Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 21
ÍSRAELSKT herlið stutt skrið-
drekum og þyrlum fór í fyrrakvöld
inn í bæ á Vesturbakkanum og tvö
þorp í leit að meintum hryðju-
verkamönnum að því er talsmenn
ísraelskra stjórnvalda sögðu. Féllu
sjö Palestínumenn í árásinni, þar á
meðal 11 ára gömul stúlka.
Palestínskir embættismenn sök-
uðu í gær Ísraela um að notfæra
sér hörmungarnar í Bandaríkjun-
um með því að herða árásirnar á
Palestínumenn en Ísraelar neituðu
því og sögðu að aðgerðir þeirra
væru aðeins í sjálfsvarnarskyni.
Árás Ísraela á palestínska bæ-
inn Jenin hófst daginn eftir að þeir
höfðu umkringt hann með skrið-
drekum. Sprengdu þeir upp höf-
uðstöðvar lögreglunnar í bænum
og létu skothríðina einnig dynja á
byggingum í þorpunum Arrabeh
og Tamoun. Þar skutu þeir til
bana tvo menn, sem þeir sögðu fé-
laga í hinum herskáu Jihad-sam-
tökum, og einnig 11 ára gamla
stúlku.
Hús látins manns sprengt
Í Tamoun sprengdu Ísraelar
upp hús manns, sem þeir sögðu
hafa verið hryðjuverkamann, en
manninn sjálfan drápu þeir í júlí
sl. Palestínumenn segja að þegar
Ísraelar hafi dregið herliðið til
baka hafi þeir skotið úr þyrlu á
bifreið sem var að flytja fimm
menn til vinnu. Særðust þeir allir.
Vatikay, talsmaður ísraelska
varnarmálaráðuneytisins, sagði í
gær að árásirnar boðuðu nýjar og
harðari aðgerðir í stríðinu gegn
Palestínumönnum.
Ísraelar boða hertar aðgerðir gegn Palestínumönnum
Skutu unga stúlku
og sex menn aðra
Jerúsalem. AP.
Reuters
Ísraelskur brynvagn í Jenin í gær. Daginn áður var bærinn umkringdur.
MENNTAMÁL
Be Radical
T h e M a k e u p
Leyfðu sköpunargleði þinni að njóta sín
með nýju haust- og vetrarlitunum
frá The Makeup
Kynning fimmtudag, föstudag,
og laugardag.
Hægt er að panta tíma í förðun.
Laugavegi 80 sími 561 1330