Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 29

Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 29 Höfum til sölu verk gömlu meistaranna  Jóhannes Kjarval  Gunnlaug Scheving  Gunnlaug Blöndal  Þorvald Skúlason  Jón Stefánsson  Jón Engilberts  Nínu Tryggvadóttur  Júlíönu Sveinsdóttur Einnig verk eftir  Guðmund Einarsson  Kjartan Guðjónsson  Hafstein Austmann  Kristján Davíðsson  Valgarð Gunnarsson  Sigurbjörn Jónsson SMIÐJAN Innrömmun - Listhús Ármúla 36, sími 568 3890. Opið í dag, laugardag, frá kl. 14-17 Norrænar bókmenntir í brennidepli Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs býður upp á dagskrá með fyrirlestrum um norrænar samtímabókmenntir, upplestrum og umræðum í Norræna húsinu sunnudaginn 10. febrúar, kl. 14-17. Um er að ræða samstarfsverkefni Norræna hússins, norrænu sendikennarana við Háskóla Íslands og íslensku dómnefndarinnar. Mánudaginn 11. febrúar kl. 12 mun dómnefndin tilkynna hvaða höfundur hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. NORDBOK styrkir dagskrána. Nánari upplýsingar um dagskrána: www.nordice.is - Sími 551 7030 NORRÆNA HÚSIÐ POHJLAN TALO NORDENS HUS SNORRAVERKEFNIÐ hefur frá árinu 1998 verið samstarfsverkefni Norræna félagsins á Íslandi (NF) og Þjóðræknisfélags Íslendinga (ÞFÍ). Um er að ræða ungmennaskiptaverk- efni með því markmiði að styrkja tengsl 18 til 23 ára afkomenda Íslend- inga í Vesturheimi við Ísland. Verk- efnið er hugsað sem hvatning til ungra Vestur-Íslendinga um að varð- veita og rækta íslenskan menningar- og þjóðararf sinn, efla samskiptin við Ísland og Íslendinga og styrkja tengslin við önnur íslensk samfélög utan Íslands. Margir hafa lagt hönd á plóg „Verkefnið hefur tekist framar öll- um vonum,“ segir Almar Grímsson, einn af frumkvöðlum verkefnisins og stjórnarformaður Snorrasjóðs, en 44 ungmenni í Bandaríkjunum og Kan- ada af íslenskum ættum hafa tekið þátt í því; nítján sumarið 1999, þrett- án sumarið 2000 og tólf sumarið 2001, en gert er ráð fyrir fimmtán ung- mennum í sumar. „Við byrjuðum á þessu með ekki annað í farteskinu en reynsluna af ungmennaskiptum við Norðurlönd en í kjölfarið settum við á stofn ráðgjafarnefnd, sem mótaði verkefnið, en í henni voru Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, sendiherrarnir Einar Bene- diktsson og Ingvi S. Ingvarsson og Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri og for- seti íslenskudeildar Manitoba-há- skóla. Verkefnið var svo kynnt á fundi Íslensk-ameríska verslunar- ráðsins, Landafundanefndar og fleiri í Minneapolis í apríl 1998, fékk strax góðar viðtökur og í framhaldinu ákvað Landafundanefnd að styrkja verkefnið 1999. Það tókst mjög vel og árið eftir var haldið á sömu braut með rausnarlegu framlagi frá Íslenskri erfðagreiningu ehf. Verkefnið hefur nú hlotið opinbera viðurkenningu með framlagi á fjárlögum Alþingis 2002 sem tryggir áframhaldið. Samt þarf meira til. Þátttakendur greiða 40% af kostnaðinum en síðan þarf að brúa bilið með stuðningi fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.“ Ásta Sól Kristjánsdóttir hefur ver- ið verkefnisstjóri frá mars 2000 og segir Almar Grímsson að starf henn- ar hafi meðal annars skilað sér í öfl- ugum og góðum félagsanda þátttak- enda. Hann segir að þess beri að geta að margir hafi komið að verkefninu og stuðlað að framgangi þess. Auk fyrrnefndra segir hann að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafi sýnt verkefninu mikinn velvilja og tekið á móti hópunum. Davíð Oddsson forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og starfsmenn ráðuneyta þeirra hafi sýnt verkefninu eindreginn stuðning, Flugleiðir hafi veitt veglegan afslátt af flugfargjöldum fyrir þátttakendur og aðstandendur verkefnisins auk þess sem fleiri hafi lagt hönd á plóg. Vestra hafi sérstaklega verið gott samstarf við John Timothy Samson, stjórnarformann Canada-Iceland Foundation, aðalræðismenn Íslands í Winnipeg, Svavar Gestsson og Eið Guðnason, Neil Bardal, kjörræðis- mann Íslands í Gimli, Hjálmar W. Hannesson, sendiherra í Ottawa, Eric Stefanson, fyrrverandi fjár- málaráðherra Manitoba og formann Snorraverkefnisins í Vesturheimi, auk annarra. „Svona átak gengur ekki nema með stuðningi og velvilja margra, en við lítum á verkefnið sem mjög vænlegan kost til endurnýjunar á samskiptum þjóðanna, unga fólkið kemur fyrr til starfa í þeim samskipt- um með þessum hætti.“ Sex vikur á Íslandi og nemendasamtök stofnuð Verkefnið hefur m.a. verið kynnt á þjóðræknisþingum og verður sérstök kynning á þinginu í Minneapolis í apríl nk. Að sögn Almars Grímssonar er um að ræða sex vikna verkefni. Hann segir að fyrstu tvær vikurnar, í byrjun júní, séu krakkarnir saman í Reykjavík, þar sem þeir kynnist og þjappi sér saman. Á þessum tíma séu þeir í eins konar sumarskóla, þar sem þeir fái kennslu í m.a. íslensku og sögu Íslands, og heimsæki fyrirtæki og stofnanir. Að lokinni dvöl í Reykjavík taki við þriggja vikna tími úti á landi og sé reynt að haga því þannig til að þátttakendurnir séu sem næst heimkynnum forfeðranna. Þar sinni þeir sömu störfum og önnur ungmenni á viðkomandi svæði hjá sveitarfélögum eða fyrirtækjum. Sjötta vikan sé síðan notuð fyrir æv- intýraferð um landið og krakkarnir útskrifist síðan á Vesturfarasetrinu á Hofsósi, þar sem þeir dvelji í tvo daga. Almar Grímsson segir að verkefn- inu hafi verið mjög vel tekið innan- lands og í Vesturheimi og það hafi haft víðtæk áhrif á samskiptin og starf einstakra deilda Þjóðræknis- félagsins í Norður-Ameríku. Í því sambandi nefnir hann að Snorraverk- efnið sé víða orðið sterkur þáttur í starfinu og deildir stuðli að þátttöku ungmenna með hvatningu og beinum fjárframlögum. „Það hefur margt áunnist með þessu og í því sambandi má nefna að á liðnu ári var svo mikill eldhugur í þátttakendunum að þeir hittust í Gimli í Manitoba á Íslend- ingadaginn og stofnuðu eigin nem- endasamtök. Það sýnir hvað er mikill kraftur í þessu unga fólki.“ Snorraverkefnið á Íslandi hefur gengið mjög vel „Mikill kraftur í þessu unga fólki“ Morgunblaðið/Þorkell Almar Grímsson, stjórnarformaður Snorrasjóðsins, og Ásta Sól Krist- jánsdóttir, verkefnisstjóri Snorraverkefnisins á Íslandi. steg@mbl.is Þátttakendur í Snorraverkefninu í fyrra. Frá vinstri: Shawna Elizabeth Liles (Vancouver, Bresku Kólumbíu), Helgi Gunnar Thorvaldson (Edmont- on, Alberta), Sigrún Þóra McInnis (Árborg, Manitoba), Ívar Jonasson (Ár- borg, MB), Colleen Howard (Vernon, BC), Donald Cal Thorkelson (Lundar, MB), Tricia Signý McKay (Selkirk, MB), Gaïa Grace Willis (Edmonton, AB), Daniel Hallett (Edmonton, AB), Lilli Kerby (Rossland, BC), Julian Davis (Delta, BC) og Deirdre Sigrid Tesoro (Wilcox, Saskatchewan).  !"# $%$   Stjórn Snorrasjóðs 1999 til 2001 skilaði af sér skýrslu fyrir skömmu og lauk þar með störf- um. Steinþór Guðbjartsson ræddi við Almar Grímsson, formann sjóðsstjórnar, af því tilefni. SAMNORRÆN sýning ungra hönn- uða frá Norðurlöndunum, Young Nordic Design–- generation X, stend- ur nú yfir í galleríi hönnunarbrautar háskóla Quebecfylkis í Montreal, Centre de design de l’UQAM, í sam- vinnu við sendiráð Norðurlandanna í Ottawa. Um fimmtíu hönnuðir frá Dan- mörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð sýna verk sín á sýningunni. Fjölmenni var við opnunina á dög- unum, þar á meðal allir norrænu sendiherrarnir í Ottawa, en norrænu sendiráðin lögðu hönd á plóginn við undirbúning sýningarinnar. Sýningin stóð áður í Norræna húsinu í New York og standa vonir til að hún verði sett upp í Ottawa seinna á þessu ári. Af hálfu Íslands stóð Form Ísland að þátttökunni, en íslenskir þátttak- endur eru Ásmundur Hrafn Sturlu- son, Bergþóra Guðnadóttir, Guð- björg Kr. Ingvadóttir, Karólína Einarsdóttir, Lilja Björg Árnadóttir, Sesselja H. Guðmundsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir. Sýningin verður opin til 24. febr- úar nk. en í tengslum við hana er önnur og mun minni sýning í hlið- arsal við anddyri gallerísins. Þar gefur að líta afrakstur ferðar rúm- lega tuttugu nemenda í arkitektúr við UQAM til Íslands sl. sumar. Börkur Bergmann, prófessor við UQUAM, var fararstjóri og leiðbein- andi hópsins, en á sýningunni eru sýndir uppdrættir, hugmyndir, teikningar og ljósmyndir frá Ís- landsferðinni auk þess sem sér- stakur sýningarbæklingur liggur frammi. Börkur Bergmann prófessor og Hjálmar W. Hannesson sendiherra á sýn- ingunni með nokkrum nemendanna sem fóru til Íslands í fyrrasumar. Íslendingar með á norrænni sýningu í Montreal í Kanada

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.