Morgunblaðið - 13.09.2001, Page 12

Morgunblaðið - 13.09.2001, Page 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSK erfðagreining hefur náð að staðsetja erfðavísa sem tengjast offitu og kvíða og er þetta í fyrsta sinn sem erfðavísar sem tengjast þessum sjúkdómum eru kortlagðir með aðferðum lýðerfða- fræðinnar. ÍE og Roche-lyfjafyr- irtækið hyggjast nota þessar upp- götvanir við þróun nýrra og áhrifaríkari lyfja. Nú hefur 11 áföngum verið náð í rannsókna- samstarfi fyrirtækjanna og mun Íslensk erfðagreining fá áfanga- greiðslur vegna þessara niður- staðna. Páll Magnússon, upplýsinga- stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir áfangagreiðsluna skipta heil- miklu máli fyrir ÍE en þegar hefur hluti af upphæðinni verið tekju- færður og afgangurinn verður tekjufærður á næstu misserum. Að sögn Páls er venju samkvæmt ekki gefið upp hversu háar þessar upp- hæðir eru. Páll segir að í vísindalegu tilliti sé þessi uppgötvun talin afar merkileg. „Þetta er enn frekari staðfesting á því að þessi nálgun okkar, sem við höfum kallað lýð- erfðafræðilega nálgun, skilar ár- angri. Jafnvel þegar um er að ræða tegundir af flóknustu sjúk- dómum eins og þessir báðir tveir flokkast undir, þar sem um er að ræða mjög flókið samspil erfða- fræðilegra og umhverfislegra þátta,“ segir Páll. Offita og kvíði eru talin tvö af stærstu heilbrigðisvandamálum vestrænna ríkja, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ÍE og Roche. Við rannsókn ÍE á stað- setningu erfðavísis sem hefur áhrif á myndun offitu voru skoðaðar arf- gerðir um 11.000 einstaklinga en á meðal þeirra var stór hluti Íslend- inga sem þjást af offitu og tengd- um sjúkdómum. Til viðbótar við erfðafræðiþekkingu í sambandi við myndun offitu sköpuðu rannsóknir jafnframt mikilvæga þekkingu á tengslum offitu og annarra sjúk- dóma, s.s. sykursýki, heilablóð- falls, hjartasjúkdóma og blóðfitu- hækkunar. „Með þessum uppgötv- unum hafa opnast óvæntir og áhugaverðir möguleikar til frekari erfða- og lyfjarannsókna á offitu og fylgisjúkdómum hennar,“ segir í fréttatilkynningu. Ekki ríkti mikil bjartsýni í rannsóknum tengdum kvíða Rannsókn Íslenskrar erfða- greiningar á erfðafræði kvíða hófst með könnun sem gerð var af sam- starfslæknum fyrirtækisins og byggðist á spurningum um kvíða- einkenni sem sendar voru til 10.000 einstaklinga sem valdir voru af handahófi. Af þeim sem tóku þátt í frekari læknis- fræðilegum prófunum og arf- gerðargreiningu greindust um 500 með alvarlega kvíðaröskun og með því að beina athyglinni sérstaklega að fjölskyldum þar sem a.m.k. einn meðlimur hafði greinst með felmt- ursröskun (ofsakvíða) tókst að kortleggja erfðavísi sem tengist sterklega kvíðaröskunum, segir í fréttatilkynningu. Að sögn Páls ríkti ekki mikil bjartsýni innan Íslenskrar erfða- greiningar um árangur við grein- ingu erfðavísa sem valdið geta kvíðaröskun. „Það var satt að segja engin óskapleg bjartsýni hér um árangur, sérstaklega varðandi það sem snýr að kvíðaröskun. Ég vissi til dæmis til þess að Kári taldi alltaf að nánast væri hægt að líta á kvíðann sem þátt af almennu mannlegu ásigkomulagi frekar en að einhverjir handfastir erfða- fræðilegir þættir væru að verki. En þetta hefur sýnt fram á að þeir eru fyrir hendi svo ekki verður um villst.“ Íslensk erfðagreining nær 11. áfanga sínum í samstarfinu við Roche Erfðavísar sem tengjast offitu og kvíða kortlagðir  HINN 15. maí síðastliðinn varði Sif Ormarsdóttir doktorsritgerð sína við læknadeild Háskólans í Upp- sölum, Svíþjóð. Ritgerðin ber heitið Osteoporosis in Chronic Liver Di- sease og fjallar hún um rannsókn á tíðni og áhættu- þáttum beinþynn- ingar hjá sjúk- lingum með langvinnan lifr- arsjúkdóm. Samanburð- arrannsókn á sjúklingum með lifrarsjúkdóm og ein- staklingum með heilbrigða lifur leiddi í ljós að um þriðjungur sjúklinganna var með beinþynningu eða helmingi fleiri en í samanburðarhópnum. Áhættuþættir sem tengdust bein- þynningu í sjúklingahópnum voru lág líkamsþyngd, meðferð með sterum og langt genginn lifrarsjúkdómur. Konum var hættara við beinþynningu en körlum og áhættan jókst einnig með hækkandi aldri. Beintap sem mælt var á tveggja ára tímabili var meira hjá sjúklingum með lifrar- sjúkdóm en heilbrigðum ein- staklingum og tengdist lágri blóð- þéttni D-vítamíns og lifrarbilun. Um þriðjungur sjúklinganna mældist með of lágt hlutfall D-vítamíns í blóði. Meginniðurstaða rannsóknarinnar var sú að sjúklinga með langvinnan lifrarsjúkdóm og ofangreinda áhættuþætti beri að rannsaka og meðhöndla með tilliti til beinþynn- ingar. Sem fyrirbyggjandi meðferð ætti einkum að gefa sjúklingum með lifrarsjúkdóm D-vítamín og kalk. Leiðbeinendur Sifjar voru dósent Lars Lööf, dósent Östen Ljunggren og dósent Hans Mallmin við Háskól- ann í Uppsölum. Andmælandi var Rolf Hultcrantz, prófessor við Há- skólann í Stokkhólmi. Sif er fædd 14. október 1961. Hún lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðideild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1981 og læknaprófi frá Háskóla Ís- lands 1988. Frá árinu 1996 hefur hún starfað sem sérfræðingur við melt- ingarsjúkdómadeild Háskólasjúkra- hússins í Uppsölum, Svíþjóð. Sif er dóttir Ormars Þórs Guð- mundssonar og Kristínar Valtýs- dóttur. Hún er gift og á tvo syni. Fólk Nýr doktor í læknisfræði almenningsgarða á morgnana í miðri viku mjög lítið en getur ekki sagt til um hvort eftirlitið verði hert í kjölfar þessa atviks. Að sögn Harðar eru síbrotamenn á ofbeldissviði fremur fáir en þegar næst í grunaða menn er eingöngu beitt gæsluvarðhaldi í alvarlegustu málunum uns dómur gengur. Meg- inreglan sé hins vegar sú að menn ganga lausir uns dómur gengur að lokinni rannsókn og ákærumeðferð. sjaldnast fyrir árás á stað sem þess- um. „Flestar árásir verða í miðbæn- um um helgar og eru tengdar ölvun, en þetta er hins vegar alveg nýtt og þarf að uppræta sem fyrst.“ Hörður segir lögreglueftirlit við RANNSÓKN lögreglunnar í Reykjavík á árásarmáli við Landa- kotstún þar sem ókunnugur maður réðst á 18 ára stúlku að morgni fimmtudags hefur ekki leitt til handtöku árásarmannsins. Maður- inn henti stúlkunni inn í runna og skaddaði hana í andliti auk þess sem hún hlaut áverka á höndum og fótum. Ekki var þó um varanlega áverka að ræða. Málið hefur vakið ugg meðal íbúa í hverfinu og varar fólk börn sín við að fara einsömul yfir túnið. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn hjá rannsóknardeild lög- reglunnar í Reykjavík, segir árásina í rannsókn og að lögreglan geri allt sem í hennar valdi sé til að hafa uppi á árásarmanninum. Hins vegar sé ekkert vitað hver hann sé og því sé málið erfitt viðureignar. „Það eru litlar vísbendingar til staðar en það er allt gert til að reyna að átta sig á því hver árásarmaðurinn er,“ segir Hörður. Þarf að uppræta Aðspurður segir hann um fólsku- lega árás að ræða og segir enn- fremur að tímasetningin sé óvana- leg auk þess sem fólk verði Fólskuleg árás á unglingsstúlku á Landakotstúni í rannsókn Árásarmaðurinn ófundinn Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Stúlkunni, sem ráðist var á á göngustígnum á Landakotstúni í síðustu viku, tókst að verjast árásarmanninum svo hann hljópst á brott, en atvikið hefur vakið ugg í fólki. Myndin er sviðsett. „LOKSINS kom skot í Stóru- Laxá,“ sagði Bergur Steingríms- son hjá SVFR í gærdag, en þá hafði hann frétt af tveggja daga holli á svæðum 1-2 sem fékk 17 laxa. Segja má að eftir þessu hafi verið beðið, því svona skot koma oftast í september, en menn voru að verða svartsýnir þar eð lítið líf hefur verið á Iðu síðustu vikur, en þaðan kemur septemberlaxinn í Stóru-Laxá. Þetta var annars mjög fallegur afli að sögn Bergs, aðeins þrír undir 10 pundum og 15 veiddir á flugu. Fyrsta eftirmiðdaginn var vöxtur í ánni og gruggugt vatn. Á heila deginum var áin að hreinsa sig, sem sagt bestu hugsanlegu skilyrði fyrir laxinn að færa sig til sem hann og gerði auðsjáanlega. Fékk hollið þá 12 laxa, þar af átta stykki í Gunnbjarnarhyl. Seinni morguninn komu svo fimm til við- bótar á land og var þá mest líf í Kálfhagahyl, þrír komu þar á land. Verður nú fróðlegt að fylgj- ast með framhaldinu. Enn drjúg veiði í Rangánum Veiðimaður einn sem kom úr Eystri-Rangá á mánudagskvöldið hafði fengið fimm laxa þann dag- inn og sagði mikinn lax víða í ánni. Í gær voru komnir um 2.700 laxar á land. Á sama tíma voru komnir um 2.250 laxar úr Ytri-Rangá og eru báðar árnar komnar vel fram úr sínu besta til þessa og enn drjúg veiði. Þeir sem vilja hampa ám þessum sem mest vilja gjarnan nefna eina sameiginlega heildar- tölu úr þeim þótt þarna fari tvær ár, sem að vísu renna saman nærri sjó, en lúta hvor sínu lög- málinu og sitt hvorum umsjón- araðilanum. Það er hins vegar skiljanlegt að það sé freistandi að spyrða þær saman í aflatölu þegar að er gáð að saman gefa þær 5.000 laxa. Enn ein bara með flugu Óhætt hefði verið að nefna til Flekkudalsá á Fellsströnd í blaðinu í gær þegar Svartá var bætt við áðurnefndan hóp áa sem aðeins leyfa fluguveiði. Maðki og spón var nefnilega úthýst úr ánni í sumar. Næsta sumar verða því tíu laxveiðiár aðeins með flugu, auk Kjarrár sem er efri hluti Þverár. Árnar tíu eru Haffjarðará, Hrúta- fjarðará, Vatnsdalsá, Straumfjarð- ará, Hofsá, Reykjadalsá í Reykja- dal, Fljótaá í Fljótum, Laxá á Ásum, Svartá og Flekkudalsá. Skot í Stóru-Laxá Ingólfur Davíð Sigurðsson með 18 punda hæng úr Svartá, ann- an tveggja stærstu laxanna úr ánni í sumar. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?  VALGERÐUR Bjarnadóttir, hef- ur verið ráðin í stöðu framkvæmda- stjóra Sjúkrahúsapóteksins ehf. og hefur hún störf 1. nóvember nk. Valgerður útskrifaðist úr Við- skiptafræðideild H.Í. árið 1975. Hún var for- stöðumaður hag- deildar Flugleiða 1981 til 1985, starfaði hjá Asso- ciation of Euro- pean Airlines frá 1986 til 1991 og síðan sem sjálfstæður ráðgjafi í Brussel til 1993. Frá þeim tíma hefur hún verið skrifstofustjóri á skrifstofu EFTA í Brussel. Apótek Landspítalans voru tvö ár- ið 2000, staðsett í Fossvogi og við Hringbraut, og seldu samanlagt lyf fyrir tæpar 833 milljónir króna. Und- ir lok ársins 2000 var ákveðið að sam- eina lyfjaverslanirnar í Sjúkra- húsapótekið efh. Nýtt apótek er hlutafélag í eigu Landspítala – há- skólasjúkrahúss og eru starfsmenn þess um 50 talsins. Ráðning annarra stjórnenda sam kvæmt nýju skipuriti Sjúkra- húsapóteksins verður gerð í fram- haldi af því að nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa. Fólk Framkvæmda- stjóri ráðinn Sjúkrahúsapótekið ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.