Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ingi BjörgvinÁgústsson fædd- ist í Reykjavík 11. október 1945. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 16. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Laufey Guðlaugsdóttir, f. 28.7. 1906, d. 1975, og Ágúst Jónsson, f. 24.8. 1902, d. 1989. Systkini Inga Björg- vins eru: Guðlaugur Gunnar, f. 1926. Ólafur Helgi, f. 1927, d. 1971, Vigdís Sigurbjörg, f. 1929, d. 1931, Victor Sævar, f. 1930, Vigdís Elín, f. 1935, Skúli, f. 1936, d. 1997, Unna Svan- dís, f. 1940, Hrafn- hildur Auður, f. 1942, d. 1997, Aldís, f. 1948. Eftirlifandi eigin- kona Inga Björg- vins er Mariann Hansen, f. 21. ágúst 1957. Foreldrar hennar eru Elsa Seterstrem Hansen og Skúli Hansen, sem er látinn. Útför Inga fer fram frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Á einhverjum fegursta degi sum- arsins lést hann Ingi mágur minn. Hann var næstyngstur 10 systkina sem flest ólust lengst af upp á Lang- holtsvegi 47 hér í borg. Þegar ég sá Inga fyrst var hann hnellinn ljóshærður kútur sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Glaður og hress rann hann upp eins og fífill í túni og varð sjaldan mis- dægurt. Hann lauk sínu barnaskólanámi en lengra varð hans nám ekki eins og svo algengt var í þá daga. Fram að fermingu var hann oftast í sveit á sumrin, lengst af hjá elsta bróður sínum að Stærribæ í Grímsnesi. Ennfremur var hann eitt sumar í Núpstúni í Hrunamannahreppi og eitthvað var hann líka í Gnúpverja- hreppnum. Eftir fermingu vann hann á ýmsum stöðum. Nokkuð lengi vann hann í Hampiðjunni en lengst af í Kassagerð Reykjavíkur. Síðast áður en veikindi herjuðu fyrir alvöru á hann vann hann hjá Örtækni – vinnustað Öryrkjabandalags Ís- lands. Ingi var alltaf hress í bragði og vol eða víl var ekki í hans kokka- bókum. Hann var haldinn vöðv- arýrnunarsjúkdómi sem ekki fór að bera á neitt að ráði fyrr en á fullorð- insárum og lengi vel hélt sjúk- dómurinn sér í skefjum þannig að hann átti lengst af góða ævi. Ingi kvæntist Mariann Hansen ágætis konu sem hafði samt þann að kross að bera að vera fötluð frá barnsaldri. Sambúð og samheldni þeirra Inga og Mariann var aðdáunarverð. Þau áttu heimili sitt í Hátúni 10a. Þau áttu yf- irleitt ágæta bíla og ferðuðust tölu- vert um landið. Ingi var ákaflega vin- fastur og duglegur að heimsækja sitt fólk og vini sína frá bernskuárunum átti hann alla tíð. Hann var með af- brigðum skyldurækinn og hjálpsam- ur við fjölskylduna. Er þess skemmst að minnast hve vel hann reyndist Skúla bróður sínum í hans veikindum og mikið og gott samband var milli hans og Auðar systur hans en þau Auður og Skúli létust bæði langt um aldur fram svo og Ólafur bróðir þeirra. Ingi reyndist einnig föður sínum góður sonur og þeir bjuggu lengi saman ásamt Skúla áð- ur en Ingi stofnaði sitt eigið heimili. Það er nú svo að þeir sem ekki ganga sjálfir heilir til skógar eru oft þeir sem skynja betur hvað meðbræðr- unum líður. Þannig var Ingi. Hann hafði líka glaðbeitta framkomu og átti auðvelt með að eignast vini og kunningja. Hann var alltaf boðinn og búinn að gera öðrum greiða og ætl- aðist aldrei til neins í staðinn. Systk- inabörnum sínum var hann góður frændi og ég veit að þau minnast hans öll sem slíks. Því miður ágerðist sjúkdómur Inga hratt nú á síðustu árum en aldrei kvartaði hann yfir því og fannst ekki að hann ætti neitt er- indi inn á endurhæfingarstofnanir. Það voru aðrir sem frekar áttu rétt á því. Það er ekki hægt að taka ráðin af fólki og ekki má draga úr því kjark- inn en stundum væri kannski betra að bera sig ekki alveg svona vel. Góður drengur er genginn. Glaður og reifur skyldi guma hver uns síns bíður bana, stendur þar. Ingi mágur minn lifði eftir því. Hann reyndi að gera að gamni sínu þótt hann lægi fársjúkur nú síðustu vikur. Við í fjöl- skyldunni vottum Mariann okkar dýpstu samúð. Hennar missir er mikill. Þá sendum við þakklæti og samúðarkveðjur til Elsu, tengda- móður hans, sem ég veit að honum þótti mjög vænt um og Maríu Vil- hjálmsdóttur, systurdóttur Mariann, þökkum við af alúð alla hennar hjálp- semi og elsku gagnvart þeim. Við kveðjum Inga Björgvin með virðingu og þökk. Blessuð sé minn- ing hans. Ásgerður Ingimarsdóttir. Ingi minn. Aldísi finnst þú ekki vera farinn. Við fórum saman í Grímsnesið að Stærribæ til Gunnars og Dóru, það var gaman og var okk- ur boðið í bíltúr um Grímsnesið og töluðum við saman um daginn og veginn. Aldís talaði alltaf við þig í síma og við hittumst oft í afmælis- veislum. Ég kom oft á Langholtsveg, þar var fallegt heimili. Þú varst yf- irleitt hress og kátur og það var gaman að hitta þig. Ég hitti þig síð- ast í boði hjá Stínu og Nonna og þá varst þú hress og kátur. Svo varð sjúkdómurinn meiri en þú varst mik- ið veikur. Ég vona að þér líði vel núna hjá ættingjum þínum. Guð veri með þér. Stefán Konráðsson og Aldís Ágústsdóttir. INGI BJÖRGVIN ÁGÚSTSSON Þegar komið er að kveðjustund sækja minningarnar á. Eitt sinn bað afi mig að koma með sér út í skúr að leita að skrúfu sem hafði týnst. Þegar leitað hafði verið í drykklanga stund og ýmislegt tínt upp af gólfinu benti afi mér á að líta upp. Þar hékk afmælisgjöfin, rautt nýuppgert stelpureiðhjól, uppi á vegg. Á jólunum, þegar óþolinmæðin eftir að opna pakkana var sem mest, talaði afi mínu máli við hitt fullorðna fólkið, þannig að ég fékk að opna pakkana svolítið fyrr en ella. Ein jólin eru sérstaklega minn- isstæð því á leiðinni upp til afa og ömmu í jólamatinn kom ég auga á SIGURÐUR PÁLSSON ✝ Sigurður Pálssonfæddist á Selja- landi í Fljótshverfi 25. febrúar 1915. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 14. júní síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Lang- holtskirkju 21. júní. Jarðsett verður á Kálfafelli í Fljóts- hverfi í dag. risastóran pakka niðri í þvottahúsi. Pakkinn var víst frá afa til Tinnu og hugmynda- flugið ekki meira en svo að mér datt einna helst í hug að í honum væri þvottavél. En í pakkanum reyndist vera rauður skrif- borðsstóll og raf- magnsvekjaraklukka svo ég gæti vaknað sjálf í skólann. Ósjaldan fékk ég að gista uppi hjá afa og ömmu. Svaf ég þá iðu- lega uppi í, alltaf afamegin. Til þess að varna „framúrdetti“ var sett upp brík. Svo fór afi með ljóð og kvæði áður en þreytan náði tök- um á okkur. En afi rifjaði upp fyrir mér ekki fyrir löngu að þá hafði ég skriðið upp í til hans og sagt: „Afi, viltu fara með Gilsbakkaþulu og haltu svo utan um mig svo ég geti sofnað,“ og var það auðsótt mál. Mikið var á sig lagt til þess að reyna að komast með tærnar þar sem afi var með hælana og utan- bókar fór ég síðar með þuluna fyrir afa. Eftir matinn hafði afi fyrir sið að fá sér blund og var þá alla tíð freistandi að sækja í hlýjuna til hans. Einnig er mér minnisstætt þegar móðir mín hafði verið að kvarta undan því við matarborðið að ég kynni ekki að nota hníf og gaffal. Ekki tókst henni að tjónka við mig en þegar afi hvíslaði að mér án þess að nokkur heyrði: „Tinna, sjáðu hvernig afi gerir, gerðu eins og afi,“ stóð ekki á viðbrögðunum. Með það sama var ég farin að puða við að bera mig að eins og afi við matarborðið, þar sem ég kappkost- aði að sitja á stólnum við hliðina á hans. Það er ekki hægt að segja annað en að afi hafi verið úrræðagóður maður og finnst mér eftirfarandi frásögn bera þar glöggt vitni um: Á einni af ferðum sínum um landið gerði hann sér lítið fyrir og dró hús sem hann var að flytja með hand- afli yfir brú þegar brúin reyndist of þröng og liðið sem kallað hafði ver- ið til aðstoðar lét ekki sjá sig. Þeg- ar liðið loksins kom á staðinn var afi á bak og burt, sjálfsagt kominn á áfangastað með farminn eins og um hafði verið samið. Elsku amma mín, þú átt mikið hrós skilið fyrir hvað þú hefur allt- af hugsað einstaklega vel um afa og fjölskylduna þína. Þú ert ein- stök manneskja og það var afi líka. Um það ber þeim sem til þekkja saman. Að lokum þakka ég þér fyr- ir allt og allt, elsku afi minn. Tinna Traustadóttir. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning- @mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur afmælis- og minning- argreina F yrir réttri viku aug- lýstu ungir sjálf- stæðismenn í Reykjavík að með- almaðurinn hefði lokið störfum sínum fyrir hið opinbera þetta árið og myndi því vinna fyrir sjálfan sig til áramóta. Hugsunin á bak við þetta er í grófum dráttum sú að hlutfall opinberra útgjalda af landsframleiðslu sé hið sama og það hlutfall sem liðið var af árinu fyrir réttri viku. Skattgreiðendur – sem eru ekki aðeins þeir sem greiða tekjuskatt heldur allir þeir sem kaupa sér vöru eða þjónustu – voru þarna minntir á hversu djúpt er seilst í vasa þeirra. Var sú áminning þörf því hlutfall hins opinbera af lands- framleiðslunni hefur farið vax- andi undanfarna áratugi, með þeirri undantekningu að vísu að hlutfallið lækkaði nokkuð um miðbik og fram á seinni hluta síðasta ára- tugar. Það kemur mörgum á óvart að þetta hlutfall hafi aftur far- ið vaxandi, því ríkið hefur lækkað ýmis skatthlutföll. Skýringanna er meðal annars að leita í því að sveitarfélögin hafa flest hækkað skatthlutfall sitt, þ.e. útsvarið, lagt á ný gjöld, samanber hol- ræsagjald Reykjavíkurborgar, og að vegna ört hækkandi tekna landsmanna hefur ríkið fengið tiltölulega meira í sinn hlut. Einn galla má nefna við út- reikninga ungra sjálfstæð- ismanna á hlutfalli hins op- inbera af landsframleiðslu, en hann er að inn í útreikningana vantar eitt og annað, sem þýðir að ástandið er í raun enn verra en sú mynd sem þarna er dreg- in upp. Þar kemur bæði til að útreikningarnir gera ekki að fullu ráð fyrir skyldugreiðslum til hins opinbera og að inn í út- reikninga af þessu tagi koma ekki þær íþyngjandi reglur sem hið opinbera leggur fólki og fyr- irtækjum á herðar. Engin leið er að fullyrða um hversu mörg- um dögum þyrfti að bæta við vegna þessara annmarka, en þó má fullyrða að ef allt væri tínt til kæmi í ljós að menn væru ekki tæplega hálft árið að vinna fyrir hið opinbera heldur meiri- hluta ársins. Segja má að hér að framan sé dregin upp nokkuð dökk mynd af ástandi mála, en hún verður þó enn dekkri þegar litið er til þess að meðalaldur landsmanna fer hækkandi og að búast má við að menn vilji í framtíðinni vinna færri ár en hingað til hef- ur tíðkast. Hátt og hækkandi hlutfall hins opinbera af lands- framleiðslunni auk hækkandi aldurs og styttri starfsævi kalla á ný viðhorf stjórnmálamanna og almennings til hugmynda um aukin opinber útgjöld og til þess hvert hlutverk hins op- inbera eigi að vera í framtíðinni. Framvegis geta menn ekki leyft sér það sem æði margir hafa gert fram til þessa, að benda á hið opinbera í hvert sinn sem þeim dettur í hug að eitthvað mætti betur fara. Ef hið op- inbera á áfram að halda utan um óskalista allra mögulegra og ómögulegra hópa þjóðfélagsins stefnir vissulega í óefni. Framvegis verður að gera þá kröfu að fjármunir fólks séu sem best nýttir og þeim ekki eytt í annað en það sem fólk vill helst. Til að þetta megi verða er nauðsynlegt að fólk hafi meira um ráðstöfun fjárins að segja sjálft, þ.e. að hlutfall hins op- inbera af landsframleiðslu lækki til að hagkvæmni í hagkerfinu aukist. Þegar hið opinbera ákveður að verja fjármunum í tiltekið verkefni er ekki víst að notagildi verkefnisins sé í sam- ræmi við kostnað. Reyndar vita allir sem fylgst hafa með þjóð- málum um hríð að mikið vantar upp á að svo sé að jafnaði. Þeg- ar fólk fær sjálft að ráðstafa fjármununum fara þeir hins vegar í það sem fólk vill helst og nýtast þannig eins vel og kostur er á og þessi bætta nýt- ing er nauðsynleg miðað við þær aðstæður sem lýst var hér að ofan. Í stað þess að gera kröfur um hin eða þessi ríkisút- gjöldin verður fólk þess vegna að gera kröfu um lægri ríkisút- gjöld og lægri skattheimtu. Og stjórnmálamenn verða að venja sig af því að taka vel í útgjalda- hugmyndir. Miðað við núver- andi aðstæður ber þeim hiklaust skylda til að segja nei við hug- myndum um aukin útgjöld. Hér má að lokum nefna þrjú dæmi um útgjaldahugmyndir sem stjórnmálamenn hefðu átt að segja nei við strax, en hafa því miður sumir tekið afar vel. Fyrst og fremst er nauðsyn- legt að nefna það versta: Splunkunýjar reglur um fæð- ingarorlof, sem bjóða há- tekjufólki upp á stórfelld launuð leyfi um margra mánaða skeið, munu að óbreyttu kosta skatt- greiðendur milljarða króna á hverju einasta ári, allt til enda veraldar. Tímabundnara vandamál er hugsanleg bygging tónlistarhúss á kostnað ríkis og borgar, en slík bygging myndi einnig kosta skattgreiðendur milljarða, þó að vísu aðeins einu sinni. En þá ætti reyndar eftir að reka húsið „af myndarskap“ um alla fram- tíð. Að vísu hefur ekki verið tekin ákvörðun um að hið op- inbera komi að byggingu þessa húss, svo enn er von í því máli. Loks má nefna eitt mál sem minni umræðu hefur hlotið en það hefur verið kallað þverun Kolgrafarfjarðar, sem er lítill fjörður á Snæfellsnesi. Þeir sem ætla frá Stykkishólmi út nesið þurfa að fara fyrir þennan fjörð og nú er Vegagerðin að skoða þrjár hugmyndir sem eiga að stytta þessa leið. Þessar þrjár hugmyndir myndu stytta leiðina um allt að 6 kílómetra en myndu kosta skattgreiðendur frá 350 til 850 milljónir króna. Því miður virðist Vegagerðin ekki skoða fjórðu hugmyndina af neinum áhuga, en hún skal sett hér fram og er þess eðlis að falla frá öllum hinum. Þessi fjórða leið myndi að vísu ekki stytta leiðina neitt, ekki frekar en sú ódýrasta hinna, en hún myndi heldur ekki kosta skatt- greiðendur krónu. Unnið fyrir ríki og bæ Ef hið opinbera á áfram að halda utan um óskalista allra mögulegra og ómögulegra hópa þjóðfélagsins stefnir vissulega í óefni. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj@ mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.