Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í VETUR býður Fræðsluráð Reykjavíkur í samstarfi við Morgunblaðið, DV og Frétta- blaðið, nemendum og kennur- um 7. bekkja grunnskóla á höf- uðborgarsvæðinu að taka þátt í verkefni sem ber yfirskriftina Dagblöð í skólum. Verkefninu, sem felur í sér lestrarátak nemenda á íslenskum dag- blöðum, var hrundið af stað síðasta haust í tilraunaskyni og þótti takast með afbrigðum vel, að sögn Auðar Huldar Kristjánsdóttur verkefnis- stjóra. Kynningarfundur var hald- inn í Fræðslumiðstöð Reykja- víkur í gær þar sem Auður Huld kennari og Örn Þórisson frá Morgunblaðinu kynntu verkefnið fyrir kennurum sem ætla sér að taka þátt nú í vet- ur. Auður Huld sagði frá reynslu sinni en hún er einn þeirra kennara við Breiða- gerðisskóla sem tóku þátt í verkefninu síðasta vetur. Á fundinum var afhent kennsluefni, svokallaður Blaðapassi sem í eru ýmsar æfingar fyrir nemendur. Verkefnið stendur yfir í eina viku en kennarar ráða hvaða viku skólaársins þeir leggja undir það. Þá viku sem verk- efnið varir fá allir nemendur bekkjarins afhent eintök dag- lega af Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og DV, lesa þau og vinna verkefni tengd efni þeirra. Kennarar hafa þó nokkuð frjálsar hendur um hvernig þeir haga verkefnum. Fyrirmyndin erlendis frá Auður Huld sagði á fundin- um að við gerð kennsluefnisins var aðalnámskrá grunnskóla í íslensku frá 1999 höfð til hlið- sjónar. Þá sagði hún að fyrir- myndin að verkefninu væri sótt erlendis en víða um heim hefur tíðkast að nota dagblöð sem stuðningstæki við kennslu. Helst var leitað fyr- irmyndar til Noregs en sam- starf skóla og dagblaða þar í landi hefur þróast mikið enda staðið yfir í rúmlega þrjá ára- tugi. Markmiðið með verkefninu Dagblöð í skólum er m.a. að venja nemendur við dagblaða- lestur sér til gagns og gamans. Þá er ekki síður mikilvægt að nemendur temji sér gagnrýna hugsun og taki ekki öllu því sem fyrir augu ber sem heil- ögum sannleik, að sögn Auðar Huldar. Á síðasta skólaári tóku um 220 nemendur í fjórum skólum þátt í verkefninu. Að sögn Arnar var niðurstaða síðasta árs hvetjandi og þess vegna var ákveðið að bjóða kennur- um og nemendum að taka þátt í verkefninu í vetur. Þá stend- ur til að bjóða nemendum 3. bekkjar líka svipað verkefni og er kennsluefni til þess í und- irbúningi. Auður Huld segir að nem- endur hafi kunnað að meta Dagblöð í skólum og að for- eldrar hafi einnig brugðist vel við verkefninu en ætlast er til að þeir taki þátt í þeim hluta verkefnisins sem nemendur vinna utan skóla. Brynhildur Ragnarsdóttir hjá Fræðslumiðstöðinni sagði á fundinum að verkefnið stuðl- aði að því að nemendur fylgd- ust betur með því sem væri að gerast í kringum þá, jafnt hér á landi sem erlendis. Auður Huld sagði að á ein- faldan hátt væri hægt að nota dagblöð sem stuðningsefni til kennslu, t.d. í landa- og nátt- úrufræði og miðast verkefnið m.a. að því að slíkt yrði gert í auknum mæli. Dagblöð aftur í skólum í vetur Reykjavík Margir kennarar sýndu verkefninu áhuga og mættu á kynningarfundinn. Auður Huld Kristjáns- dóttir er stjórnar verk- efninu Dagblöð í skólum. Morgunblaðið/Jim Smart BJÖRN Bjarnason, mennta- málaráðherra, segir Áslands- skóla ekki hafa fengið neina undanþágu frá lögum sem varðar stjórnun skólans. Hann hafi rætt málefni Ás- landsskóla við bæjarstjóra Hafnarfjarðar, sem telji farið að lögum við stjórn skólans. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að formenn fagfélaga skólastjóra og kennara telja það lögbrot að Sunita Gandhi, framkvæmdastjóri Íslensku menntasamtakanna, taki yfir verkefni fyrrverandi skóla- stjóra þar sem hún uppfylli ekki þau skilyrði sem skóla- stjórar þurfa að uppfylla sam- kvæmt lögum. Kallaði for- maður Kennarasambands Íslands eftir upplýsingum um það hvort menntamálaráðu- neytið hafi veitt skólanum undanþágu frá lögum. Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra segir svo ekki vera. „Það er alveg skýrt að við höf- um ekki heimilað neina aðra skipan á þessum málum en al- mennt gilda í grunnskólalög- um varðandi skólastjórnun- ina,“ segir hann. Ekki borist erindi um lögbrot Aðspurður um hvort ráðu- neytið muni bregðast við á einhvern hátt segir hann að málið hafi ekki verið lagt fyrir ráðuneytið. „Hvað sem líður yfirlýsingum í blöðum höfum við ekki fengið neina rök- studda, formlega ábendingu um að það sé verið að brjóta lög við stjórn Áslandsskóla. Ráðuneytið mun bregðast við með réttum hætti, fái það slíka ábendingu.“ Björn segist hafa rætt mál- ið við bæjarstjóra Hafnar- fjarðar, sem telji farið að lög- um við stjórn skólans. „Sunita Gandhi er ekki skólastjóri Ás- landsskóla. Hún hefur ekki starfsréttindi til þess.“ Í samtalinu við Morgun- blaðið í gær sagði Sunita Gandhi að hún hygðist taka yfir verkefni sem fyrrum skólastjóri hafði á höndum. „Ég veit ekki hvað felst í þess- um orðum hennar, því að í grein Morgunblaðsins er einnig haft eftir henni að Ás- laug Brynjólfsdóttir sé skóla- stjóri Áslandsskóla,“ segir Björn inntur um þetta. Búist var við að málefni skólans yrðu til umræðu á bæjarstjórnarfundi í Hafnar- firði í fyrradag en vegna at- burðanna í Bandaríkunum var fundinum frestað. Í dag er hins vegar gert ráð fyrir fundi í skólanefnd Hafnarfjarðar. Menntamálaráðherra um Áslandsskólamálið Undanþága varð- ar ekki stjórnun Hafnarfjörður BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögur umferðardeildar Borgar- verkfræðings Reykjavíkur til að draga úr umferðarhraða í Rofabæ. Tillögurnar fela í sér að settar verði nýjar hraðahindranir í göt- una, biðskýli strætisvagna verði færð til, auk þess sem hámarks- hraði verði lækkaður á köflum. Stefán Finnsson, verkfræðingur umferðardeildar Borgarverkfræð- ings Reykjavíkur, segir að fram- kvæmdir muni í fyrsta lagi hefjast næsta sumar því eftir eigi að út- færa hugmyndirnar nánar. Þá sé ákveðin fjárupphæð veitt í þennan málaflokk hverju sinni og það muni ráðast af henni hve margar af þessum tillögum verði fram- kvæmdar. Inntur eftir því hvort umferð- arhraði sé mikið vandamál á þessu svæði segir Stefán það hafa sýnt sig á þeim þremur hraðamæling- um sem þar hafi verið gerðar. Tillögurnar gera ráð fyrir að umferðaröldu austan Fylkisvegar verði breytt í hellulagða 30 km öldu. „Þarna er í dag malbikuð alda en það hefur verið nokkuð af slysum þarna á horninu og eins á kaflanum þar vestan við. Við mældum hraðann og það er ljóst að ekið er mjög greitt þarna. Þess vegna viljum við setja krappari umferðaröldu austan við hornið til að minnka hraðann á þeim stað og svo aftur vestar,“ segir Stefán. Krappar umferðaröldur vandamál fyrir strætisvagna Þá fela tillögurnar í sér að á milli Fylkisvegar og Skólabæjar, á móts við Melbæ 9, verði sett svo- kölluð samalda þar sem tekið er tillit til mismunandi breiddar milli dekkja. Stefán segir að hér sé um að ræða strætisvagnaleið og krappar umferðaröldur séu ávallt vanda- mál fyrir strætisvagna þar sem þeir verða að fara mun hægar yfir þær en fólksbílar. Þá geti einnig komið mjög þungt högg á vagn- ana. Samaldan muni virka sem 30 km alda á litla bíla með stutt hjólahaf en sem 40 km alda á stærri bíla með langt hjólahaf á borð við strætisvagna. Þá er að hans sögn ætlunin að færa strætisvagnabiðstöðina við Fylkisveg til móts við Brekkubæ 3 til 5 og setja jafnframt upp um- ferðaröldu og miðeyju. „Strætis- vagnar munu því ávallt stoppa við miðeyjuna og hindra um leið aðra umferð í að aka framhjá á meðan,“ segir Stefán. Þá verður hámarkshraði lækk- aður úr 50 km í 30 km á hluta Rofabæjar, milli Skólabæjar og Bæjarbrautar, þar sem umrætt svæði verður merkt með umferð- arskiltum í báða enda. Eins leggur umferðardeild til að settar verði samöldur milli Hábæj- ar og Glæsibæjar. Loks verður biðstöð austan við Skólabæ færð til móts við inn- ganginn í Árbæjarskóla jafnframt því sem komið verður fyrir þreng- ingu. Dregið úr um- ferðarhraða í Rofabæ Árbær                            !   !  "# $ /  % " /  % " /  % ") '(-+  ! +!* ( 0!$* 1)-  ! /  % " 23 (('(-+  ! +!* ( 0!$* EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á fundi For- eldraráðs Hafnarfjarðar í gær: „Foreldraráð Hafn- arfjarðar harmar þá nei- kvæðu umræðu sem m.a. for- maður kennarasambandsins hefur haldið uppi um Ás- landsskóla. Áslandsskóli eins og aðrir nýir skólar þarf að fá tækifæri til að koma skóla- starfinu í gang. Vegna frétta í Ríkisútvarp- inu 7. sept. um foreldraráð, viljum við minna á að það er í verkahring foreldra að kjósa í foreldraráð en ekki skóla- stjóra þó hann sé ábyrgur fyrir stofnun þess. Til þess að foreldrar geti kosið for- eldraráð þurfa þeir að fá tækifæri til að hittast. Al- gengt er að það taki margar vikur að koma saman for- eldraráði, jafnvel í skólum sem hafa starfað í áratugi. Sú neikvæða umræða sem átt hefur sér stað er ekki til að bæta skólastarfið heldur frekar fallin til að skaða það. Slíkt kemur niður á nem- endum skólans. Því má ekki gleyma að tilgangur skóla er að veita börnunum þjónustu en ekki að veita kennurum at- vinnu. Skólar eru til vegna barnanna ekki kennara. Gefið starfsfólki skólans vinnufrið.“ Harma neikvæða umræðu VISSARA er að fara yfir veið- arfærin og hafa þau í lagi fyrir næsta túr. Er líka heldur betra að ná aflanum í heil veiðarfær- in og það veit Þórður Þorfinns- son sem vann að netaviðgerð- um í Reykjavíkurhöfn. Hann lét ekki trufla sig um of við verkið enda sjálfsagt stutt í róður og næsta skref því að taka veiðarfærin um borð. Allt gert klárt fyr- ir næsta róður Morgunblaðið/Ásdís
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.