Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
ÞRÍR menn hafa verið úrskurðaðir í
14 daga gæsluvarðhald af Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Þeir eru grunaðir
um að hafa ásamt fleirum staðið að
stórfelldum skipulögðum skattsvik-
um sem tengjast fyrst og fremst fyr-
irtækjum og einstaklingum í bygg-
ingariðnaði.
Rannsóknin, sem er á vegum efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra
í samvinnu við embætti skattrann-
sóknarstjóra, er á frumstigi en skatt-
svikin eru talin nema a.m.k. 70 millj-
ónum króna. Sé sú tala rétt hefur
ríkissjóður orðið af um 20-30 millj-
ónum vegna vangoldins virðisauka-
skatts. Vangoldinn tekjuskattur gæti
numið tugum milljóna.
Mennirnir eru taldir hafa ýmist
gefið út eða notað tilhæfulausa reikn-
inga til gjaldfærslu í fyrirtækjum í
byggingariðnaði með þeim afleiðing-
um að bókhald fyrirtækjanna var
stórlega rangfært. Reikningar voru
gefnir út fyrir vinnu sem aldrei var
unnin og efni sem aldrei var keypt. Í
bókhaldinu fundust ennfremur reikn-
ingar vegna launa iðnaðarmanna sem
aldrei unnu að tilteknum verkum.
Þannig virtist kostnaður fyrirtækj-
anna vera meiri en hann raunveru-
lega var og fyrirtækin komu sér und-
an því að greiða virðisauka- og
tekjuskatt. Í sumum tilvikum leiðir
þetta til þess að virðisaukaskattur er
ranglega endurgreiddur úr ríkissjóði
vegna svikanna.
Eitt af umsvifamestu
skattsvikamálunum
Jón H. Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
svikin teygðu sig víða en á þessari
stundu væri ómögulegt að segja til
um hve mörg fyrirtæki eða einstak-
lingar tengdust málinu.
Svikin eru talin teygja sig um eitt
og hálft til tvö ár aftur í tímann.
„Þetta er eitt af umsvifamestu skatt-
svikamálum sem tekin hafa verið til
rannsóknar.“
Mennirnir voru handteknir á
fimmtudag. Þá var einnig gerð hús-
leit heima hjá þeim og fyrirtækjum
sem þeir tengjast. Lagt var hald á
bókhald og önnur rekstrargögn.
Verði mennirnir fundnir sekir geta
þeir búist við hörðum refsingum og
háum sektum. Þegar sakborningur
var dæmdur fyrir virðisaukaskatt-
svik í svokölluðu Vatnsberamáli árið
1995 var hann dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til þriggja ára fangels-
isvistar. Svikin þá námu tæplega 40
milljónum króna. Hann var dæmdur
til að endurgreiða það fé sem hann
stakk undan og greiða 20 milljónir í
sekt til ríkissjóðs.
Hafi menn staðið að broti í samein-
ingu eru refsingar þyngri. Greiði
menn ekki sektir er hámarksrefsing
fyrir það eitt ár.
Þrír menn í gæsluvarð-
hald vegna skattsvika
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Sigurður Ágúst Þórarinsson, bóndi í Skarðaborg, og Ásvaldur Þormóðsson með tíkina Pílu eftir að hafa fundið hrútana á tveggja metra dýpi í fönninni.
STARFSMÖNNUM Íslands-
banka-FBA var kynnt á fundi
síðdegis í gær að ákveðið hefði
verið að breyta nafni fyrirtæk-
isins og um leið merki þess.
Eftir breytingarnar heitir
bankinn Íslandsbanki hf.
Valur Valsson, bankastjóri
Íslandsbanka, segir að undan-
farna mánuði hafi verið unnið
að nýrri stefnumótun fyrir
bankann og þar á meðal hafi
nafn og vörumerki verið endur-
skoðað.
„Nafnið Íslandsbanki-FBA
þjónaði sínu hlutverki þegar
sameiningin átti sér stað en
menn hafa óneitanlega fundið
til þess, bæði innan lands og ut-
an, að nafnið er óþjált,“ segir
Valur. „Því var ákveðið að
stytta það og nota nafnið Ís-
landsbanki sem er vel kynnt og
nýtur trausts og álits.
Jafnframt var merki bank-
ans endurskoðað og það ein-
faldað og stílfært og öðlast
þannig nýjan og ferskan blæ.“
Heitir nú
aðeins Ís-
landsbanki
Nafni og merki
Íslandsbanka-
FBA breytt
NOKKRIR fullorðnir hrútar hafa nú
fundist dauðir fyrir ofan bæinn
Skarðaborg í Reykjahverfi, eftir
mikla leit, á tveggja metra dýpi í
snjónum sem kom í hretinu í vikunni.
Margt fé lenti í fönn og á bænum
Einarsstöðum hafa fundist tíu
dauðar ær og tugir áa hafa fundist
lifandi, sumar á allt að þriggja metra
dýpi. Er þar um að ræða bæði lömb
og fullorðið fé. Það var tíkin Píla frá
Stórutjörnum, eign Ásvaldar Þor-
móðssonar, sem fann hrútana í
Skarðaborg, en áður hafði verið leit-
að með aðstoð hjálparsveitarmanna.
Píla er sérþjálfuð til þess að leita að
kindum í fönn og var Ásvaldur feng-
inn til þess að koma með hana í gær-
morgun.
Hretið er eitthvert hið mesta sem
komið hefur á þessum árstíma og var
brostin á iðulaus stórhríð um kl.
fjögur aðfaranótt þriðjudags þegar
flestir bændur fóru að hýsa, en höfðu
þó margir sett inn yngsta féð kvöldið
áður. Fé hraktist undan veðrinu í
nærliggjandi skurði og lentu kindur
úti í læk og í skorningum.
Erfitt reyndist að koma sumum
skepnum heim þar sem illa gekk að
koma fénu á móti veðrinu auk þess
sem rúnar ærnar þoldu illa kuldann.
Mikill skafrenningur og ofankoma
fylgdi veðrinu og segja eldri menn að
þetta sé með verri júníveðrum á
svæðinu auk þess sem snjókoman
var gríðarleg. Svo virðist sem veðrið
hafi verið hvað verst austanmegin
Skjálfanda við Reykjaheiði.
Allt fé á Einarsstöðum er inni
enda jarðlaust vegna snjóa og miklar
hættur við læki og skurði. Enn sakna
menn nokkurra kinda og er leit hald-
ið áfram, en snjóa leysir hægt þar
sem lofthiti er ekki hár.
Miklir fjárskaðar
í Reykjahverfi
ÍSLAND gerðist í gær að
nýju aðili að Alþjóðahvalveiði-
ráðinu (IWC) með fyrirvara
við svonefndan núllkvóta
vegna hvalveiða í atvinnu-
skyni sem felur í sér að hval-
veiðar eru ekki leyfðar. Frið-
rik Jónsson, sendiráðunautur
í Bandaríkjunum, afhenti að-
ildarskjal Íslands bandarísk-
um stjórnvöldum í Washing-
ton í gærmorgun, en
Bandaríkin eru vörsluríki
stofnsamnings IWC.
Fram kom á blaðamanna-
fundi Árna M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra, að allt
frá því Ísland sagði sig úr Al-
þjóðahvalveiðiráðinu 1992
hafi fjölmörg ríki skorað á Ís-
lendinga að gerast aðilar að
ráðinu að nýju. Þar hafi ekki
aðeins verið um að ræða ríki
sem hlynnt séu sjálfbærum
hvalveiðum, heldur einnig ríki
sem eru andvíg hvalveiðum,
svo og ríki sem telja sig
standa mitt á milli þessara
tveggja fylkinga.
Ekki ákvörðun
um hvalveiðar
Af hálfu þessara ríkja hafi
verið lögð áhersla á að IWC
sé mikilvægur vettvangur í
hvalamálum og öll ríki sem
telji sig hafa hagsmuna að
gæta eigi þess vegna að vera
aðilar að ráðinu.
Að sögn Árna hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hve-
nær hvalveiðar verða hafnar
að nýju við Ísland. Staða Ís-
lands innan IWC eftir inn-
gönguna verði hin sama og
staða Noregs og Rússlands,
sem eru óbundin af því
ákvæði sem Ísland gerir fyr-
irvara við.
Ísland
fær aðild
að nýju
Betra að /6
Alþjóðahval-
veiðiráðið