Morgunblaðið - 13.09.2001, Side 51
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 51
KIRKJAN ykkar vill bjóða ykkur að
taka þátt í foreldra- og barnamorgn-
um sem eru samvinnuverkefni
Langholtskirkju og Miðstöðvar ung-
barnaeftirlits heilsuverndarstöðvar-
innar við Barónsstíg. Samveru-
stundirnar eru á fimmtudagsmorgn-
um kl. 10–12.
Fimmtudaginn 13. september
hittumst við til spjalls og ráðagerða
um fræðsluna í vetur. Að venju verð-
ur upplestur fyrir börnin og söng-
stund. Annan hvern fimmtudag
verða hjúkrunarfræðingar frá
barnadeildinni með fyrirlestra og
fræðslu og hefst fræðslan 20. sept-
ember. Þá gefst tækifæri til að ræða
við fagfólkið og spyrja um það sem á
brennur hverju sinni. Hægt er að
spjalla um það sem gleymdist að tala
um í ungbarnaeftirlitinu eða kemur
upp í hugann þess á milli. Hinn
fimmtudaginn eru stundirnar frjáls-
ar til spjalls og samvista, auk
fræðslu sem starfsmenn kirkjunnar
og foreldrar annast. Klukkan 11
stjórnar Jón Stefánsson organisti
söngstund og má segja að þar sé
grunnurinn lagður að markvissu tón-
listaruppeldi barnanna. Svala djákni
spjallar við börnin og les fyrir þau
eldri.
Við, starfsfólkið í kirkjunni ykkar,
vonumst til að sjá ykkur fljótlega
með börnum ykkar. Sérstaklega
bjóðum við velkomna feður í fæðing-
arorlofi.
Langholtskirkja býður foreldrum
að hella upp á kaffi- eða tesopa og
taka til vatn, safa og kirkjukex fyrir
börnin. Starfsfólk kirkjunnar mun
verða ykkur innan handar ef þið
þurfið á leiðsögn að halda við und-
irbúning og frágang (í eldhúsi, í leit
að leikföngum o.þ.h.). Þið eruð ávallt
hjartanlega velkomin. Síðasta
fimmtudag í hverjum mánuði hittast
foreldrar í loftsal Langholtskirkju
Umsjón með foreldra- og barna-
morgnum hefur Svala Sigríður
Thomsen djákni. Sími kirkjunnar er
520 1300 og 862 7893 (sími djákna) ef
þú vilt leita frekari upplýsinga.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal.
Þorvaldur Halldórsson söngvari og
tónlistarmaður kemur í heimsókn og
spilar og syngur fyrir okkur og með
okkur. Hann segir jafnframt frá hinu
nýja starfi sínu á vegum Reykjavík-
urprófastsdæmanna. Veitingar í boði
kirkjunnar.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Léttur málsverður í safnaðar-
heimili eftir stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl.
10. Íhugun kl. 19. Taize-messa kl. 21.
Ath. breyttan tíma.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
el kirkjunnar kl. 12–12.10. Að stund-
inni lokinni er léttur málsverður í
safnaðarheimili.
Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglinga-
klúbbur fyrir Dómkirkju og Nes-
kirkju. Kynningarfundur fyrir 8.
bekk. Umsjón Bolli og Sveinn.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
föstudag kl. 10–12.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund og
biblíulestur í Gerðubergi kl. 10.30–
12 í umsjón Lilju, djákna.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10–12. Fræðandi og skemmti-
legar samverustundir og ýmiss kon-
ar fyrirlestrar. Alltaf heitt á
könnunni, djús og brauð fyrir börn-
in.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 17. Fyrirbænaefnum
má koma til sóknarprests eða kirkju-
varðar.
Vídalínskirkja. Nú er biblíu- og
fræðsluhópurinn hættur fram á
haust en bæna- og kyrrðarstundirn-
ar verða áfram í sumar kl. 22 í
Vídalínskirkju. Hressing á eftir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf
fyrir 10–12 ára kl. 17–18.30.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
20 kóræfing kórs Landakirkju. Við-
talstímar presta eru þriðjudaga til
föstudaga kl. 11–12.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafund-
ur í Varmárskóla á fimmtudögum frá
kl. 13.15–14.30.
Kynning á
foreldra- og
barnamorgnum í
Langholtskirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Langholtskirkja.
FRÉTTIR
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is
„SÍÐASTLIÐIÐ vor stóðu iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneytið, Sam-
tök iðnaðarins, Útflutningsráð og
Nýsköpunarsjóður að myndun
starfshóps um stefnumótun í fata
og tískuiðnaði á Íslandi. Til að
framfylgja þeirri stefnu sem hóp-
urinn mótaði er fyrirhugað að
stofna félag um fatahönnun á Ís-
landi.
Tilgangur félagsins er að efla
samheldni meðal þeirra sem starfa
við fatahönnun á Íslandi, koma í
veg fyrir að réttur þeirra sé fyrir
borð borinn og stuðla að öllu því
er til framfara horfir í greininni.
Allir sem starfa við fatahönnun
og hafa því hagsmuna að gæta
hafa rétt til setu í félaginu og eru
hvattir til að mæta á stofnfundinn.
Stofnfundurinn er haldinn laug-
ardaginn 25. september næstkom-
andi í Húsi Málarans við Banka-
stræti, efri hæð, og hefst kl. 16.
Ekki er nauðsynlegt að skrá fyr-
irfram þátttöku í fundinum en fólk
er beðið að mæta tímanlega.
Fundarstjóri er Davíð Lúðvíksson
frá Samtökum iðnaðarins,“ segir í
fréttatilkynningu.
Fatahönnun-
arfélag Ís-
lands stofnað
LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur og
Skjár einn hafa tekið höndum sam-
an um fræðslu fyrir almenning um
heilbrigðismál í vetur.
Fræðslan er skipulögð þannig að
fyrst verður umfjöllun um tiltekið
heilbrigðismál í sjónvarpsþættinum
„Fólk með Sirrý“ á Skjá einum í
umsjá Sigríðar Arnardóttur kl.
21.00 á miðvikudagskvöldum.
Kvöldið eftir halda læknar stutt er-
indi og svara fyrirspurnum gesta.
Fyrsta efnið sem fjallað verður
um er ófrjósemisaðgerðir karla.
Rætt var við Guðjón Haraldsson,
dr. med., sérfræðing í þvagfæra-
skurðlækningum, í þættinum í gær-
kvöld. Guðjón mun síðan halda er-
indi og svara fyrirspurnum
fimmtudagskvöldið 13. september
kl. 20.00 í húsnæði læknasamtak-
anna, á 4. hæð, Hlíðasmára 8 í
Kópavogi.
Fræðsla um
heilbrigðismál
♦ ♦ ♦
Viltu prófa
nýtt lífsmunstur?
Þyrstir þig í nýja reynslu og ævintýri?
Viltu læra nýtt tungumál?
Ingólfsstræti 3 2. hæð sími 552 5450 www.afs.is
Viltu alþjóðlega menntun?
Meiri víðsýni? Meira sjálfstraust?
Ertu á aldrinum 15 - 18 ára?
Erum að taka á móti umsóknum til
fjölmargra landa. Brottför í janúar-
mars og júní-september 2002.
Ársdvöl, hálfsársdvöl og sumardvöl.
Alþjóðleg fræðsla
og samskipti
Njálsgötu 86 - sími 552 0978
Tilboðsdagar
Rúmfatnaður
og barnaföt
20-50% afsláttur
Jörð til sölu
Hlíð í Grímsnes- og
Grafningshreppi
Vorum að fá í einkasölu
jörðina Hlíð í Grímsnes-
og Grafningshreppi.
Jörðin er ca 1.200 ha. Á
jörðinni er 195,7 m² Steni-klætt steinsteypt íbúðarhús á einni
hæð, byggt árið 1977. Húsið telur sex svefnherbergi, stofu og
svefnloft. Á jörðinni stendur einnig 100,0 m² vélageymsla með
steyptu gólfi og gryfju, byggð árið 1985, 100,6 m² gamalt
íbúðarhús sem skráð er sem geymsla skv. FMR, byggt 1940,
hlaða og fjós, 103,0 m² fjárhús með áburðarkjallara, byggt árið
1992, og tveir braggar byggðir 1970 og 1976. Rafmagnsþilofnar.
Malarnámur. Gott útsýni. Tilboð óskast.
Nánari uppl. á skrifstofu.
Fasteignasala
lögmanna Suðurlandi
Austurvegi 3, 800 Selfossi.
Sími 482 2849, fax 482 2801
Netfang: fasteignir@log.is