Morgunblaðið - 23.12.2001, Page 38
38 B SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
bíó
SVARTUR hundur trítlar upp úrhafinu og hristir af sér sjóinn.Hann tekur á rás eftir strönd-
inni og nemur staðar skammt frá
húsi við jaðar lítils sjávarþorps fyrir
vestan. Inni í húsinu eru íbúarnir,
hinn ungi og fengsæli skipstjóri
Valdimar (Hinrik Ólafsson) og stúlk-
an Unnur (Margrét Vilhjálmsdóttir),
að vakna til nýs dags sem mun breyta
lífi þeirra, brúðkaupsdagsins. Fyrir
utan bíður svarti hundurinn, eins og
átekta. Um leið og skipstjórinn kveð-
ur til að halda niður á kæja hleypur
hundurinn inn í húsið og upp í svefn-
herbergið þar sem þau Unnur horf-
ast í augu. Á brúðkaupsnótt er brúð-
urin horfin.
Fallegt upphafsatriði kvikmyndar-
innar Í faðmi hafsins er fyrirboði;
þorpið vaknar til lífsins, mikið stend-
ur til og veisla í vændum en í sam-
klippu mannlífsins á landi og þess
sem býr í djúpinu myndast drama-
tísk spenna um það sem koma skal,
studd af lágstemmdri tónlist Daníels
Á. Haraldssonar og Hildar Jóhann-
esdóttur; hér heyrist niður frá þungri
undiröldu örlaganna.
Handrit myndarinnar skrifa leik-
stjórarnir ásamt Hildi Jóhannesdótt-
ur, sem er eiginkona Jóakims. Það er
í eðli sínu íslensk nútímaþjóðsaga um
náið og dulmagnað sambýli fólks og
sjávar; Í faðmi hafsins er áreiðanlega
einhver „íslenskasta“ kvikmynd sem
gerð hefur verið. Handritið hlaut
fullnaðarstyrk í þriggja áfanga
vinnsluferli Kvikmyndasjóðs Íslands
en fékk hins vegar ekki framleiðslu-
styrk. Þeir félagar Lýður og Jóakim
réðust því í að fjármagna og fram-
leiða myndina sjálfir í samvinnu við
Nýja bíó, réðu til sín fagfólk, eins og
Guðmund Bjartmarsson tökumann,
og atvinnuleikara, auk fjölda áhuga-
leikara úr byggðum Vestfjarða. Og
þeir komu myndinni á áfangastað,
þ.e. upp á tjald á Vestfjörðum en aðr-
ir Íslendingar munu sjá hana í Sjón-
varpinu um næstu páska. Ég spyr þá
félaga hvers vegna myndin verði ekki
sýnd á tjöldum kvikmyndahúsanna
utan Vestfjarða .
Jóakim: „Það kom okkur þægilega á
óvart hvað Sjónvarpið sýndi mynd-
inni mikinn áhuga og þegar þeir
gerðu okkur tilboð um að frumsýna
hana á landsvísu ákváðum við að taka
því. Við höfum ekki haft úr miklum
peningum að spila til að gera þessa
mynd og til þess að koma henni á
filmu og tjald fyrir stóra bíósali
þurftum við aukið fjármagn. Sjón-
varpið tók auk þess mjög vel í þá ósk
okkar að myndin yrði sýnd í bíóum
fyrir vestan og þangað liggur leiðin
um jólin. Myndin er jú hálfvestfirsk,
fjöldi Vestfirðinga kemur við sögu og
því ekki annað hægt. Við frumsýnum
í gamla bíóhúsinu á Flateyri annan í
jólum og síðan verða sýningar í Ísa-
fjarðarbíói og víðar um firðina.“
Sauðþrjóskir í andstreyminu
Eru það ekki vonbrigði að geta
ekki sýnt afrakstur mikillar vinnu á
tjaldinu fyrir allan almenning?
Lýður: „Já og nei. Já, að því leyti að
sjálfur tel ég sess myndarinnar vera
á breiðtjaldi enda upphaflegt mark-
mið þangað. Því miður deildu styrk-
veitendur ekki þessari sýn með okk-
ur. Nei hinsvegar, að því leyti að ég
er himinlifandi með útkomuna og læt
engin breiðtjöld, hvít eða svört,
skyggja á þá gleði.“
Var áfall að fá ekki framleiðslu-
styrk?
Jóakim: „Vonbrigði en ekkert rot-
högg. Og eftir á, held ég að það hafi
bara þjappað okkur betur saman. Við
erum sauðþrjóskir, þannig að þrátt
fyrir svolítið andstreymi kom aldrei
til greina að hopa út af einhverri
nefnd eða stofnun úti í bæ. Við höfð-
um líka alltaf trú á að við værum með
gott efni í höndunum og það dró okk-
ur áfram.“
Þeir segja að þrátt fyrir allt hafi
framleiðsluferlið gengið vel.
Lýður: „Á köflum strembið, en í
heildina vel. Strax í upphafi ákváðum
við að taka bara eitt skref í einu, finna
hugrakkan meðframleiðanda, safna
fyrir upptökuferlinu, síðan hlé og
loks ýta eftirvinnslunni úr vör. Núna,
að
leiðarlokum skuldum við hvorki
ríki né bæ, ekki mönnum, hugsanlega
guði en sá vill frekar hjartahlýju en
gull. Myndin var dýr; kvikmyndir eru
dýrar. Hinsvegar tel ég þann kostn-
aðarramma sem kvikmyndagerðar-
menn ætla myndum sínum sé í mörg-
um tilvikum ofblásinn. Þannig er ég
ekki fráhverfur því að Kvikmynda-
sjóður endurskoði úthlutanir sínar í
þá veru að styrkupphæðir lækki en
aðnjótendum fjölgi. Ég held að ís-
lenskri kvikmyndagerð yrði mikill
greiði með því ger.“
Hin undarlega þörf
Það hefur ekki vafist fyrir ykkur
að leikstýra langri leikinni bíómynd
án mikillar reynslu?
Jóakim: „Við höfum dundað svo
mikið, ég og Lýður, sl. ár að við ef-
uðumst aldrei um að við gætum unnið
saman. Þó svo að við séum hvorugur
kvikmyndargerðarmaður að mennt
þá var það samt sem áður hún sem
leiddi okkur saman. Ég sá Lýð fyrst
bograndi yfir upptökuvél umkringd-
an mýi lengst uppi í Hítardal, að
sjálfsögðu að taka mynd. Við höfðum
þá verið að leika okkur að kvik-
myndagerð hvor í sínu horni í mörg
ár en fljótlega stofnuðum við kvik-
myndafélagið okkar, Í einni sæng,
þar sem hugarfóstur okkar hafa
fengið að dafna síðan.“
Hvaðan kemur sá mikli áhugi ykk-
ar á kvikmyndagerð sem leiðir ykkur
út í að taka þessa áhættu?
Jóakim: „Ef maður hefði nú hug-
mynd um það. En kannski er þetta
einhver undarleg þörf fyrir að koma
einhverju til skila og í okkar tilfelli er
kvikmyndin farvegurinn.“
Þú ert sonur Reynis Oddssonar
sem tók þá áhættu að gera kvik-
myndir áður en „íslenska kvik-
myndavorið“ gekk í garð. Hann er
einn þeirra sem fá þakkir í lok mynd-
arinnar. Hvað áttu honum að þakka í
þessu samhengi?
Jóakim: „Fyrst og fremst góð ráð
sem reyndust vel. Hann réðst ekki á
garðinn þar sem hann var lægstur á
sínum tíma og hefur mikla reynslu.“
Myndin hefur fjölskrúðugan leik-
hóp, samsettan af bæði áhugaleikur-
um og atvinnuleikurum. Meira að
segja Einar Oddur Kristjánsson er
afar trúverðugur sóknarprestur.
Hvernig gekk að ná leikhópnum sam-
an?
Jóakim: „Það gekk sérdeilis vel.
Uppistaðan í hópnum er jú frábærir
leikarar sem áhugaleikararnir áttu
mjög auðvelt með að vinna með. Ég
held að þessi blanda hafa virkað vel í
alla staði.“
Var ekkert erfitt að sannfæra at-
vinnuleikarana og annað fagfólk um
að taka þátt í mynd tveggja áhuga-
leikstjóra?
Lýður: „Engan vegin. Sagan vakti
áhuga og fæstir pældu í titlatogi.
Reyndar var alltaf skilyrði hjá
okkur að nota fagfólk beggja vegna
tökuvélarinnar og það gekk eftir.
Ekki endilega skólagengið heldur
fólk með reynslu sem kunni að vera
með í mynd og kunni sig einnig þess á
milli. Ég hef kynnst læknum sem vita
ekki muninn á hlaupabólu og hlaup-
asting og jafnframt kvikmyndalærðu
fólki sem veit ekki hve margar lappir
eru á þrífæti og nú síðast presti sem
kenndi ekki guðlax frá venjulegum
laxi. Fagfólk er fyrst og fremst fólk
sem gerir greinarmun á því sem er og
því sem á að vera. Okkar fólk var allt
fagfólk eftir þessari skilgreiningu.“
Með hafið í aðalhlutverki
Hvernig fæddist hugmyndin að
sögunni?
Lýður: „Upphaflega í hausnum á
Jóakim. Maður sem kom úr hafinu og
gekk á land með örlagarík skilaboð.
Jóakim sauð upp úr þessu stuttmynd
Það býr í
djúpinu
Í heilagt hjónaband: Einar Oddur Kristjánsson í hlutverki sóknarprestsins gefur
Unni og Valdimar saman.
Valdimar: Hinrik Ólafsson sem skipstjóri og brúðgumi. Unnur: Margrét Vilhjálmsdóttir sem brúðurin dularfulla.
Hafið bláa hafið: Skipið siglir á einum aðalleikaranna.
Í faðmi hafsins heitir ný íslensk bíómynd, sem þó verð-
ur ekki sýnd í bíóum nema á Vestfjörðum, þar sem hún
verður frumsýnd annan í jólum. Leikstjórarnir eru tveir
og báðir áhugamenn í faginu, Jóakim Reynisson, verk-
fræðingur í Reykjavík, og Lýður Árnason, læknir á Flat-
eyri. Þeir segja Árna Þórarinssyni frá fæðingu óvenju-
legrar og athyglisverðrar kvikmyndar.
Morgunblaðið/Ásdís
Lýður og Jóakim: Læknir á Flateyri og verkfræðingur í Reykjavík gerðu saman
bíómynd, sem tekin var í heimahéraði læknisins.