Morgunblaðið - 22.06.2001, Page 39

Morgunblaðið - 22.06.2001, Page 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 39 ✝ Vigfús Einarssonfæddist að Gljúfri í Ölfusi hinn 5. september 1924. Hann andaðist á Landspítalanum í Fossvogi hinn 12. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Pálína Benedikts- dóttir, f. 28.7. 1890, d.18.9. 1962, og Ein- ar Sigurðsson f. 16.11. 1884, d.22.7. 1963. Þau bjuggu að Gljúfri og síðar Helli í Ölfusi. Systkini Vigfúsar eru Gunnar, f.1.9. 1913, d.1996,Valur, f. 12.6. 1915, d. 1986, Vigdís, f. 1917, d. 1924, Sigurður, f. 21.9.1918, búsettur á Selfossi, Hjalti, f. 25.8. 1921, d. 1993, Val- gerður, f. 19.7. 1926, húsfreyja í Reykjavík, Álfheiður, f. 1.8.1928, d. 1997, Skafti, f. 13.10. 1929, bú- settur á Selfossi, Sigríður, f. 10.5. 1931, búsett á Selfossi, Benedikt, f. 17.9. 1932, d. 1993, Sigtryggur, f. orðin þrjú. Vigfús lauk barna- skólanámi á Selfossi, stundaði nám við Bændaskólann á Hólum 1944– 45 og tók síðan ýmis námskeið, m.a. verkstjórnarnámskeið. Hann ólst upp við öll almenn sveitastörf og var auk þess við ýmis störf á unglingsárum, svo sem í vega- vinnu, við torfskurð og skurð- gröft. Hann var kaupamaður að Hamraendum í Stafholtstungum 1943, vertíðarmaður á Flankastöð- um í Miðnesi, starfaði hjá Jarðbor- unum ríkisins 1945–48, flutti síðan með konu sinni að Geldingalæk á Rangárvöllum þar sem þau voru ráðshjú um skeið. Vigfús og kona hans hófu svo búskap í Seljatungu í Gaulverjabæjarhreppi árið 1949, ásamt Gunnari, mági Vigfúsar, og Vilhelmínu konu hans. Auk bú- starfa stundaði Vigfús ýmis önnur störf, m.a. við sláturhús og fisk- verkun. Hann var verkstjóri við Sláturhús Kaupfélagsins Hafnar á Selfossi á sláturtíðum 1954–72. Vigfús og Sesselja fluttu á Selfoss 1973 og starfaði hann sem gjald- keri á skrifstofu Hafnar hf. 1973 – 89, ók síðan eigin sendibíl frá 1990 –1999. Vigfús verður jarðsunginn frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15.30. 18.8. 1935, búsettur á Selfossi. Hinn 22. apríl 1948 gekk Vigfús að eiga Sesselju Sumarrós Sigurðardóttur frá Seljatungu, f. 22. apríl 1915. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Jóns- dóttir og Sigurður Einarsson í Selja- tungu. Börn Vigfúsar og Sesselju eru: 1) Einar Páll, f. 3. nóv. 1948, bílstjóri á Selfossi. 2) Sigurður, f. 17. ágúst 1950, framreiðslumaður í Reykja- vík. Sigurður kvæntist Hrönn Sverrisdóttur, þau slitu samvistir. Börn þeirra eru Sesselja Sumar- rós, Jónína Eirný, Árný Ösp og Vigfús Snær. Sambýlismaður Sig- urðar er Karl Valdimarsson. 3) Ingibjörg, f. 19. maí 1956, skrif- stofumaður í Reykjavík. Ingibjörg er gift Ólafi Jónssyni, þeirra barn er Halla. Barnabarnabörnin eru Enginn stöðvar tímans þunga nið. Líf kviknar og heilsar. Líf slokknar og kveður. Hver og einn á sína sögu sem í minni vina og samferðar- manna, á kveðjustund, skilur eftir minningar sem varðveitast meðan endist minni. Í dag kveðjum við vin og sam- verkamann til margra ára, Vigfús Einarsson frá Helli í Ölfusi. Hann skilur eftir sig góða sögu og ljúfar minningar. Við spörum við okkur að láta þær nærfærnustu á þrykk út ganga en verndum þær í fylgsnum hugans. Öllum sem kynntust Vigfúsi reyndist hann vinfastur og góðviljað ljúfmenni sem bjó yfir svo agaðri og léttri lund að fágætt var. Vigfús lauk búfræðinámi frá Bændaskólanum á Hólum í Hjalta- dal árið 1945, þá ungur að árum. Hann var námsmaður ágætur enda greindur og opinn fyrir fræðum hvers konar. Vel var hann ritfær og hagyrðingur ágætur. Eftir nám sitt í Hólaskóla stundaði hann almenna vinnu hér og hvar, m.a. hjá Jarðbor- unum ríkisins, sem var með verkefni víða, m.a. í landi Laugardæla þar sem þáverandi landeigandi, Kaup- félag Árnesinga, lét leita eftir heitu vatni. Bormennirnir fundu vatnið og síðar varð hitaveita fyrir Selfoss- byggð. Þetta var um miðjan fimmta ára- tug nýliðinnar aldar þegar Kaup- félag Árnesinga rak stórbúskap í Laugardælum. Þá var þar ráðskona fyrir heimilishaldi, Sesselja S. Sig- urðardóttir frá Seljatungu, en þau Vigfús felldu hugi saman og gengu í hjónaband árið 1948. Það ár réðust þau sem ráðshjú til Skúla Thoraren- sen útgerðarmanns sem þá rak bú- skap á Geldingalæk í Rangárþingi. Ári síðar, á vordögum, hófu þau félagsbúskap í Seljatungu með þeim er þessar línur rita. Það samstarf stóð í á þriðja áratug og um það samstarf verður hér aðeins sagt: Á þá samvinnu bar aldrei skugga. Greind og góðvild, lipurð og ljúf- mennska var það sem yfir daglegum samskiptum sveif. Og þegar börnin þeirra uxu úr grasi varð það þeim eðlislægt að tileinka sér þennan samstarfsmáta. Þetta yljar og endist í okkar minni um ókomna daga og er þakkað á kveðjustund. Á búskapar- árum sínum í Seljatungu tók Vigfús mikinn þátt í félagslífi sinnar sveitar enda félagsvera í raun og sann. Hann sat í sveitarstjórn um árabil, ásamt virkri þátttöku í margvíslegri þjónustu er búræktarfélög sveitar- innar höfðu með höndum. Þá var hann virkur þátttakandi í félags- starfi Ungmennafélagsins Sam- hygðar, sat í stjórn þess og lagði fjölbreyttu starfi þess félags öflugt lið. Svo kom þar að Vigfús og Sesselja skiptu um störf. Þau settu bú sitt á Selfossi og meðtóku nýjar aðstæður. Á Selfossi varð verkahringur Vig- fúsar fjölbreytilegur er spannaði umfang allt frá stjórnmálastarfi til þess að sinna þjónustustörfum margháttuðum. Lengst starfaði hann við verslunina Höfn en síðar í þjónustu hjá Sjúkrahúsi Suður- lands. Hvarvetna eignaðist Vigfús fjölda vina í starfi sínu þar sem góð- lyndi hans og trúmennska sat í fyr- irrúmi. Samtímis fataðist aldrei létt- leikinn og gleðigjafinn sem í brjósti bjó. Heimilisfaðir var hann hlýr og nærgætinn sem birtist vel í kær- leika hans og trausti til konu sinnar og barna. Við leiðarlok þökkum við hinum látna allar stundir er okkur voru gefnar með nærvist hans. Eigin- konu, börnum og öðrum ástvinum vottum við samúð og kveðjum með orðum síra Hallgríms: Ég veit minn ljúfur lifir lausnarinn himnum á: hann ræður öllu yfir, einn heitir Jesús sá: sigrarinn dauðans sanni sjálfur á krossi dó, og mér svo aumum manni eilíft líf víst til bjó. (Hallgr. Pét.) Vilhelmína og Gunnar Sigurðsson frá Seljatungu. Í dag verður jarðsettur mikill vin- ur okkar og öðlingur, Vigfús Ein- arsson. Tengsl okkar voru þau að hann var kvæntur föðursystur okkar og bjuggu þau hjón til margra ára í félagsbúi með foreldrum okkar. Við bjuggum í sama húsi en húsið skipt- ist í tvær íbúðir, austrí og vestrí. Silla og Fúsi bjuggu vestrí og hef- ur þeirra fjölskylda alltaf verið vestrífólkið. Eins og gera má ráð fyrir voru samskiptin mjög náin meðal íbúa hússins og eigum við systur margar og góðar minningar um Fúsa. Eitt af því sem hvað fyrst kemur í hug- ann á svona stundu er hvað hann var einstaklega mikilli geðprýði gædd- ur. Í öll þau ár sem við bjuggum á sama hlaði og eftir að þau fluttu burtu sáum við hann aldrei skipta skapi. Það gat komið á hann óþol- inmæðisvipur en lengra náði það ekki. Hann átti mjög auðvelt með að gera að gamni sínu og var launstr- íðinn. Einn var sá leikur sem við lék- um oft en það var að „gefa í horn“. Sérstaklega skemmtilegt var þegar Fúsi gaf okkur í horn því hann valdi furðulegustu kalla sem við ætluðum alveg að ærast yfir. Við sem börn höfðum aldrei á ævinni heyrt jafn- fagran karlmannssöng og hjá Fúsa og vorum við vissar um að mamma og Fúsi yrðu heimsfræg á mínút- unni ef einhver uppgötvaði þau bara. Fúsi brást yfirleitt bónglaður við ef hann var beðinn að taka lagið. Hann var mikill leikari og eftir- herma og voru góðar stundir þegar hann brá sér í gervi ýmissa einstak- linga, kunnugra og ókunnugra. Einnig var hann með afbrigðum hagmæltur og snaraði hann oft og einatt fram vísum. Einn mesti spenningurinn í sambandi við af- mæli okkar var jafnan sá að fá að lesa vísuna sem vonast var til að fylgdi afmæliskorti. Fúsa eigum við svo margt að þakka að þess verður einungis minnst innra með okkur og áhrif hans hafa áreiðanlega gert okkur að betri manneskjum. Þau hjón hafa gert svo margt fyrir okkur og gefið okkur svo margt, veraldlegt og af andlegum brunni sínum. Þegar við vorum ungar stúlkur og fórum á böll vorum við stundum svolítið lengi á ferðinni fram eftir nóttu og stundum var engin ferð heim í sveitina. Þá oft og iðulega bönkuðum við upp á hjá Sillu og Fúsa og alltaf tóku þau okk- ur eins og þau hefðu átt von á okkur og beðið okkar jafnvel með óþreyju. Aldrei skammir, aldrei spurt af hverju við værum á ferðinni, bara opnað fyrir okkur eins og þau opn- uðu hjarta sitt fyrir okkur og voru okkur sem allra næst foreldrum okkar. Þau Silla og Fúsi voru miklir félagar, fóru allt saman, gerðu alla hluti saman. Stundum þegar komið var til þeirra sat Fúsi og las fyrir Sillu úr bók en hún sat við hann- yrðir. Mikill er missir elskulegrar Sillu okkar og því mikil þökk fyrir þann sálarstyrk sem sú mikilhæfa kona hefur. Biðjum við um styrk til henn- ar og til allrar fjölskyldunnar. Þegar kyrr sumarkvöldin leggjast yfir eins og við munum þau frá þeim tíma sem við bjuggum öll í Selja- tungu munum við alltaf minnast okkar hjartfólgna Fúsa því þannig var hann einmitt, kyrr, hljóðlátur og einstaklega ljúfur. Guðný, Sigrún, Margrét og Laufey Gunnarsdætur. VIGFÚS EINARSSON ✝ Charlot AndreasLilaa var fæddur í Leirvík í Færeyjum 2. desember 1926. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 15. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Jóhann Pauli Lilaa sjómaður og kona hans Jóhanna María Ólivina í Leirvík. Heimilisfaðirinn lést fyrir aldur fram, systkinahópurinn var stór og fjölskyld- an háði harða baráttu til að halda saman heimilinu. Fjögur systkini komu til Íslands. Fyrst kom Sól- veig Lilaa í síðari heimsstyrjöld- inni og vann í eldhúsinu á Vífils- stöðum. Sólveig er nú búsett í Svíþjóð. Síðar komu Jónhild, Sím- on og Charlot. Jónhild Lilaa er nú látin. Maður hennar var Vilberg Sigurðsson sjó- maður sem fórst með trillunni Ásu. Þeirra börn eru: Sigurbjörn bóndi og bjó hjá Símoni bróður sínum í Keflavík. Hann var sjómaður þar í nokkur ár og síðan var hann á tog- urum Bæjarútgerðar Reykjavíkur og vann við löndun hjá Togaraaf- greiðslunni og Granda. Eftir að Charlot fluttist til Reykjavíkur bjó hann fyrst hjá Jónhildi systur sinni, en leigði síðan herbergi á Laufásveginum þar sem hann kynntist konu sinni Guðlaugu Stef- ánsdóttur, f. 19. desember 1929, á Syðri-Bakka í Kelduhverfi. For- eldrar hennar voru Stefán Jónsson bóndi á Syðri-Bakka og kona hans Guðbjörg Jónsdóttur. Systkini Guðlaugar eru: Höskuldur, kenn- ari og bóndi í Syðri-Haga á Ár- skógsströnd og síðar iðnverka- maður á Akureyri sem er látinn; Þóroddur bóndi á Syðri-Bakka og dvelur nú í Hvammi á Húsavík; Rögnvaldur bóndi á Leifsstöðum í Axarfirði sem er látinn; Rósa saumakona í Reykjavík sem er lát- in; Egill bóndi á Syðri-Bakka sem er látinn; og Guðrún húsfreyja í Miðhúsum í Blönduhlíð. Charlot og Guðlaug eignuðust eina dóttur, Guðbjörgu Maríu Lilaa, f. 7. október 1966, sem dvel- ur á heimili foreldra sinna. Útför Charlot Andreas Lilaa fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. á Möðruvöllum í Eyja- firði. Iris verslunar- maður hjá fyrirtækj- unum Bananar og Ágæti. Sólrún versl- unarmaður hjá McDonald’s. Garðar sjómaður og Jóhann ræstingaverktaki. Fyrir átti Jónhild börnin Ólaf Lilaa sem búsettur er á Akranesi og Ólöfu Finnboga- dóttur. Símon Lilaa vann um tíma á Vífilsstöð- um og var síðan sjó- maður í Keflavík en býr nú í Reykjavík. Kona hans var Björg Gunnlaugsdóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru: Jóhann sjómaður hjá Eimskip. Gunnlaugur sem stund- aði sjómennsku. Borghildur versl- unarstjóri í Vinnufatabúðinni. Fyr- ir átti Símon soninn Friðrik sem var smiður á Akureyri en er nú lát- inn Ein systir Charlots er á lífi í Leirvík í Færeyjum Mia Justinsen. Charlot kom til Íslands um 1950 Kynni okkar Kalla hófust lítillega eftir að ég og kona mín, Sigrún Höskuldsdóttir, fluttumst til Reykjavíkur haustið 1970 en Sigrún er bróðurdóttir Laugu. Þau urðu þó ekki veruleg fyrr en 1983 þegar ég hjálpaði þeim Kalla, Laugu og Guð- björgu að flytja inn í íbúð á Hring- braut 76 en þar hafa þau lengst af búið síðan. Þurftum við margt að skipuleggja en alltaf var í því einn rauður þráður. Íbúðin varð að henta dótturinni Guðbjörgu, sólargeislan- um hans. Eftir þetta héldum við allt- af nokkru sambandi. Fyrir þremur árum fór Kalli að tala um að hann væri að hugsa um að kaupa hús handa Guðbjörgu, þar sem ekki væru stigar og hentaði henni betur. Það varð ofan á að kaupa jarðhæð við Kleppsveg þar sem aðgengi var auðvelt. Jafnframt því fengum við ýmis hjálpartæki fyr- ir fatlaða. Eitt augnablik frá þessum tíma geymi ég með mér meðan ég lifi. Fjölskyldan var stödd hjá Össuri að kaupa göngugrind handa Guð- björgu. Við höfðum leitt hana inn í búðina. Þegar hún fékk göngugrind- ina í hendur brunaði hún af stað ein, kom síðan til baka og mælti skörug- lega. „Fá eina svona.“ Nokkru síðar veiktist Kalli af hjartasjúkdómi og var á sjúkrahúsi um tíma. Hann mátti þó varla vera að því því hann var aldrei viss um að Lauga ætti létt með að skrúfa frá súrefniskút Guð- bjargar. Kalli náði sér þó á strik aft- ur og í hönd fór gott sumar þegar Kalli sat á sólardögum sunnan undir vegg á Kleppsvegi 32 og Guðbjörg brunaði um með göngugrindina. Við bárum olíu á grindverkið svo það gljáði eins og mastur á seglskútu. Eftir erfiðan vetur ákvað samt fjölskyldan að flytja aftur á Hring- brautina. Nú á þorranum fór að halla undan fæti. Heilsu Kalla hrakaði og hann varð að fá heimahjúkrun tvisv- ar á dag. En ef ég kom bað hann mig alltaf að gá hvort ekki væri til nóg súrefni og hvort skipta þyrfti um kút. Sumardaginn fyrsta fór ég með fjölskylduna í skemmtilega ökuferð. Við fórum niður að höfn og könn- uðum breytingar á þeim slóðum sem hann vann á fyrrum og síðan fórum við út á Ægisíðu og önduðum að okk- ur sjávarloftinu og horfðum á grá- sleppuskúrana. Það var eins og Kalli risi upp úr vetrardvalanum í þessari ferð. En vegferð hans var farin að styttast. Í byrjun júní veiktist hann og var fluttur á sjúkrahús. Þegar ég heimsótti hann daginn eftir hvíslaði hann að mér að nú væri þetta búið hjá sér. Fjölskyldan heimsótti hann á hverjum degi og gamli maðurinn ljómaði þegar dóttirin kom. Á sól- ríku kvöldi tókst okkur að setjast út dálitla stund og vorum bjartsýn á framtíðina. Fimmtudaginn 14. júní fór ég að vanda með konu hans og dóttur í heimsókn og er við kvödd- umst hvíslaði Kalli hvort ekki væri nóg súrefni og ég sagðist sjá um það. Morguninn eftir lést hann eftir viku sjúkrahúsdvöl. Kalli, mér finnst eins og þú sért kominn á sjóinn aftur og unir þér vel. Vertu bara rólegur, ég skal passa að Guðbjörg hafi nóg súrefni. – Við hjónin vottum Guðlaugu og Guð- björgu og öllum ættingjum innileg- ustu samúð okkar. Símon Steingrímsson. CHARLOT ANDREAS LILAA EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir há- degi á föstudag. Í miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingar- dag. Berist grein eftir að skila- frestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skila- frests. Skilafrestur minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.