Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 23
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 23
SIGURBORG SH 12 kom í gær-
morgun með Sigurð Jakobsson ÞH
320 í togi til hafnar á Húsavík. Sig-
urður Jakobsson hafði fengið veið-
arfærið í skrúfuna kvöldið áður þar
sem skipin voru á rækjuveiðum í Öx-
arfjarðadýpi. Sigurborgin var nær-
stödd og kom skipverjum á Sigurði
Jakobssyni til hjálpar. Eftir að tókst
að koma taug á milli skipanna var
haldið til lands og eins og fyrr segir
var komið til Húsavíkur um kl. 8.30 í
gærmorgun. Sigurborgin hélt tafar-
laust aftur til veiða eftir að hafa skil-
að Sigurði Jakobssyni að bryggju því
það hefur veiðst vel á rækjunni að
undanförnu. Strax var hafist handa
við að að reyna ná trollinu úr skrúfu
skipsins og unnu tveir kafarar að því
ásamt áhöfn skipsins. Það hafðist að
lokum þegar líða tók á daginn og var
trollið tekið í land til viðgerðar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigurborg SH með Sigurð Jakobsson ÞH í togi.
Fékk rækju-
trollið í skrúfuna
Húsavík. Morgunblaðið.
Á AÐALFUNDI SR-mjöls hf. á mið-
vikudag var samþykkt að auka
hlutafé fyrirtækisins að nafnverði
140 millj. kr. með útgáfu nýrra hluta.
Verða hlutirnir notaðir til kaupa á
60% hlut í Valtý Þorsteinssyni ehf. af
Rauðuvík ehf. Valtýr Þorsteinsson
ehf. gerir út nóta- og togveiðiskipið
Þórð Jónasson EA og er útgerðin því
nú í 100% eigu SR-mjöls. Sem
greiðsla eru hlutirnir metnir á 350
milljónir sem svarar til gengis 2,5.
Eigin skip skiluðu SR-mjöli um 50
þúsund tonnum af hráefni á síðasta
ári. Á aðalfundinum sagði Benedikt
Sveinsson, stjórnarformaður SR-
mjöls, félagið hafa farið halloka
gagnvart tilboðum keppinauta til
báta sem verið hafa í föstum við-
skiptum við SR-mjöl. Meginástæðan
sé sú að keppinautarnir bjóði eigend-
um bátanna gjarnan veiðiheimildir í
loðnu gegn því að þeir landi í ákveðn-
ar verksmiðjur. Að auki sé iðulega
samið um að stór hluti eigin heimilda
komi til sömu verksmiðja en ekki að-
eins sá afli sem veiddur er með láns-
kvóta. Þar sem SR-mjöl ráði yfir
litlum aflaheimildum eigi félagið
bágt með að að bjóða slík kjör og það
hafi skaðað félagið. Benedikt sagði
þetta fyrirkomulag vafalaust komið
til að vera og sýndi mikilvægi þess að
félagið efli eigin útgerð og komi sér
upp veiðiheimildum. Kaupin á hlut í
útgerð Þórðs Jónassonar EA væru
meðal annars í þeim tilgangi. SR-
mjöl á einnig eignarhlut í útgerð
nóta- og togveiðiskipsins Guðmund-
ar Ólafs ÓF, sem áður hét Sveinn
Benediktsson.
Tap SR-mjöls á síðasta ári nam
um 799 milljónum króna. Benedikt
sagði lágt verð lýsis og mjöls vera
meginástæður þess að afkoma
félagsins væri ekki betri en raun ber
vitni. Á sama tíma hafi bankar hækk-
að álag sitt á millibankavexti
skammtímalána og hafi það þrefald-
ast á tveimur árum. Slík skamm-
tímalán séu notuð til að fjármagna
afurðir þar til þær seljast eða eru
greiddar.
Benedikt sagði að félagið hefði
þegar gripið til aðgerða í því skyni að
lækka kostnað. Dregið hefði verið úr
viðhaldi og framkvæmdum, aðhaldi
beitt í rekstri og gripið til orkuspar-
andi aðgerða. Fólki í verksmiðjum
og á skrifstofum hefði verið fækkað,
yfirvinna minnkuð og dregið úr öðr-
um kostnaði eftir megni.
Benedikt sagði að þrátt fyrir þetta
væri ýmislegt jákvætt að gerast.
Vegna vandkvæða í evrópskum land-
búnaði hefðu opnast ný markaðs-
svæði og aðrir framleiðendur fiski-
mjöls, bæði hérlendis og erlendis,
hefðu sýnt áhuga á auknu samstarfi í
markaðsmálum. Því væri stutt í að
þekking félagsins nýttist í vipskipt-
um sem væru óháð veiði við Ísland.
SR-mjöl kaupir 60% hlut í útgerð
Skortur á
kvóta hefur
skaðað félagið
NORSKA skipið Fruholmen landaði
fyrstu loðnu sumarvertíðarinnar,
um 600 tonnum, á Eskifirði í gær.
Loðna veiddist í gær um 35 sjómíl-
ur austnorðaustur úr Langanesi en
sumarloðnuvertíðin hófst í fyrra-
dag. Lítið hafði þó orðið vart við
loðnu fram að þessu en Harpa VE
frá Vestmannaeyjum fékk þó 200
tonna kast á miðvikudag.
Nokkur skip höfðu þegar fengið
afla í gærkvöldi, m.a. hafði Víkingur
AK fengið um 300 tonna kast og
Svanur RE um 200 tonna kast. Ís-
lenskum loðnuskipum fjölgar nú ört
á miðunum, auk þess sem þar er
töluverður fjöldi færeyskra, græn-
lenskra og norskra skipa að sögn
Gunnars Gunnarssonar, skipstjóra
á Svani RE. „Þetta er þokkaleg
loðna og mun betri en loðnan sem
við urðum varir við hér nokkru
sunnar. Það eru hins vegar ekki
stórar torfur sem skipin eru að
kasta á og miðað við þann mikla
fjölda skipa sem er á miðunum og
afkasta getu þeirra þá verða þau
líklega ekki lengi að þurrka upp
þessar torfur.
Þetta er hefðbundin byrjun á
sumarvertíð en á þessum slóðum
hefur veiðin hafist á undanförnum
árum. Við eigum vonandi eftir að
finna fleiri torfur nú þegar skip-
unum fjölgar og veðrið hefur
lagast,“ sagði Gunnar.
Nokkur loðnuskip voru í gær við
leit vestur undir Kolbeinsey án þess
að finna neitt og höfðu skipin öll
sett stefnuna á miðin undan Langa-
nesi í gærkvöldi.
Fyrsta
loðnan á
Eskifjörð
Í ÁGÚST næstkomandi mun Fis-
hing Monthly gefa út blaðkálf þar
sem fjallað verður um sjávarútveg
og sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi.
Fishing Monthly kemur út mán-
aðarlega og eru lesendur þess fyrst
og fremst skoskir útgerðarmenn og
skipstjórar, auk útgerðarmanna í
Bretlandi og Írlandi.
Undirbúningur ágústblaðsins er
þegar hafinn og er þeim sem hafa
áhuga á að koma fyrirtæki sínu á
framfæri bent á að hafa samband við
Jeremy Thain hjá Fishing Monthly í
síma: +44 (0) 131 551 2942 eða tölvu-
póst: jeremy@specialpublica-
tions.co.uk
Íslensk fyrirtæki
í Fishing Monthly