Morgunblaðið - 13.09.2001, Side 52
DAGBÓK
52 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
R.S. hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
koma því á framfæri að
hún væri ósátt við niðr-
andi skrif um lúpínuna.
Segir hún að þetta sé eins
og kynþáttahatur og það
gagnvart jurt sem hefur
reynst mjög vel í upp-
græðslu á landi sem var
orðið auðn.
Fyrirspurn
SUMARIÐ 1944 fór fim-
leikaflokkur úr Glímu-
félaginu Ármanni í sýn-
ingarför um Vestfirði.
Fararstjóri var Jens Guð-
björnsson, bókbindari.
Þetta var 33 manna hóp-
ur. Frá Ísafirði fóru þeir á
báti að Arngerðareyri,
þaðan í bíl að Bakkaseli í
Langadal. Þar beið þeirra
Lúðvík Magnússon frá
Bæ í Króksfirði og félagar
hans tveir, þeir Hákon
Sveinsson frá Hofsstöð-
um, f. 1924, nú blikksmið-
ur í Borgarnesi, og Sig-
urður Þorbjarnarson, f.
1927, frá Fjarðarhorni í
Kollafirði. Í réttinni í
Bakkaseli biðu 39 hestar
en þeir félagar höfðu kom-
ið yfir Þorskafjarðarheiði
daginn áður. Nú spyr ég:
1. Hverjir voru í hópnum,
konur og karlar?
2. Eru til myndir úr för-
inni eða af flokkunum?
3. Hvaða daga var þessi
för farin og var hún e.t.v. í
sambandi við lýðveldis-
stofnunina 17. júní 1944?
Vinsamlegast ritið und-
irrituðum eða hafið sam-
band í síma eða með faxi.
Leifur Sveinsson,
Tjarnargötu 36,
Reykjavík. Pósth. 517.
Sími 551-3224,
fax: 551-3227.
Um flogaveiki
FYRIR nokkrum dögum
fór móðir mín á mynd-
bandaleigu og tók þar
mynd á leigu sem heitir
„First Do No Harm“ sem
er sannsöguleg mynd um
varanlega lækningu á
flogaveiki. Vil ég benda
þeim sem áhuga hafa á
þessum málum á að taka
þessa spólu á leigu.
Bjartmar Leósson.
Gott uppeldi
ÞÓRA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
koma á framfæri þakklæti
til Sigurþórs þar sem
hann vekur athygli á góðu
uppeldi í pistli sem birtist
í Velvakanda þriðjudaginn
11. september.
Góð grein
GUÐMUNDUR hafði
samband við Velvakanda
og vildi hann koma á
framfæri þakklæti til
Halldórs Jónssonar, verk-
fræðings, fyrir snilldar-
lega grein í síðasta laug-
ardagsblaði.
Tapað/fundið
Kvenúr týndist
KVENÚR týndist sl.
laugardag sennilega í eða
við Samkaup í Hafnarfirði
eða Hafnarfjarðarkirkju-
garði. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 565-7769.
Regnkápa tekin
í misgripum
LJÓS, stutt regnkápa var
tekin í misgripum í Lækj-
arbrekku 5. september.
Skilvís finnandi hafi sam-
band við Lækjarbrekku
eða í síma 553-5190.
Torfæra í Grindavík
SÓLGLERAUGU týnd-
ust á torfærunni í Grinda-
vík sl. laugardag og eru
þau eiganda sínum mjög
mikils virði. Hafi einhver
fundið sólgleraugu og
haldið þeim til haga vin-
samlega hringið í síma
861-4587.
Myndavél í óskilum
Í LOK ágúst fannst nýleg
myndavél í Heiðmörk. Ef
einhver kannast við kon-
urnar á myndinni er sá
hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 698-7931.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Lúpínan
reynst vel
Víkverji skrifar...
ÞEIM sem horfðu á sjónvarpið sl.þriðjudag líður þessi dagur lík-
lega seint úr minni, en þennan dag
var gerð hryðjuverkaárás á Banda-
ríkin. Fjöldi fólks féll og eignatjón
varð mikið. Það var að sumu leyti
erfitt að átta sig á að maður væri að
horfa á raunverulega atburði en
ekki bíómynd.
Það var vissulega erfitt að horfa á
þetta og verða vitni að því í beinni
útsendingu þegar þúsundir manna
létust. Víkverja fannst ekki síður
óþægilegt að horfa á fólk í Palestínu
og Líbýu fagna þessum hroðalegu
hryðjuverkum. Hvernig hugsar það
fólk sem þýtur út á götur til að fagna
þegar bræður þeirra og systur eru
að farast hinum megin á hnettinum?
Hvar er mannúðin? Hvar er siðferð-
iskenndin? Er virkilega til svo mikið
hatur í heiminum að fólk finni hjá
sér hvöt til að fagna þegar svona
hroðalegir atburðir verða?
x x x
ÞRIÐJUDAGSINS 11. septem-ber á eftir að verða minnst sem
eins þess versta í sögu Bandaríkj-
anna. Að öllum líkindum hafa farist
fleiri í þessum hryðjuverkaárásum
en fórust þegar Japanir gerðu árás
á Perluhöfn í seinni heimsstyrjöld-
inni, en sú árás markaði upphaf að
þátttöku Bandaríkjanna í styrjöld-
inni. Árás Japana þótti á þeim tíma
ægileg og fólk hryllti við manntjón-
inu. Þá vissu menn strax hver var
óvinurinn en nú standa menn
frammi fyrir óvini sem menn vita
ekki hver er. Baráttan gegn þessum
óvini kann því að verða erfið.
Krafan um að refsa þeim sem
stóðu að þessum árásum er hins
vegar eðlileg. Ljóst má vera að gíf-
urlegur þrýstingur verður á banda-
rísk stjórnvöld að grípa til allra
mögulegra aðgerða til að tryggja
öryggi þjóðarinnar. Vonandi tekst
fljótlega að varpa ljósi á hverjir
standa að baki þessum árásum og
vonandi tekst að uppræta starfsemi
þeirra.
x x x
ÝMSIR hafa haft áhyggjur af þvíað sífellt ofbeldisfyllri bíó-
myndir séu sýndar í sjónvarpi. Dag-
lega eiga sjónvarpsáhorfendur kost
á því að horfa á menn drepa aðra
menn. Það má vera að ekki séu allir
sammála um hvaða áhrif þetta hefur
á fólk en Víkverji hefur efasemdir
um að áhrifin geti verið jákvæð.
Áhyggjur manna beinast ekki síst
að því hvaða áhrif þetta hefur á
börn. Börn skortir oft eðlilegan
þroska til að greina á milli raun-
veruleikans og þess sem sett er á
svið í bíómynd.
Lengi var það regla hjá sjón-
varpsstöðvum á Íslandi að áhorf-
endur væru varaðir við myndum
sem innihéldu mikinn óhugnað.
Fram kom áður en myndirnar hóf-
ust að þær væru ekki við hæfi barna.
Víkverja sýnist sem dregið hafi úr
þessu þrátt fyrir að ekkert bendi til
þess að minna sé um ofbeldisfullar
myndir. Í vikunni sýndi Ríkissjón-
varpið sjónvarpsmynd sem byggð er
á sögu eftir bandaríska spennu-
sagnahöfundinn Stephen King. Vík-
verji varð þess ekki var að áhorf-
endur væru varaðir við því að atriði í
myndinni væru ekki við hæfi barna
og var hún þó ekki mjög seint á dag-
skránni þann virka dag sem hún var
sýnd. Þeim sem horfðu á myndina
hefur þó flestum eflaust orðið það
fljótlega ljóst að myndin var alls
ekki fyrir börn og var til þess fallin
að vekja óhug þeirra.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 ófullkomna, 8 staurs, 9
gerast oft, 10 eyða, 11
hálffrosinn snjór, 13
gyðju, 15 ljóma, 18 græn-
metistegund, 21 blaut, 22
rifja hey, 23 að baki, 24
drambsfull.
LÓÐRÉTT:
2 hefja, 3 gæti, 4 óborð-
andi, 5 heyið, 6 lof, 7 ill-
gjarn, 12 vindur, 14
tunna, 15 sigra, 16 sér
eftir, 17 kvenvarg, 18
vinna, 19 smá, 20 þyngd-
areining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fjöld, 4 fýlda, 7 útrás, 8 álfar, 9 arð, 11 akra, 13
ásar, 14 gómar, 15 berg, 17 skip, 20 ána, 22 læður, 23
ginin, 24 sælan, 25 arrar.
Lóðrétt: 1 fjúka, 2 ögrar, 3 dæsa, 4 fjáð, 5 lofts, 6 aðrir,
10 ræman, 12 agg, 13 árs, 15 bálks, 16 riðil, 18 konur, 19
pínir, 20 áran, 21 agða.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Helgafell fer í dag.
Dettifoss kemur og fer
í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkað-
ur í Kattholti, Stang-
arhyl 2, opinn þriðjud.
og fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laugar-
daga kl. 13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13.30 pútt-
mót, félagsmiðstöðin
Árskógar keppir við fé-
lagsmiðstöðina Hraun-
bæ, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan, kl. 10–16
púttvöllur opinn. Föstu-
daginn 21. september
verður sviðaveisla kl.
19. Dans á eftir, Hjör-
dís Geirs skemmtir.
Allar upplýsingar í
síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna og fótaaðgerð.
Haustlitaferð verður
þriðjudaginn 25. sept-
ember kl. 13. Ekið um
Kjósarskarð til Þing-
valla. Farið um Grafn-
ing og Línuveg heim.
Kaffihlaðborð í Nesbúð.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9–13
handavinnustofan opin,
kl. 14.30–15.30 söng-
stund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fótaaðgerðir
mánu- og fimmtudaga.
Uppl. í síma 565-6775.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Lagt verður af stað í
dagsferðina kl. 9 frá
Hraunseli. Kl. 13 verð-
ur námskeið í krukk-
umálun. Lokafundur
fyrir þátttakendur í
Pragferðinni verður
miðvikd. 19. sept. kl.
13. Á morgun verður
bridge kl. 13:30 og
púttað á vellinum við
Hrafnistu kl. 14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. kaffistofan er
opin virka daga kl. 10–
13. Matur í hádeginu
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Haustfagnaður
FEB og ferðakynning
Heimsferða verða hald-
in á morgun, föstudag.
Húsið opnað kl. 18.30,
veislustjóri Sigurður
Guðmundsson, matur,
Ekkókórinn syngur,
Edgar og Símon úr
hljómsveitinni God-
speed syngja með gít-
arleik, leikarar úr
Snúði og Snældu
skemmta, ferðakynn-
ingar, happdrætti,
Hjördís Geirs og Guð-
mundur Haukur sjá
um dansinn. Haustlita-
ferð til Þingvalla 22.
september kvöldverður
og dansleikur í Básn-
um. Leiðsögn Pálína
Jónsdóttir og Ólöf Þór-
arinsdóttir. Skráning
hafin. Námskeið í
framsögn og upplestri
hefst fimmtudaginn 27.
september kl. 16.15.
Kennari Bjarni Ing-
varsson. Skráning haf-
in á skrifstofunni.
Ákveðið hefur verið að
halda námskeið í brids
á miðvikudagskvöldum,
kennari Ólafur Lárus-
son, skráning hafin á
skrifstofu. Farið verð-
ur til Kanaríeyja 20.
nóvember á sérstökum
vildarkjörum. Upplýs-
ingar og skráning á
skrifstofunni. Silfurlín-
an er opin á mánu- og
miðvikudögum kl. 10–
12. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10–
16, s. 588-2111.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Í dag kl. 9 að-
stoð við böðun, bók-
band og almenn
handavinna, kl. 11 létt
leikfimi, kl. 14 sagan, á
morgun, föstudag verð-
ur skemmtun með
Ólafi B. Ólafssyni og
Ingibjörgu Aldísi
Ólafsdóttur sópran-
söngkonu. Skemmtunin
byrjar kl. 14. Allir vel-
komnir.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi,
kl. 15.15 dans.
Gerðuberg, félags-
starf. Sund- og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.30, kl.
10.30 helgistund, frá
hádegi spilasalur og
vinnustofur opnar, m.a.
glermálun. Veitingar í
veitingabúð Gerðu-
bergs. Miðvikudaginn
19. september verður
farið í heimsókn í Sjó-
minjasafnið í Hafnar-
firði, leiðsögn um safn-
ið, m.a. útskurðar-
sýning Siggu á Grund,
skráning hafin, kaffi
drukkið í Kænunni í
Hafnarfirði. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30 klippi-
myndir, taumálun, kl.
9–15, kl. 9.05 og 9.50
leikfimi., kl. 13 gler- og
postulínsmálun, kl.
17.15 kínversk leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Söngur í Gull-
smára, gleðigjafarnir
koma sama og syngja á
föstudaginn kl. 14–15,
allir velkomnir. Mynd-
listarsýning Steinunnar
Bjarkar Sigurðardóttur
er í Listahorninu í Gull-
smára.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Púttkeppni verður í Ár-
skógum í dag, fimmtu-
dag, kl. 13.30, lið Ár-
skóga og Hraunbæjar
keppa. Föstudaginn 14.
sept. kl. 14. verður
Lára V. Júlíusdóttir
lögfræðingur með
fræðslu um erfðamál.
Lára svara spurningum
frá gestum, kaffiveit-
ingar, allir velkomnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 13
handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10–11
ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl.
10–11 boccia, kl. 13–14
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing. Á morgun, föstu-
dag, dansað við lagaval
Halldóru, eplakaka með
rjóma í kaffitímanum.
Vetrardagskráin tilbú-
in. Kóræfingar hefjast
mánud. 17. sept.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
hárgreiðsla, kl. 9.30
morgunstund og hand-
mennt, kl. 10 boccia og
fótaaðgerðir, kl. 13
frjálst spil, kl. 14 leik-
fimi.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla
mánudaga og fimmtu-
daga. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Bridsdeild FEBK í
Gullsmára.
Ga-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ, Síðumúla 3–5, og
í Kirkju Óháða safnað-
arins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra Kópavogi. Æfing-
ar/haustkynningar
verða í Digraneskirkju
fimmtudaginn 13. sept-
ember og föstudaginn
14. september kl. 11.15.
Sjálfsbjörg, félags-
heimilið Hátúni 12. Kl.
19.30 tafl í Rauða sal.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi, fyrirhugar
ferð á Njáluslóðir laug-
ardaginn 6. október.
Lagt af stað frá Digra-
nesvegi 12 kl. 12. Leið-
sögumaður Arthúr
Björgvin Bollason.
Sögusetrið á Hvolsvelli
tekur á móti gestum
með þriggja rétta
veislumáltíð að hætti
fornra höfðingja sem
snæddur er við langeld.
Sýndur er leikþáttur
þar sem Hallgerður og
Bergþóra eru í aðal-
hlutverkum. Að lokum
er stiginn dans. Sæta-
fjöldi er takmarkaður
við 40. Upplýsingar og
skráning hjá Ólöfu í
síma. 554-0388 eða Sig-
urbjörgu eftir kl. 17 í
síma 554-3774.
Í dag er fimmtudagur 12. sept-
ember, 255. dagur ársins 2001. Orð
dagsins: Betri er þurr brauðbiti
með ró en fullt hús af fórnarkjöti
með deilum.
(Orðskv. 17, 1.)