Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 19
Byr í seglin
Í dag efna sjálfstæðismenn í Kópavogi til opins prófkjörs.
Öflug þátttaka bæjarbúa er mikils virði. Hún staðfestir virðingu
fyrir því mikla uppbyggingarstarfi sem unnið hefur verið á
undanförnum árum og undirstrikar að listi Sjálfstæðisflokksins
verður grundvallaður á lýðræðislegu vali stórs hluta bæjarbúa.
Síðast en ekki síst gefur glæsilegt prófkjör okkur dýrmætan
byr í seglin í kosningabaráttunni fram á vorið.
Ég skora á Kópavogsbúa að gefa tóninn með því að fjölmenna
á kjörstað, stilla upp sterkum lista Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi og hvetja frambjóðendur um leið til dáða í að-
draganda kosninganna og verkefnum næstu ára.
Með bestu kveðju,
Opið prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
í dag, laugardag, kl. 10-22
í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2
Rétt til þátttöku hafa allir Kópavogsbúar sem undirrita yfirlýsingu um
stuðning við áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins og hafa kosningarétt í
sveitarstjórnarkosningunum 25. maí næstkomandi.
MAGN krabbameinsvaldandi efnis
yfir ákveðnum viðmiðunarmörkum
hefur greinst í nokkrum tegundum
ólífuolía og jómfrúarolía, en a.m.k. ein
tegundin er seld hér á landi. Þetta
kemur fram í niðurstöðum rannsókn-
ar sem Livsmedelsverket í Svíþjóð
gerði á 32 olíutegundum; 25 jómfrúar-
olíum og sjö ólífuolíum.
Til eru sex flokkar ólífuolía þar sem
kaldpressuð jómfrúrolía er í hæsta
gæðaflokki og ólífuolía úr hrati í þeim
lægsta, en hún er unnin úr mauki sem
verður eftir við framleiðslu á jómfrú-
arolíu.
Sex þeirra tegunda sem rannsak-
aðar voru reyndust innihalda PAH
(polycyclic aromatic hydrocarbons)
yfir hámarksgildum, en PAH er hóp-
ur krabbameinsvaldandi efna. Þær
teljast því óhæfar til neyslu og ættu
ekki að vera í hillum verslana, að mati
Hollustuverndar Svía. Niðurstöður
rannsóknarinnar voru birtar og
ræddar á vefsíðu sænska dagblaðsins
Aftonbladet í gær.
PAH-gildi olía á íslenskum
markaði undir
viðmiðunarmörkum
Meðal þeirra olía sem samkvæmt
sænsku rannsókninni mælast með
PAH-gildi yfir hámarksmörkum eru
Filippo Berio Extra Virgin olía og Fil-
ippo Berio ólífuolía. Sesselja María
Sveinsdóttir, matvælafræðingur á
matvælasviði Hollustuverndar ríkis-
ins, segir að samkvæmt rannsóknar-
niðurstöðum, sem óháðar erlendar
rannsóknarstofur hafa gefið út, sé
PAH-gildi Filippo Berio olíanna sem
seldar eru hér á landi undir hámarks-
mörkum.
Átta efni úr hópi PAH eru talin
krabbameinsvaldandi að sögn Sess-
elju. „Til stendur að reglur Evrópu-
sambandsins verði á þann veg að gildi
þessara átta efna megi ekki fara yfir 2
mikrógrömm á kíló hvert fyrir sig og
samanlagt ekki yfir 5 míkrógrömm.“
Sesselja segir ekki enn víst hvenær
reglunar muni taka gildi. Í töflu sem
fylgdi grein Aftonbladet um rann-
sóknina er ekki tiltekið magn hvers
efnis PAH-hópsins fyrir sig.
Innflutningur á ólífuolíu hefur ver-
ið undir ströngu eftirliti hér á landi
frá því í ágúst, að sögn Sesselju, en þá
fór fyrst að bera á háu PAH-gildi í
ákveðnum vörumerkjum af jómfrúar-
olíu í rannsóknum. „Ef um er að ræða
kaldpressaða jómfrúarolíu á PAH,
sem myndast við bruna, ekki að vera
til staðar í olíunni.“
Í sænsku greininni segir eiturefna-
fræðingur Livsmedelverket í Svíþjóð
hugsanlegt að mengun í umhverfi
plantnanna sem notaðar voru við gerð
olíunnar orsaki of hátt PAH-gildi eða
að hratolíu hafi verið blandað saman
við framleiðsluna.
Allar tilkynningar
kannaðar
Í greininni kemur ennfremur fram
að stofnunin mælist til þess að þær ol-
íutegundir sem hafa PAH-gildi yfir
fimm samkvæmt rannsókninni verði
teknar úr hillum verslana.
Þar segir ennfremur að PAH sé
eitt skæðasta krabbameinsvaldandi
efni sem fyrirfinnist. En í þessu tilfelli
sé um svo lágt gildi að ræða að hættan
á krabbameini er mjög lítil.
„Ef við fáum tilkynningu um
hættulegar vörur innan Evrópska
efnahagssvæðisins könnum við hvort
viðkomandi vara sé á íslenskum
markaði,“ segir Sesselja.
Hún segir ennfremur að ekki fáist
innflutningsleyfi fyrir hvers kyns ol-
íum nema fullnægjandi gögn liggi fyr-
ir.
!
"
#
$
%
&
'
(
)
(
(
)
(
(
(
(
(
(
)
(
(
(
)
!
*
*
+ !
#
,
,
-
-
(
)
(
)
(
(
(
(
(
(
(
(
)
(
(
(
Krabbameinsvaldandi efni
finnast í algengum ólífuolíum
Strangt eftirlit
hér á landi, segir
Hollustuvernd
KARIN Herzog-vika verður í Lyfj-
um og heilsu vikuna 11.–18. febr-
úar. Vörur Karin Herzog verða þá
kynntar í verslunum Lyfja og heilsu
um allt land. Boðið verður upp á
20% afslátt af öllum vörum auk þess
sem kynningar og ráðgjöf verða í
mörgum apótekum Lyfja og heilsu,
bæði í Reykjavík og á Akureyri,
segir í fréttatilkynningu.
Lyf og
heilsa
kynna
heilsuvörur
KAUPFÉLAG Eyfirðinga svf.
hefur opnað nýja heimasíðu á
slóðinni www.kea.is en þessi
síða er að verulegu leyti frá-
brugðin eldri heimasíðu KEA
enda hefur félagið tekið miklum
breytingum á síðustu mánuðum.
Á síðunni er að finna ýmsar
upplýsingar um breytingar í
starfsemi félagsins og markmið
samvinnufélagsins. Fjallað er
um samstarfsverkefni sem
KEA svf. tekur þátt í svo og
Menningarsjóð KEA. Einnig er
á síðunni svonefnt umræðuhorn,
þar sem félagsmenn í KEA svf.
og aðrir geta sent inn fyrir-
spurnir eða ábendingar um eitt
og annað sem tengist KEA svf.
Þá er að finna á síðunni upplýs-
ingar um fjárfestingafélagið
Kaldbak hf., sem um síðustu
áramót tók við öllum eignum og
skuldbindingum Kaupfélags
Eyfirðinga svf.
Umsjón með vinnslu hinnar
nýju heimasíðu Kaupfélags Ey-
firðinga svf. hafði almanna-
tengslafyrirtækið Athygli ehf. á
Akureyri.
KEA opn-
ar nýja
heimasíðu
Golfkúlur 3 stk.
í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is