Morgunblaðið - 22.06.2001, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 21
FYRIR nokkrum dögum rakst
fréttaritari á eldri mann á gangi um
gamla miðbæinn í Stykkishólmi.
Kom í ljós að hér var á ferðinni
Hans Svane, apótekarasonur úr
Stykkishólmi, sem var mættur til
að skoða æskustöðvarnar.
Hans fluttist þriggja ára gamall
árið 1925 með foreldrum sínum til
Stykkishólms. Fjölskyldan kom frá
Danmörku og hafði faðir hans
keypt rekstur apótekisins í Stykk-
ishólmi. Apótekarafjölskyldan bjó í
apótekinu eins og gert er enn í dag.
Þrettán ára gamall þreytti hann
ásamt 120 öðrum nemendum inn-
tökupróf í Menntaskólann í Reykja-
vík. Hann var einn af 25 nemendum
sem komust inn í skólann. Hann
lauk stúdentsprófi árið 1941 og var
að fagna 60 ára stúdentsafmæli fyr-
ir stuttu. Hans nam læknisfræði og
eftir 7 ára nám lauk hann prófi.
Hann gerðist héraðslæknir í Súða-
vík. En hann vildi læra meira. Fáir
komust að í kandídatsnámi á Ís-
landi og því lá leið hans til Dan-
merkur þar sem hann stundaði
nám. Hann lauk námi sem sérfræð-
ingur í almennum skurðlækningum,
einnig í kvensjúkdómafræðum og
fæðingasjúkdómum. Eftir það hef-
ur starfsvettvangur Hans verið í
Danmörku. Starfaði hann lengi við
hjartaskurðlækningadeild í Árós-
um, síðar valdi hann að vera yfir-
læknir við lítinn blandaðan spíatala
í Nyköbing á Sjálandi. Eftir að
hann komst á eftirlaun dvaldi hann
2 ár á Grænlandi og starfaði þar
sem læknir.
Það vekur athygli hve góða ís-
lensku Hans talar eftir að hafa ver-
ið í Danmörku í hálfa öld. Hann var
giftur íslenskri konu, þar sem ís-
lenskunni var viðhaldið, og svo hef-
ur hann gaman af að lesa íslensk
kvæði og eins hefur hann lesið mik-
ið fornritin sem hann fékk í ferm-
ingargjöf árið 1935.
Hans ber hlýjar taugar til Stykk-
ishólms. Hann heimsækir gamla
Hólmara sem voru samtíða honum
á æskuárunum og hefur gaman af
að rifja upp minningargar frá þeim
tíma, þar sem allar aðstæður voru
erfiðar og fólk þurfti svo sannar-
lega að hafa fyrir lífinu.
Fagnar 60 ára stúdentsafmæli
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Hans Svane apótekarasonur fyrir framan apótekið í Stykkishólmi sem
var æskuheimili hans frá þriggja ára aldri.
Hans Svane lækn-
ir á æskuslóðum
Stykkishólmur
OPNUÐ hafa verið tilboð í við-
gerð á þaki Egilsstaðakirkju. Tvö
tilboð bárust, annað frá Pétri
Jónssyni á Seyðisfirði, að upphæð
kr. 4.828.400, en hitt kom frá
Tréiðjunni Eini í Fellabæ og nam
kr. 8.457.400.
Munar því ríflega 3,6 milljónum
á tilboðum, en kostnaðaráætlun
Verkfræðistofu Austurlands, sem
heldur utan um framkvæmdina
fyrir hönd Sóknarnefndar Egils-
staðasóknar, hljóðaði upp á kr.
5.459.000. Samið verður við lægst-
bjóðanda.
Verkið felst í að fjarlægja nú-
verandi pappaklæðingu, endur-
nýja fúið trévirki og klæða þak að
nýju með þakdúk. Stefnt er að
verklokum í septemberbyrjun.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Í sumar stendur til að endurnýja þak Egilsstaðakirkju og mun það kosta
tæplega 5 milljónir króna skv. tilboði.
Þak Egilsstaðakirkju
endurnýjað
Egilsstaðir