Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 24
„Árásirnar á land okk
BJÖRGUNARSVEITIR í New
York náðu í gær nokkrum mönnum
á lífi úr rústum World Trade Center
sem hrundi í fyrradag í mestu árás
hermdarverkamanna í Bandaríkjun-
um fyrr og síðar. Embættismenn í
Washington sögðu hins vegar að
ekki væri búist við því að fleiri fynd-
ust á lífi í þeim hluta höfuðstöðva
varnarmálaráðuneytisins sem eyði-
lagðist þegar hermdarverkamenn
flugu farþegavél á bygginguna í
fyrradag.
Átján björgunarsveitir leituðu
þúsunda manna sem grafnir voru í
rústum tveggja turna World Trade
Center sem hrundu þegar tveimur
öðrum farþegavélum var flogið á þá.
Embættismenn áætla að 10–
20.000 manns hafi verið í turnunum
þegar fyrri vélin skall á World
Trade Center laust fyrir klukkan
níu á þriðjudagsmorgun að staðar-
tíma. Ekki er vitað hversu margir
þeirra komust út úr byggingunum
áður en þær hrundu. Talið er þó að
þúsundir manna hafi látið lífið.
259 slökkviliðs- og lögreglu-
manna saknað
Bandarísk yfirvöld segja að liðið
geti vikur áður en endanleg tala
látinna liggi fyrir. Vitað er um 1.700
manns sem slösuðust, að sögn
Rudolphs Giulianis, borgarstjóra
New York.
Borgarstjórinn sagði að 259
slökkviliðs- og lögreglumanna væri
enn saknað. Sex slökkviliðsmönnum
og nokkrum lögreglumönnum var
bjargað úr rústunum í gær. Einn
lögreglumannanna var sagður með
alvarleg brunasár.
Flestir lögreglu- og slökkviliðs-
mannanna voru sendir á staðinn
skömmu eftir að fyrri flugvélin
flaug á World Trade Center og þeir
voru að hjálpa fólki að komast út
þegar turnarnir hrundu.
Þrír af æðstu yfirmönnum
slökkviliðs borgarinnar eru á meðal
þeirra sem er saknað. Einn þeirra,
Ray Downey, stjórnaði sveit
slökkviliðsmanna frá New York sem
tók þátt í björgunarstarfinu eftir
sprengjutilræðið í Oklahomaborg
árið 1995.
100–800 létu lífið
í Pentagon
Talsmenn björgunarsveitanna í
Washington segja að ekki sé ljóst
hversu margir týndu lífi í höfuð-
stöðvum varnarmálaráðuneytisins,
Pentagon. Þeir áætluðu að tala lát-
inna gæti verið milli 100 og 800.
Embættismenn í varnarmálaráðu-
neytinu töldu þó að hærri talan væri
of há.
Meira en 20.000 manns hafa
starfað í höfuðstöðvum varnarmála-
ráðuneytisins, stærstu skrifstofu-
byggingu heims. Embættismenn í
Washington segja að erfitt sé að
segja til um hversu margir voru
staddir í þeim hluta byggingarinnar
sem eyðilagðist.
Þúsundir starfsmanna Pentagon
mættu til vinnu í gærmorgun þótt
aðeins um helmingur byggingarinn-
ar væri nothæfur eftir árásina.
Reykjarmökk lagði enn frá rústum
þess hluta byggingarinnar sem
eyðilagðist, sólarhring eftir árásina.
„Miklu verra en fólk getur
ímyndað sér“
Turnar World Trade Center voru
405 m háir og annar þeirra hrundi
nánast algjörlega til grunna. Um sjö
hæðir hins turnsins stóðu enn uppi
og björgunarmennirnir einbeittu
sér að því að reyna að komast frá
jarðhæð hans upp á hæðirnar fyrir
ofan.
Björgunarmennirnir notuðu 36 m
háa krana, gröfur og önnur stórvirk
vinnutæki til að hreinsa göturnar
við World Trade Center. Björgun-
armennirnir notuðu haka og skóflur
til að grafa í rústirnar en voru
svartsýnir á að margir fyndust á lífi.
Slökkviliðsmaður sem hafði tekið
þátt í björgunarstarfinu í hálfan sól-
arhring kvaðst aðeins hafa fundið
fjóra á lífi, barnshafandi konu sem
sat á gangstéttarbrún og þrjá í rúst-
unum. „Ég missti töluna á öllum
þeim líkum sem ég hef séð,“ sagði
hann. „Þetta er miklu verra en fólk
getur ímyndað sér.“
Slökkviliðsmaðurinn bætti við að
nokkrar byggingar við turnana
hefðu skemmst og hætta væri á að
þær hryndu.
„Ég hlýt að hafa komið að þús-
undum líkamshluta,“ sagði þjóð-
varðliði sem tók þátt í björgunar-
starfinu.
„Þarna er 60 sm þykkt sótlag og
mörg farartæki hafa ekið yfir lík því
þau eru út um allt,“ sagði bráðaliði
sem var sendur á staðinn til að
flytja fórnarlömb árásarinnar.
„Þarna var fólk sem hljóp til okkar
algjörlega sviðið – með ekkert hár,
engar augnabrúnir.“
Þrjú leigubílafyrirtæki í New
York tóku aftursætin úr bílum sín-
um til að aðstoða við að flytja lík úr
rústunum.
Í símasambandi við mann
í rústunum
Þremur mönnum, þeirra á meðal
tveimur lögreglumönnum, var
bjargað seint á þriðjudagskvöld að
staðartíma eftir að hafa látið vita af
sér í farsíma. Þeir reyndu fyrst að
hringja í neyðarlínu í New York en
náðu ekki sambandi. Einn þeirra
hringdi þá í systur sína í Pennsylv-
aníu, sem hringdi í neyðarlínu og
gat veitt nægar upplýsingar um
hvar þremenningarnir væru í rúst-
unum til að hægt væri að bjarga
þeim.
Giuliani borgarstjóri sagði að
björgunarmennirnir væru enn í
símasambandi við mann í rústunum.
Litlar líkur
á að margir
finnist á lífi
í rústunum
Slökkviliðsmenn í New York sprauta vatni yfir rústir World Trade Center 7-byggingarinnar sem hrundi síðdegis á þriðjud
New York, Washington. AP.
24 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SIGURÐUR Pétur Snorrason býr í
íbúð sem er tveimur götum norðar
en WTC-byggingin í um það bil 150
metra fjarlægð frá henni og sá
turnana báða út um gluggann hjá
sér. Hann var heima þegar atburð-
urinn átti sér stað. Hann segist
ekki hafa heyrt fyrstu spreng-
inguna, enda hafi hann hugsanlega
verið í sturtu. Síðan heyrði hann
mikinn hávaða frá götunni og þeg-
ar hann labbaði framhjá sjónvarp-
inu sá hann turninn loga, hann
hljóp að glugganum og sá hann þá
í björtu báli.
Sigurður Pétur sagðist ekki
strax hafa áttað sig á því hvað um
væri að vera, en dottið í hug að það
hefði kviknað í eða eitthvað slíkt.
Samt hefði eldurinn verið á nokkr-
um hæðum.
„Skömmu seinna er ég að horfa
út um gluggann þegar seinni
sprengingin verður og ég sé hana.
Hún verður á norðurhlið turnsins
og snýr að mér líka. Það verður
mikill hvellur og ég veit ekki hvort
það er brak úr vélinni eða turn-
inum eða hvort það eru högg-
bylgjur sem valda því að hluti af
byggingunni sem er á móti mér
hrynur niður á götuna og slasar
þar fólk líka. Þetta var hrikalegt“,
sagði Sigurður.
Hann sagðist hafa séð fólk reyna
að forða sér úr turninum. Það
hefði verið ólýsanleg lífsreynsla.
Sigurður Pétur
Snorrason var
á götunni skammt
frá WTC þegar fyrri
turninn hrundi
„Hélt að flugvél væri