Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 32
LISTIR/KVIKMYNDIR
32 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
þar til hugmyndir komu fram um
að fylgja henni eftir með framhaldi.
„Af öllum þeim myndum sem ég
hef leikið í hefur Dagfinnur dýra-
læknir vakið mest viðbrögð,“ segir
Eddie sem verið hefur í myndum á
borð við Beverly Hills Cop, 48 Hrs
og Klikkaða prófessorinn. „Það
skiptir ekki máli hvar ég er staddur
í heiminum, krakkar og unglingar
koma til mín og segja, hæ, herra
D.“
Eitt af því sem leikstjórinn Carr
hafði hvað mest gaman af þegar
hann gerði Dagfinn dýralækni var
að ráða leikara til þess að leika í
talsetningunni en stór hópur leik-
ara talar fyrir dýrin, sem fram
koma í myndinni. Þeirra á meðal
eru Phil Procter, Frankie Muniz,
sem leikur gáfnaljósið í Malcolm in
the Middle, Michael Rapaport,
Andy Dick ásamt Jacob Vargas.
Leikarar: Eddie Murphy, Kristen Wil-
son, Jeffrey Jones, Kevin Pollak, Rav-
en Symoné og Kyla Pratt.
Leikstjóri: Steve Carr (Next Friday).
bandarísku gamanmyndinni og
framhaldsmyndinni Dagfinni dýra-
lækni 2 eða Dr. Doolittle 2, sem er
heimsfrumsýnd í dag í fjölda kvik-
myndahúsa. Með aðalhlutverkið fer
Eddie Murphy sem fyrr en önnur
hlutverk eru í höndum Kristen Wil-
son, Jeffrey Jones, Kevin Pollak,
Raven Symoné og Kyla Pratt.
Leikstjóri er Steve Carr.
Fyrri myndin með Eddie
Murphy í hlutverki Dagfinns var
frumsýnd árið 1998 og naut mikilla
vinsælda (sögurnar um Dagfinn
voru áður kvikmyndaðar á sjöunda
áratugnum og þá var Rex Harrison
í hlutverki dýralæknisins sem gat
talað við dýrin). „Fyrri myndin
fjallaði um það þegar Dagfinnur
komst að því að hann hafði þessa
náðargáfu að geta skilið og talað
við dýrin,“ segir Murphy. „Í þessari
nýju mynd snýst líf hans meira um
það hvernig hann notar hæfileika
sinn og hvernig áhrif þessi gæfa
hans hefur á fjölskyldu hans.“
Það leið ekki langur tími frá því
að fyrri myndin var frumsýnd og
DAGFINNUR dýralæknir (Eddie
Murphy) er umhverfisverndarsinni
og hefur í hyggju að bjarga skóg-
lendi nokkru þar sem margir vinir
hans úr dýraríkinu dvelja. Í þeim
tilgangi þarf hann að finna dýr í
skóginum sem er í útrýmingar-
hættu og verndað með lögum.
Hann finnur það dýr þegar hann
rekst á einmana björn í skóginum
af tegund sem er að deyja út.
Björninn kallar hann Ava.
Nú er bara að finna honum maka
og Dagfinnur hefur upp á sirk-
usbirni, Archie að nafni, sem
reyndar hefur ekki búið í óbyggð-
unum lengi og vill því ekkert flytja
í skóginn. Þegar Dagfinni loks
tekst að sannfæra hann um að
koma með sér kemur í ljós að Ava
er ekki hrifin af verðandi maka sín-
um.
Þannig er söguþráðurinn í
Fleiri ævintýri
Dagfinns dýralæknis
Eddie Murphy endurtekur hlutverk sitt sem Dagfinnur dýralæknir í Dagfinni 2, sem frumsýnd er í dag.
Bandaríska gamanmyndin Dagfinnur
dýralæknir 2 eða Dr. Doolittle 2 með
Eddie Murphy verður heimsfrumsýnd á
Íslandi í dag.
AMANDA Pierce (Monica Potter)
vinnur við að lagfæra listaverk. Hún
býr á Manhattan með fjórum ofur-
fyrirsætum (Shalom Harlow, Ivana
Milicevic, Sarah O’Hare og Tomikon
Fraser) og veit ekki hvort hún á að
þakka guði sínum eða bölva örlögum
sínum.
Fyrirsæturnar taka það þegar að
sér að lappa upp á útlit hennar og
framkomu en á sama tíma verður
hún ástfangin af Jim Winston
(Freddie Prinze), nágrannanum í
næsta húsi.
Þannig er söguþráðurinn í róm-
antísku gamanmyndinni Head Over
Heels sem frumsýnd er í Sambíó-
unum Álfabakka og Nýja bíói,
Keflavík, í dag. Með helstu hlutverk
fara Monica Potter, Freddie Prinze,
Shalom Harlow, Ivana Milicevic,
Sarah O’Hare og Tomikon Fraser.
Leikstjóri er Mark Waters sem áð-
ur gerði myndina The House of Yes.
Leikstjórinn Waters hafði klass-
ískar, bandarískar gamanmyndir í
huga þegar hann gerði Head Over
Heels eins og The Philadelphia
Story og His Girl Friday. Hann var
ekki í neinum vafa um að Freddie
Prinze væri rétti maðurinn í aðal-
karlhlutverkið. „Um leið og hann las
handritið fann hann sig í hlutverk-
inu,“ segir Waters.
„Í þessari mynd þroskast Freddie
í karlmann,“ er haft eftir leikstjór-
anum þegar hann lýsir unglinga-
stjörnunni. „Hann er heimsmaður,
aðlaðandi og fágaður, svona eins og
Gary Cooper ef hann hefði einhvern
tímann leikið Cary Grant.“ Þess má
geta að Waters stýrði Prinze áður í
mynd sinni, The House of Yes.
Sjálfur var Prinze, sem leikið hef-
ur í myndum eins og Ég veit hvað
þú gerðir síðasta sumar og She’s All
That, ánægður með hlutverkið. „Ég
fékk þarna að leika óræðan, dul-
arfullan mann,“ segir hann. „Það
var gaman að sýna fólki að ég réð
vel við hlutverkið og ég hef sér-
staklega gaman að hasar, einkum
þegar hann er blandaður gaman-
semi.“
Monica Potter hefur vakið athygli
vestra á undanförnum misserum.
Hún lék í Without Limits og á móti
Robin Williams í Patch Adams en
síðast sáum við hana leika á móti
Morgan Freeman í Along Came a
Spider. „Monica er ekki þekkt fyrir
að leika í gamanmyndum en hún
óttast ekkert og er alls óhrædd að
takast á við ólík svið leiklistarinnar,
jafnvel þótt hún eigi það á hættu að
virðast kjánaleg,“ segir Waters.
Sjálf segist Potter hafa mikið
yndi af gamanmyndum og þeir gam-
anleikarar sem hún hefur í hávegum
er fólk eins og Carol Burnett og
Benny Hill. „Mér finnst fyndið þeg-
ar fólk dettur á rassinn,“ segir leik-
konan.
Leikarar: Monica Potter, Freddie
Prinze, Shalom Harlow, Ivana Milicevic,
Sarah O’ Hare og Tomikon Fraser. Leik-
stjóri: Mark Waters (The House of
Yes).
Prinze og
fyrirsæturnar
Sambíóin Álfabakka og Nýja bíó, Kefla-
vík, frumsýna bandarísku gamanmynd-
ina Head Over Heels með Freddie
Prinze.
Freddie Prinze og Monica Potter fara með aðalhlutverkin í gaman-
myndinni Head Over Heels, sem frumsýnd er í dag.
Watcher sem frumsýnd er í Há-
skólabíói í dag. Með aðalhlutverkin
fara James Spader, Keanu Reeves,
Marisa Tomei og Ernie Hudson.
Leikstjóri er Joe Charbanic en
handritið gera David Elliot og
Clay Ayers.
The Watcher er lýst sem sál-
fræðilegum trylli sem skoðar bæði
inn í huga fjöldamorðingja og lög-
reglumannsins sem eltist við hann.
Hún fjallar ekki um það hver er
morðinginn því það verður ljóst
strax í upphafi. „Ég man ekki eftir
mynd þar sem kemur svona fljótt í
ljós hver morðinginn er,“ segir
framleiðandinn Nile Niami.
„Morðinginn er að leika leik,“
segir leikstjórinn Charbanic. „Elt-
ingarleikurinn er það sem skiptir
hann höfuðmáli.“
Leikstjórinn segir það hafa ver-
ið ákaflega mikilvægt fyrir mynd-
ina að James Spader skyldi taka
að sér annað aðalhlutverkið og
framleiðandinn Naimi segir Spad-
er „sérlega leikinn í því að fara
með hlutverk persóna sem eru
margræðar og kannski ekki allar
Alríkislögreglumaðurinn Joel
Campbell (James Spader) er far-
inn í felur. Hann hefur árum sam-
an elt uppi samviskulausa morð-
ingja í Los Angeles en er nú
fluttur til Chicago og ætlar að taka
upp nýtt líferni. En hann hefur að-
eins búið í Chicago í nokkra mán-
uði þegar hryllileg morð eru fram-
in með aðferðum sem hann þekkir
og geta aðeins verið verk eins
manns, David Allen Griffin (Keanu
Reeves), sem Campbell reyndi að
hafa upp á í mörg ár.
Morðinginn virðist hafa elt lög-
reglumanninn til borgarinnar og
ákveðið að bregða á leik. Áður en
hann fremur morð sendir hann
lögreglumanninum ljósmynd af
væntanlegu fórnarlambi sínu og
manar hann til þess að finna það á
undan sér.
Þannig er söguþráðurinn í
bandarísku spennumyndinni The
þar sem þær eru séðar“. Og áfram
heldur framleiðandinn: „Þess
vegna var það rökrétt að hann
færi með hlutverk alríkislögreglu-
mannsins sem á í vandræðum og
er í rauninni útbrunninn.“
Spader hellti sér út í miklar
rannsóknir á störfum lögreglu-
manna sem eltast við fjöldamorð-
ingja en nokkrar löggur frá FBI
voru ráðgjafar við gerð myndar-
innar.
Keanu Reeves er óhræddur við
að velja sér hlutverk sem vekja
litla samúð samanber ofbeldis-
manninn í The Gift. Hann heldur
áfram á þeim slóðum í The Watch-
er.
Þetta er fyrsta bíómynd leik-
stjórans Joe Charbanics í fullri
lengd. Hann hefur gert fjölmörg
tónlistarmyndbönd m.a. með lista-
mönnum eins og Ice T og Ice Cube
og ekki síst Keanu Reeves, sem
spilar í hljómsveitinni Dogstar.
Leikarar: James Spader, Keanu Reev-
es, Marisa Tomei og Ernie Hudson.
Leikstjóri: Joe Charbanic.
Fjöldamorðingi
bregður á leik
Háskólabíó frumsýnir bandarísku
spennumyndina The Watcher með Jam-
es Spader og Keanu Reeves í aðal-
hlutverkum.
James Spader er alríkislögreglumaður í spennumyndinni The Watcher.