Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT almenningssamgöngu- fyrirtæki, Strætó byggðasam- lag, hefur formlega starfsemi 1. júlí næstkomandi. Fyrir- tækið varð til við samruna SVR og AV og er í eigu allra sjö sveitarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu. Ný gjaldskrá hefur verið kynnt auk þess sem stefnt er að því að end- urskipuleggja leiðarkerfi hins nýja fyrirtækis í heild sinni á næstu tveimur árum. Breytingar strax 1. júlí Gert er ráð fyrir nokkrum breytingum á leiðakerfinu sem taka gildi 1. júlí. Annars vegar er um að ræða breyt- ingar sem þegar var búið að gera ráð fyrir hjá SVR og AV en hins vegar er stefnt að því að tengja saman heildarleiða- kerfin. Þar er einkum átt við nýjan hring á milli Kópavogs og Reykjavíkur, sem mun tengja saman Mjódd, Fen og Skeifu, Grensás, Kringlu, og Smárann auk þess að þjóna skólum og vinnustöðum á svæðinu, s.s. Landspítalanum í Fossvogi, Háskólanum í Reykjavík, Verslunarskólan- um og Menntaskólanum við Hamrahlíð. Ný gjaldskrá mun taka gildi um næstu mánaðamót og er um að ræða sama fargjald á öllu svæðinu óháð því hvaðan eða hvert er ferðast. Fargjald fyrir fullorðna verður 200 kr. en var áður 150 kr. hjá SVR og 180 kr. hjá AV. Farmiðaspjald með tíu miðum kostar nú 1500 kr. en Græna kortið lækkar úr 3900 krónum í 3700 krónur og segja forsvarsmenn Strætós að með þessu sé verið að reyna að koma sérstaklega til móts við þá, sem ferðast reglulega með strætisvögn- um. Takmarkið sé að fjölga farþegum á nýjan leik. Nýtt hálfsmánaðarkort Þá verður boðið upp á hálfs- mánaðarkort sem fær nafnið Gula kortið og mun kosta 2200 kr. Ætlunin er að taka upp þriggja mánaða kort innan skamms, sem er sérstaklega sniðið að þörfum framhalds- skólanema. Tekið verður upp sérstakt ungmennafargjald fyrir 12 til 18 ára í stað 12 til 15 ára áður, sem er í takt við breyttan sjálfræðisaldur. Tíu miða spjald á ungmennafar- gjaldi mun kosta 1000 kr. en er nú 1000 kr. fyrir 20 miða hjá SVR. Sextíu og sjö ára og eldri greiða 1600 kr. fyrir 20 miða eftir hækkun en öryrkj- ar 1000 kr. Aldraðir sem ferðast með SVR hafa til þessa greitt 1200 kr. fyrir sama miðafjölda en öryrkjar 600 kr. Hjá AV er sala far- miða fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja í höndum sveitar- félaganna. Skiptimiðar gilda á öllum leiðum Einstakt fargjald fyrir aldraða hjá Strætó verður 80 kr. og 50 kr. fyrir öryrkja. Barnafargjald fyrir 6 - 12 ára börn verður 50 kr. og spjald með 20 miðum fyrir sama hóp 400 kr. Þess má geta að ein- stakur miði kostaði áður 30 kr. hjá SVR en 70 kr. hjá AV. Börn innan sex ára greiða ekkert. Þess má geta að hægt verður að framvísa skiptimið- um á öllum leiðum sem er ný- mæli. Þá er fyrirtækinu ætlað að hafa yfirumsjón með allri ferðaþjónustu fatlaðra á svæðinu. Í tilkynningu frá Strætó segir að breytingar á gjald- skrá miði allar að því að gera reglulega notkun almennings- samgangna að hagstæðari kosti fyrir almenning og fjölga þannig í vögnunum. Varðandi hækkanir sé hins vegar verið að auka tekjur í samræmi við verðlagsþróun og miklar hækkanir á kostn- aðarliðum að undanförnu. Gert er ráð fyrir um 10% aukningu á tekjum fyrirtæk- isins. Reykjavík, Garðabær, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Bessastaðahreppur standa sameiginlega að rekstri Strætós, sem mun taka yfir núverandi rekstur SVR og AV. Skúli Bjarnason, stjórn- arformaður Strætó, tekur þó skýrt fram að í raun sé verið að stofna nýtt fyrirtæki. Sam- eiginleg velta fyrirtækjanna tveggja árið 2000 var 1650 milljónir. Starfsmenn eru nú 264 auk 75 starfsmanna verk- taka, sem aka á vegum fyr- irtækjanna. Engum hefur verið sagt upp vegna samrun- ans. Nýja fyrirtækið verður rekið sem byggðasamlag en fordæmi eru fyrir sameigin- legum rekstri sveitarfélag- anna, s.s. með slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins og Sorpu. Almenningsvagnafyrirtækið Strætó bs. hefur starfsemi um næstu mánaðamót Almennt far- gjald í 200 kr. Morgunblaðið/Sverrir Skúli Bjarnason, stjórnarformaður Strætós bs. kynnir markmið fyrirtækisins. Fyrir fram- an hann sitja Ármann Kr. Ólafsson, Kópavogi, og Laufey Jóhannsdóttir, Garðabæ.                          !"# $    %&  $ !  '( !  )     %"!       !  !  *+  ,*&  !*!  *  *%  *  +  -         Höfuðborgarsvæðið ELSTU börnin á leikskólum Kópavogs marseruðu í gegnum bæinn, ásamt Siggu stirðu og Krónu og Króna, við undirleik Skóla- hljómsveitar Kópavogs í gær en þá var sumarhátíð leikskólanna haldin. Að sögn Maríuönnu Ein- arsdóttur leikskólastjóra í Smárahvammi eru þetta talsvert stórir hópar og þurfti því að hafa dag- skrána bæði fyrir og eftir hádegi en um 480 börn mættu í hvort skipti. Í blóma og blöðrum skreyttum Hlíðagarði skemmtu börnin sér síðan við íþróttir, leik og söng. Þau gátu farið í hástökk, bátsferð, bingó og ýmsilegt fleira. „Þau fengu heil- mikla hreyfingu og það var mikið fjör og spenna,“ sagði Maríanna. Hún sagði að þau börn, sem ekki voru máluð í leikskólanum fyrir hátíðina, hafi átt kost á að fá andlitsmálun á staðnum og að sjálfsögðu fengu börnin súkkulaðikex og safa. „Hluti af starfsmönn- unum voru klæddir upp í furðuföt, rétt til að krydda lífið og tilveruna. Krökk- unum fannst þetta alveg óskaplega gaman,“ sagði hún og benti á að yfirleitt hafi þau verið heppin með veður þegar hátíðin fari fram. Svo hafi einnig verið nú þrátt fyrir að sólin hafi ekki látið sjá sig. Sumarhátíð í Hlíðagarði Kópavogur Morgunblaðið/Arnaldur BORGARRÁÐ hefur ákveðið að festa í sessi fjölskylduþjón- ustu Miðgarðs í Grafarvogi en borgarstjóri flutti tillögu þess efnis í borgarráði síðastliðinn þriðjudag. Miðgarður hefur verið rek- inn sem tilraunaverkefni frá september 1997 en borgarráð samþykkti að frá og með 1. júlí næstkomandi verði Miðgarður festur í sessi sem hverfismið- stöð sem veiti heildstæða fjöl- skylduþjónustu og að miðstöð- in starfi áfram á sama hátt og undanfarin ár. „Það er því ljóst að Grafar- vogsbúar munu áfram njóta þeirrar sérstöðu að hafa öfl- uga fjölskyldumiðstöð í hverf- inu þar sem hægt er að nálgast margvíslega þjónustu Reykja- víkurborgar á einum stað,“ segir í fréttatilkynningu frá Miðgarði. Almenn ánægja með þjónustuna Í nýrri skýrslu um starf- semi miðstöðvarinnar, sem unnin var af Regínu Ásvalds- dóttur, framkvæmdastjóra Miðgarðs, segir að helsta markmið tilraunaverkefnisins í Grafarvogi sé að samþætta þjónustu borgarinnar í hverf- inu. Þá segir að í úttektum, sem gerðar hafa verið á þjónust- unni, sé niðurstaðan sú að til- raunin í Miðgarði hafi gefist mjög vel og að almenn ánægja sé meðal Grafarvogsbúa með þjónustuna. Miðgarður festur í sessi Grafarvogur HUGMYNDIR að kvik- myndahúsi á lóð nr. 3 - 5 í Spönginni í Grafarvogi hafa verið kynntar í skipulags- og byggingar- nefnd Reykjavíkur. Að sögn Björns Árnasonar, framkvæmdastjóra Sam- bíóanna, er stefnt að því að hefja byggingarfram- kvæmdir í ár ef samþykki fæst fyrir þeim. Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar sækir um byggingarleyfið fyrir hönd Sambíóanna en til stendur að byggja kvikmyndahús með veitingasölu og bankaútibúi eins og Morg- unblaðið hefur áður greint frá. Veitingastaðir og geisladiskaverslun Öll almenn þjónusta yrði á 1. hæð byggingar- innar, aðgengi að sýning- arsölum á 2. hæð og sýn- ingarklefar og geymslur á 3. hæð. Alls er gert ráð fyrir u.þ.b. 1000 sætum í kvikmyndahúsinu í fjórum sýningarsölum. Þá er hugsanlegt að þar yrðu tveir veitingastaðir með bílalúgu og geisladiska- verslun auk bankaútibús. Stefnt er að því að for- salur verði opinn á meðan starfsemi er í húsinu, þ.e. frá kl. 9 á morgnana til 23:30 á kvöldin. Í bréfi, sem Halldór Guðmundsson arkitekt ritaði skipulags- og bygg- ingarnefnd í júní, segir að lóðin sem er vestast við Spöngina tengist núver- andi þjónustu um Spöng- ina og göngustígakerfi. Einnig sé aðkoma að lóð- inni frá Móavegi. Forsalur opinn frá morgni til kvölds Byggingin yrði alls um 3.850 fermetrar að stærð og 42 þúsund rúmmetrar. Í bréfi til skipulagsnefnd- ar segir jafnframt að mið- að við bílastæðakröfu um eitt stæði á hver sex kvik- myndahússæti sé þörf á 160 bílastæðum. Á grunn- teikningu er þó gert ráð fyrir 170 stæðum. Ennfremur segir í um- ræddu bréfi að samkvæmt skipulagi sé gert ráð fyrir að lóð sé u.þ.b. 9.000 fer- metrar, en samkvæmt til- lögunni sem unnin sé í samráði borgarskipulag reynist hún vera rúmir 9.700 fermetrar. Bent er á að stækkunin verði vegna breyttrar legu göngustígs sunnan megin lóðarinnar. Kvikmyndahús í Spönginni til umræðu hjá borginni Stefnt að framkvæmd- um á árinu Grafarvogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.