Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 17
GJALDSKRÁ leikskóla
Garðabæjar hækkar um
13% frá 1. september
næstkomandi. Gjaldskrá
leikskóla Seltjarnarness
hækkaði um 10% um síð-
ustu mánaðamót og
fulltrúar foreldra leik-
skólabarna í Reykjavík
hafa verið boðaðir á fund
hjá Leikskólum Reykja-
víkur til að ræða væntan-
lega gjaldskrárhækkun
þar. Á flestum öðrum stöð-
um á höfuðborgarsvæðinu
er gjaldskrá leikskólanna í
endurskoðun.
Að sögn Jóhönnu B.
Jónsdóttur, leikskólafull-
trúa í Garðabæ, er ástæða
hækkunarinnar sú að
margar forsendur rekst-
ursins hafa breyst frá því
1. febrúar í fyrra þegar
gjaldskráin hækkaði síð-
ast. „Bæði hefur maturinn
og eldhúsreksturinn
hækkað og svo eru það
þessir samningar sem hafa
gífurlegar launahækkanir
í leikskólageiranum í för
með sér,“ segir hún.
Þá bendir hún á að ný-
verið hafi verið ákveðið að
auka styrki til einkarek-
inna leikskóla í bænum
auk þess sem stefnt sé að
því í haust að bjóða for-
eldrum allt niður í eins árs
barna sem eru hjá dag-
mæðrum niðurgreiðslur.
Á Seltjarnarnesi var
gjaldskráin hækkuð um
10% að meðaltali um síð-
ustu mánaðamót. Að sögn
Lúðvíks Hjalta Jónssonar,
forstöðumanns fræðslu-
og menningarsviðs Sel-
tjarnarneskaupstaðar er
hækkunin til komin vegna
kjarasamninga við starfs-
fólk leikskólanna og dugi
hún þó ekki til. Hann hefur
ekki orðið var við óánægju
meðal foreldra vegna
hækkunarinnar. „Við köll-
uðum á okkar fund fulltrúa
frá foreldrafélögunum í
leikskólanum hér og
ræddum þessa hækkun
áður en hún var sett á
þannig að þetta var mjög
vel kynnt,“ segir hann.
„Svo sendum við dreifibréf
til alla foreldra þar sem við
gerðum grein fyrir ástæð-
um hækkunarinnar og
hversu mikið laun starfs-
manna hefðu hækkað og
það hefur ekki verið hringt
hér og kvartað undan
þessu.“
Kynningarfundur í
Reykjavík
Leikskólayfirvöld í
Reykjavík hyggjast fara
svipaða leið og Seltjarnar-
neskaupstaður varðandi
kynningu á hækkun gjald-
skrárinnar en fulltrúar
foreldrafélaga leikskól-
anna hafa verið boðaðir á
fund 27. þessa mánaðar
þar sem gjaldskrárhækk-
unin verður rædd. Kristín
Blöndal, formaður leik-
skólaráðs Reykjavíkur
segir samþykkt fyrir því í
leikskólaráði að hlutur for-
eldra í leikskólarekstrin-
um sé að jafnaði 33% á
moti 67% hlut borgarinn-
ar.
Ánægja með
samningana
„Nú hafa verið gerðir
samningar sem við erum
afskaplega ánægð með hjá
leikskólum Reykjavíkur
því það hefur þegar komið
í ljós að þetta hefur aukið
stöðugleikann en við höf-
um undanfarin ár verið í
miklum vandræðum með
starfsfólk. Nú sjáum við
hins vegar stóra breytingu
á þessu. En þessir samn-
ingar kosta peninga og
hlutur okkar hjá borginni
mun náttúrulega hækka,
en jafnframt foreldranna.
Og þessi fundur er haldinn
í upplýsingaskyni til að
ræða við foreldrana um
þessa gjaldskrárbreyt-
ingu,“ segir hún.
Svipuð hækkun
og annars staðar
Hún getur ekki sagt til
um hvenær gjaldskrár-
breytingin mun taka gildi
en væntanlega verði tekin
ákvörðun um það á fundi
leikskólaráðs 4. júlí næst-
komandi. Að hennar sögn
er búið að gera útreikn-
inga á því hversu mikla
hækkun samningarnir
kalla á en er ekki tilbúin til
að upplýsa á þessari
stundu hversu mikil hún
verður.
Hún segir þó ljóst að
þetta verði í takt við
hækkanir á Seltjarnarnesi
og í Garðabæ sem voru 10
og 13 prósent. „Ætli þetta
verði ekki á svipuðum nót-
um, mér finnst ekki ólík-
legt að það verði á þessu
bili,“ segir hún.
Ekki hafa verið teknar
ákvarðanir um hækkun
leikskólagjalda í Mos-
fellsbæ, Hafnarfirði og í
Kópavogi en þær upplýs-
ingar fengust hjá leik-
skólafulltrúum þessara
sveitarfélaga að verið væri
að ræða gjaldskrárbreyt-
ingar þar. Í Bessastaða-
hreppi hafa breytingar á
gjaldskrá ekki verið í um-
ræðunni að sögn leikskóla-
stjórans þar.
Hækkanir á döfinni í
fleiri sveitarfélögum
Höfuðborgarsvæðið
Leikskólagjöld hækkuð um 13 prósent
í Garðabæ og 10 prósent á Seltjarnarnesi
!!
"
#!
$$
#%
&&&&
'
(
(
(
(
)* + , ! * + ,
, - * *
, ,
, -
LITLI drengurinn, er sat og lék sér á Ylströnd-
inni í Nauthólsvík, kippti sér lítið upp við vinnu-
vélar og iðnaðarmenn, en þeir voru þar að leggja
lokahönd á nýtt þjónustuhús, sem tekið verður í
notkun í dag. Aðstaðan á ströndinni mun batna
til muna með tilkomu þessa nýja húss.
Að sögn Loga Sigurfinnssonar hjá Íþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkur er í húsinu búnings-
aðstaða, salerni og sturtur, en að auki er búið að
koma fyrir stórri setlaug, eins konar setlaug,
fyrir framan húsið. „Það kostar 200 kr. fyrir 6
ára og eldri ef fólk ætlar að nota aðstöðuna inni
og er þessi aðgangseyrir í raun að húsinu sjálfu,“
segir Logi og bendir á að hægt sé að nýta aðstöð-
una fyrir utan endurgjaldslaust, en þar séu með-
al annars útisturtur. Að hans sögn er hægt að
taka á móti þrjú til fimm hundruð manns í einu
og er búningsaðstaða fyrir þann fjölda.
Logi telur mikla þörf á svona húsi, því það sé
gríðarleg aðsókn að ströndinni þegar veður sé
gott. Hann segir að húsið gjörbylti aðstöðunni á
staðnum en síðan ströndin var opnuð hafi staðið
til að koma upp þjónustuhúsi. „Þetta er glæsileg
bygging og gríðarlega skemmtileg aðstaða,“
segir hann.
Opið fyrir skokkara í vetur?
Að sögn Loga verður opið frá klukkan tíu til
tíu alla daga, til að byrja með. Hann segir að opið
verði til 15. september í haust og svo eigi að end-
urskoða opnunina, hvort húsið verði eitthvað op-
ið í vetur, til dæmis fyrir skokkara svo að þeir
geti komið og skipt um föt og farið í heita pott-
inn. Hann segir að laugin verði tæmd klukkan
tíu á kvöldin, ströndin sé ekkert afgirt sem slík,
þannig að í rauninni sé ekkert að sækja þangað á
kvöldin nema kaldan sjóinn.
Logi segir að frekara uppbyggingarstarf sé
ekki á döfinni, það þurfi að sjá hvernig þetta
komi út og í rauninni sé ekki hægt að koma
fleiru fyrir við ylströndina því staðurinn sé ekki
það stór. Hann segist vonast til að aðstaðan nú
dugi fyrir gesti strandarinnar en óráðið sé með
aukna veitingaaðstöðu.Morgunblaðið/Billi
Baðhús við ylströndina opnað
Nauthólsvík