Morgunblaðið - 09.02.2002, Qupperneq 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 41
✝ GuðmundurBjörnsson fædd-
ist á Akureyri 7.
október 1935. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 25. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Arnbjörg
Dómhildur Helga-
dóttir, f. á Hólum í
Laxárdal 28.2.
1898, d. 24.1. 1937,
og Björn Guð-
mundsson, f. í Dæli
í Fnjóskadal 28.9.
1903, d. 14.7. 1965. Eftirlifandi
kona Guðmundar
er Björg Kristjáns-
dóttir, f. á Akur-
eyri 8.4. 1940.
Börn Guðmundar
eru þrjú: Björn, f.
24.4. 1956, hann á
þrjú börn; Mar-
grét, f. 2.3. 1961,
maki Sveinn Árna-
son; og Aðalheiður,
f. 23.3. 1971, maki
Friðbjörn Baldurs-
son, þau eiga þrjú
börn.
Útför Guðmund-
ar fór fram frá Ak-
ureyri 8. febrúar.
Sem ljósbrot á lá
er lífsaldan hvik,
sem hyllingin há
er hamingjan kvik,
hve skjótt, er hún skín
við skýtjöldin blá,
öll dýrð hennar dvín
sem deplað sé brá.
Nú syngur þig heim
í heilaga ró
við hugljúfan hreim
in hljóðklökkva ló.
Sjá, lífröðull ljós
er liðinn að sæ,
og döggvast hver rós
og rökkvar í bæ.
(Guðm. Guðm.)
Fallinn er frá formaður Félags
verslunar- og skrifstofufólks á Ak-
ureyri, Guðmundur Björnsson.
Guðmundur hóf ungur að starfa
fyrir félagið og gegndi meðal ann-
ars starfi gjaldkera um tíu ára
skeið, eða allt til 1980. Sjúkrasjóður
félagsins var stofnaður árið 1979 og
var Guðmundur fyrsti stjórnarfor-
maður þess sjóðs. Fáir hafa betur
sótt hina ýmsu fundi í félaginu, sem
sýnir trygglyndi hans. Um árabil
annaðist hann endurskoðun á bók-
haldi félagsins. Árið 1999 var hann
kjörinn formaður FVSA. Kjara-
samningar voru um það leyti að
renna út og framundan erfitt tíma-
bil samningaviðræðna, sem Guð-
mundur tók þátt í fyrir hönd félags-
ins. Einnig átti hann sem fulltrúi
félagsins sæti í framkvæmdastjórn
Landssambands íslenskra verslun-
armanna.
Um áramót 2000 kenndi Guð-
mundur þess illvíga meins, sem að
lokum hafði sigur í baráttunni.
Meðan heilsa hans leyfði kom hann
daglega í heimsókn í vinnuna og
sagði það hressa sig til muna.
Við „heillirnar“ hans á skrifstof-
unni þökkum honum samveruna og
alla hans ljúfmennsku í starfi.
Að leiðarlokum þakkar félagið
áralangt samstarf og framlag hans í
þágu félagsmanna.
Vottum eiginkonu, börnum, svo
og öðrum ástvinum, dýpstu samúð
og biðjum Guð að styrkja ykkur.
Félag verslunar-
og skrifstofufólks,
Akureyri og nágrenni.
Guðmundur Björnsson, formaður
Félags verslunar- og skrifstofufólks
Akureyri, er látinn langt um aldur
fram. Guðmundur hafði starfað ára-
tugum saman innan Félags versl-
unar- og skrifstofufólks Akureyri
og þekkti því vel til verkalýðshreyf-
ingarinnar, þegar hann kom inn í
framkvæmdastjórn Landssam-
bands ísl. verzlunarmanna árið
1999. Hann var þá nýkjörinn for-
maður FVSA, heldur eldri en venja
er í stéttarfélögum, en snöggur í
hreyfingum og léttur í lund. Hann
kom að starfinu með opnum huga
og af miklum áhuga. Skömmu
seinna hófum við kjarasamninga-
gerð en þeim fylgja oft langar setur
og átök. Samninganefndir sitja oft
saman svo dögum eða vikum skiptir
í vinnu og bið, sem reynir mikið á
samvinnu og vináttu einstakling-
anna. Guðmundur var glaðvær mað-
ur og góðlátleg glettni hans kom sér
sérstaklega vel við þær aðstæður.
Honum tókst oft mitt í alvörunni að
kveikja hlátur og glaðværð, sem
létti starfið.
Á síðustu mánuðum hefur verið
ljóst að Guðmundur ætti við erfið
veikindi að stríða en hann gerði lítið
úr þeim og sótti fundi hvenær sem
hann gat. Hann bar sig ótrúlega vel
og gaf hvergi eftir.
Guðmundur var góður félagi og
samferðamaður og við þökkum hon-
um fyrir samstarfið og allt það óeig-
ingjarna starf, sem hann hefur unn-
ið fyrir íslenska verslunarmenn á
síðustu áratugum. Við hefðum kosið
að samfylgdin yrði mun lengri.
Eiginkonu hans, börnum og fjöl-
skyldu allri sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Landssamband ísl.
verzlunarmanna,
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir.
Við fráfall Guðmundar Björns-
sonar er mér bæði ljúft og skylt að
minnast hans í nokkrum orðum. Til-
efnið er samvera okkar og samstarf
í stjórn Ferðafélags Akureyrar árin
1986–1991, þar sem hann var for-
maður en ég ritari fyrst, síðar
gjaldkeri. Eðli máls samkvæmt leið-
ir formaður félaga sína í stjórninni,
markar stefnu hennar og felur þeim
verkefni. Á þessum árum voru um-
svif félagsins þó nokkur, einkum
tengd skálum þess og tjaldsvæðum
í Herðubreiðarlindum og við
Dyngjufjöll. Fyrrnefndi staðurinn
var á þessum árum vinsæll áfanga-
og gististaður ferðamanna og skil-
aði hlutfallslega mestum tekjum til
félagsins. Í mörg horn var að líta
um framkvæmdir svo að öll aðstaða
á þessum svæðum væri í sem bestu
horfi og komu endanlegar ákvarð-
anir í þeim efnum til kasta for-
mannsins þótt margir ötulir sjálf-
boðaliðar legðu þar hönd á plóg.
Guðmundur hafði þann hátt á að
hafa ekki uppi málalengingar held-
ur taka skjótt af skarið í hverju
máli og láta framkvæmdir fylgja
þar á eftir.
Dæmi um hvað í var ráðist og
mér er sérstaklega minnisstætt er
þegar lítið íbúðarhús var flutt í
heilu lagi héðan frá Akureyri inn í
Herðubreiðarlindir snemmsumars
1987 til þess að verða þar húsnæði
landvarðar og gæslumanns lind-
anna.
Mátti það teljast ótrúleg bjart-
sýni að setja húsið upp á stærsta
vörubíl sem völ var á og flytja það
undir háspennulínur og yfir úfið
hraun farsællega á leiðarenda. Þar
að auki var stór bílkrani í leiðangr-
inum til að hífa húsið á og af bíln-
um. Þýsk hjón urðu á vegi leiðang-
ursins, fylgdust með og tóku mikið
af myndum. Þau sögðu engan heima
fyrir trúa frásögn þeirra nema
myndir væru til sönnunar.
Fyrir 7 árum lét ég af öllum trún-
aðarstörfum hjá Ferðafélagi Akur-
eyrar og við það rofnaði að mestu
samband mitt við Guðmund. Mér
þóttu það ánægjuleg tíðindi þegar
ég nokkru seinna varð þess vísari
að hann var orðinn formaður Félags
verslunar- og skrifstofufólks hér á
Akureyri. Þótti mér það sæti þá vel
skipað. En því miður gerði hinn ill-
vígi sjúkdómur, krabbameinið, of
skjótan enda á starfi hans þar. Að
leiðarlokum vil ég þakka stundir
samstarfs og samveru með honum
og votta eiginkonu hans og börnum
innilega samúð mína.
Guðmundur Gunnarsson.
GUÐMUNDUR
BJÖRNSSON
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Erfisdrykkjur
Fóstbræðraheimilið
Langholtsvegi
Ný uppgerður veitingasalur
Upplýsingar í síma 861 4243 og 568 5206
4.
5
-/
!6$&
&$% 378
9"0(&
()!
*
! + *!
)) ),--
& !7 4$: ($ ;$$ &$<$ %" &
9& $ !$%!4$: %" & &&0 ($
-"2$$$&4$: ($ ; ! '7$ %" &
! & !$%!4$: ($
&!!%&3 %" &
(<$<$,
.% & *
*
%
=
-5/ &$$2 &3 3$$
'7 3& ' %!,
/ %
>+ $ ($ +<
%" &
!$<( $ %" &
& < $ %" &
5$ $%'+ ! +3 $% %" &
('6$% &$&,
-
/
'7$$ +<
" +&1?
"!
'*
(
"% * / ! )) ),--
$ %
! 0
1! )2 )3--
+:$-" 0 %" &
-"$&$ ($ +:$@( &$ %" &
:!&&$ ($
!'
!' %" &
@"&-,&$ ($ $$ $ %" &
$<(,&$ %" & .!' $& ($
-"2$$,&$ ($ 9& 7$ %" &
@( &$$&$ ($ $&<; &+ %" &
$$;!!%" %" &
(<$<$,
9#=4
+$&
+&
*! 4
!
)) )3--
&$A"# 3 $% ($ 4& +%" &
B! (
<$<$(<$<$<$,
-
;4=
# +&1C
() !
*
! 5
!
)) )((-
/%% +"$ ($ )& +"$ ($
+"$ %" &
!& +"$ ($ $$! ;,$ %" &
D ! +"$ ($ -"2$$
,+ %" &
"! & +"$ %" & -"2$$ ($
D !
$ 9& $
$
+:$ !%" &
<$<$(<$<$<$,
6 1 & " &7
"*
%
%
E4 E-
F; $&,
9 $@"&$ %" &
<$ $%<$(<$<$,