Morgunblaðið - 13.09.2001, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN
38 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Borgarstjórnarkosn-
ingar verða í lok maí-
mánaðar á næsta ári.
Meiri umræða er í dag
en oftast áður um
hvernig Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlar að
undirbúa kosningarnar.
Ástæðan er einföld.
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur verið í minnihluta
í borgarstjórn síðustu
átta árin, en stjórnaði
borginni þar á undan í
nær 60 ár. Það hefur
jafnan talist eitt þýðing-
armesta verk flokksins
að halda völdum í borginni.
Í umræðunni, bæði í fjölmiðlum
sem og annars staðar, hefur komið
fram að ekki er einhugur um forystu
borgarstjórnarflokksins og því jafnan
spurt hvernig leiðtogi verður valinn
fyrir jafnþýðingarmikl-
ar kosningar og þær
sem framundan eru.
Þessu er vandsvarað og
í raun erfitt að sjá aðra
leið en að viðhafa próf-
kjör með einhverjum
hætti til að útkljá málið.
En hvernig prófkjör?
Prófkjörið 1998
Í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna vegna kosn-
inganna 1998 varð Árni
Sigfússon efstur í fyrsta
sætið, aðrir komu þar
langt á eftir. Færri gáfu
kost á sér í prófkjörið en
oftast áður. Nokkrum frambjóðend-
um var bætt við af kjörnefnd, en þrátt
fyrir það var það skoðun margra að
frambjóðendalisti prófkjörsins hefði
mátt vera fjölbreyttari. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapaði kosningunum og
fékk minna fylgi en áður. Eftir kosn-
ingarnar ákvað Árni Sigfússon að
hætta afskiptum af borgarmálum og
borgarstjórnarflokkurinn kaus nýjan
oddvita.
Staðan í dag
Þótt Inga Jóna Þórðardóttir sé
oddviti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn í dag er hún ekki óumdeildur
leiðtogi og engan veginn sjálfgefið að
hún leiði næstu kosningar. Af þessari
ástæðu einni er næstum óhugsandi að
viðhafa aðra leið á vali á leiðtoga
flokksins en að viðhafa prófkjör. Í
þeirri umræðu sem fram fer í fjöl-
miðlum og manna á milli hafa nokkrir
borgarfulltrúar verið nefndir sem
hugsanlegir leiðtogar í næstu kosn-
ingum og nafn eins ráðherra hefur
einnig blandast í hópinn.
Hvað kostar prófkjör?
Þeir sem þekkja vel til prófkjörs-
baráttu í Sjálfstæðisflokknum telja að
prófkjör í dag muni kosta að jafnaði 2
til 3 milljónir á hvern frambjóðanda.
Innifalið í þessum tölum er m.a. hús-
næði, starfsmaður, símar, auglýsing-
ar í fjölmiðlum, bæklingar og útsend-
ing þeirra, svo eitthvað sé nefnt.
Verði um 20 frambjóðendur í venju-
legu prófkjöri eru þetta á bilinu 40 til
60 milljónir. Það eru miklir peningar
og vaknar því strax spurningin, er
ekki betra að nýta alla þessa peninga í
sjálfa kosningabaráttuna, það er í
baráttu við andstæðinga og stefnu
flokksins? En hvernig má samræma
þessi sjónarmið?
Ný leið
Ýmsir líta á prófkjör eins og um
trúarbrögð sé að ræða og ekkert ann-
að eigi að ráða framboðslista. Reynsl-
an hefur aftur á móti sýnt að færri og
færri hæfir einstaklingar gefa kost á
sér í þann darraðardans sem próf-
kjörsslagur er. Tvennt kemur til.
Annars vegar mikill kostnaður og
hins vegar oft óvægin umfjöllun um
frambjóðendur og jafnvel fjölskyldur
þeirra. Til að leysa þetta er hægt að
viðhafa blandaða aðferð til að velja
frambjóðendur á lista flokksins.
Fyrst verði prófkjör um efsta sætið,
það er um val á leiðtoga listans og
borgarstjóraefni. Að öðru leyti velji
uppstillingarnefnd aðra frambjóð-
endur í samráði við þann sem sigur
hafði um efsta sætið. Ýmislegt mundi
vinnast með þessari aðferð. Í fyrsta
lagi yrði prófkjörsbaráttan faglegri
því hún myndi meira beinast að hæfi-
leikum, þekkingu, reynslu og al-
mennri getu einstaklingsins til að
taka að sér að vera borgarstjóri
Reykvíkinga. Í venjulegu prófkjöri er
auðvitað einnig leitað eftir hæfileik-
um og getu einstaklinga en of mikið
ber á smölun og hreinni vinsælda-
kosningu 20 karla og kvenna. Í öðru
lagi færu ekki tugir milljóna út um
gluggann. Kostnaður yrði óverulegur
miðað við það sem nefnt er hér að
framan. Í þriðja lagi verður auðveld-
ara að fá hæfa einstaklinga með mikla
sérþekkingu á einstökum málaflokk-
um til að taka sæti á listanum en á það
hefur skort á síðustu átta árum. Og í
fjórða lagi; í venjubundnu prófkjöri
eru menn ekki að velta því fyrir sér
hverjir lenda í 8. til 10. sæti. Prófkjör í
Reykjavík er fyrst og síðast um það
hver skipar forystu á væntanlegum
framboðslista, hver er í fararbroddi á
listanum og hver verður borgar-
stjóraefni hans. Fleira væri hægt að
nefna.
Þessari hugmynd er hér með kom-
ið á framfæri til Fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Ný leið?
Júlíus Hafstein
Prófkjör
Í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna vegna borg-
arstjórnarkosninga,
segir Júlíus Hafstein,
verði beitt blandaðri
aðferð til að velja
frambjóðendur.
Höfundur er fyrrverandi
borgarfulltrúi í Reykjavík.