Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EINN heppinn aðili var með allar töl- ur réttar í lottó 5/38 síðastliðinn laug- ardag. Fyrsti vinningur var fimmfald- ur að þessu sinni og hljóðaði upp á rúmar 24 milljónir króna. Vinningshafinn hefur enn ekki gef- ið sig fram við Íslenska getspá en vit- að er að vinningsmiðinn var keyptur í söluturninum Horninu á Selfossi á föstudag. Agnes Björnsdóttir hjá Ís- lenskri getspá segir það ekki óalgengt að nokkrir dagar og jafnvel vikur líði þar til vinningshafar gefi sig fram. Lottóvinn- ingur ósóttur BANDARÍSK stjórnvöld hafa ákveðið að fram fari nýtt útboð á flutningum fyrir bandaríska herinn í Guantanamo Bay á Kúbu. TransAtl- antic Lines, systurfélag Atlantsskipa, samdi um þessa flutninga í sumar og hefur farið fjórar ferðir til Kúbu fyrir herinn. Í auglýsingu Bandaríkjahers um útboðið kem- ur fram að ákveðið hafi verið að efna til nýs út- boðs „til hægðarauka“ fyrir stjórnvöld. Guðmundur Kjærnested, framkvæmdastjóri og aðaleigandi TransAtlantic Lines, sagði að einn af þeim sem buðu í flutningana á móti TransAtlantic Lines hefði mótmælt framkvæmd útboðsins og stjórnvöld í Bandaríkjunum hefðu valið þann kostinn að láta fara fram nýtt útboð. Hann sagði að baki þessari ákvörðun hersins lægi eitthvert mat á stöðu málsins. Ekkert hefði komið fram um að TransAtlantic Lines hefði staðið ranglega að málum eða að eitthvað væri athugavert við samninginn. Fyrirtækið hefði náð samningum um flutningana á grundvelli út- boðs og fram hefði komið að herinn væri mjög ánægður með þjónustu skipafélagsins, en félag- ið hefur farið fjórar ferðir til Kúbu frá því að samningar voru gerðir í júní í sumar. Guðmundur sagði að TransAtlantic Lines myndi bjóða aftur í flutningana í nýju útboði og kvaðst vonast eftir að fyrirtækinu tækist að ná samningum að nýju. Ef það tækist ekki yrði her- inn að borga fyrirtækinu útlagðan kostnað. Hann sagði að TransAtlantic Lines hefði keypt tæki og tól fyrir um 50 milljónir króna vegna flutningana til Kúbu, en auk þess tók það skip og pramma á leigu. Guðmundur tók fram að TransAtlantic Lines kæmi til með að flytja fyrir Bandaríkjaher á Kúbu a.m.k. þangað til búið væri að semja að nýju á grundvelli nýs útboðs. Niðurstaðan úr því yrði tæplega komin fyrr en í byrjun næsta árs. Sér um flutninga fyrir varnarliðið Atlantsskip og TransAtlantic Lines hafa séð um flutninga fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug- velli sl. 3 ár. Samningurinn um flutninga til Gu- antanamo Bay á Kúbu er svipaður í magni og samningur TransAtlantic Lines við varnarliðið á Íslandi. Samningurinn var til þriggja ára og átti herinn að greiða 1,6 milljarða fyrir flutningana. Óvíst er hvort TransAtlantic Lines verði áfram með flutninga til Kúbu Nýtt útboð ákveðið SKIPULAGSSTOFNUN hefur bor- ist tillaga Kísiliðjunnar við Mývatn að matsáætlun vegna mats á umhverfis- áhrifum kísilvinnslu úr Ytriflóa Mý- vatns. Vinnsla hefur farið fram í Ytri- flóa frá 1967 þegar Kísiliðjan hóf starfsemi sína og námuleyfi í flóanum liggur fyrir til ársins 2010 en Kísiliðj- an segir kísilgúr innan núverandi námusvæðis vera af skornum skammti og því sé farið fram á viðbót- arsvæði sem tryggja á Kísiliðjunni hráefni í fimm ár til viðbótar áður en kísilgúrnámi úr Mývatni verði endan- lega hætt. Í tillögunni kemur fram að fyrir- huguð námuvinnsla í Ytriflóa felur í sér útvíkkun á núverandi námusvæði á þremur stöðum, þ.e. norðan Slút- ness, í Vogaflóa og sunnan Slútness. Á móti kemur að hluta af núverandi námusvæði, þar sem engin vinnsla hefur farið fram vegna grynninga, yrði skilað til baka. Þetta svæði er um 80% af því svæði sem sóst er eftir að vinna á utan námusvæðisins. Svæðin í Ytriflóa yrðu unnin í forgangsröð, þ.e. byrjað yrði á svæðum sem talin eru valda minnstum áhrifum og endað á þeim sem talin eru valda mestum áhrifum. Þannig er talið líklegt að komist verði hjá því að fara inn á við- kvæmustu svæðin. Að mati Kísiliðj- unnar stendur valið á milli fyrirhug- aðrar útvíkunar í Ytriflóa, sem gefur tveggja til þriggja ára vinnslu til við- bótar því sem unnið verður innan nú- verandi námusvæðis, og þess að færa vinnsluna yfir í Syðriflóa. Í skýrslu Kísiliðjunnar segir að verði vinnslan færð yfir í Syðriflóa muni svæðið þar verða fullnýtt sem gefi allt að 30 ára vinnslutíma. Ef samkomulag náist um vinnslu í Ytriflóa verði því fallið frá því að sækja um námuleyfi í Syðriflóa og hann yrði því ósnortinn. Stefnt er að því að ákvörðun Skipu- lagsstofnunar um tillögu fram- kvæmdaraðila að matsáætlun muni liggja fyrir 11. október. Námasvæði í Ytriflóa Mývatns verð- ur stækkað samkvæmt matsáætlun Syðriflói áfram ósnortinn                           !"!  !    #! ! $% "#$! &'(            )  %         "(" !* "  )"*+ ,! -.   &              TUTTUGU menn vinna á vöktum allan sólarhringinn, alla daga vik- unnar, við borun tilraunaholu á Hellisheiði, fyrir Orkuveitu Reykja- víkur sem undirbýr nú 120 MW virkjun á Hellisheiði. Þetta er önn- ur rannsóknarholan, en borun á þeirri fyrri lauk um miðjan ágúst. Þegar Morgunblaðið bar að garði í gær var holan sem nú er verið að bora orðin 500 metra djúp, en til stendur að bora allt að tveggja kíló- metra djúpa holu. Óli Guðnason verkstjóri segir að það sé talið að hitinn í holunni nú, á hálfs kílómetra dýpi, sé um 200° C. Hann segir að þar sem um sé að ræða háhitaverkefni þurfi að vera vakt á svæðinu allan sólarhringinn. Fyrirtækið Jarðboranir hf. hefur umsjón með verkefninu fyrir Orku- veituna og eru 5–6 menn að vinna hverju sinni, en unnið er á þrískipt- um vöktum. Holan er kæld niður með vatni til að hún gjósi ekki eins og goshver. Um 40 sekúndulítrar af vatni eru notaðir til kælingarinnar, vatnið er tekið úr Hengildalsá og síðan leitt um 6 kílómetra leið að borstæðinu. Óli segir að borunin hafi gengið vel til þessa, aðfaranótt þriðjudags hafi þó komið yfirþrýstingur á hol- una og spýttist vatnið um 4–5 metra upp í loftið. Yfirþrýstingur þýðir að ekki er hægt að halda vatninu í hol- unni niðri með vatnsþunganum ein- um saman. Það þurfi því að setja efni í holuna sem er eðlisþyngra en vatn, því annars myndi holan gjósa og segir Óli að gosið yrði stærra en gos úr Geysi. „Núna erum við að fara með stangir niður til að steypa í þessa æð,“ segir Óli. Hann segir að þetta sé eitthvað sem geti alltaf komið upp á og að þegar búið verði að steypa upp í vatnsæðina verði haldið áfram að bora. Fyrri holan 1.900 m djúp Búið er að fóðra borholuna með stáli niður í 300 metra og verður holan fóðruð áfram niður í 800 metra. Holan verður síðan sveigð í átt að jarhitanum fyrir ofan skíða- skálann í Hveradölum og er þegar byrjað að sveigja holuna um 10°. Verktakar frá Noregi eru komnir hingað til lands til að sjá um stefnu- borunina, en hallinn mun verða um 35°. Fyrstu 300 metrana er borhol- an um 17,5 tommur í þvermál (44 cm), á 300–800 metra dýpi er hún 12,25 tommur í þvermál (31 cm) og er þvermál dýpsta hluta hennar 8,5 tommur (22 cm). Borun holunnar hófst hinn 21. ágúst, strax eftir að borun fyrri hol- unnar lauk, og er gert ráð fyrir að holan verði tilbúin um miðjan októ- ber. Óli segir að misjafnt sé hversu hratt takist að bora, suma daga nái þeir að bora allt að 150 metra niður og aðra daga ekki neitt. Einar Gunnlaugsson, deild- arstjóri rannsóknardeildar Orku- veitunnar, segir að borun hinnar holunnar hafi gengið mjög vel. Hún varð tæplega 1.900 metra djúp og var boruð inn undir Skarðsmýr- arfjall. Hann segir að fyrri holan sé að hitna upp og ekki verði ljóst hvaða orku hún mun gefa af sér fyrr en í október eða nóvember því að fyrst þurfi vatnið sem notað var til kælingarinnar að hitna upp. Unnið allan sólarhringinn við rannsóknarboranir á Hellisheiði Gæti gosið stærra gosi en Geysir Morgunblaðið/Jim Smart Borholan er kæld niður með vatni til að hún gjósi ekki eins og goshver. Um 40 sekúndulítrar af vatni eru notaðir til kælingarinnar. Mastur jarðborsins nær 54 metra frá jörðu. JARÐSKJÁLFTI af stærð 3 á Richterskvarða mældist klukkan 16:18 í gær í Öxarfirði rétt utan við Kópasker. Skjálftans varð vart á bæjum í kringum Kópasker þar sem glamraði í borðbúnaði og húsgögn færðust til. Einnig mældist einn for- skjálfti og einn eftirskjálfti og voru þeir báðir um 1,5 á Richter. Steinunn S. Jakobsdóttir, jarðeðl- isfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir nokkra skjálftavirkni hafa ver- ið á þessu svæði undanfarnar vikur en skjálftinn í gær hafi verið sá stærsti til þessa. Hún segir skjálft- ann þó ekki þurfa vera vísbendingu um frekari stórar jarðhræringar. Jarðskjálfti í Öxarfirði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.