Morgunblaðið - 13.09.2001, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 13.09.2001, Qupperneq 42
MINNINGAR 42 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jörína GuðríðurJónsdóttir fædd- ist í Blönduholti í Kjós 30. september 1900. Hún lést í Selja- hlíð, vistheimili aldr- aðra, 4. september síðastliðinn. Foreldr- ar Jörínu voru hjónin Jón Stefánsson, f. 1.4. 1856, d. 1944, og Sig- ríður Ingimundar- dóttir, f. 7.9. 1864, d. 1952. Systkini Jörínu voru Bjarni, lengst af bóndi í Dalsmynni á Kjalarnesi, f. 27.11. 1892, og Birgitta klæðskeri í Reykjavík, f. 22.8. 1895, þau eru látin. Jörína giftist 27.9. 1923 Sigur- vini Einarssyni, kennara og síðar alþingismanni, f. 30.10. 1899, d. 23.3. 1989. Börn þeirra eru: Rafn loftsiglingafræðingur, f. 14.3. 1924, d. 13.1. 1996, var fyrst kvæntur Auði Pálsdóttur, f. 10.9. 1928, d. 1.5. 1947, og eignuðust þau eina dóttur, en seinni kona Rafns var Sólveig Ingibjörg Sveinsdóttir, f. 19.10. 1926, d. 1999, og áttu þau tvö börn en barnabörn Rafns eru fimm; Einar flugvélstjóri, f. 6.7. 1927, kvæntur Sigrúnu Lárusdóttur, f. 16.4. 1929, eiga þau sex börn og sextán barna- börn; Sigurður Jón, f. 16.8. 1931, d. 11.5. 1946; Ólafur, f. 5.7. 1935, var kvæntur Þórunni Aðalsteins- dóttur, f. 13.1. 1934, þau skildu, og er seinni kona Ólafs Hrefna Hekt- orsdóttir, f. 13.5. 1946, og á hann átta börn, sautján barnabörn og þrjú langafabörn; Elín, íþrótta- og söngkennari, f. 21.10. 1937, gift Sig- urði Eggertssyni, f. 9.1. 1933, og eiga þau þrjú börn, sex barna- börn og eitt barna- barnabarn; Björg Steinunn bókari, f. 31.5. 1939, var gift Kristjáni Steinari Kristjánssyni, f. 26.3. 1937, en þau skildu og eiga þau þrjú börn og tvö barna- börn; og Kolfinna íþróttakennari, f. 25.4. 1944, gift Sverri Má Sverrissyni og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Jörína tók kennarapróf 1922 og fluttust þau Sigurvin til Ólafsvíkur 1923, þar sem hann var skólastjóri og kenndi Jörína við barnaskólann þar og eftir að þau fluttu til Reykjavíkur 1932 kenndi hún einn vetur við Miðbæjarskólann. Jörína starfaði mikið að bindindismálum, var m.a. ritari stúkunnar Freyj- unnar í allmörg ár og virk í Félagi Framsóknarkvenna, heiðursfélagi þar. Stjórnaði að öðru leyti stóru heimili, þar sem mikill gestagang- ur var, stundaði alls kyns hannyrð- ir, s.s. útsaum, vefnað, málaði einnig myndir og á silki. Þau hjón- in áttu lengst af heima í Mjóuhlíð 2 og síðar Úthlíð 16, Reykjavík, en síðustu árin dvöldu þau í Seljahlíð, vistheimili aldraðra, þar sem Jör- ína lést 4. september sl., tæplega 101 árs. Útför Jörínu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mamma mín. Hún kunni það hún mamma mín að milda grát og sefa. Hún sagði það hún mamma mín að mér hún skyldi gefa fley og fagrar árar og fleira er ég þráði. Enga veru, mamma mín meir’ en þig ég dáði. Ást og mildi mamma gaf mér í veganesti er eirðarlaus ég lét í haf og löngun þar ei festi, er mér léði lánið landsins bestu móður. Þú sagðir aðeins mamma mín ,,Mundu’ að vera góður.“ En hvar sem fleyið mamma mín myrkar leiðir þræddi mér fylgdi ástin þögla þín. Og þegar dauðinn æddi varð ég oft í anda svo undarlega hljóður. Ég heyrði mamma málróm þinn ,,Mundu’ að vera góður.“ (Úlfur Ragnarsson.) Guð blessi minningu þína, elsku mamma mín. Þín Kolfinna. Elsku amma Jörína er dáin. Hundrað ár eru langur tími þegar um mannsævi er að ræða en aldur er af- stæður þegar ástvinur deyr og miss- irinn er alltaf jafn sár. Amma náði því að lifa heila öld og næstum heilu ári betur. Hún náði því að lifa tímana tvenna svo ekki sé meira sagt. Að eiga ömmu og afa er ómetanleg gjöf hvers barns. Amma og afi voru komin á efri ár þegar við systurnar fædd- umst og áttum við ekki von á að fá að njóta þeirra svona lengi. Við erum þakklátar fyrir að hafa þekkt ömmu í öll þessi ár og skipst á sögum við hana. Amma sagði okkur oft frá bú- skapar- og lifnaðarháttum í Kjósinni þar sem hún ólst upp, frá skáldum sem gengu bæja á milli, farkennurum og mörgu fleira. Síðustu ár eftir að amma var að miklu leyti hætt að fylgjast með tæknivæðingu nútímans gátum við svo sagt henni frá ýmsum nýjungum s.s. samskiptum á tölvu- pósti. Amma hló eins og oft áður þeg- ar henni var sagt eitthvað en ómögu- legt var að segja hvort hún trúði frásögninni eða ekki. Amma var alla tíð mjög hraust kona og sagði hún sjálf að það væri vegna þess að hún fékk nægan mat og mjólk að drekka á meðan hún var að alast upp. Amma var bæði yfirveg- uð og róleg en umfram allt jákvæð, glaðvær og hláturmild kona. Á með- an afi lifði lét hún ekki mikið á sér bæra, lá uppi í sófa og hlustaði á það sem fram fór en lét þó í sér heyra þegar hún vissi betur. Hún var líka einstaklega eftirtektarsöm og leið- rétti oft afa þegar hann fór rangt með úrslit fótboltaleikja dagsins svo eitt- hvað sé nefnt. Amma var mjög minn- ug og fram á síðasta dag þuldi hún fyrir okkur vísur og vakti það aðdáun okkar hvað hún mundi þær vel. Hún tók eftir minnstu smáatriðum í fari og útliti fólks allt fram á síðasta dag. Hún var óhrædd að segja skoðanir sínar og hrósa fólki. Eftir andlát afa kom berlega í ljós hversu sterk kona amma var, í stað þess að einangrast sótti hún í félagsskap annarra vist- manna í Seljahlíð og tók m.a. upp á því að mála myndir líkt og hún hafði gert á yngri árum. Amma stóð sem klettur við hlið manns síns og afkomenda og var allt- af til staðar fyrir þá sem á þurftu að halda. Þó hún hafi nú kvatt þennan heim finnum við enn nálægð hennar og yljum okkur við minningarnar um góða ömmu og afa. Við kveðjum elsku ömmu með söknuð í hjarta en hugg- um okkur við að nú er biðin á enda og hún og afi saman á ný. Blessuð sé minning ömmu Jörínu. Hulda, Rannveig og Sólrún. Elsku amma. Það er sárt að kveðja þig þótt innst inni sé ég glöð að þú hafir loksins fengið að sofna svefninum langa. Það er eigingirni mín að vilja hafa þig hjá okkur sem lengst. Mig langar að þakka þér, meira en orð fá lýst, fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Frá því að leyfa mér að skríða upp í til ykkar afa flesta morgna í Mjóuhlíðinni, passa mig og hugga. Taka alltaf brosandi á móti mér þegar ég vildi koma í heimsókn, hvort heldur sem ég var ein á ferð eða með vinkonu með mér og setti íbúðina á annan endann fyrir búðar- leik. Fyrir ómælda umhyggju, stuðn- ing í gegnum lífið og allar stundirnar sem við áttum saman og ég trúði þér fyrir leyndarmálum mínum. Það er svo margt sem rifjast upp við kveðju- stund, en við Eggert Þór geymum minningarnar um yndislega tíma með ykkur afa. Ég man þegar ég svaf hjá þér þeg- ar afi var á spítala, þá héldumst við í hendur og þú sagðir mér að þið afi sofnuðuð alltaf þannig. Nú hafið þið fundið hvort annað á ný, en ég veit að þér þótti biðin eftir að hitta afa orðin löng. Ég læt fylgja hér með vísu sem þér þótti mjög vænt um og var kveðin til þín og gefin á sumardaginn fyrsta 1923 af skólabróður ykkar afa úr Kennaraskólanum, Jóhannesi úr Kötlum. Gæfan þér hossi á sínum engilörmum, ævin þér verði sólrík gleðistund. Móti þér andinn blænum blíðum vörmum, björt þér lýsi stjarna um næturstund. Alla daga allt þér lotning sýni, allir hlutir gangi þér í vil. Nafn þitt ætíð heiður helgur knýi hljót það lífsins hnoss sem best er til. Elsku amma, hvíl í friði. Þín Sigrún. Endalaust sólskin, lognvær kvöld- in, kyrrð sem endrum og sinnum var rofin af gáskafullum leikjum barnanna í götunni. Mjóahlíðin var fullbyggð, fyrsta gatan í Hlíðunum. Hún var hvorki löng né breið, við hana stóðu fimm hús. Í nágrenninu Geir í Hlíð, Öskjuhlíðin og endalaus tún. Árið er 1945. Í fyrsta húsinu, sem jafnframt var eina einbýlishúsið í götunni, bjuggu hjónin Sigurvin og Jörína með barna- hópinn sinn. Í þeim hópi fundum við systurnar Ellu og Böggu, sem reynd- ust jafnöldrur okkar. Þar urðu svo sterk vináttubönd ofin að þau hafa nú enst í tæpa sex áratugi og eru hreint ekkert farin að trosna. Flestar okkar bernskuminningar tengjast þeim systrum og fjölskyldu þeirra. Heimili þeirra var okkur allt- af opið, garðinn gátum við nýtt að vild og jafnvel bílskúrinn lögðum við undir okkur, þegar halda þurfti skemmtun í götunni. Öllu brambolt- inu var tekið af einstöku æðruleysi hjá húsráðendum. Hlátrasköll, glens og söngur fylgdi okkur fjórmenningunum gjarnan en aðeins einu sinni minnist ég þess að Jörína hafi þaggað niður í okkur og þá sagði hún: „Látið ekki alveg svona mikið, telpur mínar.“ Hlýjan, góð- vildin og þolinmæðin gagnvart okkur ærslabelgjunum virtist takmarka- laus. Aldeilis þótti okkur upphefð í því þegar þau hjónin báðu okkur að syngja fyrir sig í stofukróknum. Í eitt skiptið fengum við ljóð að launum frá Sigurvin, sem við sungum oft og syngjum enn á góðum stundum. Þar stendur m.a. Fjórlaufasmárinn er farinn að syngja fegurstu lögin sín í stofukrók Þjálfaðar raddir af kátínu klingja karlmenn sem hlusta þeir falla í mók. Jólaboðin hennar Jörínu er vafa- laust mörgum enn í fersku minni. Þá bauð hún krökkunum úr nágrenninu upp á súkkulaði og kökur og auðvitað var hópurinn svo stór að það þurfti að drekka í „hollum“. Síðan hófust sam- kvæmisleikir, söngur og grín, sem stóð fram eftir kvöldi. Ár eftir ár stóð Jörína við jólaborðið sitt og gætti þess að allir færu þaðan mettir. Árin liðu og öll fluttum við úr Mjóuhlíðinni, stofnuðum heimili og hentum okkur út í hringiðu lífsgæða- kapphlaupsins. Þá voru endurfund- irnir í fermingar- og afmælisveislum og alltaf fundum við umhyggju þeirra og elskusemi í okkar garð. Senn er ár síðan við hittumst á hundrað ára afmæli Jörínu. Það var ógleymanleg stund. Síðustu árin hef- ur Jörína búið í Seljahlíð, en þangað fluttu þau hjón árið 1985. Fjórum ár- um síðar dó Sigurvin en þá höfðu þau verið gift í 66 ár. Að leiðarlokum kveðjum við syst- urnar Jörínu með þökk fyrir allar góðu bernskuminningarnar, sem hún átti svo ríkan þátt í. Afkomendum hennar öllum biðjum við guðsbless- unar. Pálína og Gunnhildur. JÖRÍNA GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR                        ! "             !!" #$ "#  $%&  #$ "' $%&  #$ %$$( #$ ")!*   +  " ' , ! ' - #  $    $ %      )./01 234 15226 7 8( 9: ($$    &     '  "" / %&#$ $$( ,/-)!*$%&  %"$#$ $%&  #(;-/!  $$(    $%&  <  <*(<  <  <*- (              46 ;50)2 $<      $ )  * +  ,     $ -     8 %)  )  % $%&  5 )  $$( 7    $%&  )!  $$( )  %  $$( <!*) %$%&   , $$( (<  <*- .  -  /      %     # )0 /6#  / $$  =   ! "     -  /   $$( !&/  $$( >/  $$(     %& - (    $  +  $    3.;4 2 15220?10  0 +     "  ;&8  @&& $%&  4,$ / %&$$( % ,4,$ $%& -  $%        00);>/016A4 15220 %&$$ * )& 0 1 -     8 % %&  A  $(    %&  ( !* $  %-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.