Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 1
290. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 18. DESEMBER 2001
MIKLAR vetrarhörkur eru víða í
Evrópu, samgöngur hafa farið úr
skorðum og þorp og bæir lokast
inni vegna snjóa. Hundruð manna
hafa orðið úti í Austur-Evrópu,
117 í Póllandi og meira en 200
manns í Moskvu einni, en kulda-
kastið er ekki bundið við álfuna
norðanverða, heldur nær það líka
til Miðjarðarhafslandanna.
Á Spáni, í Frakklandi, á Kors-
íku, Ítalíu og Grikklandi hafa
hundruð þorpa snjóað inni og víða
eru fjölfarnir fjallvegir, til dæmis
á milli Frakklands og Spánar, lok-
aðir.
Í Sviss var frostið víða 30 gráður
í gær og sami gaddur var á Ítalíu í
fyrradag. Í Grikklandi var frostið
víða 10 gráður og 15 á Spáni.
Myndin var tekin í gær í bænum
Cosenza á Suður-Ítalíu en snjó-
þyngslin þar eru miklu meiri en í
norðurhluta landsins og þau mestu
í manna minnum, að sumra sögn.
AP
Mestöll Evrópa í klakaböndum
AFGANSKT herlið og bandarískar
sérsveitir ráku í gær flótta liðs-
manna al-Qaeda, hryðjuverkasam-
taka Osama bin Ladens, en talið er,
að þeir muni reyna að komast yfir til
Pakistans. Meira en 200 þeirra féllu í
átökunum um hellakerfið í Tora
Bora og nokkrir tugir voru hand-
teknir. Voru sumir þeirra sýndir
fréttamönnum í gær.
Bandarískar herflugvélar héldu
uppi árásum í gær fyrir sunnan Tora
Bora, nær pakistönsku landamær-
unum, en talsmaður bandaríska
varnarmálaráðuneytisins sagði, að
al-Qaeda-liðar yrðu ekki eltir inn í
Pakistan. Sagði hann, að nokkrir
tugir þeirra hefðu verið handteknir
þar í landi.
Ekki er vitað hvar bin Laden felur
sig en haft er eftir sumum föngum,
að hann hafi verið í Tora Bora fyrir
mánuði en aðrir segja, að hann hafi
verið þar sl. laugardag. Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær, að hern-
aðinum gegn al-Qaeda lyki ekki fyrr
en síðustu leifar samtakanna hefðu
verið upprættar. Það myndi þó taka
sinn tíma.
Segjast vita um Omar
Haji Gulalai, yfirmaður leyniþjón-
ustu nýrra ráðamanna í Kandahar,
sagði í gær, að Mohammed Omar,
leiðtogi talibana, og um 500 manns,
talibanar og al-Qaeda-liðar, væru í
bænum Baghran, um 160 km norð-
vestur af Kandahar. Yrði hann eltur
þangað og hengdur þegar hann næð-
ist. Bandaríkjamenn hafa sett rúman
milljarð ísl. kr. honum til höfuðs.
18 liðsmenn al-Qaeda, níu Afganar
og níu arabar, voru sýndir frétta-
mönnum í gær í litlu þorpi ekki fjarri
Tora Bora. Voru þeir flestir illa til
reika, sumir særðir, og báðu Afg-
anana að láta sig ekki í hendur
Bandaríkjamanna. Í þeirra hópi eru
að sögn tveir háttsettir al-Qaeda-
menn en einnig 17 ára unglingur frá
Kúveit. Kvaðst hann hafa komið með
föður sínum til að berjast með al-
Qaeda en nú væri faðir sinn fallinn.
Þorpsbúarnir sögðu, að arabarnir
hefðu sýnt þeim hroka og fyrirlitn-
ingu þegar vegur þeirra var mestur
en nú þyrðu þeir ekki að horfast í
augu við þá.
Bretar í forystu fyrir gæsluliði
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að allt að
1.500 breskir hermenn myndu verða
í alþjóðlegu gæsluliði, sem sent verð-
ur til Afganistans, hugsanlega strax
næstkomandi laugardag að ein-
hverju leyti. Sagði hann, að í liðinu
yrðu menn frá 15 ríkjum, þar af
tveimur múslímaríkjum. Afgönsku
ráðherrarnir, sem taka formlega við
völdum á laugardag, vilja, að í gæslu-
liðinu verði aðeins 1.000 manns og
því verði bannað að beita vopnum en
Blair sagði, að ekki yrði eftir því
farið. Liðið væri nauðsynlegt til að
tryggja friðinn í Kabúl og aðstoða
við hjálparstarf.
Al-Qaeda-liðar reyna að
komast yfir til Pakistans
Mohammed Omar sagður vera
í Baghran með 500 manna lið
Tora Bora, Kandahar. AP, AFP.
Al-Qaeda/30
AP
Þrír liðsmenn al-Qaeda, sem sýndir voru fréttamönnum í þorpinu Agom
í gær. Þeir óttuðust það mest að verða afhentir Bandaríkjamönnum.
TALSMENN þriggja herskárra
samtaka Palestínumanna höfnuðu í
gær áskorun Yassers Arafats, leið-
toga Palestínu-
manna, um að
slíðra sverðin og
gera hlé á sjálfs-
morðsárásum.
Viðbrögð Ariels
Sharons, for-
sætisráðherra
Ísraels, við
áskoruninni voru
að halda áfram
hernaðaraðgerðum og voru þrír Pal-
estínumenn, þar af eitt barn, skotnir
til bana af ísraelskum hermönnum í
gær.
Talsmaður Jihad-samtakanna
sagði í Beirút, að enginn gæti svipt
Palestínumenn réttinum til sjálfs-
varnar og talsmaður Hamas sagði,
að í ræðu sinni á sunnudag hefði
Arafat í raun hvatt til, að allri and-
stöðu við hernám Ísraela yrði hætt.
Við því væri ekki hægt að verða.
Í ræðu sinni sagði Arafat, að þeir
yrðu handteknir, sem réðust gegn
Ísraelum, og hvatti hann jafnframt
til, að friðarviðræður yrðu teknar
upp að nýju. Í gær sagði hann, að
Ísraelar hefðu svarað ræðu sinni
með auknum hernaði. Þá skutu Ísr-
aelar til bana á Vesturbakkanum
einn félaga í Hamas og palestínskan
lögreglumann og á Gaza skutu þeir
12 ára dreng. Engin átök voru þá á
svæðinu.
Peres vill gefa Arafat tíma
Talsmaður Sharons sagði í gær,
að Arafat yrði að sýna það í verki, að
hann gæti komið í veg fyrir hryðju-
verkaárásir á Ísrael og undir það
tók Bandaríkjastjórn í gær er hún
skoraði á Arafat að sýna það svart á
hvítu, að hann ætlaði að binda enda
á hryðjuverk Palestínumanna gegn
Ísraelum. Shimon Peres, utanríkis-
ráðherra Ísraels, lagði hins vegar
áherslu á, að gefa yrði Arafat tíma
til að sýna hvers hann væri megn-
ugur.
Ísraelar handtóku í gær um
stundarsakir Sari Nusseibeh, hóf-
saman Palestínumann og fulltrúa
heimastjórnarinnar í Austur-Jerú-
salem. Var honum gefið að sök að
hafa efnt til „ólöglegrar“ veislu.
Brást Bandaríkjastjórn óvanalega
hart við handtökunni og sakaði Ísr-
aelsstjórn um ögranir.
Ákalli Ara-
fats lítið sinnt
Þrír Palestínumenn skotnir, þar
á meðal tólf ára drengur
Jerúsalem, Beirút. AP, AFP.
Áskorun/28
Yasser Arafat
NOKKUR hópur breskra
presta sækir nú námskeið í
austurlenskri sjálfsvarnarlist
til að geta varist vanstilltum
sóknarbörnum sínum og
öðrum hættum, sem að þeim
steðja.
Prestarnir fá kennslu í „tae
kwon do“, kóreskri stríðslist,
sem líkist karate, en rann-
sóknir sýna, að oftar er ráðist
á kennimenn en fólk í öðrum
stéttum. Eru árásarmennirnir
stundum heimilislaust fólk eða
vanheilt á geði en stundum
sjálf sóknarbörnin, sem reiðast
þegar þau fá ekki einhvern til-
tekinn dag fyrir giftingu eða
skírn. Á síðustu fimm árum
hafa sex breskir prestar verið
myrtir.
Könnun meðal 1.300 presta
á Suðaustur-Englandi sýnir,
að ráðist hefur verið á 12%
þeirra, 22% hefur verið hótað
ofbeldi og 70% hafa orðið fyrir
grófum móðgunum. Á síðustu
árum hefur konum fjölgað
verulega í bresku prestastétt-
inni, en ljóst er, að sumir eiga
erfitt með að sætta sig við það.
Hefur það verið undirrót
nokkurra árása.
Sálusorg-
urum
kennd
sjálfsvörn
Lundúnum. AP.