Morgunblaðið - 09.02.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.02.2002, Blaðsíða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 43 enda sífellt á þönum við að þjóna öðr- um. Að loknu námi í München flutt- umst við hjónin til Erlangen. Þor- björg heimsótti okkur þar, og við fengum tækifæri til að kynna henni fagurt umhverfi borgarinnar. Hún bauð okkur ásamt tveimur börnum okkar til Diessen og að búa hjá henni í sumarleyfi. Þar áttum við ógleym- anlega daga. Við ferðuðumst með henni um unaðsheim Alpahéraða og nutum náttúrunnar og menningar- verðmæta. Eftir að við fluttumst heim, áttum við þess kost að halda góðu sam- bandi okkar við Þorbjörgu og fjöl- skyldu hennar. Við komum í nokkur skipti til Diessen á þessum árum og heimsóttum hana á heimili Helga. Þorbjörg kom nálega árlega á sumr- um í heimsókn til ættjarðarinnar, og við áttum þess líka kost að fá að njóta samvista við hana hér heima á ýmsan hátt, bæði á heimilum okkar og æskuvinkonu hennar, frú Guðríð- ar Jónsdóttur frá Seglbúðum, þar sem hún bjó löngum í heimsóknum sínum. Við nutum þess einnig að fá vinkonurnar í heimsókn eða fara með okkur í smáferðalög. Þær voru glaðir og skemmtilegir ferðafélagar og höfðu frá mörgu að segja. Um þetta leyti fór Þorbjörg að tala um að sig langaði til að flytjast til baka til Íslands. Ættjörðin dró hug hennar til sín og togaðist á við löngun hennar að vera áfram í nánd sona sinna og fjölskyldna. Að lokum tók hún þá erfiðu ákvörðun að flytj- ast heim frá ástvinum sínum í Diess- en. Hér á landi átti hún einnig marga ættingja og vini, sem voru reiðubún- ir að rétta henni hjálparhönd og að- stoða hana við að koma sér fyrir á þann hátt, að henni liði sem best. Hún fluttist inn á hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhóla á Kirkjubæjarklaustri. Þar kom þjón- ustulund hjúkrunarkonunnar Þor- bjargar og fórnfýsi enn fram í því, að fyrstu árin aðstoðaði hún starfsfólkið við umönnun vistmanna og fór einnig með þeim í gönguferðir. Hún lagði sig fram við að koma veikri systur sinni á dvalarheimilið og eftirlét henni meira að segja herbergi sitt, svo að henni gæti liðið sem best en fluttist sjálf í minna herbergi. Þorbjörg var fróðleiksfús og las mikið meðan sjónin entist, en síðar fékk hún lánaðar hljóðbækur, sem hún hlustaði mikið á og sá um „sögu- stundir“ á dvalarheimilinu með því að leyfa öðru vistfólki að njóta þeirra með sér. Fyrstu árin eftir að Þorbjörg fluttist að Klaustri kom hún nokkr- um sinnum til Reykjavíkur, en við hjónin heimsóttum hana einnig fyrir austan. Við ókum saman um ná- grennið, m.a. að Heiðarseli, þar sem Þorbjörg gekk með okkur um grón- ar götur og rifjaði upp minningar frá fyrri árum, bæði frá Heiðarseli og ekki síður frá Eintúnahálsi, þar sem hún fæddist og ólst upp. Eitt sinn að sumarlagi fyrir mörgum árum dvöldumst við nokkra daga á Klaustri. Við vorum mikið með Þor- björgu þá. Hún lýsti æsku sinni, upp- vexti og hjúkrunarnámi hér á landi og í Danmörku. Enn fremur aðdrag- anda þess og ástæðu, að hún fór ung, nýgift kona með manni sínum til Þýskalands, skömmu fyrir stríð og bjó þar öll stríðsárin í litla þorpinu Diessen. Hún lýsti einnig lífinu í Þýskalandi á stríðsárunum, einkum þó á vettvangi fjölskyldunnar. Dr. Bruno var ekki áhangandi þess stjórnarfars, sem réð örlögum manna. Hann var vísindamaður og fræðimaður. Það var erfitt á þessum árum og ekki hættulaust að dylja skoðanir sínar svo, að ekki yrði eftir tekið, að þar færi ekki stuðnings- maður ógnarstjórnar og einræðis á stríðstíma. Síðustu ár fann Þorbjörg mjög fyrir því, að líkaminn var farinn að gefa sig, en andinn var óbugaður og skýr til síðasta dags. Hún fylgdist alla tíð vel með fjölskyldu sinni í Þýskalandi, vissi nákvæmlega hvar öll barnabörnin voru stödd í námi og starfi og naut þess að segja frá þeim. Fyrir fáum vikum hringdi Þor- björg og sagðist endilega vilja kveðja okkur, þetta færi nú að styttast hjá sér, sagði hún. Hún vildi þó ekki við- urkenna, að eitthvað sérstakt væri að. Hún sagðist ætla að hringja í þá, sem hún vildi kveðja, en var ekki viss um að það tækist. Hún bað okkur því að skila kveðju til þeirra vina, sem hún næði ekki til. Þeirri kveðju er hér með komið á framfæri. Þetta samtal var að öðru leyti ekki óvenjulegt. Hugsun Þorbjargar og frásagnargleði var söm og áður. Eft- ir þetta símtal töluðum við nokkrum sinnum við hana, í síðasta sinn fjór- um dögum fyrir andlát hennar. Hún var þá hress í bragði, spjallaði um heima og geima, en þó aðallega um fjölskylduna í Diessen. Við erum þakklát fyrir langa og trygga vináttu Þorbjargar. Blessuð sé minning hennar. Við vottum sonum hennar og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð. Bergur Jónsson og Ingunn Guðmundsdóttir. Þorbjörg var á 99. aldursári er hún lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjar- klaustri þar sem hún hafði dvalið síð- ustu æviárin. Hún var Skaftfellingur að ætt og uppruna. Hún lærði hjúkrun í Kaupmanna- höfn og útskrifaðist 1931. Að loknu framhaldsnámi starfaði hún á nokkr- um sjúkrahúsum í Danmörku og á Íslandi, lengst á Kleppsspítalanum til ársins 1938, er hún giftist Bruno Schweizer, þýskum málfræðingi, en þau höfðu kynnst er hann dvaldi hér á landi. Bruno var frá Diessen við Ammer- vatn í Suður-Bayern. Hann hafði ferðast mikið á Íslandi árin á undan og tekið ástfóstri við land og þjóð. Hann var mikill ljósmyndari og hafði tekið fjölda mynda af landslagi, bóndabæjum og fólki á ferðum sín- um hér á landi. Einnig átti hann nokkra íslenska hesta. Ég kynntist honum skömmu eftir að ég byrjaði verkfræðinám í München á miðju sumri 1937. Bauð hann mér stundum í reiðtúra. Eitt sinn fórum við í nokk- urra daga ferð á hestum suður undir Alpaflöll til þess að skoða pílagríma- kirkjuna í Wies. Hún er ein fegursta Barock-kirkja Þýskalands og tók Bruno þar margar myndir af fræg- um listaverkum. Eftir hjónavígsluna settust þau Þorbjörg og Bruno að í Detmold í Neðra-Saxlandi, þar sem hann var ráðinn til starfa í sínu fagi. Um páskana 1939 flutti ég til Berlínar en kom aftur til München um vorið 1941 að loknu fullnaðarprófi til að leita mér atvinnu. Þá voru þau Þorbjörg og Bruno flutt til Diessen, þar sem Bruno hafði nú vinnustofu sína og fékkst við rannsóknir á mállýskum í Bayern, Austurríki og Tyrol, en á því sviði var hann manna lærðastur. Þarna kynntist ég Þorbjörgu þegar ég kom í heimsókn til þeirra. Diess- en er smábær á vesturströnd Amm- er-vatns í um klukkustundar fjar- lægð frá München. Þar er mjög fallegt, baðströnd við vatnið og bær- inn umkringdur ökrum og skógum. Íbúarnir stunda ýmiskonar iðnað og þjónustu. Schweizer-ættin hefur rekið tinsmiðju mann fram af manni og eru þar m.a. framleiddir ýmiskon- ar listmunir. Diessenbúar eru fast- heldnir á gamla siði og seinteknir en traustir við nánari kynni. Þeir eru að sjálfsögðu kaþólskir og eiga eina af fegurstu kirkjum landsins. Þorbjörg kynntist nágrönnum sínum smám saman og var mjög vinsæl enda varð hún mörgum að liði bæði með kunn- áttu sinni og meðfæddri hjálpsemi og vinsemd. Samt held ég að hún hafi aldrei náð að festa rætur í sínum nýju heimkynnum – hugurinn var á heimaslóðum. Þorbjörg og Bruno eignuðust tvo syni, Helga f. 1939, sem er prófessor í heimspeki við háskólann í Inns- bruck í Austurríki og Gunnar f. 1942 sem er tinsmiður og hefur nú tekið við tinsmiðju forfeðranna. Þeir eru báðir búsettir í Diessen. Á stríðsárunum vorum við Sigurð- ur Sigurðsson efnafræðingur einu Íslendingarnir í München. Hann var að vinna að doktorsritgerð sinni um þessar mundir, en við vorum gamlir skólafélagar frá menntaskólaárun- um. Var það oft að annar hvor okkar eða báðir fóru í heimsókn til Diessen. Var okkur alltaf tekið eins og nánum ættingjum. Voru þetta sannir hátíð- isdagar og ómetanleg tilbreyting frá gráum hversdagsleikanum í stríðs- hrjáðri stórborginni. Það var eins og Þorbjörg réði yfir einhverjum töfra- mætti. Eftir því sem leið á stríðið varð minna um matvæli í landinu, í Diessen sem annars staðar, en Þor- björg gat alltaf töfrað fram dýrindis mat úr engu. Mér datt stundum í hug biblíusagan um Jesús þegar hann mettaði fimm þúsund manns með tveim fiskum og fimm brauðum. En svona var Þorbjörg í öllum hlutum. Hún sá um að okkur leiddist ekki. Það var farið í gönguferðir, bátsferð- ir út á vatnið eða í sund við bað- ströndina. Heimsóknirnar til Þor- bjargar og fjölskyldu hennar í Diessen voru okkur sem að koma í vin í eyðimörk og gleymast ekki. Í árslok 1945 komst Þorbjörg úr rústum og ráðleysi stríðslokanna í Þýskalandi heim til Íslands og tók upp sín fyrri störf á Kleppi. Mun hún til þess hafa notið aðstoðar starfs- systur sinnar og vinkonu úr heima- högum, heiðurskonunnar Guðríðar Jónsdóttur frá Seglbúðum, sem þá var forstöðukona á Kleppi. Synirnir fylgdu móður sinni hingað en Bruno kom nokkru síðar og dvaldi ekki lengi. Þorbjörg og synirnir fóru síð- an aftur út sumarið 1952, þegar farið var að rofa til í hinum suðlægu heim- kynnum þeirra. Bruno lést árið 1958. Þegar synirnir voru vaxnir úr grasi og búnir að stofna sín eigin heimili héldu Þorbjörgu engin bönd og flutti hún heim til Íslands árið 1987. Hefur hún síðan átt heima á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum. Mér og fjölskyldu minni var Þor- björg ævinlega sem náinn ættingi. Hún var góð kona og mörgum hjálp- arhella. Blessuð sé minning hennar. Jóhannes Zoëga.  Fleiri minningargreinar um Þor- björgu Jónsdóttur Schweizer bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. 6   1     1   &  " &"    *   *      %   8   %    %     /4 ;"!!$%&1I  +'&+&, 9& :$ +$%" & 9 $ !' ($ 9&  ;, $$ %" &  '7$ !' ($ ;"!3'+ ,&$ %" & !&:$ !' ($  $$2&!% @,&A" %" & & +  $$ !' ($ ; !; !%" & (<$<$, .%"!   1 "!   * *   &   " &" *           4  ;  ;"!3+&C  , &$% '$ $$ %" & ;$$47&:$ ($ !" $A" %" & &:$)7! %" & #  & $$ ($ (+&$%3 $$, 6   1   *% 1   &   " &"   *    %      %      %      - 4./ <"$% 3<2 5!' &, !$$ !' %" & $$4-"$ %" & $ %&  &  ($ 4$:  !( &-"$ ($ &:$#: %" & ;!!%"-"$ ($ 4$ 9! %" & !'-"$ %" &  &$%" ($ 9& 7$&$-"$ ($ 9& $ !' %" & <$<$(<$<$<$, .%  "  &     " &! *  *     8   %    %      4- # /    !$ !' %" & !' 4 &$ ($ 4* -"$ +"$ %" & $$9& $4 &$ %" &(+& &$ ($ @( &$$4 &$ ($ 4$$&$ %" & $% 4 &$ %" & $%&+& +3 $% ($ <$<$(<$<$<$, 0!  1     1   &    * " *      % %      %      ;    &! $%1  ,    1  8 *             + *   8 %   $&<#  <   +3 $%  $ %& ($ # !  <  #  &-"$ ($      +:$9(!< &$$;!% ;'$      &$$ $($&<# , MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, – eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.