Morgunblaðið - 22.06.2001, Page 58

Morgunblaðið - 22.06.2001, Page 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ & Gargið Vesturgötu 2, sími 551 8900 Pétur Kristjáns Í kvö ld ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00:             !! "  # $ %&'( !! " )*%+   * $ ,- -./  -- -- 0$1 '  '23 1    !! "     !! "     !! "     !! " +*%  * $ 333" #4  1  $ 1"5" #4  1  *$!   6#"7$ %8 # 1 $$ 1 9 1  %" ! $6+: #"7;)7<$ %) #"7;+& MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Í KVÖLD: Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Lau 30. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fös 6. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI Lau 14. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason Þri 3. júlí kl. 20 – Forsýning, miðaverð kr. 1.200 Mið 4. júlí kl. 20 – Frumsýning Lau 7. júlí kl. 20 Sun 8. júlí kl. 20 Söngleikur fluttur af nemendum Verslunarskóla Íslands Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið HEDWIG KL. 20.30 Forsýning mið 4/7 UPPSELT Frumsýning fim 5/7 UPPSELT Lau 7/7 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda örfá sæti laus Fös 13/7 Lau 14/7 Hádegisleikhús KL. 12 RÚM FYRIR EINN fim 28/6 nokkur sæti laus FEÐGAR Á FERÐ KL. 20 sun 24/6 nokkur sæti laus,síðasta sýning Allar sýningar hefjast kl. 20. Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða 530 3037. midasala@leik.is — www.leik.is Miðasölusími er 530 3030 STÓRSVEIT Reykjavíkur er sífellt með ný járn í eldinum og nú er blásið í seglin til Svíþjóðar þar sem sveitin leikur í djasshátíð í Sandviken undir stjórn Daniel Nolgård. Fyrst fær þó hluti íslenskra aðdá- enda að njóta tónaþytsins kraftmikla því Stórveitin heldur tónleika í kvöld á Blönduósi kl. 21 og á morgun á Hvammstanga kl. 14. Palli syngur sveifluna „Við erum að fara með dagskrá í létta kantinum norður og Páll Óskar kemur með okkur sem gestasöngv- ari,“ segir Sigurður Flosason saxó- fónleikari. „Palli hefur aldrei komið fram með okkur á tónleikum og það var löngu orðið tímabært, hann er fínn söngvari og mikill atvinnumað- ur.“ Á dagskránni eru lög sem flestir kannast við eða létt og skemmtilegt sveifla og stórsveitartónlist sem á sjálfsagt eftir að fá áheyrendur til að iða í sætunum sínum. „Það sem við stórsveitarmenn vilj- um gera er tvíþætt. Við reynum að sinna þessum léttari geira sem er já- kvætt að mörgu leyti. Þetta er fín tónlist sem víkkar út áheyrendahóp- inn okkar og kynnir djasstónlist fyr- ir landanum. Hins vegar leikum við metnaðar- fyllri, þyngri djasstónlist. Flestar stórsveitir eru að gera annaðhvort, en við erum að reyna að gera bæði, og einbeitum okkur að því sem sem við erum að gera hverju sinni.“ Landvinningar í framtíðinni Í Svíþjóð koma þeir fram á þekktri djasshátíð en eru um leið að standa í stórsveitarskiptum við Sandviken Big Band sem kemur hingað á djasshátíð í september. „Það er já- kvætt fyrir okkur að kynnast þeirra starfsemi og sjá hvernig þeir reka sitt band. Auk þess er þetta fyrsta ferð stórsveitarinnar af landinu sem var löngu orðin tímabær. Þetta er lít- il og einföld ferð en vonandi byrjunin á meiri landvinningum í framtíð- inni,“ segir saxófónleikarinn. „Stórsveitin stendur á tímamót- um, við horfum fram á nýja tíma og við viljum gera meira af því að ferðast. Í Sandviken leikum við annars vegar íslenska tónlist, það er reynd- ar lítið til af stórsveitartónlist eftir Íslendinga, en við leikum lög eftir Veigar Margeirsson trompetleikara, Stefán S. Stefánsson saxófónleikara og mig,“ segir Sigurður. Síðan leika þeir lög eftir eftir stjórnandann Daniel og nokkur lög úr hinum alþjóðlega „bigband litte- ratúr“. Við viljum endilega kynna okkur og íslenska djasstónlist,“ segir Sigurður að lokum fyrir hönd Stór- sveitar Reykjavíkur. Stórsveit Reykjavíkur heldur norður og suður Páll Óskar syngur með Stórsveit Reykjavíkur um helgina. Tvíþætt sveit á tímamótum ÞÓTT ótrúlegt megi virðast eru líkur á að skylmingaþrællinn Maximus Decimus Meridius snúi aftur á hvíta tjaldið. Sá orðrómur svífur a.m.k. um Hollywood- hæðir þessa dagana að Dream- Works, kvikmyndasamsteypan sem gerði Gladiator, sé alvarlega að hugleiða að fylgja vinsældum myndarinnar eftir sem ef til vill er ekki undarlegt, í ljósi Óskaranna fimm sem hún hlaut. Af skiljanlegum ástæð- um velta menn vöngum yfir því hvernig handrits- höfundurinn David H. Franzoni, sem skrifaði handrit Gladiator, ætli sér að gera trúanlegt handrit um frekari ævintýri skylmingaþræls- ins, en framleiðendurnir hafa ekki útilokað að myndin komi til með að gerast á undan þeirri fyrri en sagt er að það velti al- farið á því hvort leik- arinn Russel Crowe sé reiðubúinn að taka að sér hlutverk Maximus í annað sinn. Talið er að þar sem Crowe fékk Ósk- arsverðlaun fyrir leik sinn þá séu framleiðend- urnir reiðubúnir í að fórna nokkrum útlimum til þess að hann gangi að tilboði þeirra. Hvort leikstjóri Gladiator, Ridl- ey Scott, sé eitthvað viðriðinn samningsviðræður eður ei, veit enginn. Orðrómur á kreiki um gerð framhaldsmyndar Gladiators Frekari ævintýri Maximusar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.