Morgunblaðið - 13.09.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KLÆÐSKERASAUMUÐ föt henta
mörgum enda mannfólkið ólíkt að
stærð og lögun. Verslun Sævars
Karls kynnir þessa dagana nýjung;
tölvuskanna sem tekur nákvæm
mál af fólki. Máltakan fer fram á
þann hátt að viðskiptavinurinn stíg-
ur á þar til gerðan pall og eru tekn-
ar þrjár myndir af honum frá ólík-
um hliðum. Myndirnar birtast á
tölvuskjá og þá er hægt að hefjast
handa við að velja efni og snið að
smekk hvers og eins.
Sævar Karl Ólason, verslunareig-
andi, segir þrívíddarskannann
koma að góðu gagni fyrir þá sem
eru orðnir leiðir á því að máta föt,
enda henti hefðbundnar fatastærð-
ir og snið ekki öllum. Þá eru margir
sem vilja sinn eigin stíl og fá fag-
lega aðstoð við efnisval og annað.
Upplýsingar um mál kúnnans og
val hans á efni og sniði eru sendar
til fataframleiðandans Odermark í
Þýskalandi sem verslun Sævars
Karls hefur átt viðskipti við í yfir
25 ár. Odermark tók þrívídd-
arskannann í notkun fyrir nokkrum
árum og hefur Sævar Karl afnot af
honum fram á sunnudag. „Ef
skanninn reynist vel hjá okkur
kemur vel til greina að festa kaup á
honum,“ segir Sævar.
Ný tækni þróuð
Verið er að þróa nýstárlega
tækni sem mun enn auðvelda mál-
töku. Þar er um að ræða innrautt
ljós, svo kúnninn þarf ekki að
fækka fötum.
En hvað hefur þrívíddarskanninn
fram yfir gömlu aðferðina að taka
mál með málbandi?
„Tækið er mjög nákvæmt. Engir
tveir menn eru eins og engir menn
eru eins á báðar axlir eða bæði læri.
Svo felst í þessu ákveðið hagræði
fyrir okkur, við getum til dæmis
lækkað lagerstöðuna hjá okkur,“
segir Sævar.
Morgunblaðið/Þorkell
Magni Magnússon verslunareigandi prófar þrívíddarskannann.
Mál tekin með
hjálp tölvu
Framtíðarsýn innan heilsugæsluhjúkrunar
Hvert ætlum
við að stefna?
TVEGGJA dagaheilsugæsluráð-stefna hefst í dag
kl. 9 á Grand Hóteli í
Reykjavík. Að ráðstefn-
unni standa Rannsóknar-
stofnun í hjúkrunarfræði
við hjúkrunarfræðideild
HÍ og Heilsugæslan í
Reykjavík. Erla Kolbrún
Svavarsdóttir dósent er
formaður undirbúnings-
nefndar. Hún var spurð
hvaða málefni væru efst á
baugi á ráðstefnunni.
„Ráðstefnan ber yfir-
skriftina; Framtíðarsýn
innan heilsugæsluhjúkr-
unar: Hvert ætlum við að
stefna? Við erum með tvo
gestafyrirlesara – pró-
fessor Marcia Stanhope
og Ellen Hahn frá háskól-
anum í Kentucy í Lexington í
Bandaríkjunum. Erindi dr. Stan-
hope fjallar um hjúkrun á heims-
vísu og landsvísu innan heilsu-
gæslunnar – hún fjallar um
stöðuna í dag, fortíð og framtíð-
arsýn. Ellen Hahn ræðir um þá
áskorun heilsugæsluhjúkrunar
að móta „heilbrigða“ stefnu í
heilbrigðismálum.“
– Segja íslenskir fyrirlesarar
frá niðurstöðum rannsókna?
„Á ráðstefnunni er fjöldi inn-
lendra fyrirlesara og sumir
þeirra segja frá niðurstöðum
rannsókna. Bæði kennarar
hjúkrunarfræðideildar HÍ og
starfandi hjúkrunarfræðingar á
heilsugæslustöðvum á landinu
halda erindi. Meginþema þessara
erinda er um framtíðarsýn innan
heilsugæslu hjúkrunar. Þar má
nefna stefnu innan skólahjúkrun-
ar, geðheilbrigði Íslendinga, nýj-
ungar í hjúkrunarmeðferð, fram-
tíð innan heilsueflingar, um-
önnun aldraðra, foreldrar í nú-
tíma þjóðfélagi, hið daglega líf
hjá fjölskyldum langveikra
barna, reykinga-, ávana- og
fíkniefnavarnir, heilsugæsla ung-
linga og íslensk heilbrigðisþjón-
usta í nútíð og framtíð. Auk þess
starfa vinnusmiðjur á ráðstefn-
unni er tengjast geðheilsu
mæðra eftir fæðingu, kynheil-
brigðisþjónustu fyrir ungt fólk,
fræðsluþarfir verðandi feðra og
að tala við fólk um reykingar.
Marga Thome, deildarforseti
hjúkrunardeildar Háskóla Ís-
lands, mun setja ráðstefnuna,
auk þess mun Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra ávarpa ráð-
stefnugesti og Sigurður Guð-
mundsson landlæknir flytja er-
indi.
Fjallað verður um nokkuð
margar rannsóknarniðurstöður.
Ég mun segja frá niðurstöðum er
tengjast íslenskum og bandarísk-
um fjölskyldum sem eiga ungt
barn með astma og hvernig þess-
ar fjölskyldur aðlagast sjúk-
dómsástandi barnsins. Ragn-
heiður Ósk Erlendsdóttir mun
fjalla um rannsóknarniðurstöður
sínar er tengjast hegðun systk-
ina barna með lang-
vinnan astma. Guðrún
Jónsdóttir og Helga
Jónsdóttir munu fjalla
um sérhæfða hjúkrun-
armeðferð fyrir lang-
veika. Prófessor Rún-
ar Vilhjálmsson mun ræða um
niðurstöður úr nýlegri heilbrigð-
iskönnun meðal Íslendinga sem
tengjast því hverjir leita til
hjúkrunarfræðinga í heilsugæsl-
unni. Dr. Páll Biering ræðir um
hlutverk heilsugæslunnar í efl-
ingu geðheilbrigðis. Arna Skúla-
dóttir og Marga Thome munu
fjalla um árangur meðferðar við
svefnvandamálum barna. Auður
Ragnarsdóttir, Elísabet Kon-
ráðsdóttir og Hildur Svein-
björnsdóttir munu fjalla um
reynslusögur mæðra sem eiga
börn með sykursýki. Herdís
Storgaard mun tala um áverka
og slysavarnir í skólum og hvern-
ig heilsugæslan getur komið að
þessum málum. Hildur Krist-
jánsdóttir ræðir um unglinga-
móttöku á heilsugæslustöðinni á
Sólvangi. Sigríður Jónsdóttir og
Margrét Guðjónsdóttir fjalla um
unglingamóttöku á Heilsugæslu-
stöðinni á Akureyri. Sigrún
Gerða Gísladóttir mun kynna
heilsubæinn Bolungarvík. Þá
mun Þorgerður Ragnarsdóttir
segja frá niðurstöðum er tengj-
ast ávana- og fíkniefnavörnum.
Guðrún Jónsdóttir mun fjalla um
það að hætta að reykja með hjálp
Netsins. Valgerður Magnúsdótt-
ir mun ræða um næringarástand
aldraðra í heimahúsum. Dr. Mar-
grét Gústafsdóttir mun fjalla um
reynslu fjölskyldunnar af stofn-
anavistun aldraðs fjölskyldumeð-
lims og Rut Petersen mun ræða
um samþættingu og samvinnu
heimahjúkrunar og félagslegrar
heimaþjónustu fyrir aldraða.“
– Hafa verið haldnar margar
svona yfirlitsráðstefnur?
„Nei, þetta er fyrsta ráðstefn-
an þar sem þeir aðilar sem að
henni standa vinna með mark-
vissum hætti að því að birta nið-
urstöður rannsóknar- og þróun-
arverkefna hér á landi.
Heilsugæslan í
Reykjavík og hjúkrun-
arfræðideild HÍ hafa
verið í mikilli stefnu-
mótunarvinnu þetta
árið og ráðstefnunni er
ætlað að sameina þessa krafta og
draga fram þær áherslur í verk-
efnum sem þessar tvær stofnanir
hafa verið að vinna að. Það er
von mín að þessi ráðstefna marki
aðeins upphafið að enn frekara
samstarfi milli HÍ og heilsugæsl-
unnar í landinu sem leiði til þess
að góð þjónusta heilsugæslunnar
verði enn betri.“
Erla Kolbrún Svavarsdóttir
Erla Kolbrún Svavarsdóttir
fæddist á Egilsstöðum 30. apríl
1961. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Egilsstöðum
1981 og BS-prófi í hjúkrun frá
Háskóla Íslands 1987. Meist-
araprófi í hjúkrunarfræði lauk
hún háskólanum í Wisconsin
Madison í Bandaríkjunum og
doktorsprófi frá sama háskóla
1997. Hún hefur starfað sem
lektor og dósent við hjúkr-
unarfræðideild HÍ frá 1997. Erla
er gift Gunnari Svavarssyni,
verkfræðingi hjá Línuhönnun,
og eiga þau tvö börn.
Mikil stefnu-
mótunarvinna
í hjúkrunar-
fræði
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra einkahlutafélagsins
Sólstöðu ehf. í 4 mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og til greiðslu 22,2
milljóna króna sektar vegna skatt-
svika.
Ákærðu, sem framkvæmdastjóra
og stjórnarmanni einkahlutafélags-
ins, sem úrskurðað var gjaldþrota
18. maí 1999, var í ákæru efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra,
gefið að sök að hafa brotið gegn lög-
um um virðisaukaskatt með því að
hafa ekki staðið Sýslumanninum í
Kópavogi skil á virðisaukaskatti sem
innheimtur hafði verið í nafni einka-
hlutafélagsins á árunum 1997 og
1998 að fjárhæð um 9,3 milljónir
króna. Þá var ákærðu gefið að sök að
hafa brotið gegn lögum um stað-
greiðslu opinberra gjalda með því að
hafa ekki staðið sýslumanni skil á
staðgreiðslu opinberra gjalda sem
haldið var eftir af launum starfs-
manna Sólstöðu ehf. á árunum 1998
og 1999 að fjárhæð um 1,7 milljónir
króna.
Ákærða játaði brot sín, sem að
mati dómsins voru talin meiriháttar.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Helgi Magnús
Gunnarsson fulltrúi hjá efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra sótti
málið. Verjandi ákærðu var Örn
Clausen hrl.
4 mánaða
fangelsi og
22 milljónir
króna í sekt
♦ ♦ ♦
UTANRÍKISMÁLANEFND Al-
þingis samþykkti á fundi sínum í gær
ályktun vegna árása hryðjuverka-
manna á Bandaríkin á þriðjudag.
Í henni segir: „Utanríkismála-
nefnd Alþingis fordæmir harðlega
árás hryðjuverkamanna á Bandaríki
Norður-Ameríku og vottar banda-
rísku þjóðinni sína dýpstu samúð
vegna þeirra þjáninga sem atburðir
gærdagsins hafa leitt yfir hana.
Utanríkismálanefnd lýsir yfir
samúð með og stuðningi við Banda-
ríkjastjórn og leggur áherslu á að
þeir sem bera ábyrgð á voðaverkun-
um verði dregnir til ábyrgðar. Brýnt
er að þjóðir heimsins sameinist í bar-
áttu gegn hryðjuverkamönnum og
þeim sem veita þeim skjól.“
Árásir
fordæmdar
Utanríkismála-
nefnd Alþingis