Morgunblaðið - 01.07.2001, Side 26
LIÐ KR varð Íslandsmeist-ari í knattspyrnu sumarið1999, í fyrsta skipti í 31 ár,og endurtók leikinn í fyrraundir stjórn Péturs Pét-
urssonar. Því hefur hins vegar ekki
gengið vel það sem af er þessu sumri;
þykir reyndar hafa leikið vel á köfl-
um, en KR-ingum hefur gengið illa að
skora og eftir tap fyrir Val á mánu-
dagskvöldið fannst Pétri nóg komið.
Sagði upp plássinu.
Og hann er með skýringar á þeirri
ákvörðun á reiðum höndum. Hann
segir óviðunandi að KR skuli einung-
is hafa verið komið með sjö stig eftir
jafnmarga leiki. „Svo fannst mér það
fyrir neðan virðingu KR að spila eins
og liðið gerði gegn Val. Ég ber full-
komlega ábyrgð á frammistöðunni og
tók því þessa ákvörðun strax eftir
leikinn. Mér fannst ég verða að gera
þetta í stöðunni. Ég hefði auðveldlega
getað haldið áfram en taldi þetta best
fyrir KR.“
Gjarnan er haft á orði að mjög erf-
itt sé að þjálfa KR vegna þrýstings á
þann sem stýrir skútunni hverju
sinni. Pétur segir það eflaust rétt, „en
ég hef verið hjá Keflavík og það var
líka erfitt að þjálfa þar. Hjá KR var
ég með bestu aðstöðuna, með fullt af
góðum aðstoðarmönnum í kringum
mig og setti mér skýr markmið og ef
liðið spilaði illa eða tapaði leik fann ég
fyrir miklu meiri pressu frá sjálfum
mér en einhverjum utanaðkomandi.“
Pétur segist hafa átt mjög góð
samskipti við stjórn KR. „Það var
aldrei minnst á það við mig að ef ég
ynni ekki þennan leikinn eða hinn
yrði ég rekinn. Aldrei.“
Þú tókst við þjálfun KR af Atla Eð-
valdssyni, eftir að félagið varð Ís-
landsmeistari og bikarmeistari sum-
arið 1999. Hefði ef til vill verið
auðveldara að taka við liðinu við aðrar
aðstæður?
„Að sumu leyti var erfiðara að taka
við eftir að félagið varð loks meistari
eftir 31 árs bið; þegar því langþráða
takmarki var náð voru menn svolítið
saddir og vitað mál að það yrði mjög
erfitt að toppa árangurinn.
Liðið spilaði frábærlega sumarið
1999, allt gekk upp, engin meiðsli
trufluðu og að því leyti til var erfiðara
að taka við liðinu en á öðrum tíma. En
á móti kemur að ég tók við liði sem í
voru mjög góðir leikmenn þannig að
auðveldara var að taka við KR þá en
einhverju öðru liði. En samt fann ég
fyrir því að menn voru alltaf að tala
um 99. Sumarið 99 fylgdi okkur alltaf,
sem er ekkert óeðlilegt. En ég held að
það hafi verið frábær árangur hjá KR
að vinna Íslandsmótið árið eftir. Oft
er sagt að erfiðara sé að verða meist-
ari annað árið en það fyrsta, þegar lið
vinnur tvisvar í röð, en sem betur fer
tókst það.“
Og það var stór stund fyrir Pétur
Pétursson þjálfara. „Það var alltaf
draumur minn að verða Íslands-
meistari með KR. Mér tókst það ekki
sem leikmanni en náði markmiðinu
sem þjálfari og þar með var ég orðinn
mjög sáttur við það sem ég var búinn
að gera hjá KR.“
Þjálfa ekki meira
Nú segist Pétur hættur að þjálfa;
segist ekki hafa áhuga á að þjálfa
annað félag. „Ég man ég sagði að vísu
fyrir sex árum að ég væri hættur í
fótbolta, og hætti í fimm ár. En að fá
tækifæri til að þjálfa KR var eitthvað
sem ég hafði áhuga á, og nú þegar ég
hef gert það tel ég mjög ólíklegt að ég
eigi eftir að þjálfa aftur, nema
kannski ég aðstoði eitthvað við yngri
flokkana í KR. Ég fylgist að minnsta
kosti með stráknum mínum sem er
þar í 4. flokki.“
Alkunna er að Pétur er frá Akra-
nesi en hann virðist orðinn mikill KR-
ingur, eins og fleiri sem komið hafa til
félagsins.
„Ég hef aldrei falið það að ég er
uppalinn á Skaganum og verð alltaf
Skagamaður en ég hef eytt rúmlega
sex árum hjá KR, sem leikmaður og
þjálfari, og þegar maður hefur verið
svo lengi í félaginu verður maður KR-
ingur. Strax og ég kom varð ég það
reyndar, það hefur ekkert breyst og
breytist ekki.“
Hann vildi ekki fara með látum frá
félaginu. „Það hefur loðað við margan
þjálfarann og knattspyrnumanninn í
gegnum árin, þar á meðal mig, að
fara í fússi frá félögum og menn hafa
jafnvel ekki talast við í mörg ár á eft-
ir. Gjá hefur myndast, en ég var
ákveðinn í tvennu, þegar ég tók við
KR-liðinu; að ég skyldi verða Íslands-
meistari og ég skyldi ganga sáttur frá
félaginu þegar þar að kæmi. Það hef-
ur nú gerst. Það skiptir mig miklu
máli að geta komið í KR-heimilið með
fullri reisn, fengið mér kaffisopa og
rætt málin.“
Pétur segir að það sem KR-ingar
þarfnist nú sé fyrst og fremst að ein-
hver „berji þá saman“ og David
Winnie sé betur til þess fallinn en
hann sjálfur nú. „Það verður alltaf
viss breyting við að skipta um þjálf-
ara.“
Þú varst mjög rólegur í leiknum á
móti Val sem endranær og kallar
ógjarnan skilaboð inná völlinn til
þinna manna eins og margir starfs-
bræðranna. Er þetta meðvitað hjá
þér?
„Ég vandist því í atvinnumennsk-
unni að það var ekki mikið kallað inn
á völlinn. Auðvitað kemur fyrir að
breyta þarf skipulagi og þá er þeim
skilaboðum komið áleiðis, en í öllum
öðrum tilfellum held ég að hróp og
köll inn á völlinn trufli bara leikmann-
inn. Ég man að menn sem ég lék með
vissu stundum ekkert hvað þeir áttu
að gera þegar var verið að kalla á þá;
þetta ruglaði menn bara í ríminu.
Mín skoðun er sú að þjálfari eigi að
búa lið sitt vel undir leikinn og síðan
ganga hlutirnir upp inni á vellinum
eða ekki.
Ég hef aldrei haft það fyrir vana að
öskra mikið inn á völlinn. Ég skipu-
legg leikinn vel fyrirfram og held ég
breyti engu með hrópum og köllum.
Ég er reyndar á því að menn heyri
þetta varla hvort sem er; þeir eru að
einbeita sér að leiknum. Vilji ég segja
eitthvað við ákveðinn leikmann kalla
ég í viðkomandi og segi honum frá
því.“
Þú talar um að Winnie þurfi að
berja KR-ingana saman og ert bjart-
sýnn á að það takist. Ert þú kannski
ekki nógu grimmur? Ekki nógu lag-
inn við að ná mönnum í stuð fyrir
leik?
„Nei, nei. Ég held því hins vegar
fram að þjálfari eigi ekki að þurfa að
„peppa“ leikmenn upp fyrir leik. Ef
leikmenn eru ekki tilbúnir til þess að
fara inn á völlinn eiga þeir ekki að
fara þangað. Þetta er reyndar svolítið
öðru vísi þegar landsliðið á í hlut; það
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Töffarinn hefur
þroskast mikið
Pétur Pétursson hætti sem þjálfari knattspyrnuliðs
KR á þriðjudaginn og hélt upp á 42 ára afmælið
daginn eftir. Skapti Hallgrímsson ræddi við Pétur
um ákvörðun hans og fleira á afmælisdaginn.
26 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ