Morgunblaðið - 13.09.2001, Side 53

Morgunblaðið - 13.09.2001, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2001 53 DAGBÓK HAUST Í FLASH Flauelisjakkar með og án hettu 6.990 Litir: Svart og ljóst Stærðir 10-16 Laugavegi 54, sími 552 5201 Persónuleg og fagleg ráðgjöf Klipping innifalin Dóróthea Magnúsdóttir Hugrún Stefánsdóttir hárkollu- og hársnyrtifræðingar Skólavörðustíg 10. Tímapantanir í síma 511 2100 HÁRKOLLUR NÝ GERÐ Haustvörurnar komnar Sendum í póstkröfuGullbrá, Nóatúni 17, sími 562 4217 BOOTS SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 ATH! Nýr opnunartími: Mán.-fös. kl. 12-18, lau. kl. 10-16 FIMMTUDAGSTILBOÐ Dömustígvél - fóðruð Teg.: SAB 275036309 Stærðir: 36-42 Litur: Svartur Verð áður 10.995 Verð nú 5.995 Dömumokkasíur Teg.: SAB 6129 Stærðir: 36-42 Litur: Svartur Verð áður 5.995 Verð nú 2.995 30% afsláttur af merkjavöru STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert þannig gerður að vilja láta verkin tala. Þú ert holl- ur þeim málstað sem þér finnst góður. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það gæti valdið þér ruglingi að blanda saman einkamál- um og verkefnum vinnunnar. Þú verður að leggja það á þig sem þarf til að aðskilja þetta. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þér finnst eins og allir geri kröfur til þín, en þú vitir ekki hvað þeir vilja. Það er í lagi, flestir eiga ekkert með að gera kröfur til þín. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú vildir helst vera einhvers staðar annars staðar í ljúfum draumum. En allt hefur sinn tíma og þú verður að sinna starfi þínu af kostgæfni. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur í mörg horn að líta varðandi stefnumót og heim- sóknir. Dreifðu þessu á lengri tíma svo þér finnist þú ekki lifa undir fargi þessa vegna. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Láttu það ekki draga úr gleði þinni, þótt einhverjir sam- starfsmanna þinna hafi horn í síðu þinni. Þeir eru bara öf- undsjúkir og fúlir. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Farðu varlega, þegar þú kemst að leyndarmáli um einn vinnufélaga þinn. Mundu að margar stað- reyndir má túlka á fleiri en einn veg. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Láttu engan texta frá þér fara fyrr en þú ert fullviss um að hann geti ekki valdið neinum misskilningi. Menn eru svo fljótir að álykta. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert í náðinni hjá vinnu- félögum og yfirmönnum þín- um. Það er sjálfsagt að njóta þess, en gættu þess um leið að misnota ekki aðstöðu þína. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú þarft að venja þig á að vera skjótráður án þess að vera hroðvirkur. Galdurinn er að einbeita sér að því sem skiptir máli; hitt mætir af- gangi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Reyndu að halda aðeins aftur af hvatvísi þinni. Hún skapar þér óvinsældir og þú þarft ekki á þeim að halda á þess- um viðkvæmu og vandasömu dögum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Láttu ekki lokka þig til sam- komulags, sem þú ert óör- uggur gagnvart. Farðu yfir öll efnisatriði og gefðu þér tíma til þess að vega þau og meta. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Tvítékkaðu alla hluti sem þú lætur frá þér fara í dag. Mis- skilningurinn er fljótur að verða til ef menn þurfa að geta í einhverjar eyður. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Á EVRÓPUMÓTINU 1961 átti Bretinn Tony Priday út gegn sjö spöðum með þessi spil í vestur: Vestur ♠ G ♥ K9 ♦ 843 ♣ÁG108653 Vestur Norður Austur Suður 3 lauf Dobl Pass 4 spaðar Pass 5 lauf Pass 7 spaðar Pass Pass Pass Eftir opnun Pridays á þremur laufum voru Ítal- irnir Cremoncini og Mascheroni snöggir upp í sjö spaða. Hvar myndi les- andinn koma út? Bretar unnu þetta Evr- ópumót af miklu öryggi, en þetta var ekki þeirra besta spil. Priday hafði of mikla trú á mótherjum sínum og ákvað að trompa út: Norður ♠ ÁK105 ♥ Á72 ♦ ÁDG52 ♣ K Vestur Austur ♠ G ♠ 63 ♥ K9 ♥ G10643 ♦ 843 ♦ 106 ♣ÁG108653 ♣D974 Suður ♠ D98742 ♥ D85 ♦ K97 ♣2 Cremoncini þakkaði þannig fyrir sig: Hann tók aftur tromp, kláraði svo tíglana og henti laufi og hjarta heima. Því næst spil- aði hann trompunum til enda og þvingaði vestur með hjartakóng og laufás. Þrettán slagir. Eftir spilið gat Priday ekki stillt sig um að spyrja Cremoncini hvers vegna í ósköpunum hann hefði stokkið í alslemmu með ásalausa hönd. „Al- slemmu?“ hváði Cremonc- ini og var brugðið. Þetta var fyrir tíma sagnmiðanna og enska Ítalans var ekki mjög góð. Það kom á dag- inn að Cremoncini ætlaði sér að segja sex spaða, en sagði óvart sjö! Ef þetta er ekki salt í sárin … BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT Í HLÍÐARENDAKOTI Fyrr var oft í koti kátt, krakkar léku saman. Þar var löngum hlegið hátt, hent að mörgu gaman. Úti um stéttar urðu þar einatt skrýtnar sögur, þegar saman safnazt var sumarkvöldin fögur. Eins við brugðum okkur þá oft á milli bæja til að kankast eitthvað á eða til að hlæja. Margt eitt kvöld og margan dag máttum við í næði æfa saman eitthvert lag eða syngja kvæði. Bænum mínum heima hjá Hlíðar brekkum undir er svo margt að minnast á, margar glaðar stundir. Því vill hvarfla hugurinn, heillavinir góðir, heim í gamla hópinn minn, heim á fornar slóðir. Þorsteinn Erlingsson STAÐAN kom upp á Skák- þingi Íslands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu í Hafnarfirði. Bragi Þorfinns- son (2371) hafði svart gegn Jóni Viktori Gunnarssyni (2404) í fyrstu umferð mótsins, en hann hafði deginum áður komið frá HM 20 ára og yngri í Aþenu í Grikklandi. Kannski var það skýr- ingin á því að hann veitti hvítum ekki náðarhöggið í stöðunni. 22... Hh4?? Hið einfalda 22... Dxe4 hefði þvingað hvítan til uppgjafar. Í framhaldinu nær hvítur að styrkja stöðu sína og nýta sér peðaveikleika svarts. 23. Be3 Be7 24. Had1 Dh5 25. Bg1 Df7 26. b3 Hh6 27. h3 a5 28. Bh2 He6 29. Dc3 Dh5 30. Dxa5 c5 31. Dc3 Bd6 32. Hd2 Rc8 33. De3 h6 34. Rxc5 Hg6 35. Re4 Bb4 36. Hd5 Rd6 37. Hxe5 Rf5 38. Dd3 Bd6 39. Rxd6 cxd6 40. Dd5+ Kh7 41. He4 Dg5 42. Hg4 De7 43. Hxg6 Kxg6 44. g4 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Ljósmst. Mynd, Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júlí sl. í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði af sr. Ein- ari Eyjólfssyni Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir og Símon G. Jónsson. Heimili þeirra er í Hafnarfirði. Ljósmst. Mynd, Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 12. maí sl. í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði af sr. Ein- ari Eyjólfssyni Málfríður Hrund Einarsdóttir og Þór Sigurðsson. Heimili þeirra er í Hafnarfirði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessir duglegu drengir héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu 4.100 kr. Þeir eru f.v.: Hörður Jónsson, Arnaldur Ingi Jónsson, Arnar Kári Ágústsson og Eyvindur Örn Bárðarson. Á myndina vantar Ríkharð Frið- geirsson. Hlutavelta Árnað heilla MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík       

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.