Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 19
Kringlukast
20% afslát
t
t
t
u
u
r
af Triu
u
mph undir
r
fatna
a
ði
Kringlunni 8-12, sími 553 3600, www.olympia.is
Á VEGGJUM Bókasafns Reykjanes-
bæjar gefur nú að líta listaverk eftir
leikskólabörn í leikskólum Reykja-
nesbæjar og í allt sumar munu leik-
skólarnir sjö í bænum skiptast á að
sýna verk skólabarna sinna, þannig
að úr verður ein samfelld listasýn-
ing í þrjá mánuði. Samstarfið milli
leikskólanna og bókasafnsins um
sumarsýningar leikskólanna hófst
sl. sumar og þóttist takast vel og því
var ákveðið að halda samstarfinu
áfram. Hver leikskóli sýnir í tvær
vikur og þá tekur næsti við þannig
að sýningarnar mynda eina heild.
Óhætt er að segja að verkin setji
mjög skemmtilegan og líflegan svip
á bókasafnið og er ekki síður gaman
að vekja athygli á verkum barnanna
og því góða starfi sem fram fer í
leikskólunum, að sögn Huldu Bjark-
ar Þorkelsdóttur hjá Bókasafni
Reykjanesbæjar.
Sýningar leikskólabarna verða í
allt sumar í bókasafninu. Börn í leik-
skólanum Gimli héldu fyrstu sýn-
inguna 5. til 17. júní en leik-
skólabörn frá Tjarnarseli eru nú
með sýningu til 1. júlí. Þá taka börn
frá Hjallatúni við til 15. júlí og börn
frá Garðaseli verða með sýningu 16.
til 29. júlí. Þá tekur leikskólinn Vest-
urberg við og verður til 12. ágúst,
börn frá Holti sýna 13. til 26. ágúst
og síðust í röðinni eru börnin í Heið-
arseli 27. ágúst til 9. september.
Listasýn-
ingar leik-
skólabarna
Reykjanesbær
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Unnar, Kristmundur, Ásgeir og Björgvin frá leikskólanum Tjarnarseli
unnu saman í „rúsínuhópnum“ að verkum sínum.
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Hera Karlsdóttir og Karen Friðriksdóttir, sem setti upp sparibrosið í til-
efni myndatökunnar, við verk sín á sýningunni.
FISKMARKAÐUR Suðurnesja hf.
fékk fyrir skömmu afhenta hjá
Heklu fjóra nýja gaffallyftara af
Caterpillar-gerð. Um er að ræða
tvo lyftara með dísilhreyfli og tvo
rafmagnsknúna en þeir eru allir
sérbúnir fyrir starfsemi fiskmark-
aðarins. Til nýjunga má telja sjálf-
virkt smurkerfi fyrir ytri hreyfi-
búnað, árekstravörn að aftan og á
hliðum. Einnig 360° galvanhúðaðan
snúningsbúnað á lyftigöfflum og
rakavörn á rafkerfi. Fiskmarkaður
Suðurnesja hf. gerði rekstrarleigu-
og þjónustusamning við Heklu
vegna allra tækjanna.
Einar Haraldsson, starfsmaður
Grindavíkurhafnar, og Styrmir
Jóhannsson stöðvarstjóri við
einn af nýju lyfturunum.
Sérbúnir
lyftarar
Grindavík
FIMMTÁN nemendur frá öllum
Norðurlöndunum, sem stunda
doktorsnám í líffræði, sitja nú
námskeið í djúpsjávarlíffræði í
Rannsóknarstöðinni og Fræðasetr-
inu í Sandgerði. Jörundur Svav-
arsson, prófessor í líffræði við Há-
skóla Íslands, hefur umsjón með
námskeiðinu, en auk hans kenna
þar vísindamenn sem eru meðal
þeirra fremstu á sínu sviði í heim-
inum. Að sögn Jörundar eru gerð-
ar kröfur um þekkta og viður-
kennda kennara á slíku námskeiði
og því hafi hann fengið þá dr. Cra-
ig M. Young frá Harbor Branch
Oceanographic Institution í Flór-
ída, prófessor David Thistle frá
Florida State University í Talla-
hassee og dr. Torleiv Brattegard
frá Háskólanum í Bergen í Noregi
til að halda fyrirlestra á námskeið-
inu, en allir eru þeir mjög vel
þekktir fyrir rannsóknir á lífríki
djúpsjávarins.
Ákaflega góð aðstaða
til námskeiðahalds
Jörundur segir að aðstaðan til
að halda námskeið í Fræðasetrinu
í Sandgerði sé ákaflega góð og all-
ir séu mjög ánægðir með nám-
skeiðið og þá umgjörð sem þátt-
takendur búi við. Námskeiðið er
að hluta til haldið í Rannsókn-
arstöðinni í Sandgerði og síðan eru
haldnir fyrirlestrar og öll aðstaða
Fræðasetursins er nýtt, m.a. gista
nokkrir nemendanna þar.
„Umgjörðin utan um þetta nám-
skeið er ákaflega góð og ég á von á
því að farið verði í auknum mæli
út í slíkt námskeiðahald hér. Ég
held að möguleikarnir séu mjög
miklir á námskeiðahaldi í tengslum
við Rannsóknastofuna og Fræða-
setrið hér í Sandgerði og vannýttir
möguleikar þar.“
Möguleikar til
rannsókna að aukast
Á námskeiðinu kynna nemendur
sínar eigin rannsóknir og vinna að
ýmsum verkefnum í tengslum við
námið. Nemendurnir eru allir í
doktorsnámi og allflestir stunda
rannsóknir sem tengjast djúphaf-
inu. Að sögn Jörundar er mjög eft-
irsótt að komast á þetta námskeið
og aðeins um helmingur þeirra,
sem sóttu um, komust að.
„Þetta hefur gengið mjög vel og
margt hefur komið þar fram. Á
námskeiðinu er fjallað um fjöl-
breytileika í höfunum, útbreiðslu
tegunda, lifnaðarhætti dýra og
tímgunarhætti í djúphöfunum,
kórala, djúpsjávarhverasvæði og
fleira. Það er margt sérkennilegt í
djúphöfunum,“ segir Jörundur.
Íslendingar eiga mikið af djúp-
hafsvæðum því meginhluti af ís-
lenska hafsvæðinu er skilgreindur
sem hafdjúp og margt af því sem
fram kemur á námskeiðinu fjallar
um lífríkið umhverfis Ísland.
„Þannig gerir þetta mikið gagn
fyrir okkur Íslendinga og okkur
sem tengjumst þessu námskeiði,“
segir Jörundur, en tveir íslenskir
nemendur eru á námskeiðinu. Að
sögn Jörundar heldur hann fyr-
irlestra um viðamiklar og nýlegar
rannsóknir Íslendinga á botninum
á Íslandsmiðum. Hann segir að
rannsóknarvettvangur djúpsjávar-
líffræðinnar sé að mörgu leyti erf-
iður en nú hafi aðstaðan til djúp-
sjávarrannsókna breyst töluvert
eftir að RANNÍS veitti styrk til
kaupa á sjálfvirkum kafbáti sem á
að geta farið niður á 2.000 metra
dýpi. „Þannig að rannsóknarmögu-
leikarnir koma til með að aukast.
Enda verða þeir að gera það, því
lífríkið er svo flókið og svæðið svo
víðfeðmt að góður tækjabúnaður
er nauðsynlegur.“
Höfðu aldrei
séð þorsk áður
Jörundur segir mikilvægt að
menn rannsaki hafdýpin við Ís-
land. Í fyrsta lagi séu menn farnir
að nýta þessi hafsvæði betur og
veiða á dýpri miðum og þar sé að
finna væntanleg framtíðarverð-
mæti og hægt að nýta þar margs
konar sjávarfang.
Dr. Craig M. Young segir það
hafa verið mjög ánægjulegt að
koma til Sandgerðis og sjá þar vel
búna rannsóknarstöð með glænýj-
um tækjabúnaði og góðri aðstöðu,
ásamt hlýlegum móttökum. Hann
segir nemendurna vera mjög færa,
enda sérvalda úr hópi nemenda frá
öllum Norðurlöndunum.
Þeir Young og David Thistle
prófessor fóru niður á bryggju við
Sandgerði til að skoða trillukarla
leggja upp afla og sögðust þeir
aldrei hafa séð þorsk áður, nema
steiktan með frönskum kartöflum.
Thistle sagði að þorskurinn á mið-
unum við Bandaríkin og Kanada
væri horfinn og ekki lengur hægt
að stunda hagkvæmar veiðar þar á
þorski. Því væri mjög fróðlegt að
koma hingað þar sem tekist hefði
að stjórna fiskveiðum á réttan hátt
og ennþá væri hægt að veiða
þorsk. Hann sagði að í Flórída
væru ekki lengur stundaðar fisk-
veiðar í net því þeim hefði verið
hætt vegna mikils þrýstings frá
sjóstangveiðimönnum.
Norrænt námskeið í djúpsjávarlíffræði í Fræðasetrinu í Sandgerði
Góðir fram-
tíðarmögu-
leikar í nám-
skeiðahaldi
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Jörundur Svavarsson prófessor sýnir þeim dr. Craig M. Young og pró-
fessor David Thistle afla trillukarla í Sandgerði.
Sandgerði
Í BÓKASAFNI Reykjanesbæjar
verða nú í sumar sýnd brot af safn-
kosti Byggðasafns Suðurnesja. Nú
eru til sýnis í bókasafninu stafaílát,
hornspænir og bollastell sem gert
var í tilefni Alþingishátíðarinnar
1930 og er sýningin opin virka daga
frá kl. 10 - 19. Byggðasafn Suður-
nesja á tvö hús í Keflavík og Innri-
Njarðvík þar sem sjá má muni og
myndir sem tengjast sögu svæðisins.
Safnahúsið í Keflavík, Vatnsnes, er
opið í sumar frá kl. 13:30 til 17:00 en
húsið í Njarðvík eftir samkomulagi.
Safngripir
til sýnis
í bókasafni
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦