Morgunblaðið - 13.09.2001, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 27
Árásin á Bandaríkin
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
Dönsku Varde viðarofnarnir hafa
hlotið sérstaka viðurkenningu í
Danmörku, Svíþjóð og Þýska-
landi fyrir fullkomna brennslu og
lágmarksreykmengun. Smíðaðir
úr þykku stáli, tvöfalt byrði og
steypt hurð með barnaöryggi.
Gæðavara á góðu verði,
34 gerðir fáanlegar.
KAMÍNUR -
VIÐAROFNAR
FLUGRÁNIN sem hryðjuverka-
menn frömdu í Bandaríkjunum á
þriðjudag voru vandlega skipulagt
samsærisverk manna sem nýttu sér
gloppur í öryggiseftirliti í banda-
rísku innanlandsflugi. Höfðu banda-
rískir fjölmiðlar þetta eftir háttsett-
um fulltrúum bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI, í gær.
Að sögn Los Angeles Times telja
yfirvöld, sem eru að rannsaka hvern-
ig flugránin voru framin, að hryðju-
verkamenn hafi setið við stjórnvöl
farþegaþotnanna fjögurra er þeim
var stýrt að „skotmörkum“ sínum.
Grunar rannsakendur að hryðju-
verkamennirnir hafi notið aðstoðar
manna á flugvöllunum þaðan sem
flugvélarnar fóru í loftið og að þeir
hafi valið vélar sem voru á leið til
vesturstrandar Bandaríkjanna og
því hlaðnar eldsneyti, og að í hópi
flugræningjanna hafi verið menn
sem kunnu að stýra flugvélum.
En það sem rannsakendur furða
sig einna mest á er hin samstillta
tímasetning ránanna. Þeir eru furðu
lostnir yfir því að hópum flugræn-
ingja skyldi hafa tekizt að komast
um borð í fjórar farþegaþotur á
þremur flugvöllum og yfirbuga
áhafnir þeirra samtímis, áður en yf-
irvöldum gæfist ráðrúm til að loka
fyrir flugumferð eða grípa yfirleitt
til nokkurra ráðstafana.
„Við erum agndofa yfir því hve
mikillar samhæfingar þetta mun
hafa krafizt,“ hefur Los Angeles
Times eftir háttsettum FBI-manni í
Washington.
„Við erum með alla staðina þaðan
sem flugvélunum var rænt undir
smásjánni,“ tjáði annar FBI-fulltrúi
blaðinu. „Við munum athuga alla bíla
á bílastæðum flugvallanna. Hvað
gerðist við farþegahliðin? Hvernig
komust þeir í gegn? Hverjir eru
skráðir á farþegalistana, hvað á far-
angursskrárnar? Við munum skoða
allar upptökur öryggismyndavéla
(...) Það eru ótal spor sem við verðum
að fylgja eftir,“ sagði fulltrúinn.
Áður en til þessa fjöldaflugráns
kom hafði enginn séð það fyrir að
öfgamenn myndu ekki aðeins geta
breytt sjálfum sér, heldur heilum
farþegaþotum í sjálfsmorðssprengj-
ur. Jafnvel handritshöfundar í
Hollywood hafa ekki látið sér detta í
hug aðra eins hryllingsatburðarás.
Er þotunum var rænt, einni af
annarri, mun hver flugmaður nær
örugglega hafa gert ráð fyrir að hér
væri um „venjulegt“ flugrán að
ræða, þar sem hryðjuverkamenn
krefðust þess að vera flogið á ein-
hvern ákveðinn stað og samninga-
viðræður hæfust.
Flugumferðarstjóri
heyrði hótanir
„Við höfum aðrar vélar, við höfum
fleiri vélar. Ekki reyna nein
heimskupör, ykkur verður ekki gert
mein,“ sagði einn flugræningjanna á
ensku við flugstjóra annarrar þot-
unnar sem flogið var á World Trade
Center í New York, eftir því sem vef-
útgáfa bandaríska dagblaðsins
Christian Science Monitor greindi
frá í gær. Flugumferðarstjóri, sem
ekki vildi láta nafns síns getið,
heyrði hluta þess sem fór í milli flug-
manns og flugræningja þar sem
kveikt var á hljóðnema í flugstjórn-
arklefanum. „Einn flugmannanna
kveikti á hljóðnema svo að orðaskipti
flugmannsins við flugræningjann
heyrðust,“ er haft eftir flugumferð-
arstjóranum.
„Maðurinn í flugstjórnarklefanum
talaði ensku. Hann sagði eitthvað
eins og „ekki gera neina vitleysu,
ykkur verður ekki gert mein“,“ sagði
hann.
Flugvélin var lögð af stað frá
Boston og var á leið til Los Angeles,
er annaðhvort flugræninginn eða
flugmaðurinn fór þess á leit við flug-
turn að fá að leggja leið sína að
Kennedy-flugvelli við New York, en
að því loknu var ratsjársvari þotunn-
ar tekinn úr sambandi. Ratsjársvar-
inn er tæki sem gefur sjálfkrafa upp-
lýsingar til ratsjárstöðva á jörðu
niðri um kennitölu flugvélarinnar,
flughæð, stefnu, hraða o.þ.u.l. Slökkt
var á ratsjársvörum allra flugvél-
anna sem rænt var. Flugmennirnir
slógu ekki inn fjögurra stafa kenni-
tölu sem gefið hefði flugumferðar-
stjórn merki um að verið væri að
fremja flugrán; að minnsta kosti bár-
ust engum flugturni slík boð, að því
er áðurgreindur flugumferðarstjóri
segir. Sagði hann það vel kunna að
vera að flugræningjarnir hafi tekið
ratsjársvarana úr sambandi til þess
að koma í veg fyrir að flugmennirnir
létu vita af því sem væri að gerast,
en til þess þyrfti staðgóða þekkingu
á tæknilegum útbúnaði flugvélanna.
Þótt það sé regla í bandarísku inn-
anlandsflugi að flugstjórnarklefan-
um sé læst er ekki talið að flugræn-
ingjarnir hafi átt í neinum erfið-
leikum með að komast inn í hann –
annaðhvort með því að brjóta sér
leið eða með því að þvinga áhafn-
armeðlim til að opna.
Er flugræningjarnir voru einu
sinni komnir að stjórntækjum vél-
arinnar gat varla nokkur neitt að
gert. Stefni flugvél á flugi í glötun,
hver svo sem ástæðan er, geta flug-
umferðarstjórar ekki annað en
fylgzt með harmleiknum gerast á
skjánum, að því er fréttavefur BBC
hefur eftir Chris Yates, ritstjóra
flugöryggismála við tímaritið Jane’s
Defence Weekly. „Þeir myndu í ör-
væntingu hafa reynt að ná sambandi
við flugvélina sem stefndi af réttri
leið, en ef það skilaði ekki árangri
væri það eina sem þeir gætu gert
annað að kalla herþotur á vettvang.“
En herinn hefði lítið getað aðhafzt
við þessar aðstæður – með hundruð
farþega um borð í vélunum sem voru
á valdi flugræningja og miðborgar-
þéttbýli fyrir neðan.
Hljóta að hafa tekið
stjórnina í eigin hendur
Óljóst er hvaða vopn flugræningj-
arnir notuðu, nema að farþegi í einni
vélinni – þeirri sem hrapaði nærri
Pittsburgh – sagði í símasamtali við
eiginmann sinn að ræningjarnir
væru vopnaðir hnífum og dúkahníf-
um.
„Þeir kunna að hafa skotið flug-
mennina eða tekið að minnsta kosti
annan þeirra úr umferð og tekið
stjórn vélarinnar í eigin hendur,“
hefur fréttavefur BBC eftir David
Learmount, sérfræðingi í flugörygg-
ismálum við alþjóðlega flugmála-
tímaritið Flight International. Að
hans mati þyrfti ekki mikla flug-
kunnáttu til að stýra svona þotum
síðasta spölinn að jafn stórum „skot-
mörkum“ og gert var. Fullyrti Lear-
mont, sem sjálfur var atvinnuflug-
maður, að hverfandi líkur væru á því
að nokkur atvinnuflugmaður í far-
þegaflugi myndi hlýða kröfu flug-
ræningja um að stýra vélinni á fullri
ferð á byggingar þar sem vitað væri
að þúsundir manna væru innandyra,
jafnvel þótt miðað væri byssu að
höfði hans.
Furðulegt hvernig unnt var að gera farþegaþotur að fjöldamorðsverkfærum
Vandlega
skipulagt
samsæri
Reuters
Björgunarmaður horfir á hluta úr hjólabúnaði þotu á götunni skammt frá
rústum World Trade Center-turnanna.
Allt að 20 þúsund
manns voru í World
Trade Center
New York. AP.
UNDIR venjulegum kring-
umstæðum störfuðu um fimmtíu
þúsund manns hjá þeim 1.200 fyr-
irtækjum sem höfðu skrifstofur í
World Trade Center-turnunum
tveim sem hrundu í kjölfar árásanna
á þriðjudaginn. En margir voru enn
ekki komnir til vinnu þegar fyrri
flugvélin rakst á norðurturninn, og
er haft eftir embættismönnum að
líklegt sé að tíu til tuttugu þúsund
manns hafi þá verið í turnunum.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
höfðu skrifstofur í turnunum voru
Bank of America, Kemper-
tryggingafélagið, Lehman Broth-
ers-fjárfestingafyrirtækið, Morgan
Stanley Dean Whitter-fjárfestinga-
fyrirtækið, bankarnir Credit Suisse
og First Boston, og hugbúnaðarfyr-
irtækið Sun Microsystems.
Á skrifstofum Morgan Stanley í
suðurturninum störfuðu um 3.500
manns. Á vefsetri fyrirtækisins seg-
ir m.a. að fyrirtækið muni halda
áfram starfsemi um leið og fjár-
málamarkaðir verði opnaðir.
Tugir erlendra fyrirtækja höfðu
skrifstofur í turnunum, þ.á m. kín-
verska fyrirtækið Sinochem Am-
erican Holdings, japanska fyr-
irtækið Nikko Securities, þýski
bankinn CommerzBank AG og ísr-
aelska flutningafyrirtækið Zim-
American.
Talsmenn Deutsche Bank í
Frankfurt greindu frá því að um 300
starfsmenn bankans hefðu starfað á
neðri hæðum turnanna. Væri fyr-
irtækið að reyna að fá upplýsingar
um afdrif starfsmanna sinna. Um
300 starfsmenn þýska trygginga-
félagsins Allianz störfuðu í turn-
unum og sagði talsmaður fyrirtæk-
isins að allir hefðu komist lífs af.
Breska verðbréfafyrirtækið
Canto Fitzgerald International, og
dótturfyrirtæki þess, eSpeed Int-
ernational, hafði yfir eitt þúsund
starfsmenn á efstu hæðum annars
turnsins. Sagði stjórnarformaður
beggja fyrirtækjanna í gær að verið
væri að reyna að komast að því hver
hefðu orðið afdrif fólksins.