur frá og
með 8. júní til föstudags 15. júní
nk. Almenningi á höfuðborgar-
svæðinu gefst þar færi á að kynna
sér helstu niðurstöður umhverfis-
matsins.
Ennfremur hanga uppi í Ráð-
húsinu veggspjöld með ýmsum al-
mennum upplýsingum um orku-
mál, vatnsafl og virkjun þess.
Sjötta og síðasta vikan í kynn-
ingarferli mats á umhverfisáhrif-
um Kárahnjúkavirkjunar er að
hefjast og ber að skila athuga-
semdum vegna matsins skriflega
til Skipulagsstofnunar í síðasta
lagi 15. júní nk.
Næstu fjórar vikur þar á eftir
verður unnið úr athugasemdum.
Úrskurður Skipulagsstofnunar
verður kveðinn upp 13. júlí nk.,
nema því aðeins að framkvæmda-
raðili, Landsvirkjun, telji sig þurfa
meira en fjórar vikur til að fjalla
um athugasemdirnar. Ef svo færi
frestuðust dagsetningar úrskurðar
og kærufrests vegna úrskurðarins
sem næmi þeim viðbótartíma sem
framkvæmdaraðili tæki sér til að
svara.
Kárahnjúkavirkjun
Kynning í
Ráðhúsinu
Í myndatexta á síðunni auðlesið
efni í Daglegu lífi í gær var Bergvin
Ólafarson háseti ranglega sagður
Ólafsson. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangar dagsetningar
Í auglýsingu frá Skipulagsstofnun
í gær voru rangar dagsetningar á
tíma sem kynning um Hallsveg í
Reykjavík liggur frammi.
Réttar dagsetningar eru frá 8.
júní til 13. júlí.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Á SJÓMANNADAGINN tekur for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, þátt í hátíðahöldum á Ísafirði og
flytur ræðu dagsins við sjómanna-
messu í Ísafjarðarkirkju. Einnig
verður forsetinn viðstaddur er sjó-
menn verða heiðraðir og við athöfn
við minnismerki um drukknaða sjó-
menn. Þá mun forsetinn taka þátt í
sjómannadagskaffi og skoða listsýn-
ingar, sem nú eru á Ísafirði.
Forsetinn
á Ísafirði
♦ ♦ ♦
BEIN útsending á útdrætti í Lottó
verður framvegis frá Stöð 2, Sýn og
Ríkissjónvarpinu auk allra útvarps-
stöðva Norðurljósa kl. 18:54, en sölu-
kössum verður lokað kl. 18:40 á laug-
ardagskvöldum. Framleiðsla og
útsendingarstjórn verður áfram sem
hingað til í myndveri Íslenska út-
varpsfélagsins og sent verður út á
Stöð 2 og Sýn, en útsending í Rík-
issjónvarpinu bætist við, samkvæmt
því sem kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Getspá.
Útdráttur á Víkingalottó er send-
ur hingað um gervihnött og verður
sú útsending einnig á Stöð 2, Sýn og
Ríkissjónvarpinu klukkan 18:54 á
miðvikudögum.
Lottó sent
út á Stöð 2,
Sýn og Rúv
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦