Morgunblaðið - 13.09.2001, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 13
FYRIRHUGUÐ uppfylling fyrir
bryggjuhverfi í Arnarnesvogi,
byggð og smábátahöfn, mun hafa
varanleg áhrif á fuglalíf í voginum
að því er kemur fram í skýrslu
fuglafræðingsins Jóhanns Óla
Hilmarssonar sem unnin var fyrir
verkfræðistofuna Hönnun. Jóhann
Óli leggur til að friðlýsingarkost-
urinn verði metinn til jafns við
aðra kosti.
Skýrslan byggist á kerfisbund-
inni talningu fugla í Arnarnesvogi
yfir eins árs tímabil, frá ágúst 2000
til 2001. Var það gagnrýnt í vor,
meðal annars af Náttúruvernd rík-
isins, að ekki hefði verið beðið eftir
niðurstöðum þessarar rannsóknar
áður en matsskýrsla framkvæmda-
aðila á umhverfsiáhrifum fram-
kvæmdarinnar var lögð fram.
Nú liggja þessar niðurstöður
hins vegar fyrir og var skýrsla Jó-
hanns Óla um þær lögð fram í bæj-
arráði Garðabæjar í vikunni. Kem-
ur þar fram að fuglafánan í
voginum sé fjölbreytt en alls sáust
45 tegundir fugla í talningunum og
þrjár aðrar í görðum nærri eða við
læki sem renna í voginn. Segir í
skýrslunni að gildi vogarins felist
fyrst og fremst í því að hann sé
mikilvægur hlekkur í vistkerfi
stærra svæðis.
Hefur verndargildi
á heimsmælikvarða
Bent er á að meira en eitt pró-
sent af heimsstofni kviðljósu mar-
gæsarinnar hafi viðkomu í Arn-
arnesvogi og hafi hann því
verndargildi á heimsvísu fyrir und-
irtegundina, samkvæmt alþjóðleg-
um skilgreiningum. Þá sé vogurinn
á náttúruminjaskrá auk þess sem
Skerjafjörur eða allar fjörur og
grunnsævi frá Bala á Álftanesi að
norðanverðu Seltjarnarnesi séu á
skrá Alþjóðafuglaverndunarsam-
takanna um alþjóðlega mikilvægt
fuglasvæði.
Í niðurstöðum skýrslunnar segir
að fyrirhuguð uppfylling, byggð og
smábátahöfn muni hafa varanleg
áhrif á fuglalíf, að því leyti að fyr-
irhuguð uppfylling muni skemma
hluta af voginum auk þess sem
byggð og bátaumferð fylgi truflun.
Lagt er til að friðlýsingarkosturinn
verði metinn til jafns við aðra kosti
en ef ráðist verði í framkvæmdir er
bent á að í mótvægisskyni end-
urheimti framkvæmdaraðili vot-
lendi sem hefur verið raskað.
Varanleg
áhrif á
fuglalíf
Arnarnesvogur
Skýrsla fuglafræðings
um áhrif uppfyllingar
lögð fram í bæjarráði
NÝR leikskóli við Maríubaug í Grafarholti
verður boðinn út um næstu mánaðamót en
skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur
hefur samþykkt teikningar að honum.
Að sögn Guðmundar Pálma Krist-
inssonar, forstöðumanns byggingadeildar
Borgarverkfræðings, er um að ræða fjög-
urra deilda leikskóla sem er um 660 fer-
metrar að stærð og mun hann rúma um
80–90 börn. Hönnun leikskólans var í
höndum Arkþings.
Guðmundur áætlar að skólinn fari í úboð
um næstu mánaðamót og er stefnt að því
að hann verði tilbúinn næsta haust. Fram-
kvæmdir munu því hefjast fljótlega í októ-
ber. Kostnaðaráætlun er um 125 milljónir
króna. Guðmundur segir þetta í annað
sinn sem leikskóli af þessari gerð er
byggður en hann verður eins og leik-
skólinn Hamravík í Víkurhverfi.
Margrét Wally Jóhannsdóttir, for-
stöðumaður fagsviðs hjá Leikskólum
Reykjavíkur, segir að þegar sé kominn
biðlisti fólks sem óskar eftir leik-
skólaplássi í Grafarholti. „Af þeim for-
eldrum sem ég hef heyrt í á und-
anförnum vikum þá er þetta fólk sem er
að festa kaup á íbúðum eða er að
byggja og veit að það er að koma leik-
skóli í hverfið. Maður veit svo sem aldr-
ei hversu hratt uppbyggingin í hverfinu
gengur fyrir sig en það virðist vera að
þarna séu foreldrar með ung börn,“ seg-
ir hún.
Nýr leikskóli við Maríubaug
Grafarholt