Morgunblaðið - 01.07.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LAGNING vegar milli Hólmavíkur
og Gilsfjarðar um Arnkötludal og
Gautsdal er meðal arðsamari fram-
kvæmda, sem hægt er ráðast í á
Vestfjörðum. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu sem Vegur, félag
áhugamanna um bættar vegsam-
göngur, fékk verkfræðistofuna
Línuhönnun hf. til að vinna. Í
skýrslunni er metin þjóðhagsleg
arðsemi við lagningu vegarins.
Hún var unnin í framhaldi af 500
þúsund króna styrk sem félagið
fékk frá Vegagerðinni í vor og er
skýrsluna að finna á Vesturvegi,
upplýsingavef um vega- og sam-
göngumál á Vestfjörðum.
Niðurstöðum er skipt í fernt eft-
ir ólíkum forsendum, þar sem
reiknað er með umferðarspá sem
Halldóra Óskarsdóttir setti fram í
lokaverkefni sínu við viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands. Ef
veginn ækju 40 þúsund bílar á ári,
sem fjölgaði smám saman, yrði
arðsemin 10,9%, en ef sami fjöldi
æki veginn ásamt því að vegtollur
yrði innheimtur yrði arðsemin
17,8%. Að mati skýrsluhöfunda eru
þetta líklegustu tilfellin. Ef gert
yrði ráð fyrir sama fjölda bíla á
veginum, en öll umferð æki
Þorskafjarðarheiði fjóra mánuði á
ári yrði arðsemin 5,1% og loks ef
30 þúsund bílar færu þarna um, en
fjölgaði ekki eftir því sem árin liðu
yrði arðsemin 7,6%. Tölur yfir 6%
teljast arðsamar.
Öruggari leið en
sú sem fyrir er
Samkvæmt upplýsingum á vef-
síðu Vegagerðarinnar styttir veg-
urinn leiðina milli höfuðborgar-
svæðisins og Hólmavíkur um 40
kílómetra og í skýrslunni kemur
fram að leiðin milli Reykjavíkur og
Ísafjarðar styttist einnig um sömu
lengd. Gamla leiðin yfir Holta-
vörðuheiði að Brú í Hrútafirði og
áfram um Strandir til Hólmavíkur
yrði ef til vill minna ekin.
Skýrsluhöfundar telja að erfitt
sé að meta umferðaröryggi leið-
anna í heild. Þeim þykir þó rétt að
benda á kaflann frá Brú í Hrúta-
firði að Hólmavík, sem sé mjög
hættulegur. Á árunum 1991-1995
hafi orðið 57 óhöpp, þar af 29 slys.
Tölur úr gagnagrunni Umferðar-
ráðs bendi reyndar til að hin síðari
ár hafi ástandið farið batnandi. Það
er samt mat höfunda skýrslunnar
að nýja leiðin sé eitthvað öruggari
en sú sem fyrir er.
Talið er að stofnkostnaður við
lagningu vegarins verði um 525
milljónir króna, en sú tala fæst úr
áðurnefndu lokaverkefni. Misjafnt
er eftir forsendunum fjórum hve-
nær vegurinn ætti að hafa borgað
sig upp, allt frá árinu 2010 til 2025.
Skýrsluhöfundar telja að vand-
fundin sé arðsamari framkvæmd á
Vestfjörðum. Lagfæringar á leið
um Strandir séu líklega dýrari og
hafi mun minni arðsemi. Þrátt fyrir
þessa miklu arðsemi nýju leiðar-
innar þurfi menn að gera sér grein
fyrir að stofnkostnað þurfi að
greiða strax, en tekjur komi inn á
löngu tímabili. Þeir segja að mik-
ilvægt sé að skipuleggja fyrir-
komulag hugsanlegrar einkafram-
kvæmdar sem best til að tryggja
sem stystan tíma fyrir fram-
kvæmdina til að borga sig upp. Að
lokum benda þeir á að forsendur
byggðaþróunar fyrir vestan séu
óljósar og hafi þær veruleg áhrif á
þróun bílaumferðar á svæðinu.
Á Vesturvegi kemur fram að
þegar sé farið að huga að stofnun
hlutafélags til undirbúnings lagn-
ingar vegar milli Hólmavíkur og
Gilsfjarðar um Arnkötludal og
Gautsdal, þar sem hóflegt gjald
yrði tekið af vegfarendum, að
minnsta kosti fyrstu árin.
Skýrsla um arðsemismat vegar milli Hólmavíkur og Gilsfjarðar um Arnkötludal og Gautsdal kynnt
„Arðsamari fram-
kvæmd vandfundin“
!
"#
Morgunblaðið/Palli Sveins
Mikill straumur bíla lá yfir Krossá á föstudagskvöld.
TALSVERÐ ölvun var í Þórs-
mörk aðfaranótt laugardags. Í
Langadal var fullt tjaldstæði, um
sex hundruð manns og að stærst-
um hluta háskólanemar. Eitthvað
var um ryskingar, en annars fór
allt stóráfallalaust fram. Lög-
reglan á Hvolsvelli var í við-
bragðsstöðu ef eitthvað skyldi út
af bregða.
Í Húsadal var hins vegar mjög
rólegt og ekki voru nema um 50
tjöld á svæðinu. Minna var um
framhaldsskólanema en áður, en
þessa helgina var ekki skipulögð
Þórsmerkurferð nokkurra fram-
haldsskóla eins og verið hefur
fyrstu helgina í júlí undanfarin
ár.
Í Básum var á fimmta hundrað
manns, mest fjölskyldufólk.
Menn nutu blíðunnar og lágu í
sólbaði, enda mjög gott veður að
sögn skálavarða, sólskin og tæp-
lega 20 gráðu hiti. Búist var við
áframhaldandi blíðu á svæðinu.
Fjölmenni
í Þórsmörk
MIKIL óánægja er meðal bænda
vegna takmarkana sem reglugerð
um meðferð og ávísanir lyfja til
dýra kveður á um. Félag sauðfjár-
bænda við Eyjafjörð lýsti vanþókn-
un sinni á ýmsum ákvæðum reglu-
gerðar um heimildir dýralækna til
að ávísa lyfjum í harðorðri ályktun
til aðalfundar Landssamtaka sauð-
fjárbænda sem haldinn var á Sel-
fossi í vikulokin.
Skorað var á yfirdýralækni og
héraðsdýralækna að standa fyrir
átaki í fræðslu varðandi lyf, sjúk-
dóma, greiningu þeirra og með-
höndlun og þeirri skoðun haldið
fram að sú leið væri mun árangurs-
ríkari en boð og bönn. Fjallað var
um reglugerðina í skýrslu stjórnar
Landssamtaka sauðfjárbænda til
aðalfundarins þar sem segir að
bændum séu með reglugerðinni
settir svo harðir kostir varðandi
meðferð og vörslu lyfja að óviðun-
andi væri, bæði frá dýraverndar-
sjónarmiðum og út frá rekstrarlegu
tilliti, þar sem í mörgum tilvikum
væri ódýrara að aflífa kind en að
leita til dýralæknis. Þó kemur fram
að fengist hafi undanþágur sl. vetur
varðandi vörslu sumra bænda á lyfj-
um með skilyrðum um að þeir starfi
samkvæmt gæðastýringu og skrái
nákvæmlega hvaða gripir fái lyf.
Fullur vilji til tilslakana
Reglugerðin heyrir undir ráðu-
neyti heilbrigðis- og tryggingamála
en Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, segir að ýmislegt bendi til
að lengra hafi verið gengið við setn-
ingu reglugerðarinnar en efni stóðu
til. „Það er fullur vilji til að slaka að-
eins á, án þess þó að skaða þau
markmið sem nást áttu með setn-
ingu reglugerðarinnar. Þessi vinna
er í gangi milli landbúnaðarráðu-
neytis, heilbrigðisráðuneytis og
Bændasamtakanna.“ Hann áréttar
þó að nauðsynlegt sé að treysta það
trúnaðarsamband sem gilda þurfi
milli bænda og neytenda og það
verði best gert með skýrum reglum
og gæðastýringu. „Ég treysti full-
komlega stærstum hluta bænda til
að annast þessa lyfjagjöf,“ sagði
landbúnaðarráðherra.
Sauðfjárbændur vilja tilslakanir á reglugerð
Ódýrara að aflífa kind
en leita til dýralæknis
SJÖ einþáttungar undir nafninu Út í
móa á Hveravöllum voru sýndir í gær
undir berum himni á Hveravöllum af
leikfélaginu Sýni. Leikfélagið Sýnir
hefur að markmiði að fara með leik-
listina til fólksins í landinu og býður
þess vegna til leiksýninga þar sem
þeirra er síst von og er aðgangur
ókeypis. Að því er best er vitað var
þetta í fyrsta skipti sem flutt er leik-
sýning á Hveravöllum en fyrr í sumar
hafa sýningar verið í Öskjuhlíð í
Reykjavík, í Svarfaðardal og Hrísey.
Beðið eftir rútu
Að sögn skálavarðar á Hveravöll-
um var stemmningin fyrir sýninguna
í gær góð og veður eins og best ger-
ist, heiðskírt og glampandi sól. Sýn-
ingin átti að hefjast kl 16.00 eftir að
áætlunarrúta kom á svæðið, en ann-
ars voru áhorfendur sýningarinnar
gestir á tjaldstæði Hveravalla.
Þátttakendur í sýningunni voru
um það bil 20 og koma þeir víða að.
Að sögn eins aðstandenda sýningar-
innar líta leikararnir á Hveravelli
sem miðpunkt á landinu fyrir þátt-
takendur.
Listviðburður í glamp-
andi sól á hálendinu
Einþáttung-
ar sýndir á
Hveravöllum
BROTIST var inn í bifreið í Breið-
holti, bifreiðir skemmdar í Þing-
holtsstræti, ráðist á mann í Hafn-
arstræti og bifreið ekið af
vettvangi eftir árekstur á Njarð-
argötu í Reykjavík aðfaranótt
laugardagsins.
Brotist var inn í bifreið í Breið-
holti og stolið geislaspilara og
GSM-síma. Skemmdir voru unnar
á bifreiðinni við innbrotið. Málið er
í rannsókn.
Um miðnættið varð árekstur á
Njarðargötu. Annarri bifreiðinni
var ekið af vettvangi. Ökumaður
hinnar bifreiðarinnar gerði lög-
reglu viðvart. Tjónið á bifreiðinni
er talið minni háttar.
Lögreglu var tilkynnt um þrjú-
leytið aðfaranótt laugardagsins að
verið væri að skemma bifreið í
Þingholtsstræti. Tveir menn um
tvítugt voru handteknir en þeir
eru grunaðir um ölvun. Talið er að
þeir hafi unnið skemmdir á tveim-
ur bifreiðum.
Þá var lögreglu tilkynnt að mað-
ur lægi í blóði sínu í Hafnarstræti
um kl. hálffimm. Þegar lögreglu
bar að var maðurinn sestur upp en
var með blóðnasir og áverka á
enni. Hann var fluttur á slysadeild
en meiðsl hans eru ekki talin al-
varleg.
Skemmdir
unnar á bíl-
um og ekið
af vett-
vangi
EINN var fluttur í sjúkrahúsið á
Selfossi vegna gruns um reykeitrun
eftir að kviknaði í íbúðarhúsi á bæn-
um Hólum skammt austan Stokks-
eyrar um eittleytið aðfaranótt laug-
ardagsins. Þrennt var í húsinu og
voru allir í fastasvefni þegar eldur-
inn kviknaði. Fólkið hafði náð að
koma sér út áður en slökkvilið bar
að.
Talið er að eldurinn hafi komið
upp í kjallara hússins. Að sögn lög-
reglunnar á Selfossi logaði ekki mik-
ill eldur en mikill reykur myndaðist.
Eldsupptök eru ókunn
Kviknaði í
íbúðarhúsi
♦ ♦ ♦