Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VINNUHÓPUR hefur verið skipað-
ur til að greina rót aukins ofbeldis og
drykkjuláta í miðborg Reykjavíkur
og leiðir til úrbóta. Ætlast er til að
hópurinn skili niðurstöðum sínum
innan tveggja vikna. Hópurinn var
skipaður á fundi sem Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri blés til í
Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Fundinn
sátu fulltrúar Lögreglunnar í Reykja-
vík, Miðborgarathvarfs, Þróunar-
félags miðborgarinnar og veitinga-
menn, auk fulltrúa borgarinnar.
Vinnuhópinn skipa framkvæmda-
stjóri miðborgarinnar, verkefnastjóri
í forvarnamálum, miðborgarprestur,
tveir lögreglumenn og tveir veitinga-
menn. „Þessi hópur á að vinna hratt
og vel og greina hvaða vandi er hér á
ferðinni og hvernig við getum tekið
sameiginlega á honum,“ segir Ingi-
björg Sólrún. Hún segist hafa trölla-
trú á því að leggist allir á eitt verði
hægt að ná árangri. Í því sambandi
minnir hún á að tekist hafi að fækka
verulega unglingum undir 16 ára
aldri í miðbænum að nóttu til síðustu
ár.
Ingibjörg segir að umræðan í fjöl-
miðlum hafi snúist um það að frjáls
opnunartími skemmtistaða sé upphaf
og endir allra vandamála hvað snerta
miðborgina. „Þá gleymist að þegar
við tókum á þessu máli 1999 var
útihátíðarstemmning hér um hverja
helgi í miðborginni og verulegt
hættuástand vegna alls þess fjölda
sem þar var samankominn. Nú sjáum
við nýjan vanda sem þarf að takast á
við,“ segir hún.
Ingibjörg segir það samdóma álit
þeirra sem sátu fundinn að útigangs-
fólki og geðfötluðum einstaklingum
hafi fjölgað verulega í miðborginni að
degi til, sérstaklega eftir áramót.
„Það segir okkur að þetta er vanda-
mál sem þarf að taka á bæði í heil-
brigðiskerfinu og eins hjá okkur í
félagsþjónustunni.“ Hún segir að
þessi umræða fari oft af stað í sum-
arbyrjun. „Þetta er eins og þegar
kúnum er hleypt út úr fjósunum á
sumrin, þá myndast svolítil spenna,“
segir Ingibjörg.
Taka þarf á frjálsum
afgreiðslutíma skemmtistaða
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn sagðist að fundi loknum vera
ánægður með fundinn og að hann
bindi miklar vonir við að vinnuhóp-
urinn finni flöt þannig að hægt verði
að ráðast að vandanum. Hann telur
að taka þurfi á frjálsa opnunartím-
anum og segir fólk ílengjast mun
lengur í miðborginni en áður. Geir
Jón telur að gefa þurfi stöðunum
ákveðið svigrúm þannig að leigubílar
anni því að flytja fólkið heim. Þannig
að staðirnir verði opnir í klukkutíma
eftir að hætt er að afgreiða drykki.
Arnar Bohic, framkvæmdastjóri
Gauks á Stöng, og Friðrik Gíslason,
eigandi Kaffi Reykjavíkur, segja að
þeir telji að breyttur opnunartími hafi
lagað heildarástandið í miðbænum
verulega. Þeir segjast á móti því að
afgreiðslutími og opnunartími haldist
ekki í hendur. „Það býður bara upp á
eiturlyfjasölu,“ segir Arnar. Friðrik
segir að ekki væri slæmt að setja ein-
hver tímamörk fyrir því hversu lengi
staðirnir mega vera opnir, t.d. til 6
eða 8 um morguninn.
Friðrik og Arnar telja að gera þurfi
löggæsluna sýnilegri í borginni, sér-
staklega þegar staðirnir eru að fara
að loka. „Maður sér aldrei lögreglu
nema þegar eitthvað er að og þá er
stundum hálftíma bið eftir þeim,“
segir Friðrik. Geir Jón segir að vand-
inn sé ekki eingöngu leystur með því
að fjölga lögregluþjónum. Hann segir
þó að lögreglan sé of fáliðuð í dag, það
vanti lögreglumenn og að ungt fólk
sem hafi menntað sig til lögreglu-
starfa leiti nú í önnur störf.
Arnar sagðist telja að ofbeldið sé
orðið grófara og hispurslausara í mið-
borginni um helgar. Friðrik sagðist
ekki telja að ástandið nú sé verra en
fyrir 15 árum. „Það eru þessar eft-
irlegukindur sem skapa vandamálin.“
Geir Jón er sammála þessu. Hann
segir að ekki sé um sérlega stóran
hóp að ræða. „Þetta fólk er illa til
reika, kannski búið að drekka áfengi
eða neyta fíkniefna í 1–2 sólarhringa,
hrakið og þreytt. Það hefur aðstöðu á
veitingastöðunum til að bæta á sig,
meðan almennir viðskiptavinir fara
heim,“ segir Geir Jón.
Vinnuhópi falið að skila tillögum innan tveggja vikna
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri á fundinum í Ráðhúsinu í gær
ásamt Ingimundi Einarssyni varalögreglustjóra, Geir Jóni Þórissyni yf-
irlögregluþjóni og Karli Steinari Valssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni.
Ráðist verður að
rótum miðbæj-
arvandans
Hugmyndir uppi um að hætta stór-
gripa- og alifuglaslátrun á Hellu
Óvissa ríkir um
störf 85 manna
NOKKUR óvissa ríkir nú í atvinnu-
málum á Hellu, en hugmyndir eru
uppi um að um stórgripaslátrun hjá
Goða verði hætt á staðnum og það
sama gildir slátrun alifugla hjá
Reykjagarði. Að sögn Guðmundar
Inga Gunnlaugssonar, sveitarstjóra
á Hellu, snertir þetta tvennt störf
um 85 manna á svæðinu.
„Það sem liggur fyrir er að stjórn
Goða hefur tekið ákvörðun um að
einhverntímann á næstu mánuðum
verði slátrun stórgripa á þeirra veg-
um hætt hérna á Hellu,“ segir Guð-
mundur. „Það hefur verið óskað eft-
ir fundi með forsvarsmönnum Goða
til að fá fram frekari skýringar hjá
þeim á því hvað þetta táknar.“
Guðmundur segir að einnig liggi
fyrir að Búnaðarbankinn hafi keypt
Fóðurblönduna og Reykjagarð, en
ekki sé fullljóst hvað það hafi í för
með sér fyrir starfsemi fyrirtækj-
anna. „Okkur hefur verið skýrt frá
því að það kunni að verða sú breyt-
ing að slátrun alifugla leggist af
hér, en það yrði þá aukið við vinnslu
í staðinn.“
Guðmundur segir að það sem
virðist blasa við nú sé að einhver
fækkun starfa kunni að verða á
næstu misserum.
„Það er hins vegar til þess að líta
að þó að Goði ákveði að hætta starf-
semi á Suðurlandi er ekki alveg þar
með sagt að vinnsla úr landbún-
aðarframleiðslu á Suðurlandi legg-
ist af. Það er náttúrlega bara
ákvörðun fyrirtækisins að hætta að
starfa í þessum landshluta. Síðan á
eftir að sjá hvað fólkið á svæðinu
gerir við sína framleiðslu,“ segir
Guðmundur.
Hann segir að vissulega séu
menn áhyggjufullir vegna stöðu
mála og að verið sé að skoða málin
af fullri einurð. „En við erum aftur
á móti ekki með hökuna niðri í
bringu. Við erum ákveðin í að halda
áfram að búa og starfa og vinna
okkar framleiðslu,“ segir Guðmund-
ur.
Reynt að afstýra því að skellur
komi óvænt við byggðarlagið
Eins og fram kom snerta þessi
áform störf um 85 manna.
„Hver svo niðurstaðan verður
veit enginn í dag. Hvort einhver
hluti þessara starfa leggst af alveg,
eða hvort að takist að halda vinnu
fyrir þennan fjölda fólks. Þetta er
verkefni sem við munum vinna í á
næstu mánuðum, einmitt til að af-
stýra því að svona skellur komi
óvænt við byggðarlagið. En við er-
um alveg bjartsýn á að okkar
byggðarlag og þessi landshluti eigi
alla framtíð fyrir sér,“ segir Guð-
mundur.
VARNARÆFING Atlantshafsbandalagsins,
Norðurvíkingur 2001, hófst 18. júní og mun
standa yfir til 24. júní næstkomandi. Markmið
æfingarinnar er að æfa varnir mikilvægra
staða gegn alþjóðlegum hryðjuverkum, ásamt
liðs- og birgðaflutningum til Íslands á hættu-
tímum, en alls taka um 3.000 manns þátt í æf-
ingunni.
Á meðfylgjandi myndum má annars vegar
sjá undirbúning á því að þyrla Varnarliðsins
hífi upp endurbyggðan gangamannakofa í
Lóni og flytji hann að Kollumúla og hins vegar
Víkingasveitarmenn í fullum skrúða á æfingu
um borð í Ægi í gær.
Norðurvíkingur
í fullum gangi
Morgunblaðið/Jim Smart
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seldi
tilhæfu-
lausa
reikninga
HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
víkur frestaði í gær að ákveða
refsingu manns sem var fund-
inn sekur um að selja tilhæfu-
lausa reikninga og um brot á
reglum um bókhald. Haldi
maðurinn skilorð í þrjú ár
sleppur hann við refsingu.
Brotin sem um ræðir voru
framin á árunum 1994 til 1997
en maðurinn var þá djúpt
sokkinn í óreglu. Á þessum
tíma vann hann við handflök-
un á fiski sem undirverktaki
fyrir fiskverkendur. Þeir
keyptu af honum reikninga
sem ýmist engin vinna var á
bak við eða voru mun hærri
en verðmæti vinnunnar sem
hann innti af hendi. Látið var
líta út sem rekstrarkostnaður
fyrirtækjanna væri hærri og
þannig búinn til innskattur.
Þannig dró úr skattgreiðslum
fyrirtækjanna.
Á sakaferil
að baki
Maðurinn, sem er fæddur
1973, á talsverðan sakarferil
að baki en samtals nemur
óskilorðsbundin refsivist hans
tæplega fjórum árum. Við
ákvörðun refsingar var litið
til þess að hann hefur nú snú-
ið við blaðinu. Hann hefur
ekki hlotið refsingu frá 1998,
haldið bindindi í þrjú ár og er
í dag iðnnemi. Verulegar líkur
væru á að refsivist myndi
raska þeim góða árangri sem
hann hefur náð. Enn fremur
var litið til talsverðra tafa á
rannsókn og ungs aldurs
mannsins þegar hann framdi
brotin.
Hjördís Hákonardóttir hér-
aðsdómari kvað upp dóminn.