Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MÝVETNINGAR fögnuðu 17. júní
með samkomu í Höfða svo sem
venja er orðin nú síðari ár þegar
veður leyfir. Sr. Örnólfur flutti bæn
og blessun, Hrafnhildur Geirsdóttir
var í hlutverki fjallkonunnar og las
ljóð Einars Benediktssonar, Slútnes.
Ræðumaður dagsins var Hörður
Sigurbjarnarson. Hann minnti á ár-
angursríka baráttu Þingeyinga á
nítjándu öld fyrir bættum kjörum
og talaði um mikilvægi samstöðu
héraðsbúa nú til að vinna framfara-
málum brautargengi. Nefndi í því
sambandi meðal annars bætt vega-
samband milli Mývatnssveitar og
Kelduhverfis, sem gjörbreyta
myndi vaxtarmöguleikum ferða-
þjónustu á svæðinu. Hörður lauk
máli sínu með því að minna á höfð-
ingsskap Guðrúnar Pálsdóttur sem
gaf sveitarfélaginu eignarland sitt
Höfða 1970 til minningar um eig-
inmann sinn Héðin Valdimarsson,
einnig til minningar um Þuru Árna-
dóttur frá Garði og Hörð Jónsson
frá Gafli en þau unnu mikið við
fegrun og uppgræðslu svæðisins á
árunum um og eftir 1940 fyrir þau
Héðin og Guðrúnu. Gerði ræðumað-
ur að tillögu sinni að Mývetningar
reistu þeim hjónum veglegan minn-
isvarða í Höfða.
Smíðað hefur Bárður bás
Bárður Sigurðsson keypti land-
spildu vestan í Hafurshöfða úr landi
Kálfastrandar 1912 og byggði þar
bæ sinn, sem enn má sjá fagurlega
hlaðna veggi að. Hann var þá ein-
hleypur og vann víða um sveitina
fyrir bændur og var ekki alltaf
heimavið. Hjálmar Stefánsson í
Vagnbrekku kom þá einhverju sinni
þar heim á bæ og vildi heimsækja
frænda sinn, en bærinn var læstur
með hengilás. Hjálmar orti þá þessa
vísu:
Smíðað hefur Bárður bás.
Býr þar sjálfur hjá sér.
Hefur til þess hengilás
að halda stúlkum frá sér.
Skömmu síðar giftist Bárður Sig-
urbjörgu Sigfúsdóttur og áttu von á
fyrsta barni í bæinn. Þá orti Þura
Árnadóttir í Garði:
Þrengjast fer á Bárðarbás,
bráðum fæðist drengur
Hefur bilað hengilás,
hespa eða kengur.
Nokkuð hefur gætt þess misskiln-
ings að Þura Árnadóttir ætti þessar
vísur báðar en sannast mun það
vera að hún á aðeins síðari vísuna,
fyrri vísan er Hjálmars, en báðar
eru þær perlur.
Bárður flutti með fjölskyldu sína
inn í Eyjafjörð 1931 en Héðinn
Valdimarsson keypti landið og síðar
allan höfðann. Hófust þau hjón
bráðlega handa við að láta gróð-
ursetja í landið. Að því búa nú Mý-
vetningar og aðrir sem þangað
leggja leið sína, einkum vegna óeig-
ingjarnrar gjafar Guðrúnar Páls-
dóttur, en hún lést á síðasta ári.
Höfði er opinn öllum til göngu-
ferða. Þar er unnið í stígagerð og
blómabeðum yfir sumarið á vegum
Skútustaðahrepps.
Morgunblaðið/BFH
Prúðbúnar húsfreyjur, Sólveig Pétursdóttir og Hrafnhildur Geirsdóttir.
Ræðumaður dagsins, Hörður Sigurbjarnarson, er fjær á myndinni.
Fjölmenni í Höfða
á hátíðisdegi
Mývatnssveit
UNNIÐ er að því að bjarga Villinga-
holtsvatni í Villingaholtshreppi frá
því að þorna upp. Að frumkvæði
fólks sem býr í nágrenni við vatnið
vinnur votlendisnefnd landbúnaðar-
ráðuneytisins að því að lagfæra og
hækka bakka vatnsins og útbúa út-
rás úr því sem ekki grefur sig niður.
Vatnið leitaði útrásar á tveimur stöð-
um úr vatninu yfir í næstu fram-
ræsluskurði. Hefði ekkert verið að
gert var sýnt að vatnið þornaði upp
en mesta dýpi þess er um tveir metr-
ar.
Bakkar vatnsins höfðu brotnað
niður og um leið og þeir eru lagfærð-
ir og sléttaðir er gerð dálítil mön
meðfram vatninu sem tekur vel á
móti hækkun vatnsborðsins. Níels
Árni Lund, formaður votlendis-
nefndar, sagði þetta mjög þarft
verkefni og betra að geta gripið inn í
atburðarásina því sýnt væri að vatn-
ið hefði þornað upp á einu ári ef ekk-
ert hefði verið að gert. Hann þakkaði
Þórunni Kristjánsdóttur á Vatns-
enda frumkvæði hennar að þessu
verkefni.
Í Villingaholtsvatni hefur veiðst
silungur í net og útrás vatnsins verð-
ur komið þannig fyrir að sjóbirtingur
geti gengið upp í vatnið. Vatnið er
sveitarprýði ásamt því að það býður
upp á afþreyingarmöguleika fyrir
ferðaþjónustuna í sveitinni en mið-
stöð hennar er í Þjórsárveri á hæð-
inni ofan við vatnið.
Villinga-
holtsvatni
bjargað frá
þornun
Selfoss
AÐ frumkvæði ferðamálafulltrúans í
Vestmannaeyjum og stjórnar ferða-
málasamtaka í bænum var efnt til
kynningar á starfsemi þeirra sem
starfa á einn eða annan hátt að ferða-
málum í Eyjum. Alls komu nærri 40
manns saman frá 32 fyrirtækjum og
stofnunum í Vestmannaeyjum og
vakti það athygli hvað margir aðilar
starfa að ferðamálum í Eyjum.
Hópurinn var saman í dagstund
og farið var í heimsókn til allra aðila
og starfsemi hvers og eins kynnt, má
þar nefna gistiheimili, söfn, gallerí,
golfvöllinn og fleiri staði. Hópurinn
endaði svo yfirreið dagsins með sam-
eiginlegum kvöldverði í nýja veitinga
og skemmtihúsinu Höllinni sem opn-
uð var fyrir skömmu.
Þá fylgdi í kjölfarið heimsókn
ferðaþjónustufulltrúa frá Reykjavík,
Hafnarfirði og af Suðurlandi til Eyja
þar sem þeim var kynnt hin fjölhæfa
og umfangsmikla ferðaþjónusta sem
rekin er í Vestmannaeyjum.
Að sögn Auroru Friðriksdóttur
ferðamálafulltrúa í Vestmannaeyj-
um tókst kynningin á meðal Eyjafyr-
irtækjanna og stofnana mjög vel og
tóku allir þátt sem standa á einn eða
annan hátt í ferðamálum í Eyjum og
veita ferðamönnum þjónustu sína.
Þá var heimsókn fulltrúanna ofan af
fastalandinu gagnleg öllum aðilum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Um 40 fulltrúar ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum komu saman á
dögunum og kynntu sér starfsemi allra fyrirtækja og stofnana í Eyjum í
ferðaþjónustunni. Hér er hópurinn saman kominn á Skansinum, einum
fegursta stað Eyjanna sem lætur engan ferðamann ósnortinn.
Ferðafröm-
uðir í Eyjum
kynna sig
Vestmannaeyjar
ERLENDIR ferðamenn sem voru í
skoðunarferð í Hellnafjöru tóku í
vikunni eftir sel sem svamlaði um
höfnina. Virtist selurinn máttfar-
inn og leita sífellt upp að hafn-
arbakkanum og inn að landi. Við
nánari eftirgrennslan kom í ljós að
hann var með netabút um snopp-
una og virtist því eiga erfitt um
andardrátt auk þess sem stór hluti
af snoppunni var bólginn og þrút-
inn. Einn ferðamannanna gerði til-
raun til að fanga selinn og draga
hann að landi með því að bregða
um hann bandi en sú tilraun mis-
tókst aftur og aftur. Selurinn
bægslaðist um og sló til mannsins,
sem í hita leiksins hafði klætt sig
úr sokkum og skóm, brett upp
skálmar og var kominn út í ískald-
an sjóinn í björgunaraðgerðum
sínum, þrátt fyrir að yfir skylli úr-
hellis rigningarskúr.
Í framhaldi af þessum tilraunum
ferðamannsins komu heimamenn-
irnir, þeir Kristinn Einarsson á
Ökrum og mágur hans Kristján
Gunnlaugsson sem rekur Fjöru-
húsið í Hellnafjöru, til skjalanna.
Með hjálp þeirra tókst að ná seln-
um upp í fjöruna og eftir nokkrar
tilraunir náðu þeir í sameiningu að
skera af honum netið sem var vafið
um snoppuna. Á meðan reyndi sel-
urinn nokkrum sinnum að glefsa
til Kristins og gaf frá sér reiðihljóð
þótt mikið væri af honum dregið.
Eftir að tekist hafði að skera af
selnum netið lá hann máttvana í
fjöruborðinu um stund en svo
reyndu björgunarmennirnir að ýta
honum út í sjóinn aftur. Hann
svamlaði frá landi en kom aftur
upp í fjöruborðið við sandströnd-
ina og lá þar í þó nokkurn tíma, áð-
ur en hann hvarf til hafs, vonandi
sterkari og hressari eftir að hafa
jafnað sig á hremmingunum.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Selur í vandræðum
Hellnar/Snæfellsbær